Þjóðviljinn - 05.07.1974, Blaðsíða 1
Föstudagur 5. júll 1974 — 39. árg. —115. tbl.
APOTEK
OPID ÖLL KVÖLD TIL KL. 7,
| NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2,
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
ÞÁÐBORGAR SIG
AÐ VERZLA f KRON
k ' 'M
Alþýðubandalagið skrifar Framsókn og Samtökunum bréf:
Núverandi stjórnarflokkar
snúi sér til Alþýðuflokksins
Olafi Jóhannessyni
verði falið að gera tilraun
til stjórnarmyndunar
Alþýðubandalagið
hvetur til myndunar
nýrrar vinstri stjórnar og
að leitað verði eftir
þátttöku Alþýöuf lokksins i
slíkri stjorn. Ragnar
Arnalds lagði til við for-
seta Islands að ólafi
Jóhannessyni yrði falið að
gera tilraun til stjórnar-
myndunar. Fréttir af
fundum Framsóknar-
flokksins og Alþýðu-
flokksins benda til að þar
sé mikill vilji tii að gera
tilraun til myndunar
vinstri stjórnar.
1 gær skýrði Þjóðviljinn frá
bréfi þvi sem framkvæmdastjórn
og þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins sendi Alþýðuflokknum.
Er Ragnar Arnalds hafði gengið á
fund forseta íslands i fyrradag,
þá sendi hann fyrir hönd sömu
aðila bréf til formanns Fram-
sóknarflokksins og formanhs
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna. Bréfið er svohljóðandi:
„Eins og kunnugt er var það
niðurstaðan i nýafstöðnum
kosningum til Alþingis, aö stjórn-
málaflokkarnir, sem standa að
Á ekki að
skrifa annál
þióðhátíðar
1974?
núverandi rikisstjórn . fengu
helming þingsæta án þess þó að fá
starfhæfan meiri hluta á Alþingi.
Meö hliðsjón af þessum úrslitum
er það tillaga Alþýðubandalags-
ins, að núverandi stjórnarflokkar
snúi sér til Alþýðuflokksins og
fari fram á viðræður flokkanna
um myndun nýrrar rikisstjórnar,
og i samræmi við þetta stjónar-
mið hefur Alþýðubandalagið lagt
til við forseta tslands, dr.
Kristján Eldjárn, að formanni
Framsóknarflokksins verði falið
að gera tilraun til stjórnarmynd-
unar. Jafnframt hefur Alþýðu-
bandalagið ritað flokksstjórn
Alþýðuflokksins bréf og óskað
eftir sérstökum viðræðum
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins um þá stöðu, sem nú er
komin upp i islenskum stjórn-
málum.”
Þær fréttir sem heyrst hafa af
fundi þingflokks Framsóknar-
flokksins eru þær helstar að þar
hafi verið almennt viðhorf manna
að gera skyldi tilraun til mynd-
unar nýrrar vinstri stjórnar.
Þessi fundur var haldinn I fyrra-
dag.
Þjóðviljinn skýrði frá þvi i gær
að gerð hefði verið samþykkt um
þátttöku I vinstri stjórn á flokks-
stjórnarfundi Alþýðuflokksins.
Það rétta mun vera að ekki var
gerð nein samþykkt á fundinum
en það viðhorf var yfirgnæfandi
hjá fundarmönnum sem tóku til
máls að eðlilegt væri að flokkur-
inn kannaði möguleika á aðild að
vinstri stjórn.
Gert er ráð fyrir að forseti
tilkynni i dag, hverjum hann felur
fyrstað gera tilraun til myndunar
stjórnar.
Á ÍSLANDIER:
í gegnum réttarvegginn
Kvöldsólin á Mývatni, þar sem þessi mynd er tekin, er falleg eins og
annars staðar og geislar hennar hafa löngum haft lag á að smeygja sér
viða. Þessi mynd er tekin I gegnum litið gat á gömlum og fallegum
| réttarvegg, sem lengi gerði sitt gagn og gerir raunar enn.
Markaður fyrir 500
þúsund fiskkassa
Að sögn Indriða G.
Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Þjóðhátiðar
1974, hefur ekkert veriö
ákveðið hvort annáll þessarar
þjóðhátiðar;l974, verður
skrifaður eöur ei, en eins og
menn eflaust vita var það gert
1944 og mikil bók gefin út sem
hét — Lýðveldishátiðin á
Þingvöllum 1944.
Indriði sagði hinsvegar að
nefndin héldi öllum gögnum
saman þannig að auðvelt yrði
aö vinna annál um hátiðina.
Ekki sagðist hann sjálfur vilja
skrifa þá bók, til þess væri
hann nálinu of nátengdur.
