Þjóðviljinn - 09.04.1975, Qupperneq 12
Verkfall á
Sauðárkróki
Vilja sama kaup og almennt tiðkast
UOOVIUINN
Miðvikudagur 9. april 1975.
Brynjólfur Jóhannesson i hlut-
verki skipstjórans i Hart i bak,
einu af mörgum leikafrekum hans,
sem unnu hug áflra leikhús-
Verkamannafélagiö
Fram á Sauðárkróki
hefur sett bann á
uppskipunarvinnu við
flutningaskip í höfninni
til þess að knýja fram
sömu kjör við þessa vinnu
og aðrir hafnarverka-
menn á Norðurlandi
njóta.
— Þetta er svona
snertur af verkfalli,
sagði Jón Karlsson for-
maður Fram er við
ræddum við hann í gær. —
Við settum bann á alla
uppskipunarvinnu til þess
að knýja fram að greitt
verði fyrir hana eftir
ákvæðisvinnuf yrirkomu-
lagi en ekki tímakaup
eins og nú er.
A flestum stöðum á landinu er
þessi vinna ýmist unnin i
ákvæðisvinnu eða að greidd er
premia ofan á timakaupið, visst
fyrir hvert tonn. Á Sauðárkróki
hefur hins vegar öll uppskip-
unarvinna verið unnin eftir
timakaupi.
Á sunnudaginn náðist
samkomulag við Útgerðarfélag
skagfirðinga um uppskipun úr
fiskiskipum og var þar fallist á
kröfur verkalýðsfélagsins. Var
þvi banninu aflýst hvað snertir
fiskiskipin. Sama gildir um
uppskipun á áburði sem koma á
til Sauðárkróks úr hinu
strandaða Hvassafelli. Trygg-
ingafélagið sem sér um björgun
áburðarins féllst strax á kröfur
verkamannanna er það heyrði
af deilunni.
En Kaupfélag skagfirðinga
hefur ekki samið enn. Jón sagði,
að kaupfélagsstjórinn hefði
verið fjarverandi, en harin var
væntanlegur i gær eða dag.
Bjóst Jón við að úrslit fengjust i
málinu eftir að hann væri
kominn.
— Aðalatriðið i þessu er það,
sagði Jón, að við sjáum enga
frambærilega ástæðu fyrir þvi
að menn hér vinni fyrir lægra
kaup en annars staðar. Okkur er
alveg sama hvort verður ofan á,
ákvæðisvinna eða premia, þvi
hvort tveggja gefur kaupauka.
Þetta hefur ekki mjög mikil út-
gjöld i för með sér fyrir hvert
skip, en það munar um þetta i
vasa verkamannsins.
Engir fastir verkamenn vinna
við uppskipun á Sauðárkróki,
heldur hláupa menn i þetta
þegar skip kemur.
—ÞH
Verkfall á
stóru
togurunum
Verkfall hófst á stóru
togurunum á miðnætti í
nótt. Samkomulag það sem
náðst hafði við sjómenn
gildir aðeins um sjómenn á
bátunum og minni togur-
unum.
Áhersla mun hafa verið
lögð á það að sem flestir
stóru togaranna væru úti á
miðunum, nú þegar verk-
fallið er skollið á, og stöðv-
ast þeir því ekki fyrr en
þeir koma næst i höfn.
Að sögn eins samninga-
nefndarmanns var haldinn
samningafundur með sjó-
mönnum og útgerðar-
mönnum í gærkveldi og
ekki búist við miklum ár-
angri. —úþ
gesta.
