Þjóðviljinn - 09.10.1962, Síða 12
STRAVINSKY HITTIR FÚRTSÉVU
þlÓÐVILIINN
Þrið.iudagur 9. október 1962 — 27. árgangur
219. tölublað.
Jemen
BYLTINGARMENN
FASTIR í SESSI
k Myndin var tekin í Moskvu*
T*r fyrir fáiim diigum. þegar hið
~k fræga tónskáld frá Bandaríkj-
~k unum Igor Stravinsky heim-
★ sótti Jekatarínu Fúrtsévu,
k menntamálaráöherra Sovét-
~k ríkjanna. Ráðherrann sést
~k lengst til hægri á myndinni
~k ásamt Stravinsky og konu
~k hans.
Drengur slasast
illa á dráttarvél
Egi Isstöðum 8 10 — í gær kl.
4—5 varð dráttarvélarslys á
iFinnastöðum í Eiðahreppi EU-
«fu ára drengur, Axel Ágústs-
son frá Seyð sfirði. velti drátt-
arvél og slasaðist ilia, mun
liann hafa mjaðmargrindar-
Erotnað. Björn Pálsson flugmað-
ur sótti drenginn í gærkvöld til
Egilsstaða og flutti hann á
JLandspítalann í Reykjavík.
— Fréttaritari.
SANAA 8 10. Uppreisnar-
íncnnirnir í Jemen hafa boriö
sigur úr býtum en afdrif Múha-
meðs komings eru enn á huldu.
Frá þessu skýrir fréttar. Reut-
ers sem staddur cr í Sanaa.
Aðeins tvær efstu -hæðirnar í
konungshöllinni eru í rústum.
Er því ekki útilokað að konung-
urinn hafi komizt undan eins og
sumir hafa haldið fram. Upp-
reisnarmenn fullyrtu hinsvegar
Landliðínu tóksi að bjarga
lista gerðardómsmanna
„79 af stöíinni"
Ákveðið mun nú vera að
kvikmyndin „79 af stöðinni“
verði frumsýnd hér í Reykjavík
n.k. föstudag.
Um helgina fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla
um kjör fulltrúa Sjómannasambandsins á þing
ASÍ. Með því að smala öllu landliði sínu tókst
gerðardómsmönnum að halda fulltrúum Sjó-
mannasambandsins, og hlaut listi þeirra 637 at-
kvæði, en listi starfandi sjómanna hlaut 422 at-
kvæði.
Eins og Þjóðviljinn hefur áð-
ur skýrt frá beittu .gerðardóms-
menn öilúm brögðum til þess að
koma í veg fyrir að starfandi
sjómenn gætu neytt atkvæðis-
réttar sins, m.a. með því að láta
kosningai'nar ekki standa yfir
nema tvo daga, en flestir tog-
aramir eru t.d. á veiðum og
farskipin einnig fæst í höfn hér.
Kosningaþátttakan ber það með
sér, að fjölmargir sjómenn eru
fjarstaddir þegai' atkvæðagreiðsi-
an fer fram.
Það sem einkenndi kosning-
arr.ar í Sjómannafélagi Reykja-
víkur var hin geysilega smölun
gerðardómsmanna á öllu landliði
sínu. og má fullyrða að meira
en helmingur þess fylgis, sem
li-sti gerðardómsmanna fékk í
kosningunum eru atkvæði „lýð-
Tapið af veiðibanni LIU
5 milljónir kr. ó dag
Klíkan sem stjórnar Lands-
sambandi íslenzkra útvegs-
marsna lætur sér ekki leið-
ast að stöðva framleiðslu lands-
manna. í sumar var bátaflot-
inn stiiðvður vikum sSman,
meðan Norðmenn mokuðu upp
-Síld, vegna þess að LÍÚ batt
menn með fjárkúgunarvíxlum
til að taka þátt í kaupráns-
iierferðnni gegn s.iómönnum.
Krin leikur þessi klíka sama
leikinn. bindur flotann þótt
suðurlandsveiðar ættu að vera
iiafnar fyrir liingu. Segir Vísir
■ gær að tjónið af þessum
sökum nemi yfir l'imm millj-
ónum króna dag hvern.
Og tjónið er raunar langtum
stórfelldara. Framkvæmdastjóri
síldarútvegsneíndar hefur lýst,
- því að nýir og m.iiig mikilvægir
anarkaðir séu í hættu, og að i
keppinautar okkar muni ekki
verða lengi að leggja þá undir
sig.
LÍÚ-klíkan reynir að sjálf-
sögðu að kenna sjómönnum um
stöðvunina. En öll þjóðin veit
að útgerðarmenn eiga öll upp-
tök að þessari deilu með því
að bera fram kröfur um stór-
skert kjör siidveiðisjómanna.
Þessi staðreynd er þeim mun
. ljósari. sem samningar um
síldveiðikjör eru í fullu gildi
til 1. maí n.k. á nokkrum h’.uta
síldveiðifotans. Þeir bátar sem
þannig er ástatt um gætu allir
verið á veiðum, en LÍÚ-k’.íkan
hefur bannað útgerðarmönn-
um að veiða síld og stutt bann-
ið fjárkúgunarvíxium. Tilgang-
urinh er énn sem fyrr að
skerða kjör sjómanna.
