Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 11
Búseti og húsnæðiskreppan eftir Jón Rúnar Sveinsson í sunnudagsblaði Þjóðviljans þann 19. ágúst sl. gat að líta um- fjöllun um ágæta tillögu Guðrún- ar Hallgrímsdóttur, þess efnis að Húsnæðisstofnun beiti reglu- gerðarákvæðum í því skyni að knýja fram lægra útborgunar- hlutfall í fasteignaviðskiptum. f umfjöllun blaðsins eru hús- næðismálin tekin til meðferðar vítt og breitt, og er m.a. á nokkr- um stöðum rætt um Búseta- hreyfinguna ogstöðu hennar. Þar sem mér þykír gæta nokkurs mis- skilnings um niðurstöðu af- greiðslu Alþingis sl. vor á málum Búseta leyfi ég mér hér að rifja upp helstu málsatvik. Það er nefnilega alls ekki rétt sem kemur fram í inngangi blaða- manns, að „Búseta hafi verið út- hýst úr kerfinu“ í vor. Þvert á móti, eftir að frumvarp Alexand- ers Stefánssonar er að lögum orð- ið, hafa þau þrjú húsnæðissam- vinnufélög, sem þegar hafa verið stofnuð, öðlast ótvíræðan rétt til 80% lána til 31 árs úr hinum fé- lagslega byggingarsjóði! Búseti var aldrei úti- lokaður Ég mun nú rekja hvernig laga- legum rétti húsnæðissamvinnu- félaganna er háttað eftir að hús- næðisfrumvarpið varð að lögum. Frumvarp ríkisstjórnarinnar veitti húsnæðissamvinnufélögum rétt til lána úr hinum félagslega byggingarsjóði. Þetta kom fram í framsöguræðu félagsmálaráð- herra er hann fylgdi húsnæðis- frumvarpinu úr blaði þann 8. des. 1983 og sömuleiðis í greinargerð með frumvarpinu, þar sem beinlínis var rætt um lánveitingar til byggingarfélaga er stofnuð væru að tilhlutan samtaka leigjenda. Það var þessi athuga- semdargrein sem Halldóri Blöndal sást yfir þegar hann fór að halda fram þeirri fráleitu hug- mynd að húsnæðissamvinnufélög ættu ekki rétt til lána samkvæmt frumvarpinu. Það var því lestrar- tregða Halldórs Blöndals sem var upphaf þess fáránlega darraðar- dans sem átti sér stað á Alþingi sl. vor, með fimm frestunum um- ræðna og einkar frjálslegri með- ferð þingskapa. 33. grein c. í frum- varpinu var svohljóð- andi: „(Félagslegar íbúðir teljast skv. lögum þessum:) c. Leigu- íbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum, stofn- unum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða af félagasamtökum og ætlaðar eru til útleigu við hóf- legum kjörum fyrir námsfólk, aldraða, öryrkja og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi.“ Þess má geta, að þessi grein var algerlega óbreytt frá stjórnarf- rumvarpi er Svavar Gestsson lagði fram sem félagsmálaráð- herra árið áður. Niðurstaða „Búsetamálsins" á Alþingi varð sú, að aftan af 33. grein c. voru felld þessi 14 orð- : „...og aðra sem ekki hafa að- stöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi.“ Að þessari skurðaðgerð lok- inni hljóðar greinin, sem nú er orðin að landslögum, svo: „c. Leiguíbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfé- lögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða af félagasamtökum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum fyrir námsfólk, aldraða og öryrkja." Inntak greinarinnar er nánast óbreytt frá því sem áður var. Samkvæmt greininni má veita lán til félagasamtaka sem hafa innan vébanda sinna námsfólk, aldraða og