Þjóðviljinn - 15.06.1974, Síða 1
Rœtt við Guðjón
Jónsson form.
Málm- og skipa
smiðasambandsins
Furðulegt
að Björn
hafði
ekki
samráð
1 framhaldi af þeirri frétt
sem Þjóðviljinn birti i gær um
breytingu á reglugerð um or-
lofsgreiðslur sem Björn Jóns-
son félagsmálaráðherra gerði
þann 1. febr. sl. sneri biaðið
sér til Guðjóns Jónssonar for-
manns Málm- og skipasmiða-
sambandsins. Hann sagði
m.a.:
„Ég tel það furðulegt að
Björn Jónsson skuli án sam-
ráðs við fulltrúa verkalýðs-
samtakanna ákveða slika
breytingu á reglugerðinni.
Hann gefur út þessa breyt-
ingu þann 1. febr. sl. á
sama tima og hann er með
annan fótinn i samningavið-
ræðunum um kaup og kjör
sem undirritaðir voru þann 27.
febr. Hann minnist þá ekki á
þetta við nokkurn mann, og
maður með hans starfsreynslu
innan verkalýðshreyfingar-
innar veit vel hvaða ákvæði
hafa gilt og að ýmis félög voru
þá að semja og undirrita
kjarasamninga þar sem hug-
takið fastráðinn starfsmaður
telst vera maður með eins
mánaðar uppsagnarfrest. All-
ir aðilar vinnumakaðarins
gerðu samninga með það i
huga að ákvæði reglugerðar-
innar væru óbreytt. Þegar við
svo biðjum um reglugerðina
nú um daginn þá kemur þetta i
ljós, og þetta kemur jafn flatt
upp á báða aðila i málmiðnað-
inum bæði atvinnurekendur og
málmiðnaðarmenn. Við vor-
um á fundi með atvinnurek-
endum i morgun, og þar lýstu
þeir þvi yfir að fyrst um sinn
myndu þeir greiða orlof i sam-
ræmi við okkar venjur og
samninga, þ.e., að fastur
starfsmaður teljist sá sem
hefur eins mánaðar uppsagn-
arfrest. Þvi verður ekki um
neinar sérstakar aðgerðir eða
mótmælabref af okkar hálfu i
þessu máli að sinni. Hins veg-
ar skil ég ekki hvað félags-
málaráðherra Birni Jónssyni
gekk til með þessu, það er mér
algerlega óskiljanlegt og það
mun vist hafa komið fleirum á
óvart”.
Tölvuskráin sem VL-menn vildu leyna:
NÝTIST ÍHALDINU
í KOSNINGUM
VL-menn þola illa sannleikann og hóta málshöfðun
gegn þeim sem tala — sjálfir kjósa þeir þögnina
Tölvuskráin sem hinn
samansvarni hópur, VL-13,
gerði um undirskrifendur
að ávarpi „Varins lands"
hefur ekki komið opinber-
lega fram í dagsljósið, en
tilvist hennar er staðreynd.
Hún var notuð í sveitar-
stjórnarkosningunum 26.
maí sl., og það er verið að
beita henni í þessum mán-
uði.
Tölvuskráin er i vörslu hund-
tryggra sjálfstæðismanna,
manna eins og Þórs Vilhjálms-
sonar, Ragnars Ingimarssonar,
Þorsteins Sæmundssonar,
Þorvaldar Búaáonar og Harðar
Einarssonar, og þeir hafa afhent
Fulltrúar ihalds og framsóknar sem myndað hafa helmingaskiptastjórn i Kópavogi. Frá hægri: Sigurð-
ur Helgason (D) forseti bæjarstjórnar, Magnús Bjarnfreðsson Jóhann H. Jónsson (báðir frá Fram-
sókn), Axel Jónsson (D) Richard Björgvinsson (D) og Stefnir Helgason (D).
Framsókn í Kópavogi
valdi íhaldssamvinnu!
Bæjarfulltrúar Framsóknar
reyndust peð i höndum aftur-
haldskliku Jóns Skaftasonar og
nokkurra braskara sem telja
hagsmunum sinum best borgið i
samstarfi við ihaldið. Bæjarfull-
trúi frjálslyndra vinstrimanna
rauf I-lista samstarfið við Fram-
sókn og neitaði ihaldssamvinnu,
enda hafði tekist málefnasam-
staða milli fulltrúa I-listans og
Alþýðubandalagsins.
1 gær var haldinn fyrsti fundur
nýkjörinnar bæjarstjórnar i
Kópavogi. Þar tóku höndum sam-
an fulltrúar Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokksins sex að tölu og
mynduðu meirihluta, en I and-
stöðu eru þrir fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins, einn krati og Sigur-
jón Ingi Hillariusson fulltrúi SFV.
í DAG
Postuli
neikvœðisins
„Það er ekkert, sem
stjórnin hefur gert, sem
hún ekki lofaði að gera
ekki. Þeir, sem gera það
helst, sem þeir lofa að gera
ekki, eru ekki traustsins
verðugir".
