Þjóðviljinn - 17.08.1983, Page 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. ágúst 1983
Reykjavíkurvika
Dagskrá í Gerðu-
bergi, tónleikar
á Kjarvalsstöðum
Á Reykjavíkurvikunni verður í
kvöld kl. 20.30 boðið upp á dagskrá
í Gerðubergi þar sem flutt verða
Ijóð og lög um Reykjavík fyrr og nú
og á Kjarvalsstöðum eru tónleikar
kl. 21.00 þar sem fram kemur ungt
fólk.
í Gerðubergi eru það Anna Ein-
arsdóttir, Emil Guðmundsson,
Valgeir Skagfjörð og Þórunn Páls-
dóttir sem koma fram undir stjórn
Helgu Bachmann. Á tónleikunum
á Kjarvalsstöðum leika og syngja
Áshildur Haraldsdóttir, Haukur
Tómasson, Elísabet F. Eiríkssdótt-
ir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Nína
Margrét Grímsdóttir, Sigríður
Hulda Geirlaugsdóttir og Laufey
Sigurðardóttir.
Auk þessa er ýmislegt fleira á
seiði í dag: fiskur á Lækjartorgi,
sýningar í Árbæjarsafni, Gerðu-
bergi og á Karvalsstöðum og kynn-
ing á Borgarbókasafni, Umferðar-
deild og Vatnsveitunni verður
áfram. Vatnsveitunni geta menn
kynnst undir leiðsögn Þórodds Th.
Sigurðssonar kl. 16.00, Borgar-
bókasafnið verður með bókakynn-
ingar í útibúum sínum og í Gerðu-
bergi og Kjarvalsstöðum og um-
ferðardeildin er alltaf opin fyrir
áhugamenn.
-gat
Borgarbókasafnið er 60 ára um þessar mundir og í dag eru útibúin opin.
Sýning og dagskrá um
stærðfræðikennslu
Dagana 20. - 24. júní s.l. var
haldin að Flúðum ráðstefna
stærðfræðikennara frá Norður-
löndum og sóttu hana rúmlega 30
kennarar frá Danmörku, Finn-
landi, Svíþjóð og Islandi. I tengsl-
um við ráðstefnuna var haldin sýn-
ing á náms- og hjálpargögnum í
stærðfræðikennslu í kcnnslu-
miðstöð Námsgagnastofnunar að
Laugavegi 166 í Reykjavík.
Sýningin vakti óskipta athygli og
hefur því verið ákveðið að fram-
lengja hana til 2. september. Verð-
ur hún opin mánudaga til föstu-
daga frá kl. 13.00 - 18.00 og á öðr-
um tímum eftir samkomulagi.
Á sýningunni eru sýnishorn af
nýju námsefni í stærðfræði frá um
20 útgefendum í Danmörku, Finn-
landi og Svíþjóð en hinir erlendu
þátttakendur á ráðstefnunni útveg-
uðu það efni. Þá er á sýningunni
gamalt og nýtt innlent námsefni,
margvísleg hjálpargögn, einkunt
fyrir nemendur á grunnskólastigi,
t.d. námspil, rökleikir og þrautir,
auk hvers konar verkefna, hand-
bóka og kennslutækja. Þá má
nefna sýnishorn af verkefnavinnu
nemenda í dönskum og sænskum
skólum sem vakið hafa sérstaka at-
hygli sýningargesta.
Hér er um að ræða kjörið tæki-
færi fyrir kennara og aðra áhuga-
menn til að fylgjast með nýjungum
á sviði stærðfræðikennslu og ekki
síður til að undirbúa vetrarstarfið.
í tengslum við sýninguna verður
nú í ágúst efnt til sérstakrar dag-
skrár fyrir stærðfræðikennara í
kennslumiðstöðinni. Haldin verða
tvö vinnukvöld um efnið: Hvernig
nýtum við umhverfi og áhuga nem-
enda í stærðfræðikennslunni?
Hvernig nýtist stærðfræðin í lífinu?
Fyrri fundurinn verður miðviku-
daginn 24. ágúst, kl. 20.00-22.30
og er hann einkum ætlaður kennur-
um 1. - 4. bekkjar. Leiðbeinandi
verður Guðný Helga Gunnars-
dóttir kennari. Seinni fundurinn
verður fimmtudaginn 25. ágúst kl.
20.00 - 22.30 og er hann einkum
ætlaður kennurum 5. - 9. bekkjar.
Aðalleiðbeinandi verður Anna
Kristjánsdóttir lektor.
Mánudagginn 29. ágúst frá kl.
13.00 - 18.30 og 20.00 - 22.00 gefst
kennurum 5. - 9. bekkjar kostur á
að koma í kennslumiðstöðina til að
vinna að verkefnagerð í stærðfræði
undir leiðsögn þeirra Önnu Krist-
jánsdóttur lektors og Kristjáns
Guðjónssonar námstjóra. Þriðju-
daginn 30. ágúst á sama tíma munu
Guðný Helga Gunnarsdóttir og
Kristján Guðjónsson námstjóri
leiðbeina kennurum 1.-4. bekkjar
um verkefnagerð.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Keflavíkur:
Fundur fimmtudag 18/8 kl. 20,30 í húsi Stangveiðifélagsins við
Suðurgötu. - Félgar fjölmennið.
Varhugaverður
gaslyftibúnaður
Vinnueftirlitið
bannar stóla með
ákveðnum búnaði
Vaktmaður á Vinnuhælinu að
Litla-Hrauni varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu í byrjun
þessa mánaðar, að skrifstofustóll
brotnaði og datt maðurinn aftur
fyrir sig í gólfið. Um leið skaust
stimpill úr hólk gaslyftibúnaðar,
sem í stólnum var, með verulegu
afli í loft herbergisins.
