Þjóðviljinn - 06.08.1964, Blaðsíða 2
oll>A
HÖÐVIUINN
Flmmtudagur 6. ágúst 1964
Ályktun miðnefndar Samtaka hernámsandstæðinga í
tilefni forsetaframboðs BARRY GOLDWATERS
Forsetakosningar í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku hafa
löngum þótt tíðindum sæta,
þar éð forsetaembættinu þar
fylgja mikil völd, val ráðherra
skipun embættismanna í fjöl-
margar mikilvægar stöður. úr-
slitaáhrif 'um mótun stefnunn-
ar jafnt í innanlands- sem ut-
anríkismálum. Því öflugri og
atkvæðameiri sem Bandaríkin
hafa orðið á alþjóðavettvangi,
þeim mun meiri tíðindum sæt-
ir stjómmálaþróunin i landinu.
Og á kjarnorkuöld, þegar
Bandaríkin eru annað mesta
herveldi heims og flestum
löndum áhrifaríkara á sviði al-
þjóðamála, er þaráttunni um
forsetakjör þar veitt óskipt at-
hygli heimshornanna á milli.
Mönnum er ljóst,' að valda-
----------------------------------
'm ira !???k]örln í >pka
alhýöulýðveldinu
Ég hef orðið þess var, að
grein mín þann 12. júlí um
lífskjör á Islandi og í Þýzka
alþýðulýðveldinu hefur vakið
undrun margra. Þeir héldu. að
velmegun væri hér stórum
meiri en þar eystra. Þannig
var það að vísu fyrir 10 árurh.
og þá báru meira að segja
margir Austur-Þjóðverjar
merki skortsins. Og fyrir 6—7
árum, meðan vinstri stjómin
sæla var hér við völd, var
fjárhagsafkoma Islendinga
ennþá mun betri. En nú er
öldin önnur, og forskot Þjóð-
verjanna heldur áfram að
aukast.
Síðustu atburðir hér á Is-
landi sýna þetta ljóslega. Ég
áætlaði um daginn, að fjögra
manna íslenzk fjölskylda yrði
að hafa rúmlega 162 þúsund
króna árstekiur til þess að geta
veitt sér iafn mikið og jafn-
stór þýzk fjölskylda með 120
búsund króna árstekjur (rúm
900 mörk á mánuði). en það
reiknast mér meðaltal þar í
íárí'ái. án allrar yfirvinnu.
En í þessari áætlun var mið-
að við, að samanlagðir skaftar
íslenzku fjölsteyldunnar væru
aðeins 20 þúsund. Þeir sem
staðið hafa í biðröðum r gam’a
Iðnskólahúsinu síðustu daga til
að frétta um skatta sína. jjeta
bprið, að þessi áætlim stenzt
ekki. Skattaliðinn islenzka
verður að hækka, sennilega í
30 þúsund eða meira, og þar
með þurfa árstekjurnar að
komast upp í allt að 175 þús-
und til þess að veita jafn góð
kjör og austurþýzka fjölskyld-
an hefur. Svona ör er þróunin,
að samanburðurinn á þessum
tveim þjóðum verður úreltur
áður en ‘mánuðurinn er liðinn.
1 leiðinni ætla ég að bæta
úr dálitlum glöpum í fyrri
grein minni. Verð á reiðhióhim
og skjalatöskum snerist við í
prentuninni eins og glöggir les-
endur munu hafa getað ráðið
í Og fargiöld í Vestur-Berlín
voru sögð hærri en rétt er eða
krónur 8 80. Þau eru nú kr.
4.40 með , neðaniarðarlestum
og sporvögnum. en 5.50 mpð
strætisvögnum, miðað við að
11 krónur séu í markinu í V-
Þýzkalandi eins og ég reiknaði
með í Austur-Þýzkalandi. Að
vísu telja Vestur-Þióðverj ar,• að
tvö austurþýzk mörk þurfi á
móti einu vesturþýzku. oe
samkvæmt því yrðu bessar töl-
ur 8.80 og 11.00. Slíkum út-
reikningi er þó ekki vert að
taka mikið mark á. Þetta at-
riði §kiptir að vísu engu máli
í þeim samanburði á afkomu
íslendinga og Austur-Þjóðver.ia
sem ég gerði, en þó er sjálf-
sagt að hafa hér heldur það
sem sannara revnist.
