Þjóðviljinn - 08.12.1983, Blaðsíða 1
DJOÐVIUINN
desember
fimmtudagur
281. tölublað
48. árgangur
Kjarninn í skattafrumvarpi ríkisstjórnarinnar:
Skattahækkun launafólks
Skattleysi fyrirtækjanna
Skattbyrði hjóna
með venjulegar
mánaðartekjur -
15 til 25 þúsund -
eykstum 10-17%.
írafár íþingliði
ríkisstjórnarinnar
þegar lœkkana-
blekkingarnar
voru afhjúpaðar.
Þyngri skattar hjá
80% allra hjóna í
landinu.
Samkvæmt fyrirliggjandi
frumvarpi til breytinga á lögum
um tekju- og eignaskatt virðist
ríkisstjórnin stefna á stórlækk-
un skatta hjá fyrirtækjum í
landinu og í undirbúningi eru
tillögur sem kveða á um enn
frekari ívilnanir þeim til handa.
Hins vegar er stefnt á verulega
aukningu skattbyrðarinnar hjá
venjulegu launafólki.
Tekjuskattur félaga, þ.e!
hlutafélaga, sameignarfélaga og
samvinnufélaga, verður skv. frum-
varpinu 51% af skattskyldum tekj-
! um þeirra en var áður 65%. Félög
: hafa haft og hafa enn rétt til að
leggja til hliðar 25% hreinna tekna
Jóla-
maturinn
20 síðna ítarlegt sérrit um
jólarnatinn fylgir Þjóðviljan-
um í dag. í blaðinu er að finna
fjöldann allan af upplýsingum
og uppskriftum auk annars
fróðleiks um jólamatinn.
■■ ■
Þegar þingmenn stjórnarandstöðunnar - Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar
Grímsson og Kjartan Jóhannsson - voru að fletta ofan af blekkingum
fjármálaráðherra og rekja hvernig skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar fel-
ur í ser raunverulega hækkun skattbyrðarinnar hjá þorra launafólksins í
landinu kom mikið írafár á forystumenn Sjálfstæðisflokksins. Myndin
sýnir þegar Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins fór að
blaða í útreikningum hjá Sigurbirni Þorbjörnssyni ríkisskattstjóra og
Árna Kolbeinssyni úr fjármálaráðuneytinu. Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra var einnig sífellt að skjótast inn í þetta hliðarherbergi þegar
stjórnarandstæðingar flettu ofan af hækkununum. Var greinilegt að emb-
ættismennirnir í hliðarberberginu áttu fullt í fangi með að beina ráðherr-
anum og forystu Sjáifstæðisflokksins á braut sannleikans.
í varasjóð en það þýðir að raun-
verulegur tekjuskattur verður að-
eins 38.25% af tekjum fyrirtækj-
anna.
Hingað til hafa flest stærri fyrir-
tæki landsins algjörlega sloppið við
að greiða skatt til ríkisins og virðist
með ofangreindum tillögum ríkis-
stjórnarinnar vera stefnt á að fjölga
allverulega í þeirra hópi. Á það
skal bent að fyrirtæki greiða hvorki
útsvar né sjúkratryggingagjald.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans eru nú í undirbúningi tillögur
um að auka verulega skattfrelsi
arðs hjá fyrirtækjum og afnema al-
gjörlega skatt af hlutabréfaeign.
Hólmgeir Jónsson hagfræðingur
ASÍ kvað ljóst af frumvarpinu að
skattbyrði hjóna með 290 þúsund
kr. í árstekjur og þaðan af meira
ykist verulega á næsta ári. Hjón
með þessar tekjur geta vart talist til
hátekjufólks, þar sem annað þeirra
er með um 8 þúsund kr. í mánaðar-
laun en hitt með um 16 þúsund
krónur. Þá er reiknað með í þessu
dæmi greiðslu tekjuskatts og
skjúkratryggingargjalds og að út-
svar verði 11% á næsta ári.
Greiðslubyrði barnlausra hjóna
með 500 þúsund kr. í samanlagðar
tekjur hækkar úr 16.45% í 19.17%
eða um tæplega 17%.
Hin gífurlega lækkun kaupmátt-
ar á milli áranna 1983 og 1984 gerir
það að verkum að skattar verða
mun hærra hlutfall tekna á næsta
ári en þeir voru í ár. Miðstjórn Al-
þýðusambands íslands hefur bent á
að meðalskattbyrði næsta árs verði
amk 14% af tekjum en í ár voru
þeir um 12.5%.
-v.
Nei, nei, ég er ekki
að verða ráðherra
sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstœðisflokksins
í stjórnarblöðunum í gær er sagt að fulltrúar ASÍ hafi
í fyrradag átt fund með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og
birta myndir þar af þeim atburði. Vakti athygli að
fulltrúar ríkisstjórnarinnar voru tveir, Steingrímur
Hermannsson og Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins og ekki ráðherra enn sem komið er.
Þjóðviljinn innti Þorstein eftir
því í gær hvort þetta boðaði það að
hann sem formaður flokksins væri
nú að ganga inní ríkisstjórn sem
ráðherra.
Nei, nei, ég var þarna bara sem
formaður annars stjórnarflokksins
og sat þennan fund í því umboði,
svaraði hann og brosti. Þetta boðar
engar breytingar innan ríkisstjórn-
arinnar, bætti hann við.
Hefði ekki verið eðlilegt að ein-
hver ráðherranna hefði verið þarna
með ykkur, t.d. fjármálaráðherra?
Nei, nei, enganveginn. Þarna
voru bara formenn stjórnarflokk-
anna. Ekkert annað lá á bak við en
að þeir tveir ræddu við fulltrúa
ASÍ, sagði Þorsteinn Pálsson.
-S.dór.
Frumrannsókn er
lokið í Skaftamálinu
hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, sem
hefur sent frá sér
frétt um framburð
málsaðila.