öryrkja. í könnun sem fór fram á meðal félaga Búseta í Reykjavík kom í ljós, að rúm 30% félagsmanna tilheyrðu þess- um hópum, þar af um 20% náms- fólk. Að auki voru 13% félags- manna einstæðir foreldrar. Ljóst er, að Búseti uppfyllir skilyrði laganna. Húsnæðisstofn- un er því skylt að veita húsnæðis- samvinnufélögunum lán, þar sem um er að ræða félagasamtök sem hafa umrædda félagslega forg- angshópa innan sinna vébanda. Rangfœrslur fjölmiðla Af óskiljanlegum ástæðum varð sú saga til í vor og var slegið upp í fjölmiðlum, þar á meðal hér í Þjóðviljanum, að sú lagagrein sem veitti Búseta rétt til lána hefði verið felld niður. Þessi lyga- saga var nógu oft endurtekin til þess að þjóðin trúir því almennt að einmitt þetta hafi skeð. Á þessum misskilningi byggist sú afstaða sem fram kemur í greinum og viðtölum blaða- manns Þjóðviljans, að Búseti hafi verið góð hugmynd sem íhaldinu hafi hins vegar tekist að drepa í fæðingunni. Ekki þarf að fjölyrða hve niðurdrepandi slík afstaða er fyrir baráttuanda þeirra þúsunda fslendinga sem á einn eða annan hátt hafa tekið þátt í baráttunni fyrir Búseta. Búsetafélögin munu á næstu vikum láta myndarlega í sér heyra, m.a. annars hafa þau haft frumkvæði að ráðstefnu um fé- lagslegar íbúðabyggingar á ís- landi sem haldin verður í haust í samvinnu við ASÍ og BSRB. Blaðaútgáfa er öflug og fyrir dyrum stendur stofnun lands- sambands húsnæðissamvinnufé- laga. Síðast en ekki síst hafa verið lagðar fram umsóknir um bæði lóðir og lán til byggingar 56 íbúða í Reykjavík, 12 á Akureyri og 8 á Selfossi, eða samtals 76 íbúða. í rauninni skipti meðferð Al- þingis í vor, þrátt fyrir allt fjaðr- afokið, harla litlu máli um fram- tíð Búseta. Það lá fyrir áður en í odda skarst mill stjórnarflokk- anna, að þröngt yrði um fjár- magn til aukinna félagslegra íbúðabygginga, og þrátt fyrir að lagalegar hindranir við lánum til húsnæðissamvinnufélaga séu ekki lengur fyrir hendi, þá hefur fjárhagsstaða hins félagslega byggingarsjóðs versnað til muna síðan í vor. Hér er ég kominn að síðara efní þessarar greinar, kreppu íslenska húsnæðiskerfisins. Hvaða leiðir verða valdar til lausnar henni ráða úrslitum um framtíð Búseta. Islenska húsnœðiskreppan Fyrir þremur árum ritaði ég, ásamt Inga Val Jóhannssyni, yfirlitsgrein um húsnæðismál á ís- landi í tímarit norrænna félags- fræðinga, Acta Sociologica. í greininni slógum við því föstu, að á íslandi ríkti húsnæðiskreppa sem færi stöðugt dýpkandi. Ýms- ir málsmetandi menn sem við ræddum við töldu að við tækjum þarna of djúpt í árinni. Því miður höfum við reynst sannspáir, (1) verðtrygging, (2) ónóg fjárm- ögnun, (3) stórir árgangar ungs fólks og (4) stöðugt versnandi lífskjör, allir þessir- þættir hafa lagst á eitt um að skapa verra og verra kreppuástand. Nýjasta höggið í sama knérunn er vaxtahækkun sú, sem hefur það í för með sér, að fólk sem tekur lán eftir 1. júlí 1984 verður eitt allra lántakenda að bera raunvexti á bilinu 4-6%. Ráða- mönnum húsnæðismála finnst greinilega að kynslóðamisréttið hafi ekki verið orðið nægjanlegt fyrir þessa gífurlegu vaxtahækk- un. Fyrir fimm árum var lögleidd full verðtrygging, sem í einu vet- fangi skapaði