Vinnueftirlit ríkisins rannsakaði
óhapp þetta og hefur nú sent frá sér
fréttatilkynningu um málið.
Vinnueftirlitið telur, að ástæða
óhappsins eigi sér rætur í því, að
fyrirtækið, sem flytur inn stóla
þessa, hafi notað gaslyftibúnað,
sem henti ekki þessum stólum.
Þessi gaslyftibúnaður sé gerður
fyrir stóla með fastri setu, sem ekki
sé hægt að velta þegar setið er í
stólnum. Stóllinn, sem vaktmaður-
inn hvíldi botninn á, var hins vegar
þannig, að hægt var að halla hon-
um aftur.
Vinnueftirlitið hefur nú lagt
bann við notkun þessara gashólka í
stóla með veltanlegri setu. Jafn-
framt gerir Vinnueftirlitið þá kröfu
til viðkomandi framleiðanda, að
hann innkalli og geri breytingar á
þeint stólum, sem seldir hafa verið
með þessum búnaði, þannig að
ekki stafi lengur af þeim slysa-
hætta. í fréttatilkynningu Vinnu-
eftirlitsins er þess' jafnframt getið,
að ekki sé kunnugt um, að hætta
Stóllinn sem brotnaði undan vakt-
manninum á Litla Hrauni. Mesta
mildi var að ekki hlaust stórskaði
af. (Ljósm. Vinnueftirlit ríkisins.)
stafi af gaslyftibúnaði stóla, sem
ekki er hægt að velta.
{ fréttaktilkynningu Vinnueftir-
litsins kemur ekki fram, hvaða
framleiðandi hefur látið frá sér
stóla af ofangreindu tagi. Við höf-
um hins vegar áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því, að Stáliðjan og
Gamla kompaníið hafi breytt gas-
lyftibúnaði stóla sem hægt er að
velta, en væntanlega afturkalla
fyrirtækin stóla af þessu tagi eftir
þetta bann Vinnueftirlitsins. ast
Rokkferð með Eddunni
á nœststœrstu rokkhátíð Breta
Á miðnætti í kvöld, miðvikudag
fer Eddan einn ganginn enn fr;
Reykjavík til Bretlands og Þýska
lands. Með þessari ferð verðui
hópur sem ætlar á Donintonrokk
hátíðina í Englandi, þann 20. ágúsi
næstkomandi. Hér er um að ræð;
næststærstu rokkhátíð Breta ái
hvert, 8-9 klukkustunda langa, þai
sem fram koma sex þekktar rokk-
hljómsveitir og listamenn: Whit-
esnake, Meatloaf, ZZ Top, Twist-
ed Sister, Dio og Diamond Head.
Stórhljómsveitin Whitesnake ei
aðalnúmer dagsins. í Whitesnake
eru heimskunnir og rótgrónii
þungarokkarar.m.a. tveir fyrrum
meðlimir Deep Purple.
Meatloaf - kjöttröllið sjálft - ei
enn í fullu fjöri. Hann hefur á
undanförnum árum átt miklum
vinsældum að fagna - jafnt héi
heima sem erlendis - og þótt hann
hafi ekki verið ýkja áberandi
undanfarna mánuði er hann enn i
fullu fjöri.
Hróður bandaríska suðurríkja-
tríósins ZZ Top hefur ekki borist
mjög víða hérlendis, en það á sér
tryggan fylgismannahóp. Síðasta
plata ZZ Top, Eliminator, var aí
gagnrýnendum talin þeirra besta
frá upphafi.
Twisted Sister er enn ein hljóm-
sveitin, sem treður upp í Doninton.
Þessi fimm manna sveit Banda-
ríkjamanna hefur þotið með ör-
skotshraða upp á stjörnhiminn
þungarokkaranna, sér í lagi í Bret-
landi, á undanförnum mánuðum.
Flenni hefur m.a. verið lýst sem
arftáka Kiss, en tónlistin er hrátt og
óheflað keyrslurokk.
Dio nefnist ný hljómsveit hins
kunna rokksöngvara Ronnies Jam-
es Dio. Hann var síðast í Black
Sabbath, en var m.a. í uppruna-
legri útgáfu Rainbow, hljómsveitar
Ritchies Blackmore. Dio hefur í
mörg ár verið talinn einn þriggja
bestu þungarokksöngvara Breta og
er nýútkomin plata með honum,
Holy Diver.
Enska hljómsveitin Diamond
Head er ein þeirra sveita, sem enn
hefur ekki náð að brjótast í gegn-
um skurnina og inn í stjörnuheim-
inn, en því er spáð að stutt sé í það.
Diamond Head Ieikur keyrslurokk
af bestu gerð og það er einmitt sú
tegund tónlistar, sem verður aðals-
merki Doninton-hátíðarinnar. Hér
er því kjörið tækifæri fyrir unnen-
dur þungarokksins að skella sér
með Eddunni í kvöld og á hljóm-
leikana á laugardag.
Fararstjórar verða Pétur Krist-
jánsson, framkv.stj. Steinars h.f.,
og Sigurður Sverrisson, blaðamað-
ur. Guðmundur Ingólfsson píanó-
leikari mun skemmta gestum um
borð, en auk hans munu koma
fram rokkararnir Eiríkur Hauks-
son og Pétur Kristjánsson.
Þakkarávarp
Pakka fjölskyldu minni og frœndum, venslafólki, sam-
starfsmönnum og Félögum fyrir kveðjur, gjafir og virð-
ingarvott á sextugsafmœli mínu 3. ágúst, s.l.
Lifið heil.
Sigurður B. Guðbrandsson