Þjóðviljinn - 23.03.1975, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 23.03.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 23. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN _ SÍÐA 23 Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Inga Lindsjö: Tvö tilbrigöi viö þekkt stef Steinunn Stefánsdóttir þýddi i Pabbi er sterkur Mamma er góð Pabbi er bakari Mamma bakar kökur Pabbi er klæðskeri Mamma gerir við buxurnar hans pabba Pabbi fer í veiðiferðir Mamma kaupir í soðið Pabbi er sterkur Mamma er góð Pabbi er leikfimiskennari Mamma kennir börnunum að ganga Pabbi er uppfinningamaður Mamma finnur ráð við öllu Pabbi er félagsráðgjafi Mamma huggar pabba Pabbi er sterkur Mamma er góð Pabbi er baðvörður Mamma baðar börnin Pabbi er ráðherra Mamma ráðskar heima Pabbi er læknir Mamma læknar öll sár Pabbi er sterkur Mamma er góð Pabbi er Ijóðskáld Mamma er Ijóðræn Pabbi er prestur Mamma er góð kona Pabbi er prófessor Mamma er prófessorsfrú Steinunn Stefánsdóttir var 9 ára þegar hún þýddi ljóöift. Hún hafði lengi átt heima i Kaupmannahöfn, þess vegna kunni hún dönsku. Myndin er tekin af Steinunni um þaö ieyti sem hún þýddi ijóöið. Nú er Steinunn orðin 13 ára og er i 1. bekk i Hagaskólanum. PABBI ER STERKUR MAMMA ER GÓÐ Pabbi fer í vinnuna Mamma gerir húsverkin Mamma býr um rúmið hans pabba Vala hjálpar mömmu Mamma snýtir litla bróður Villi horfir á Amma kemur og Pála frænka Amma brosir Pála frænka steytir möndlur Mamma bakar og þvær Mamma steikir og straujar Vala hjálpar mömmu Villi horfir á Afi kemur Afi er strangur Seztu, elsku afi Ekki slá börnin Vala bakar köku Villi smakkar á henni En hvað þetta er góð kaka sem Vala bakaði PABBI ER STERKUR MAMMA ER GÓÐ Bráðum kemur pabbi heim Mamma flýtir sér að gera húsverkin Mamma skúrar og bankar Mamma ryksugar og vaskar upp Vala hjálpar mömmu Villi horfir á Pabbi kemur Pabbi er þreyttur Hafið ekki hátt, krakkar Pabbi lagði sig Mamma kaupir inn Pabbi gefur mömmu aura En hvað pabbi er góður við mömmu Svo vaknar pabbi En hvað það var gott Gerðu svo vel, segir mamma Maturinn er tilbúinn Mamma biður borðbæn Pabbi slær í borðið Mamma lætur börnin í rúmið Pabbi íer á Naustið PABBI ER STERKUR MAMMA ER GÓÐ En hvað pabbi er sterkur En hvað mamma er góð Þegar ég verð stór, segir Vala, ætla ég að giftast En Villi segirt Ég ætla að verða flugmaður. Steinunn Stefánsdóttir þýddi KROSSGATAN UOS ‘y ‘IMWAHM ‘HO ‘SOH ‘XIH ‘HÍIXVH ‘waH ‘avx ‘V ‘HOH :aHH MIQHO Ráöning á gátu í síðasta biaði Hann sagði þeim að hafa hestaskipti. PENNAVINIR Við viljum eignast pennavini, strák eða stelpu, á aldrinum 14—16 ára. Maria Svava Andrésdóttir, 15, ára Garðarsvegi 12, Seyðisfirði. Jóhanna Andrésdóttir, 14 ára Garðarsvegi 12, Seyðisfirði. Sigurrós Gissurardóttir, 14 ára, Garðarsvegi 16, Seyðisfirði. Ég vil eignast pennavin á aldrinum 12—14 ára. Áhugamál mitt er knattspyrna. Ingimundur S. Andrésson, 13 ára, Garðarsvegi 12, Seyðisfirði. mp ÍS MSjS $ p mm wm |||| mm VÆÚ liÍl §§ KROSSGÁTAN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.