Þjóðviljinn - 17.08.1983, Síða 7
Miðvikudagur 17. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Tollfrjáls svæði taki
við af Hong Kong
Kínverjar veita erlendum kapítalistum
miklar ívilnanir
Kínverjar gera nú allt hvað þeir
getatil að lokka fjársterk fyrir-
tæki til að fjárfesta í Kína. Þeim
þykir enn ekki nóg að gert í að
opna landið fyrir erlendu fjár-
magni og tæknikunnáttu sem
stenst kínverskar kröfur og á
árabilinu 1983-85 bjóða þeir
útlendingum upþ á sérdeilis
hagstæðaskilmála-niðurfell-
ingu skatta og önnur skattfríð-
indi, tekjur af útleigu á tækja-
búnaði og tekjur af lánum.
Einn liður í þessari viðleitni er að
stofna tollfrjáls svæði víðs vegar
um Kína. Þau eru fjögur alls og
eiga einkum að höfða til iðnjöfra í
Hong Kong og portúgölsku ný-
lendunni Macao með nýjum og lítt
hefðbundnum möguleikum til fjár-
festingar. Kínverska stjórnin vill
með þessum svæðum láta reyna á
vilja og getu peningamanna í Hong
Kong til að vinna með kínverska
ríkinu og í kínversku samfélagi.
Útkoman úr þessum tilraunum
hlýtur að gefa vísbendingu um
hvernig það reynist að krulla
saman hinum frjálsa markaði í
Hong Kong og áætlanakerfinu í
Kína og með hverjum hætti Hong
Kong verður eftir 1997, þegar það
á að sameinast Kína.
Samningaþóf
Það var í fyrra að samningarnir
um sameiningu Kína og Hong
Kong hófust og var ítrasta leynd
höfð á öllu þar - hins vegar bendir
ýmislegt til að þeir gangi heldur
stirðlega. Heimildir í Hong Kong
staðhæfa að Kínverjar hafi hafnað
tilmælum Breta um að framlengja
samning þann sem í gildi er um
Hong Kong og krefjist yfirráða á
Hong Kong eftir 1997. Kínverskir
ráðamenn tala reyndar um að Bret-
ar dragi sig út úr Hong Kong smám
saman og að greiddar verði skaða-
bætur. Þeir óttast þannig sýnilega
mikinn fjármagnsflótta og hann
vilja þeir fyrir alla muni stöðva
bæði með því að greiða peninga-
furstum í Hong Kong skaðabætur
og að stofna umrædd tollfrjáls
svæði.
Reynsla frá Shenzen
Eitt af þessum svæðum er í
Shenzen og þar hefur nú verið
boðið upp á enn meiri vildarkjör en
tíðkast annars staðar í Kína í kjöl-
far þess að fjárhöldar hafa heldur
dregið úr fjárfestingum þar vegna
óvissunnar um afdrif Hong Kong.
Kínverrsk yfirvöld hafa brugðist
við þessari deyfð á svæðinu með
því að rýmka enn frekar reglur um
skatta og gjöld af jörðum og m.a.s.
hafa þau talað um að fella þau að
öllu leyti niður í einstökum til-
fellum.
Shenzen átti í fyrstu einungis að
vera útflutningssvæði - þær vörur
sem framleiddar yrðu þar átti að
flytja út til Hong Kong eða lengra á
heimsmarkaðinn. Ekki virðist það
hafa gengið því vörur af svæðinu,
sem ýmist er bara í eigu útlendinga
eða Kínverja og útlendinga, má nú
selja í Kína einnig, svo fremi þær
séu ekki í samkeppni við sam-
svarandi kínverskar vörur. Þannig
hefur útlenskum fyrirtækjum tekist
að koma sér inn á kínverskan
markað.
Feikilegt fjármagn hefur streymt
til Shenzen, bæði frá Kína og Hong
Kong þannig að efnahagsleg fram-
tíð svæðisins virðist trygg. En það
er kannski ekki mikið meira:
svæðið hefur enn ekki fært Kína
nein ósköp af gjaldeyri og hagn-
aðurinn er enn sem komið er eng-
inn - hvorki hjá Kínverjum né út-
lensku fyrirtækjunum.
Og því eru allar þessar ívilnanir.
Þær hafa vitaskuld vakið deilur og
umræður meðal kínverskra ráða-
manna, því ekki samræmist svona
hátterni fyllilega kórréttri efna-
hagsstefnu og hugsun Maos. En nú
virðist einhugur ríkja um viðreisn í
Shenzen, andstaðan gegn svæðinu
virðist hafa verið barin niður - um
sinn alltént. Formaðurinn Hu Yao-
bang var í yfirreið á svæðinu fyrir
skemmstu og sagði þá m.a.: „Það
er nausynlegt að meðhöndla ný og
sérstök verkefni á sérstakan máta,
við megum ekki hvika frá afstöðu
okkar og við verðum að þróa fram
ótal nýjar leiðir í vinnutilhögun.'"