Þá skrifaði Indriði að til
þess að fá annál um hátiðina
skrifaðan yrði að koma fram
tillaga i Þjóðhátiðarnefnd
1974, þar sem skorað væri á
rikisvaldið að láta
framkvæma slikt verk.
Þá væri illa komið hjá sögu-
þjóðinni ef hún fengi ekki sina
bók um þetta merkisár, skrif-
aöar hafa verið bækur á
tslandi af minna tilefni.
—S.dór
Eins og komið hefur fram í
fréttatilkynningu, hefur verið
stofnað félag til undirbúnings
stofnunar fiskkassaverksmiðju
hér á landi. Einn af stjórnar-
mönnum þessa félags er Hörður
Jónsson efnaverkfræðingur og
höfðum viö samband við hann I
gær og báðum hann segja okkur
nánar frá þessu væntanlega fyrir-
tæki og möguleikum þess hér á
landi.
Hörður sagði möguleika
þessarar verksmiðju hér á landi
mikla. Þegar menn fóru að velta
þessu fyrir sér var búið að flytja
inn 40 þúsund fiskkassa frá
Noregi, en I dag er búið að flytja
inn um 180 þúsund fiskkassa úr
plasti og notkun þeirra vex
stöðugt. Talað er um að taka fisk-
kassa i notkun á næstu loðnu-
vertið og jafnvel i Norðursjónum.
Þá er kominn markaður fyrir um
200 þúsund kassa.
Að sögn Harðar er reiknað með
að markaðurinn hér á landi sé I
heild um 500 þúsund kassar og
einnig er reiknað með að þegar
hann er mettur gangi um 15%
kassanna úr sér á ári, sem þýðir
að ársframleiðsla verksmiðj-
unnar yrði um 75 þúsund kassar,
sem er nægur markaður til þess
að það borgi sig að setja verk-
smiðjuna upp.
Þar fyrir utan eru möguleikar á
framleiðslu flutningapalla úr
plasti, ölkassa og margskonar
kassa og Iláta sem notuð eru i
matvælaframleiðslu.
Það er áætlað að þessi verk-
smiöja verði reist á Akureyri i
tengslum við Sjálfbjörg, og áð
það félag sé að einhverju leyti
þátttakendur i fyrirtækinu.
Aætlað er að um það bil 10 manns
vinni I verksmiðjunni til að byrja
meö, en auðvitað fer það eftir þvi
hve margvisleg framleiðslan
veröur, hve margt starfsfólk
verksmiðjan þarf.
Hörður sagði að lokum að menn
vildu hraða framkvæmd þessa
máls sem frekast er kostur, þvi
aö þótt ekki sé hugsað um meira
en kassana, þá liggur á að verk-
smiðjan komist sem fyrst af stað.
—S.dór
Gerir tilraunir til fœkkunar flugvargs Arni Heimir Jónsson liffræðingur hefur verið ráðinn af menntamála- ráðuneytinu til að gera til- raunir til fækkunar flugvargs, þ.e. svartbaks og hrafns i landinu. Einnig mun hann safna upplýsingum um tjón af völdum þessara fugla bæði i æðarvörpum og eins varðandi lambadráp þeirra. Mun Árni skila skýrslu til ráðuneytisins um þessi mál i haust. Arni mun hafa byrjað rann- sóknir sinar á Álftanesi, en þar er eitt af stærstu æðar- vörpum landsins. Siðan fer hann vitt um landiö og safnar upplýsingum og gerir til- raunir. Eins og oft hefur komið fram i fréttum hafa æðar- varpsbændur kvartað mjög undanfarin ár vegna ágangs flugvargs i varpi og þá ekki sist vegna mjög örrar fjölg- unar vargsins. Fram til þessa hefur lítið sem ekkert verið gert til fækkunar honum, enda hafa fuglafræðingar ekki viljað Ijá þvi niáli lið. A siðasta Búnaðarþingi kom fram tillaga til stjórnar Búnaðarfélags tslands um að hún hlutaðist til um það við menntamálaráðuneytið að hafist verði þegar handa um eyöingu svartbaks og hrafns. Stjórn Bt hefur svo unnið að þessu máli með þeim árangri að ráðuncytið hefur ráðiö Arna Heimi Jónsson til starfa i sumar og binda bændur miklar vonir við þetta starf hans og að þegar þvi er lokið verði hafist handa um fækkun á flugvargi. —S.dór
Farfuglar Til eru tvær tegundir farfugla. Aðra geta menn barið augurn ef þeir lita til himins en hin til- heyrir mannkyninu og getur ekki flogið af eigin rammleik. Við kynnum þá siðarncfndu á bls. ©