, Páll Bergþór*son
Þeir
græða á sköttunum
Þegar skattar á auðfélög-
um og gróðamönnum voru
lækkaðir stórlega 'v fyrir
nokkrum árum, var sú ráð-
stöfun m.a. rökstudd með því
að hún myndi hamla gegn
skattsvikum. Morgunblaðið
og Alþýðuþlaðið héldu því
fram að þegar stjómarvöldin
ávörpuðu fjárplógsmenn af
sanngirtii mynd,u þeir svara
með heiðarleik. En eins og
vænta mátti hefur þessi til-
raun til þess að siðvæða
fiárplógsmenn engan árangur
borið Engum þeim sem
blaðar í ska,ttskránni getur
dulizt að- skattsvik eru nú
ósvífnari og stórfelldari en
nokkru sinni fyrr: fiölmargir
atvinnurekendur sem lifa í
vellvstingum praktuglega og
neita sér ekki.um neitt greiða
lægri gjöld en verkamennim-
ir sem verða að leggia á sig
tvöfaldan vinnudag til þess
að komast af
En með þessu er sagan að-
eins hálfsögð Ekvj aðeins eru
islenzkir fjárafiametm af-
kastamiklir skattsvikarar,
heldur eru þeir og skatt-
heimtumenn ríkisins. Þeim er
falið að innheimta söluskatt-
inn sem er nú orðinn drýgsta
tekjulind ríkissjóðs. En um
leið og þeir falsa framtöl sín
til skatts og segja raiigt til
um starfsemi fyrirtækja
sinna, eru þeir að stinga
hluta af söluskattinum i eig-
in yasa. Sú upphæð af sölu-
skatti sem fyrirtækin skila
rikinu verður að vera í sam-
ræmi við framtalið að öðru
leyti, og þegar fjárplógsmenn
lýsa sér á framtalseyðublöð-
unum sem blásnauðum vesal-
ingum verða þeir einnig að
halda þyí fram að þeir ha.fi
aðeins veitt viðtöku sáralitl-
um söluskatti.
Þannig er því ekki aðeins
svo háttað að fjárplógsmenn
losni við réttmæt gjöld og
velti þeim yfir á launþega,
heldur hirða þeir og umtals-
verðan hluta af söluskatti
þeim sem neytendur greiða
i hvert skipti sem þeir kaupa
einhverja nauðsyn. Fyrir þá
er skattheimta rikisins ekki
baggi, heldur gróðalind
Ausrtrl.
mesti maður þessa stóra veldis
ber flestum einstaklingum
meiri ábyrgð á framvindu mála,
stefna hans getur skipt sköp-
um fyrir gjörvallt mannkyn.
Þau lönd. sem veitt hafa
Bandaríkjunum aðstöðu til
hersetu og gerðar hernaðar-
mannvirkja innan sinna vé-
banda, eiga hér öðrum meira
í húfi. Þeim ber skylda til að
fylgiast sem gerst með þróun
bandarískra stjórnmála og
draga af henni rökréttár á-
lyktanir.
Tilnefning Barry Goldwaters
öldungadeildarþingmanns sem
forsetaefnis republikana við
kosningamar í haust, hlýtur
að hafa afdrifaríkar afleiðingar
að hafa afdrifarík áhrif á
bandarisk stjórnmál í náinni
framtíð. Sú staðreynd ein, að
stjómmálamaður með slíka
stefnu hefur með yfirgnæfandi
fylgi verið valinn forsetaefni
annars langstærsta flokks bjóð-
arinnar. talar skýiu máli um
það. sem í vændum getur ver-
ið. Er þegar l.ióst. að Goldwat-
er og stuðningsmenn hans slá
á ýmsa strengi, sem finna ótrú-
lega mikinn hljómgrunn með-
al Bandaríkjaþegna. Reynslan
sannar. að múgæsingamenn
geta' með tilstyrk auðmagns, í
krafti nútimaáróðurstækja og
með notkun einfaldra slagorða.
náð furðulegum árangri í
kosningabaráttu. Verður því að
teliast ful'komið ábyrgðarleysi
að loka augunum fyrir því,
að Goldwater geti sigrað við
forsetakjöríð i haust og öðl-
azt þannig aðstöðu til að fram-
fylgja stefnu sinni.
Á sviði innanlandsmála fylg-
ir Goldwater hinni römmustu
afturhaldsstefnu. Hann snérist
öndverður gegn því að repu-
blikanafíokkurinn léti í Ijós
vanböknun á hinum illræmda^
leynifélagsskap Ku-KIux-Klan
og samtökum ofbeldissinnaðra
öfgamanna, sem kennd eru við
■Tohn Birch. Á þingi greiddi
hann atkvæði gegn löggjöfinni
um aukið iafnrétti kynþátt-
anna. Hann hefur barizt gegn
bvi'. að Bandaríkin legðu fram
fé til þess að draga úr at-
vinnuleysi í landinu. Hann
krefst þess, að miklar hömlur
séu lagðar á starfjæmi verka-
lýðsfélaga. en vill að auðhring-
ar njóti óskoraðs athafnafrels-
is.
Stefna Goldwaters í utan-
rikismálum einkennist af slíku
ofstæki, að framkvæmd hennar
myndi steypa bjóðum heims
fram á hensiflug kjarnorku-
styrialdar. Goldwater vÖl, að
Bandaríkin segi sig úr sam-
tökum Sameihuðu þjóðanna.
