Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 8
MANNLÍF Láglaunamaður Átök Hélt sig Súpermann! - Hvað segirðu? Viltu heyra verkfallsvörslusögur? - spurði Helgi Helgason kennari kímin- leitur þegar Þjóöviljinn dró hann út af fundi í kennaraathvarfinu. Hann hefur verið virkur í vörsl- unni og lent í ýmsum ævintýrum eftir því sem frést hefur. - Viltu heyra söguna af því þegar ég hélt ég væri Súper- mann? - Það var þegar við vorum að passa upp á að nemendur færu ekki inn í Háskólann. Verkfalls- verðir skiptu sér á allar dyr og ég lenti ásamt nokkrum konum við aðaldyrnar. Þangað komu svo 5 fflefldir karlmenn saman í hóp, gengu þungum og ákveðnum skrefum með stressboxin sín upp að dyrunum, sviptu konunum frá með snöggu og ákveðnu hátta- lagi. Ég sá að í óefni stefndi og ákveð að gera mitt til að þessir ómeðvituðu nemendur færu ekki inn í skólann. Ég hélt sem sé um stund að ég væri Súpermann og færi létt með þessa náunga. Tók mér stöðu við dyrnar og breiddi úr mér eftir bestu getu. Þeir gerðu sér þó lítið fyrir: sviftu dyr- unum upp og ég rankaði við mér lengst inni í anddyri skólans, hafði þeyst þangað eins og fis í látunum. - Svona hafa vonbrigðin orðið fleiri í þessu verkfalli og sjálfs- álitið minnkað. Maður hélt sig vera sæmilega þjálfaðan en svo hefur komið í ljós að þegar til átaka kemur hefur maður ekkert að segja. Ég lenti einnig á átaka- vakt við Öskju en eftir þessi læti hef ég verið á rólegum vöktum á kvöldin og nóttunni. Helgi Helgason er í 10 manna hópi verkfallsvarða úr Snælands- skóla sem fer saman á vaktir. Sá hópur hefur verið sæmdur „Mör- gæsaorðu“ af öðrum verkfalls- vörðum vegna brandaranna sem þeir hafa sérhæft sig í. Já, það gerist ýmislegt í mannlífinu þessa dagana og næt- urnar undir yfirborðinu, enda samstaðan mikil og hugur í mannskapnum. -jP á sólarhring „Við skiptumst á við að skipu- leggja verkfallsvaktirnar, okkar starf í verkfallinu er einnig vakta- vinna", sagði Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir kennari í Foss- vogsskóla þegar Þjóðviljinn ræddi við hana á skrifstofu BSRB. Hildigunnur Þórsdóttir kennari í Ölduselsskóla ásamt syninum Hróbjarti Þorsteinssyni 5 óra. (Mynd: eik). Hringingakerfi til að allir hittist inn hitti í kennaraathvarfinu í athvarfinu sem hefði að jafnaði Borgartúni. verið tvisvar í viku meðan verk- Hildigunnur sagði kennara fall hefur staðið yfir. skólans hafa með sér hringinga- „Já! Ég er tilbúin í lengri bar- kerfi sem hringt væri eftir daginn áttu ef þess þarf!“, sagði Hildi- áður en ákveðið væri að hittast í gunnur. - jp Til í allt Launin svo lág að varlatekurþvíað vinnafyrir þeim. Uthlutun úr verkfallssjóði til kennara 2.500 til 3.500 krónur. „Baráttuhugurinn í þessu verk- falli margfaldaðist þegar ég sótti um úthlutun úr verkfallssjóði BSRB“, sagði Helgi Helgason kennari í samtali við Þjóðviljann. „Þá fyrst geröi ég mér grein fyrir hversu gífurlega lágar ráðstöfun- artekjurnar hafa verið á mánuði þetta árið. Það tekur því ekki að semja upp á áframhaldandi sult- arlaun. Tekur því varla að vinna fyrir þessum lágu launum." Þegar sótt er um úthlutun úr verkfallssjóði þarf að útfylla um- sókn og meðal annars geta um útborguð laun á árinu. „Eg sá þá að útborguð laun mín fyrstu 10 mánuði ársins eru aðeins 166.000. Þetta eru þau laun sem ég hef eftir þriggja ára háskóla- nám. Svei mér þá ef ég er ekki til í allt til að þau tosist upp“, sagði Helgi. Einstaklingar hafa fengið 2.500 krónur úr verkfallssjóði en hjón með 1 barn hafa fengið 3.500 krónur. Kennararnir sem Þjóðviljinn hitti sögðu gott að fá kaffi og meðlæti í athvarfinu og brauð á vöktunum því hundrað- krónuseðlarnir sem þeir hafa milli handanna duga ekki fyrir nauðþurftum. Var þó hugur í þeim, sögðu vini og