Brynjólfur
Jóhannesson
látinn
Brynjólfur Jóhannesson, einn
ástsælasti leikari þjóðarinnar,
lést i Reykjavik i gær, á áttugasta
aldursári. Brynjólfur fæddist i
Reykjavik 3. ágúst 1896. Eftir
nám i verslunarfræðum i Kaup-
mannahöfn starfaði hann sem
bankamaður á Isafirði og i
Reykjavik um fjögurra áratuga
skeið. Leikferil sinn hóf hann á
Isafirði i mars 1916 og lék þar,
öðru hverju til 1923. Frá 1924 og
óslitið fram á hinsta dægur
starfaði hann með Leikfélagi
Reykjavikur. Hlutverk hans i
Iðnó, á leikferðalögum innan-
lands og utan, i útvarpi og sjón-
varpi voru fjölmörg og Brynjólfur
tók einnig virkan þátt i félags-
störfum listamanna. Á eldri árum
var Brynjólfi auðsýnd marg-
visleg sæmd af fjölda stofnana og
félaga, sem hann hafði unnið gott
dagsverk fyrir. Þjóðviljinn
þakkar Brynjólfi margar góðar
stundir og vottar eftirlifandi konu
hans, Guðnýju Helgadóttur,
samúð.
Togaranum Yer
Ástœðan sú að rikisstjórnin œtlar ekkert
að gera i málum stóru togaranna
Ver, öðrum skuttogara
útgerðarfélagsins Kross-
víkur h.f. á Akranesi,
hef ur verið lagt, með þeim
afleiðingum að skipshöfn-
inni, 25 mönnum, hefur
verið sagt upp og allmörg-
um verkakonum í frysti-
húsum á staðnum. Fjórtán
verkakonur eru þegar
hættar vinnu hjá Haraldi
Böðvarssyni og í öðrum
fiskverkunarhúsum hefur
konum verið sagt upp.
Krossvik h.f. er i eign bæjar-
félagsins og fimm fiskverkunar-
stöðva á Akranesi. Ástæðan fyrir
þvi að ákveðið var að leggja tog-
aranum og setja hann á sölulista
er sú, að forráðamenn útgerðar-
innar fengu staðfest i lok siðasta
mánaðar að rfkisstjórnin hygðist
ekkert gera til þess að greiða
fyrir útgerð stóru skuttogaranna,
sem reynst hafa óhagkvæmir i
lngt
rekstri. Eigendur sllkra skut-
togara höfðu farið fram á að fá að
sleppa greiðslum i stofnfjársjóð i
2 til 3 ár, en það er um 20 prósent
af aflaverðmæti skipanna. Með
þessu hefði að þeirra mati verið
hægt að halda stóru togurunum i
eigu landsmanna þar til reynsla
væri komin á það hvort þeir
reyndust ekki hagkvæmari i
rekstri er við hefðum fært land-
helgina út i 200 milur. Rikis-
stjórnin gaf afsvar og Krossvik-
urmenn ætla að selja togarann.
Forráðamenn félagsins sögðu i
gær að i þess stað væru þeir að
leita hófanna um kaup á einum til
tveimur skuttogurum af minni
gerð.
Verkalýðsfélag Akraness hefur
harðlega mótmælt þvi að skut-
togaranum skyldi vera lagt eins
og atvinnuástandið er nú á
staðnum.
—EKH
Rúmlega 30 miljónir í Norð-
fjarðar söfmmina
Þingað um menningu
Yfir 100 manns sátu ráðstefnu um menningarmál, listdreifingu
um landið og samskipti valdamanna og listamanna
Fjörugar umræður urðu á ráð-
stefnu um menningarmál, sem
Samtök sveitarfélaganna gengust
fyrir og haldin var i Reykjavik
frá sunnudagskvöldi til þriðju-
dagskvölds sl.
Yfir 100 fulitrúar úr hinum
ýmsu sveitarfélögum og frá ýms-
um samtökum og félögum lista-
manna sóttu ráðstefnuna, lista-
menn gerðu grein fyrir högum
sinnar listgreinar, vandamálum
varðandi listdreifingu og list-
menntun.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra flutti
fyrstu ræðu ráðstefnunnar, og
nefridist hún „Rikisvald og menn-
ingarmál”. Birgir Thorlacius,
ráðuneytisstjóri talaði um ,,Sam-
skipti menntamálaráðuneytisins
og sveitarstjórna á sviði menn-
ingarmála”, bæjarfulltrúar og
hreppsnefndarmenn ræddu
nokkrir um „Hlutverk sveitar-
stjórna i menningarmálum.
