Þjóðviljinn - 13.01.1980, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagurinn 13. janúar 1980.
* unglingasíðan •
Umsjón:
Olga
Guðrún
Árnadóttir
Þessa mynd teiknaði Rúna Asgeirsdóttir sérstaklega fyrir
unglingasiöuna. Viö þökkum henni innilega fyrir.
Meira um
unglinga í
dreifbýli
20. des. 1979
Ég veit ekki hvernig ég á aö
ávarpa þig — ykkur, svo ég
sleppi þvi bara. Ég sleppi lika
áramótauþpgjörinu, enda mjög
liklegt aö þetta bréf berist ekki
fyrr en seint og siöar meir. Til-
gangurinn var nd eiginlega sá
aö láta heyrast i mér, lýsa
ánægju minni meö unglinga-
siöuna og sérstaklega meö þá
stórgiæsilegu hugmynd aö láta
ungiingana SJALFA gagnrýna
unglingabækur. Mig langar lika
ofsalega (og framkvæmi hér
meö) aö bjóöa mig fram sem
gagnrýnanda eða umfjöliunar-
kraft. Ég er 13 ára. Er þaö of
ungt fyrir ungiingaslðuna? Viö
13 ára erum nú lika unglingar.
Og mér finnst aö þiö ættuö ekki
að einskorða ykkur við aldurinn
15-18 ára. Alitilagi aö fara niöur
fyrir 15, sem þiö lika hafiö gert,
hér er Sif, 14 ára.
Ég er alveg sammála Jesús
sem villmikla pólitiska umræöu
og VIDHORF BEGGJA. Og mér
þætti alveg óguriega gaman aö
heyra viöhorf Ihaldsbarna tii
herstöövamálsins margfræga,
þó ég hafi svosem heyrt þaö
( þaö stendur HERINN BURT á
úlpunni minni). Ojamm.
Einsog þú sérö bý ég útá
landi. Og okkur hafa veriö gerö
alltof lítil skil I allskonar ung-
bbéf
lingaefni. Þetta er gömul tugga,
en Unglingasiöan ætti nú aö iáta
til sin taka og breyta þessu eitt-
hvaö. Égsting uppá simtöium ef
þú nennir ekki aö feröast. Og ég
Itreka umsókn (uhumm) mina.
? hefur þegar veriö send bók
til umfjöllunar, enda er svo
sannarlega ekkert þvi til fyrir-
stööu aö 13 ára gamlir krakkar
fái pláss á unglingasiðunni og
njóti viröingar til jafns við þá
sem eldri eru. Unglingaslöan
setur engin aldurstakmörk, —
þaö efni sem okkur er sent og
taliö eiga erindi á þessa slöu
verður birt, án tillits til aldurs
sendanda.
Ég hef einlægan áhuga á að
fjalla um málefni unglinga úti á
landsbyggöinni, ekki siöur en
þeirra sem búa á höfuöborgar-
svæðinu, og er alveg vitlaus 1
ferðalög (þírátt fyrir sjúklega
flughræðslu), en þar sem ég er
einsömul viö umsjón slðunnar
og bundin viö ýmis önnur störf
hér I Reykjavik hef ég ekki get-
aðgert neinarreisur útá land til
að safna efni. En Ur þessu ætla
ég að reyna að bæta sem fyrst,
og þá heimsækja alla lands-
fjórðunga (bjartsýnin lengi
lifi!). Mér líst vel á tillögu þlna
um simaviötöl, en til þess aö
hún komist I gagnið verða menn
aö senda unglingasiöunni nafn
og slmanúmer. Þá er hægur
leikur aö slá á þráöinn.
Bestu kveðjur,
Olga Guörún.
Látið ekki eins
og þið lifið á
annarri plánetu
Kæra unglingasiða!
Þarsem okkur gamlingjunum
var boöið að leggja orö I belg,
undir nafninu vitringar, get ég
ómögulega staðist freistinguna.
Það er ekki á hverjum degi sem
maður fær svona tækifæri.
