Þjóðviljinn - 31.05.1978, Page 14
14 SIÐA — ÞJóÐVILJlfíN Miövikudagur 31. mai 1978
/ stuttu
máii
ísrael krefst handtöku
fjöldamoröingja
30/5 — tsraelska stjórnin hefur
fariðþess á leit við stjórn Brasi-
liu að brasiliska stjórnin láti
handtaka Gustav Franz Wagner
sem ákærður er fyrir að vera
ábyrgur fyrir fjöldamoröum á
gyðingum i útrýmingarbúðum
nasista í Póllandi i siöariheims-
styrjöld. Wagner mun hafa
stundaðþessa iðjusina einkum I
Treblinka og Sobibor en Tre-
blinka-búðirnar voru eitthvert
afkastamesta morðiðjuver
Þjóðverja að Auschwitz undan-
skildu. Wagner er ættaður frá
Austurriki. Samúel Tamir,
dómsmálaráðherra Israels seg-
ist hafa heimildir fyrir þvi að
brasilisk yfirvöld hafi Wagner
undir eftirliti.
Vietnamar haröordir í garð Kinverja
30/5 — Vietnamska stjórnin
sakaði kinversku stjórnina i dag
um það að reyna að spilla sam-
skiptum rikjanna með tilhæfu-
lausum áburði viðvikjandi
fólksflutningum kinverskætt-
aðra manna frá Vietnam, en
Kinverjar halda þvi fram að
kínverski þjóðernisminnihlut-
inn þar sæti ofsóknum. 1 um-
sögn um þetta sagði útvarpið i
Hanoi, höfuðborg Vietnams, aö
stjórnin i Peking væri að reyna
að valda Vietnömum erfiðleik-
um við sósialiska uppbyggingu i
landinu.
Jafnframt endurtóku
Vfetnamar tilmæli sin um sátta-
viðræður viðKinverja, en Kin-
verjar hafa ennþá ekki gefið
nein svör við þeim tilmælum.
Umrædd gagnrýni vietnamska
útvarpsins er sú harðorðasta af
hálfu Vietnama i garð Kinverja
til þessa.
Sadat hótar stríði út af Nílarvatni
30/5 — Sadat Egyptaforseti
sagði i dag að Egyptaland
myndi fara i strið við hvert það
riki, sem reyndi að skerða hlut
Egypta af vatni Nilar eða réðist
á Súdan. Stríðshótun þessari er
án vafa beint að Eþiópiu, en
Eþiópar eru sagðir hafa i huga
stífiugerö við Tana-vatn i
epiópska hálendinu, en þar á
BÍáa-Nil upptök sin.
Sadat minnti i þessu sam-
bandi á hið fornkveðna, að
Egyptaland er „gjöf Nilar”. Að-
spuröur hver viðhorf Egypta
væru gagnvart Súdan, ef þvf
yrði ógnað út frá striði Eþiópa
við sjálfstæðissinna i Eritreu
sagði Sadat, að það væri lifs-
spursmál fyrir Egypta að ekk-
ert alvarlegt kæmi fyrir Súdan.
Súdanir hafa lengi veitt sjálf-
stæðissinnum i Eritreu aðstoð
og stundum hefur jafnvel komið
til vopnaviðskipta milli Eþiópa
og Súdana.
Kúbanir segjast saklausir af
Shaba-innrásinni
30/5 — Carlos Rodriguez, vara-
forseti Kúbu neitaöi þvi i dag i
ræðu á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna að Kúba hefði átt
nokkurm hlut að innrásinni i
Shaba nýverið. Kvað Rodriguez
áburð Carters Bandarikjafor-
seta um þetta ósannan með öllu.
Rodriguez sagði ennfremur að
hersveitir Kúbu i Afrikulöndum
hefðu verið sendar þangað að
beiðni hlutaðeigandi rikja þeim
til verndar.
Rodriguez minntist á árás
Suður-Afrikumanna inn i
Angólu 4. mai s.l., þegar um 600
mannsvoru drepnir ogsagði að
sú árás væri visbending um,
hverju Angólumenn mættu eiga
von á ef kúbanskt herlið væri
ekki i landinu. Hann sagði að
Bandarikin og önnur vestur-
veldi bæru nokkra ábyrgð á
árásum sem þessari vegna um-
burðarlyndis þessara rikja
gagnvart suðurafrisku stjórn-
inni.