Kristján Benediktsson, formað-
ur Menntamálaráðs talaði um
Menntamálaráð og hlutverk þess.
Gunnar Guðmundsson fræddi fólk
um starfsemi Sinfóniuhljómsveit-
arinnar, dr. Selma Jónsdóttir
ræddi um Listasafnið, en á milli
þessara erinda, voru frjálsar
umræður og fyrirspurnir.
Kannski varð erindi Thors
Vilhjálmssonar, rithöfundar helst
til að vekja sveitarstjórnarmenn
til umhugsunar, en Thor sat ráð-
stefnuna sem fulltrúi Bandalags
islenskra listamanna, og ræddi
hann um stöðu listamanna gagn-
vart almenningi, þeim sem njóta
listar, svo og samskipti lista-
manna og valdsmanna og áttu
þeir Ólafur B. Thors, forseti
borgarstjórnar fjörugar orða-
hnippingar vegna þess máls.
Atli Heimir Sveinsson, tónskáld
var annar fulltrúi Bandalags is-
lenskra listamanna, og ræddi
hann m.a. um þá tilhögun varð-
andi afskipti stjórnarvalda af list
á Islandi, að i öllum nefndum og
ráðum sem fjalla um listir, sitja
vildarvinir hinna pólitisku flokka.
Atli benti á að afskipti stjórn-
málamanna af listum hlytu að
bera það með sér að stjórnmála-
menn hefðu mikinn áhuga á list —
en lika það, að þeir hefðu tilhneig-
ingu til að vilja ráða henni.
„List getur verið pólitisk”,
sagði Atli Heimir, „en hún er
mjög sjaldan flokkspólitisk”.
Framhald af 12 siðu
Snjóflóðasöfnun þeirri, sem
hrint var af stað vegna flóðanna i
Neskaupstað i vetur er nú form-
lega lokið, en fyrir þeirri söfnun
gekkst Norðfirðingafélagið i
Reykjavik, ásamt Rauða krossin-
um og Hjálparstofnun kirkjunn-
ar.
Jafntefli
Friðriks
og Tatai
Friðrik gerði jafntefli við Tatai
I 3. umferð skákmótsins á
Kanarieyjum i gærkveldi. Friðrik
hefur þá einn og hálfan vinning
eftir þrjár umferðir.
Kemur ekki
til
framkvœmda
Mcistarar i járniðnaðinum
samþykktu gerða samninga þrátt
fyrir þá fyrirvara, sem járn-
iðnaðarmenn höfðu sett.
Kemur þvi ekki áður boðað
verkfall járniðnaðarmanna til
framkvæmda.
Moskvu 7/4 reuter — Tass-frétta-
stofan skýrði frá þvi i gær að
skotið hefði verið á loft mönnuðu
geimfari, en þegar það var komið
á loft og þriðja þrep þess átti að
fara i gang fór það af réttri leið.
Var þvi þá snúið til jarðar aftur
og lentu geimfararnir tveir heilu
og höldnu i Vestur-Siberiu.
Alls söfnuðust rúmlega 30 milj-
ónir króna. Úthlutunarnefnd
snjóflóðasöfnunar hefur nú út-
hlutað 22.678.000.00 krónum til
þeirra, sem safnað var fyrir.
BLAÐBURÐUR
Reykjavík
Þjóðviljann vantar
blaðbera í eftirtalin
hverfi.
Laugaveg
Kvisthaga
Kleppsveg
Drápuhlíð
Fossvog
Hafið samband við
afgr. Sími 17500
Kópavogur
Þjóðviljann vantar
blaðbera i
Hrauntungu
og Hlíðarveg
Vinsamlegast hafið
samband við umboðs-
mann i sima 42073.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið Reykjavik
ALMENNUR FÉLAGSFUNDUR
veröur haldinn fimmtudaginn 10. aprll n.k. i Tjarnarbúö
niöri og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri ASÍ
hefur framsögu um stööu verkalýöshreyf-
ingarinnar aö loknum samningum.
2. Almennar umræður
Félagar fjölmenniö.
Stjórnin