Nú, svo ég komist að efninu,
þá hefur mér skilist bæði af
lestri síðunnar og nærtækum
heimildum, að vandamál ungl-
inga og gamlingja sé i aðalat-
riðum það sama: Aö reyna aö
umgangast sem árekstraminnst
persónur sem vita allt og geta
allt. Aðeins sýnist mér að þetta
böl sé heldur léttbærara
unglingum, þar sem þeir hafa
vanist hinni alltvitandi persónu
frá þvi þeir muna eftir, en i til-
felli okkar gamlingjanna sprett-
ur hún upp óforvarindis, eftir að
hafa verið sæmilega til friðs ár-
um saman. Þetta er gifurlega
erfitt. Og maður leiöist út á þá
braut að hugsa sem svo að
unglingsárin séu rétt eins og
hver önnur jólatrésskemmtun
hjá öllu þvi andlega og likam-
lega puði sem er hlutskipti
gamlingjans. Að vera ábyrgur
gagnvart sjálfum sér og öðrum,
reyna að vera sjálfstæður,
reyna að vera heiðarlegur,
reyna að vera manneskja i
moldviðri neysluþjóðfélagsins,
fyrir utan að dunda við að vinna
fyrir fjölskyldunni og koma
nokkrum ungmennum til
manns. En svona er lifið.
Mér hefur dottiö nokkuð i hug
sem gæti máske létt þessum
sárþjáðu hópum lifið. Sjáið þið
til, þar sem nú unglingsárin eru
nú aðeins 6 eða 8 ár, en aðrir
hlutar ævinnar 70 eÖa 80, væri
þá ekki mikiu hagkvæmara aö
unglingarnir leituöust viö aö
kynna sér heim fulloröinna i
stað þess aö viö stöndum á
hausnum viö aö reyna að hugsa
eins og þeir? Nei, fleygið ekki
blaðinu strax! Þvi ef ykkur er
alvara með að breyta einhverju
i þessum gamla heimi, þá
verðið þið að þekkja hann og
þekkja hann vel. Eyðiö ekki
dýrmætum árum i aö láta sem
þið lifið á annari plánetu. Meö
þvi gerið þiö engum greiða
nema verslunarauövaldinu sem
vill halda ykkur einangruðum
og plokka i friði af ykkur hverja
krónu fyrir táningaföt,
táningaplötur, táningabækur,
táningamat og drykk o.s.frv.
o.s.frv.
En bestu óvinarkveðjur,
Mamma
(ekki I Vesturbænum).
Það er ánægjulegt aö sjá aö
fullorönir gefa siðunni okkar
gaum. Krakkar, lesiö þetta bréf
oftar en einu sinni yfir og veltiö
þvi dálltiö fyrir ykkur. Þessi
mamma hefur ýmislegt at-
hyglisverttil málanna aö leggja
hvort sem þiö eruö henni sam-
mála eöurei. Hjá mér vöknuöu
margar spurningar viö lestur
bréfsins, m.a.:
Er hugsanlegt aö þiö ungling-
arnireigiö einhverjasök á þvi
sjálfir hversu litiö mark er
tekið á ykkur, þ.e. með þvi aö
sýna störfum, skoðunum og
tilfinningum fulloröna fólks-
ins litinn áhuga, og loka ykk-
ur af í ykkar eigin heimi þar
sem fullorönum er stranglega
bannaður aögangur?
Er hugsanlegt aö heimur
fullorðna fólksins sé ekkert
sérlega aðlaðandi og þið
forðist þess vegna að hafa of
náin kynni af honum?
Ef svo er, vitiö þið þá hvað
það er sem gerir full-
orðins-heiminn oftsvona grá-
myglulegan og óyndislegan?
Ef þið vitið það, hvers vegna
reynið þið þá ekki að hafa
áhrif.breyta ogbæta á meðan
þið enn hafið tima til svo að
þið lendið ekki I sömu grá-
myglusúpunni sjálf eftir
nokkur ár?
Ef þið vitið ekki hvað það er
sem fælir ykkur frá full-
orðins-heiminum, hvers
vegna reynið þið þá ekki að
komast að þvi?