vandamenn hjálpa uppá og aldrei hafi verið meira um að þeim sé boðið í mat hingað og þangað. -jP Snorri Jóelsson (t.v.) og Sylvía Guðmundsdóttir umsjónarmenn í kennaraathvarfinu ásamt Helga Helgasyni. Snorri og Helgi eru í 10 manna hópi sem stundar verkfallsvörslu á kvöldin og nóttunni. i hópnum eru kennarar úr Snælandsskóla og kallast hann Mörgæsahópurinn vegna brandaranna sem þeir hafa sérhæft sig í. Sagt er að mikið hafi verið samið af nýjum skrýtlum og gátum síðan verkfallsvarsla hófst, auk þess sem kveðist er á af kappi. (Mynd: eik). Kennaraath varfið Vinsælt og eflir samstöðuna 6 kennarar hafa umsjón með athvarfinu Kennaraathvarfið er í kjallar- anum að Borgartúni 18, húsinu sem Sparisjóöur vélstjóra er í. Þar fóru kennarar að hittast þeg- ar í upphafi verkfalls. Enda skól- arnir lokaðir og samastað vant- aði til að ræða málin. 6 kennarar hafa umsjón með athvarfinu. Þegar Þjóðviljinn heimsótti kenn- araathvarfið voru Snorri Jóels- son og Sylvía Guðmundsdóttir umsjónarmenn dagsins og sögðu þau okkur frá starfseminni á staðnum. „Hingað koma allt að 500 manns yfir daginn. Það er opið milli kl. 14 og 17 og skemmtiatriði ásamt nýjustu fréttum af samningamálum eru milli 3 og 4. Athvarfið er vinsælt og þjónar mikilvægu hlutverki við að efla samstöðuna. Ef ein- hverjum fer að förlast í trúnni les- um við bara ræðuna hans Al- berts! Trúnaðarmenn skólanna hafa notað athvarfið til að kalla saman sitt fólk. Einnig koma kennarar utan af landi í heimsókn. Við höfum ávallt kaffiveitingar og sjálfboðaliðar hafa unnið við þær. Allt byggist á frjálsum fram- lögum. Skólarnir hafa sameinast um að sjá um kaffið til skiptis. Einnig hafa nokkur bakarí sent okkur meðlæti. Greiðslu höfum við ekki tekið fyrir kaffi og með því en þeir sem eiga einhvern pening hafa mátt borga“, sögðu Snorri og Sylvía. Guðmundur Ámason tók þátt í fjöldasöng eftir að hann skýrði stöðuna í samningamálunum á fundi í kennaraathvarfinu í fyrradag. (Mynd: eik). Samninganefndin Með baráttuhug að bakhjarli „Ef ekki væri þessi baráttuhugur í fólkinu værum við löngu búin að semja því kennaraathvarfinu í Borgartúni í fyrradag. þessibakhjarlhefurkomiðívegfyriraðviðhöfumbrotnaðniður. Fyrirvikið höfum „Lengst af var okkur haldið í 5% tilboðum og það var ekki fyrr en eftir við möguleika á að ná sómasamlegum samningum!" Svo sagði Guðmundur Reykjavíkursamninginn sem eitthvað fór að gerast. Hugurinn í fólkinu hérna er Ámason, einn af 10 manna samninganefnd BSRB, þegar Þjóðviljinn hitti hann í ómetanlegur stuðningur." - jp Unga fólkinu í kennaraathvarfinu þótti söngurinn skemmtilegri en fréttir af samningamálum. Ástandiö lagaðist þó til muna þegar boðið var upp á djússopa. (Mynd: eik). Fjöldi sjálfboðaliða bíður skömmu fyrir vaktaskipti eftir skipun frá Hrafnhildi Gunnlaugsdóttur um hvar þeir skuli gæta þess næstu klukkustundir að verkfall sé virt í hvívetna. (Mynd: eik). „Verkfallsverðir eru á vakt í 4 tíma í senn nema á Grundartanga þar sem þeir eru lengur.“ Hrafn- hildur sagði það koma fyrir að skortur væri á verkfallsvörðum en mörg hundruð manns starfa við þetta á sólarhring. „Fólk úr öllum starfshópum kemur hingað og býður sig fram, kennarar eru mjög virkir.“ Á skrifstofu BSRB er einnig mannskapur í að smyrja brauð og hita kaffi sem síðan er fært verk- fallsvörðum. Yfir 500 samlokur eru smurðar á sólarhring og kaffi- lítrarnir sem drukknir eru skipta tugum ef ekki hundruðum. -jP örlygur Richter kennari í Ölduselsskóla stjórnaði fjöldasöng og spilaði undir þegar Þjóðviljinn heimsótti kennaraathvarfið. (Mynd: eik). Verkfallsvaktir 500 samlokur 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 25. október 1984 Flmmtudagur 25. október 1984 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.