Atferli LÍÚ-klíkunnar er
þjóðhættulegt og fjárkúgun
hennar varðar við lög. En
stjórn Landssambandsins fer
sínu i'ram í skjóli ríkisstjórn-
arinnar og í trausti þess að
hún eigi sér bandamenn með-
al trúnaðarmanna sjómanna-
samtakanna.
Sunnlendingar
unnu Keflvík-
ingc í skák 15:5
ræðissinnana" í landliðinu, sem
hafa það hlutverk að vernda
Jón Sigurðsson og kumpána fyrir
því að sjómenn fái sjálfir ráðiö
eigin málum. Er það gott dæmi
um „lýðræðið" í Sjómannaie-
lagi Reykjavikur, að eina „sjó-
mennskan", sem þetta lið stund-
ar, er að koma og greiða at-
kvæði með stjórninni, þegar því
er smalað á kjörstað.
En sú staðreynd er einnig aug-
ljós eftir þessar kosningar, að
.gei’öai'dórpsmej^n eru í miklum
minnihlula meðal sjómanna,
þrátt fyrir þann „sigur“, sem
þeim tókst að ná með æðisgeng-
inni smölun og stööugum neyðai'-
ópu.m til flokksmanna sinna um
hjálp í kosningunum.
Sjómenn hafa í þessum
kosningum undirstrikað mót-
mæli sín gegn gerðardómnum
og vcitt gerðardómsmönniun
slíka ráðningu, að þeir munu
tæpast þora að leggja á næst-
unni út í sams konar ævin-
týri. Að þessu sinni tókst
landliðinu að bjarga gerðar-
dómsmönnum, en sjómenn
munu ekki þola til lengdar
slíkar yfirtroðslur í samtök-
tun sínum.
Lýst eftir
tvítugum
Breta
Selfossi, f! 10.
S.l. sunnu-
dag fór frum skákkeppni í Hvera-
gerði milli Skáksambands Suöur-
lands og Keflvíkinga. Teflt var
á 20 boröum og sigráði Skák-
samband Suðurlands með 15
vrnningum gegn .5. j
Síðdegis í gær lýsti rannsókn-
arlögreglan eftir tvítugum
brezkum pilti, Geoi'ge Drake að
nafni, sem fór frá heimili sínu,
Álfheimum 21, um hádegi
mánudaginn 1. október án þess
að gera ráð fyrir fjarveru og
ekki hefur spurzt til síðan.
George Drake ta'ar íslenzku
sæmilega. Hann er lítill vexti,
dökkskolhærður og var klædd-
ur í gráleit jakkaíöt og livíta
skyrtu. er hann fór-að heirnan.
að konungurinn hefði grafizt
undir rústum hallarinnar.
Á hinn bóginn bendir allt til
þess að Abdullah Sallal og fylg-
ií-mönnum hans hafi heppnast
byltingin og að þjóðin styðji
hina nýju stjórn. Ber frétta-
mönnum saman um að iítið sé
Framhald á 3. síðu.
Er hreindýra-
veikin orma-
veiki?
VOPNAFIRÐI 8/10. Hrein-
dýraveikin virðist vera á
mjög alvarlegu stigi hér
um slóðir. í öðrum fjall-
göngum lóguðu gangna-
menn a.m.k. tveimur hrein-
dýrum. Vorú þaú mjög-
horuð og máttlítil. Gangna-
menn sáu fleiri dýr sem
þurí't hefði að aflífa. Hér
er enginn eftirlitsmaður
með hreindýrastofninum,
en mjög nauðsynlegt er að
koma á eftirliti á Vopna-
íjarðarheiðúm. Aftur á
móti er eftírlitsmaður á
Fljótsdalshéraði. Fróðir
menn hér fyrir austan
telja, að pest sú er hrjáir
hreindýrin, sé ormaveiki
Hausttíð hefur verið hér
góð. en sumarið getur
vnrla kal.lazt því nafni. Tií-
raunir voru gerðar í ár að
sá byggi á sjö stöðum í
Vopnafirði, en það náði
hvergi þroska. Samt sem
áður verður sennilega brot-
ið um 20 hektara land í
haust til kornræktar á
næsta sumri.
Sláturtíð stendur nú sem
hæst, en henni iýkur 25.
okt. Slátrað verður 18—20
þús. fjár.
Fréttaritari.
Þrjú slys í gær
og fyrradag
Kl. 13.47 í gær varð þriggja
ára drengur fyrir bifreið á
Hofsvaliagötu móts við Mela-
búðina. Drengurinn sem heitiir
Sigurður Björnsson var fluttur
í Slysavarðstofuna én meiðsli
hans munu ekki hafa verið al-
varleg.
Þá þarð það slys kl. 14.35 í
gær, að maður sem var að
vinna i Landsspítalanum nýja,
Karl Nielsen að naí'ni, féll á
milli hæða í húsinu. Meiddist
hann á höfði og var fluttur á
slysavarðstoi'una og síðan á
Landakotsspítaia.
Á sunnudag varð það slys að
Goðhe'mum 9 að maður að
nat'ni Tryggvi Gíslason íéH' þar
aí' v'.nnupalli óg meiddist á
mjööm. Var hann í'luttur i
slysavai ðstofuna.