Gerið þið ykkur grein fyrir
þvi, að þetta þjóðfélag, sem
þið eigiö að erfa, er ein alls-
herjar vinnuþrælkunarverk-
smiðja þar sem litill hópur
manna rakar saman stór-
gróða á meðan allir hinir
hamast við að slita sér út fyr-
ir ekkert?
Gerið þið ykkur grein fynr
þvi, að þeir hinir sömu og
græða á vinnu foreldra ykkar
eru önnum kafnir við að plata
lúsarlaunin útúr þeim lika,
með þvi að troða auglýsing-
um og áróðri fyrir rándýru
drasli uppi öll skilningarvit á
fólki, þangað til það veit
hvorki i þennan heim né ann-
anogbarakaupir þaðsem þvi
er sagt að kaupa?
Gerið þið ykkur grein fyrir
þvi, að þið eruð notuð á ná-
kvæmlega sama hátt, — að
það erumaskinur igangi allt i
kring um ykkur sem leynt og
ljóst hafa verið að heilaþvo
ykkur frá fæðingu, til þess að
þið getið orðið nýtir vinnu-
þrælar það sem eftir er
ævinnar?
Gerið þið ykkur ljóst að þið
þurfið að byrja að berjast
fyrir betra þjóðfélagi strax
áður en Uppreisnarandinn
ykkar nær að skriða oni flösk-
una og leggjast þar til svefns
að eilifu amen?
Vitið þið að enn eru til nokkur
eintök af fullorðnum, sem rig-
halda I skottið á Uppreisnar-
öndum og yrðu vafalaust
fegnir ef þið gengjuð i lið með
þeim I baráttunni fyrir
manneskjulegu þjóðfélagi?
Gerið þiö ykkur grein fyrir þvi
að þið verðið að standa
saman?
Börn íhaldsfólks
eru ekkert
öðruvísi en
aðrir krakkar
Jæja.
Mig langar að bera fram mót-
mæli út af grein sem birtist að
visu fyrir soldið löngum tima,
en betra er seint en aldrei.
Það skrifuðu einhverjir
krakkar um að það væri reynt
að finna og hafa viðtöl við börn
ihaldsfólks og láta þau skýra frá
skoðunum sinum og öðru. Þvi
var haldið fram að börn ihalds-
fólks væru eitthvaö öðruvisi en
aðrir og fengju ekki að mynda
sér sjálfstæða skoðun. Þetta
finnst mér rangt. Ég á marga
vini sem erubörn ihaldsfólks og
mér finnst þau ekkert öðruvisi
en aðrir krakkar eöa hafa aðrar
skoðanir heldur en t.d. ég, sem
er örugglega ekki Ihalds-
manneskja eða minir foreldrar.
Jæja, éghef ekki yfir neinu öðru
að kvarta, mér finnst siðan fin
eins og hún er.
Bless,
Kvenkyns tviburi
Bestu þakkir fyrir bréfiö —
fintaö fá fleirisjónarmiö fram á
siöunni.
Unglingar fara áreiðaniega
sjaldan eftir pólitiskri skoðun
foreldra þegar þeir velja sér
vini (til allrar hamingju!), hins
vegar hallast ég að þvi, aö fólk
sem hefur mjög ihaldssama
lifsskoðun og lifir samkvæmt
henni, hljóti aö ala krakkana
sina upp eftir öörum formúlum
en hinir, sem frjálslyndari eru.
Og uppeldiö setur jú sinn svip á
persónumótun fólks, þó áhrífin
séu misjafnlega sterk. En
■ ihaldssemi og frjálslyndi eru
ekki flokksbundin fyrirbæri —
ég þekki fólk sem kýs Sjálf-
stæðisflokkinn og er svo þræl-
róttækt i hugsun og lika þekki ég
ansi marga sem halda sig vera
komma en eiga ekki snefil af
hugsjón þegar allt kemur til
alls. Þið krakkar sem eigið vini
frá ihaldsheimilum:
Getið þið ekki rætt þetta viö
þá, fengiö þá til þess aö senda
okkur linu, eöa jafnvel sjálf tek-
iö smáviðtöl viö þá? Þaö væri
gaman aö heyra frá fleirum
skoöanir á þessu máli.
Olga Guðrún.