Hann hefur lagt til, að þau
slíti stjómmálasambandi Við
Sovétrikin. Hann vill. að ein-
stakir hershöfðingjar í Banda-
rikjaher fái vald til þess að á-
KKYDDRASPIÐ
kveða, hvenær kjamorkuvopn-
um skuli beitt. Hann vill, að
Bandaríkin beiti kjarnorku-
vopnum i sambandi við styrj-
öldina í Vietnam Hann telur
sjálfsagt, að Bandaríkin við-
urkenni útlagastjóm Kúbu-
manna og efli hana til inn-
rásar á Kúbu og styrjaldar um
yfirráð þar.
öll dagblöðin á Islandi hafa
varað við afleiðingum af fram-
boði Goldwaters. Alþýðublaðið
hefur bent á. að Goldwater
hafi „lagzt gegn nær öllum
veigamestu þjóðfélagsumbót-
um. sem Bandaríkjamepn hafa.
komið á hjá sér’,’ og yrði það
„áreiðanlega ekki til góðs fyr-
ir sambúð Bandaríkjanna við
önnur lönd, að Goldwater ynni
forsetakjör.” Morgunblaðið seg-^
ir, að sigur Goldwaters hafi
valdið ,.kvíða og áhyggjum
meðal Evrópuþjóða” og geti
haft „uggvænleg áhrif á fram-
itíðarbróun stjórnmála í vold-
ugasta lýðræðisríki heims.-’
Tíminn segir, að tilnefning
Goldwaters’ sé ,,sönnun þess
hvemig spilltustu öfgaöfl hafi.
náð lagt út fyrir Bandaríkin”.
Viáir segir, að Barry Goldwat-
er sé „lýðæsingamaður", „póli-
tískt nátttröll” ,og ..stjórnmála-
maður sem virðist halda, að
atómsprengjur séu leikföng, en
ekki risavaxin tortímingar-
tæki“; n.æði hann kjöri. yrði
hann ..valdamesti maður Atl-
anzhafsbandalagsins. maður
sem tekur ákvarðanir um hvort
kalda stríðið hættir að vera
kalt og verður heitt.” Þjóð-
viljinn bendir á,‘ að. nái Gold-
water marki sínu yrðu „einn-
ig herstöðvarnar á Islandi ....
tæki í hendi þess manns. sem
hefur tilkynnt, að hann vilji
beita vopnavaldi til þess að á-
kveða þjóðskipulag allra ríkja
á hnettinum.” Á hliðstæðan
hátt hafa ábyrg blöð og stjóm-
málamenn víðs vegar um heim
látið í ljós ótta við þá þróun
mála, sem af kjöri Goldwaters
hlyti að leiða. Kennslumála-
ráðherra Danmerkur hefur lýst
því yfir, að verði stefna Gold-
waters ráðandi í bandarískum
utanríkismálum, hljóti Danir
að taka úrsögn úr Atlanzhafs-
bandalaginu til alvarlegrar at-
hugunar.
Við lslendingar_ erum ekki
einungis aðilar að Atlanzhafs-
bandalagi, heldur bundnir
samningi um bandarískan her
og herstöðvar á íslenzkri
grund. Hin nýju og háskalegu
viðhorf í stjórnmálum Banda-
ríkjamanna hljóta því að verða
til þess. að við tökum afstöðu
okkar í þeim málum til gagn-
gerðrar endurskoðunar. Sú
staðreynd, að herstöðvar á Is-
landi geta innan hálfs árs kom-
izt undir yfirstjóm manns, sem
telur notkun kjamorkuvopna
sjálfsagða og óumflýjanlega,
ætti að vera okkur næg við-
vörun. Samtök hernámsand-
stæðinga skora því á íslenzku
þjóðina og forustumenn henn-
■ar að draga rökréttar ályktanir
af framangreindum staðreynd-
um. Telja samtökin brýnna en
nokkru sinni fyrr. að herstöðv-
arsamningnum við Bandáríkin
sé sagt upp og" herinn hverfi
úr landi svo fljótt sem verða
má, og tslendingar taki upp ó-
háða utanríkisstefnu.
Stúdentar erlendis
Almennur sambandsfundur Sambands íslenzkra stúd-
enta erlendis verður haldinn í fþöku við Menntaskól-
ann föstudaginn 7. ágúst kl. 20,00.
Stjórnin.
m sölu
íbúðarjarðhæð við Glaðheima. Félagsmenn sem vilja
nota forkaupsrétt að íbúðinni snúi sér til skrifstofunn-
ar að Hverfisgötu 39 fyrir 9. ágúst.
B. S. S. R.
Sími 23873.
SMIDUM
Þeir sem byggja hús eða kaupa ibúðir i
smíðum er skylt að brunatryggja og Ieggja
fram vottorð til lánastofnana.
Samvinnutryggingar bjóða víðtæka trygg-
ingu vegna slíkra framkvæmda með hag-
kvæmustu kjörum. Tekjuafgangur hefur num-
ið 10% undanfarin ár.
Tryggið þar.sem hagkvæmast er.
FÆST í NÆSTU
BÚÐ
SAMVIIVNUTRYGGINGAR
sfmi 20500
i