Hver mælir svo spaklega
og hnitmiðað? Sjá greinina
„Ó, hann Jóhann" á 13.
siðu.
Fyrir fundinn höfðu I nokkra
daga staðiö viöræður milli flokka
um samstarf. 1 haldið haföi boðiö
I-lista Framsóknar og Samtak-
anna upp á samstarf eins og var
fyrir kosningar. Alþýðubandalag-
ið hafði einnig boðið I-listanum
samstarf, og á viöræðufundum
hafði náðst málefnaleg samstaða
um eftirfarandi yfirlýsingu:
„Við undirritaöir bæjarfulltrú-
Framhald á bls. 13
Þór Vilhjálmsson prófessor,
kunnáttumaður i þeim fræðum er
lúta að vernd á einkahögum
manna, sérhæfður i þvi hvernig
farið er i kringum þá varnarmúra
með tölvusetningu persónulegra
upplýsinga.
kosningaskrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins útskriftir og aðra vél-
unna lista upp úr henni. 1 gegnum
starfsmann NATOs á íslandi,
Magnús Þórðarson — öðru nafni
„húsmóðirln” i Velvakandadálk-
unum — hefur bandariska sendi-
ráðið og upplýsingaþjónusta þess
aðgang að tölvuskránni.
Vel má vera að prófessor Þór
Vilhjálmsson, sérfræðingur i þvi
hvernig fara á i kringum anda
laganna að þvi er varðar vernd á
einkahögum manna, hafi stungið
eintaki af tölvuspólunni sjálfri að
vinum sinum og vandamönnum i
forystu Sjálfstæðisflokksins, svo
að þeir geti að vild tekið afrit af
tölvuskránni og véltengt hana
öðrum persónuskrám flokksins.
Þjóðviljinn hefur ekki sannanir
um, hvort svo er.
Á mann eins og prófessor Þór
Vilhjálmsson má öllu trúa. Em-
bættishlutverk hans er að fræða
um lög og rétt byggjandi á
stjórnarskrá lýðveldisins íslands.
Einn af hornsteinum hennar er
réttur hvers einstaklings — og
krafa — til verndar á einkahögum
sinum. Prófessorinn þessi tekur
virkan þátt i þvi að brjóta niður
Framhald á bls. 13
Aflaverðmœti skuttogaranna upp úr sjó á þessu ári:
Þrir miljarðar
Hagrannsdknardeild Frain-
kvæindastofnnnar rikisins
hefur gert áætlun um afla-
verðmæti skuttogaranna
uppúr sjó á þessu ári, og kem-
ur i ljós að það vcrður um 3
miljarðar króna. Þessi afli
fullunninn mun vera að verð-
mæti um 5 miljarðar króna
eða nær 25% af heildarút-
flutningsverðmæti sjávar-
afurða.
Taliö er að um 100 manns
þurfi á bak við hvern skut-
togara, þ.e. áhöfn og land-
verkafólk, sem þýðir að 2500
manns vinnur að þessari verð-
mætasköpun. Það er þvi
ástæða til aö spyrja hvaða
vinnu hefði þetta fólk, ef
vinstri stjórnin heföi ekki
keypt skuttogarana til lands-
ins? Þeir væru sjálfsagt ekki I
vinnuaflsskorti hjá Kockums i
Sviþjóð eða i Astraliu ef
vinstri stjórnin hefði farið
sömu leið og „viðreisnar-
stjórnin”.
Áætlun framkvæmda-
stofnunarinnar er miðuð við
fiskverð eins og þaö er i dag,
og inni i dæminu er sá afli
skuttogaranna sem þeir landa
erlendis, og -er þá búiö að
draga frá allan kostnað svo
sem tolla, löndunarkostnað og
önnur útgjöld. 1 áætluninni er
gert ráð fyrir aö verðmæti afl-
ans skiptist þannig, að um 600
miljónir séu fyrir sölur er-
lendis, en 2400 miljónir fyrir
afla landaðan heima.
Ekki hefur Framkvæmda-
stofnunin gert neina áætlun
um hve mikils virði þessi afli
er fullunninn, en fróðir menn
telja að óhætt sé að margfalda
verðmæti hans upp úr sjó með
tveimur, og sé það vægt
reiknað. Þá verður útkoman
sú að skuttogararnir skili af
sér verðmætum sem nemi um
5 miljörðum kr. eða um það bil
25% af verðmætum útfluttra
sjávarafurða okkar.
A þessu sést glöggt hvers
virði það hefur verið þjóðar-
búinu að vinstri stjórnin skuli
hafa keypt þessa skuttogara
til landsins, fyrir svo utan það
hvað þeir skapa mörgu fólki
atvinnu og þá frekast á þeim
stöðum þar sem rikti algert
atvinnuleysi I tið „viðreisnar-
stjórnari’nnar”.
—S.dór
*