Poliario herjar í Marokkó
29/5 — t fréttatilkynningu frá
Polisario sjálfstæðishreyfingu
Vestur-Sahara segir að skæru-
liðar hreyfingarinnarhafi siðustu
tólf dagana fellt yfir 50 marokk-
anska hermenn i bardögum i
Vestur-Sahara og sunnanvert i
Marokkó. Skæruliðar Polisario
hafi lengi herjað bæöi I Vest-
ur-Sahara og Máritaniu, ai eftir
þessari frétt að dæma eru þeir
einnig farnir að láta til sin taka
innan landamæra Marokkó.
Polisario segist einnig hafa tek-
ið til fanga nærri 30 marokkanska
hermenn og birti lista með nöfn-
um þeirra. Jafnframt sakar Poli-
sario Marokkómenn um grimmi-
lega kúgun á fóiki í Vest-
ur-Sahara og Maritaniu.
Polisario er i skærustriði gegr
Marokkó og Máritaniu sem skiptu
Vestur-Shara á milli sin að ibúum
þar forspurðum eftir að yfir
ráðum Spánarlauk þar. Frakkar
hafa her i Máritaniu tii stuðnings
Máritaniustjórn i striði þessu.
Var Moro myrtur til ad bregða
fæti fyrir kommúnista?
29/5 — Enrico Berlinguer, leiö-
togi Kommúnistaflokksins á
Itaiiu, sagöist i dag hafa sterkan
grun um aö erlendar leyniþjón-
ustustofnanir heföu staöiö á bak
viö rániö og moröiö á Aldo
Moro, fyrrum forsætisráöherra
Italfu. Berlinguer tók fram, aö
hann heföi engar haldbærar
sannanir fyrir aö svo heföi ver-
iö, en sagöi, aö þaö lægi i augum
uppi aö ihaldsmenn og aftur-
haldsöfl væru engu siöur en
vinstri öfgamenn Rauöu her-
sveitanna svokölluöu, áhuga-
söm um aö gera aö engu þann
árangur, sem italskir kommún-
istar heföu undanfariö náö meö
samvinnu viö stjórnarflokk
italiu, kristilega demókrata.
Berlinguer benti á i þessu
sambandi að sumir leiðtogar
kristilegra demókrata vildu á
ný taka upp þá stefnu að útiloka
annan stærsta flokk ttaliu,
kommúnista, frá stjórnar-
samstarfi, en Moro var einmitt
sá af leiötogum kristilegra, sem
mest beitti sér fyrir samstarfi
kristilegra og kommúnista.
Berlinguer sagði ennfremur, að
með morðinu á Moro hefði verið
reynt að koilvarpa itölsku lýð-
ræði, en það hefði mistekist.
Hann kvað italska kommúnista
hafa i undirbúningi rannsókn á
ráninu og morðinu á Moro i
þeim tilgangi að ganga úr
skugga um, hverjir stæðu að
baki afturhaldsöflum þeim, sem
snúa vildu ttaliu til hægri. Ber-
linguer sagði þetta i Barcelona,
höfuöborg Katalóniu, þar sem
hann er staddur sem gestur
katalónsks vinstriflokks, sem er
i nánu bandalagi við spænska
kommúnista.
Kjaftaklöpp
Framhald af bls.6
Þetta eru nú meiri vandræðin.
Samkomumál Reykvikinga eru
á hálfgerðu hallærisplani á þvi
herrans ári 1978. Það lýsir sér
m.a. i þvi að hver einasti kjaftur
i borginni borgar sig dýrum
dómum inn á ómerkilega sölu-
sýningu bara til þess að sýna sig
og sjá aöra.
Ég. ráfa stefnulaust niður
Skólavörðustiginn og lit inn i
Bókina til að gera eitthvað. Ég
þykist vera róta I bæklingum
meðan ég legg eyrun við þvi
hvað tveir karlar eru að tala sin
á milli. Ég er of feimin til að
blanda mér i mál þeirra. Þeir
ræða margt og segja sumt spak-
legt en eitthvað virðast þeir nú
vera farnir að kalka samt.
Allt i einu rek ég augun i
gamlan bækling eftir Vilmund
heitinn Jónsson landlækni. Ég
fer að glugga i honum og þar er
Vilmundur að ræða fjölmiðla og
sérstaklega dagblöðin. Hann
varar við þvi að trúa þvi sem
þar stendur. Þetta ætti
Vilmundur annar að lesa.