Eyjan Hainan
Slík er hugsun formannsins og
það sýnist alveg ljóst að kínverskir
ráðamenn telja tollfrjálsu svæðin
hafa hlutverki að gegna í því að
færa efnahagskerfi Kína fram til
nútímans. Þeir hafa á prjónunum
að fjölga tollfrjálsu svæðunum -
gera Shanghæ að þvílíku svæði og
búa til úr svonefndri „Fjársjóðsey"
efnahagslega aflstöð fyrir
Suðaustur-Asíu. Þessi eyja sem
þjóðtrúin telur fulla af fjársjóðum
heitir Hainan og er feikilega rík af
auðlindum og liggur skammt frá
Hanoi. Vegna þessarar hernaðar-
legu stöðu hefur hún verið lokuð
útlendingum fram á síðustu ár. Á
eynni hefur gætt efnahagslegrar
kyrrstöðu allt frá frelsuninni 1949.
En nú á að fara að grafa eftir fjár-
sjóðunum og menn þykjast sjá
fram á að útlendingum verði boðin
þar aðstaða á hálfu meiri vildar-
kjörum en í Shenzen: til stendur að
iðnvæða þar allt af djöfulmóði og
nýta auðlindirnar og hún á einnig
að verða alþjóðleg túristaparadís
eins og t.d. Hawai.
Þannig reyna kínverskir ráða-
menn að iðnvæðast með ýmsum
hætti. Þessi tollfrjálsu svæði eiga að
taka við af Hong Kong og gera Kín-
verja minna háða henni um öflun
gjaldeyris. Hong Kong verður
þannig e.t.v. ekki eins mikilvæg
efnahagslega í framtíðinni og nú
er.
(-gat endursagði úr lnformation)
»*♦*♦<» <y,Á.Á xx.jcj'*.*.
******** * *■* fe jt x « *
**«<***«
«»«***** W*W9«>ý#X<4r-
********
*««•»*«*«
i »«*••*<
: iíííiííí
sagúfpi
■iiitf........'
„Lýðræði Chile til handa“, „Refsum morðingjunum“ stendur m.a. á
mótmælaborðum sem bornir hafa verið um verkamannahverfi Santiago
undanfarna daga.
Atburðirnir í Chile:
Tugir manna
voru skotnir
Mikil alda mótmæla
gegn herforingjastjórninni
Um þaö bil þrjátíu manns hafa
verið myrtir af lögreglu og her-
mönnumímiklum
mótmælaaögeröum sem kvöld
eftir kvöld hafa gengiö yfir
Santiago, höfuöborg Chile.
Mestur er baráttuhugurinn og
reiöin í ýmsum fátækrahverfum
borgarinnar og kemurfyrirekki
þótt átján þúsund hermönnum
og lögreglumönnum hafi verið
boöiö út og þeir skjóti óspart úr
vatnsfallbyssum, sáldri
táragashandsprengjum í öll
húsasund og beiti byssum
Sínum hvenær sem til
meiriháttar átaka kemur.
„Svona er þetta um öll úthverfi
Santiago nú, - fólk hefur fengið
nóg og meira en það“ - þetta eru
ummæli sem erlendir blaðamenn fá
að heyra um þessar mundir. Eða
heróp á borð við: „Gleymum ótt-
anum! Við viljum lýðræði strax“.
Margar ástæður liggja til þessara
öflugu mótmælaaðgerða gegn her-
foringjaklíku Pinochets forseta,
sem rændi völdum fyrir tíu árum.
Efnahagsskipan sú, sem hann kom
á að bandarískri fyrirmynd, er í
rústum, atvinnuleysi gífurlegt og
það djúp vaxandi sem staðfest er
milli ríkra og fátækra. Fyrr á árinu
hefur komið til mótmælafunda og
verkfalla sem stjórnin hefur svaráð
með fjöldahandtökum og útlegðar-
dómum og öðru verra. Um leið og
andóf er kveðið niður með hörku
hefur stjórnin þóst vilja opna
samninga við pólitíska flokka, ekki
síst Kristilega demókrata, en for-
ingjar hans hafa að undanförnu
mátt sæta handtökum og öðrum
kárínum, þótt ekki sitji þeir í sama
báti og hinir bönnuðu flokkar
verkalýðshreyfingarinnar.
Misheppnuð
„snyrting“
Pinochet hefur í þessum tilgangi
gert ýmsar breytingar á stjórn
sinni, látið óbreytta borgara korna í
stað herforingja og þar fram eftir
götum. Þetta á að „lyfta andlitinu“
svo notað sé mál fegrunarfræðinga,
og freista stjórnmálamanna, að
minnsta kosti miðjumanna, til
viðræðna við ríkisstjórnina. En
stjórnarandstaðan telur, að þessar
tilraunir Pinochets komi of seint
fyrir hann. Bæði er, að fáir munu
nú kæra sig.um að eiga aðild að því
að reyna að bjarga þrotabúi her-
foringjastjórnarinnar og fram-
lengja þar með ævidaga hennar.
Og svo hefur Pinochet reynt að
gera tvennt í senn: hefja viðræður
við suma stjórnarandstæðinga -
um leið og her og lögreglu er beitt
án miskunnar til að kveða niður
verkföll og hverskyns mótmæla -
fundi.
Einn af foringjum Kristilegra
demókrata telur það lágmarks-
kröfu að gefið verði fyrirheit um
frjálsar kosningar innan átján mán-
aða. En sem fyrr segir: atburðir
síðustu daga hafa beint þróun inn á
farveg sent þeir, sem fara með
byssur, kylfur og táragas í Chile,
ráða ekki hvert stefnir.
- ÁB
Pinochet reynir tvennt í senn: að skelfa menn með bryndrekuin og táragasi
og brosa framan í borgaralega stjórnarandstöðu.