Nú er ekkert um annað að
gera en að taka strætó heim. A
leiðinni er ég enn að hugsa um
allt sem mætti gera i þessari
borg. Og þrátt fyrir allt er lika
léttara yfir henni eftir þessa
helgi, einhverjar vorleysingar.
Íhaldsvígin
Framhald af 1
að þessu sinni voru vinstri menn
51 atkvæði yfir Sjálfstæðisflokkn-
um. Gild atkvæði voru samtals
350 áriö 1974 á Blönduósi, en nú
voru þau 469, og af þeim fengu
vinstri menn 260. Veröur það að
teljast góður og ótviræður sigur,
enda urðu hreppsnefndarmenn
þeirra 3 i stað 2 áður.
Þrir aðilar buðu fram til
hreppsnefndar I Hveragerði 1974,
Sjálfstæðisflokkurinn sem hlaut
247 atkvæði og 3 kjörna, sam-
vinnumenn sem fengu 174 at-
kvæði og 2 kjörna og óháðir kjós-
endurmeð77 „dauð” atkvæði. Nú
vildu Framsóknarmenn ekki
lengur ganga með Alþýðubanda-
laginu sem „samvinnumenn”,
heldur kusu samstarf við krata,
en Alþýöubandalagiö bauð fram
sér ilagi. Úrsliturðu þau að Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 257 atkvæði
og 2 menn kjörna, „jafnaöar- og
samvinnumenn” fengu 186 at-
kvæði og einnig 2 menn, og Al-
þýðubandalag fékk 116 atkvæði og
1 mann. thaldsandstæöingar
fengu nú 45 atkvæðum meira en
óvinurinn, en 1974 höfðu þeir ekki
haft nema 4 atkvæði yfir, og það
nægði ekki eins og á stóð.
Er
sjonvarpió
bilað?
Skjárinn ^
S]ónvarpsverlist«5i
Bergsíaðasírfflti 38
sirru
2-1940
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Sími 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvoldin)
»|*MÓÐLEIKHÚSIfl leikfKiag 2i2 2í1 RFYKJAVlKUR
KATA EKKJAN
fimmtudag kl. 20 SKALD-RÓSA
föstudag kl. 20 i kvöld kl. 20.30
LAUGARDAGUR, SUNNU- föstudag kl. 20.30
DAGUR,MANUDAGUR sunnudag kl. 20.30
laugardag kl. 20 VALMCINN SPRINGUR ÚT
Fáar sýningar eftir ANÓTTUNNI
Litla sviðið: sjöunda sýning fimmtudag uppselt
FRÖKEN MARGRÉT hvit kort gilda
i kvöld kl. 20.30 áttunda sýning laugardag kl.
Siðasta sinn. 20.30
MÆÐUR OG SYNIR Gyllt kort gilda
fimmtudag kl. 20.30 Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30
Fáar sýningar eftir Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200. Simi 16620.
Alþýðubandalagið i Kópavogi.
FUNDUR í ÞINGHÓLI.
Fundur verður haldinn i Þinghól , fimmtudaginn 1. júni kl. 20.30.
Rædd verða kosningaúrslitin og hin nýju viðhorf i bæjarmálunum
Allir félagar eru eindregið hvattir til að koma. — Bæjarmálaráö.
Akranes — Félagsfundur
Alþýðubandalag Akraness og nágrennis heldur félagsfund miðviku-
daginn 31. mai kl. 20.30 i Rein. Dagskrá: 1. Bæjarmálefni. 2. Onnur
mál. Komiö stundvlslega. — Stjórnin.
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
Trésmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
Tilboð óskast
1 nokkra skála á Keflavikurflugvelli, sem
verða til sýnis föstudaginn 2. júni, milli kl.
2 og 4.
Þeir sem eiga pantaða skála hafi sam-
band við skrifstofuna. Tilboðin verða opn-
uð á skrifstofu vorri, Klapparstig 26,
þriðjudaginn 6. júni, kl. 11.
SALA VARNALIÐSEIGNA
Frá V örðuskóla
Þeir nemendur sem eigi uppfylla skilyrði
um fornám en ætla sér i iðnnám geta inn-
ritast 31. mai - 6. júni kl. 9-12.
Fornámið skiptist i tvær sjálfstæðar annir
sept.-des. og jan.-mai.
SKÓLASTJÓRI
Þakka öllum, sem minntust min á sjötugsafmæli minu.
Kr. Guðmundur Guðmundsson