gífurlegan aðstöðu- mun milli aldurshópa. Það á ör- ugglega eftir að koma í ljós að hinar gífurlegu vaxtahækkanir sem nú eru að skella á, auka enn frekar á þetta misrétti. Veigamesti þáttur íslensku húsnæðiskreppunnar er fjár- magnsskorturinn. Verði ekki leyst úr þeim vanda á raunhæfan hátt, þá mun heil kynslóð lenda úti í kuldanum í húsnæðismálum. Eina raunhæfa lausnin á vanda leigumarkaðarins, leið húsnæð- issamvinnunnar, er sömuleiðis útilokuð án lausnar fjármögn- unarkreppunnar. Óhagstœð skipti við lífeyrissjóðina Þegar húsnæðislöggjöfin var endurskoðuð árið 1980 var á pappírnum byggt upp flókið lán- akerfi, en hins vegar var alger- lega vanrækt að tryggja fullnægjandi fjármögnun þessa kerfis. Fyrst og fremst var treyst á fjámagn frá lífeyrissjóðum, en þar sem að lánstími lána lífeyris- sjóðanna er mun styttri en sá lánstími sem Húsnæðisstofnun endurlánar fjármagnið til hús- byggjenda, þá stefnir óðfluga í það, að húsbyggingarsjóðirnir borgi lífeyrissjóðunum hærri upphæðir á ári hverju í vexti og afborganir en sem nemur lög- boðnum skuldabréfakaupum líf- eyrissjóðanna. Þá verður líkt á komið um lífeyrissjóðsfjámagnið og nú þegar er orðið með skyld- usparnað ungs fólks, á síðasta ári var nefnilega greitt út meira af skyldusparnaðarfé en innbundið var hjá Byggingarsjóð ríkisins á sama tíma. Skylduspamaðurinn er sem sé nú þegar kominn „í mínus“, fjár- magnsskiptin við lífeyrissjóðina verða orðin neikvæð á næsta eða þar næsta ári. Fjárhagsörðugleikarnir á þessu ári eru merki þess að sá gálgafrestur, sem stjórnvöld keyptu sér árið 1980 með notkun lífeyrissjóðafjármagnsins, er að renna út. Óbrigðult merki um þetta er sú staðreynd að á sl. vori var stöðu Byggingarsjóðs ríkisins bjargað fyrir horn með sérstöku erlendu láni. Slíkt hefur ekki gerst áður, en er tákn þess sern koma skal ef haldið verður áfram á braut sömu handahófsstefnu. Ný tekjuöflun - nýtt félagslegt átak Erlend lán eru, sem kunnugt er, aðeins ávísun á aukna skatt- lagningu er fram líða stundir. Ég tel því að hreinlegast sé í þessu efni að ganga beint til verks og taka upp sérstaka skattlagningu í þágu húsnæðislánakerfisins. Slíkt hefur verið gert áður, með hvað eftirminnilegustum hætti þegar sérstökum launaskatti var komið á árið 1965 í því skyni að fjár- magna byggingar á vegum Fram- kvæmdanefndar byggingaráætl- unar, en á vegum hennar voru reistar samtals 1251 félagslegar íbúðir á árunum 1968-74. Er ekki kominn tími til þess að verkalýðshreyfingin setji hús- næðismálin aftur á oddinn í kjar- asamningum? Það er ekki nokk- ur vafi á því, að í dag er þörf fyrir álíka átak innan ramma félags- lega íbúðabygginga og Breiðholtsframkvæmdirnar voru á sínum tíma. Þegar rætt er um skattlagningu í þágu húsnæðislánakerfisins verður ekki komist fram hjá þeirri staðreynd, að um langt ára- bil voru húsnæðislán veitt án verðtryggingar, þannig að stórir aldurshópar sluppu að verulegu leyti við endurgreiðslu húsnæðis- lána sinna. Vel mætti hugsa sér að ein- hvers konar jöfnunargjald, sem lagt væri á t.d. allar íbúðir er keyptar væru á árunum 1965- 1979. Tekjurnar af þessu gjaldi væru notaðar til stórátaks í fé- lagslegum íbúðabyggingum með svipuðum hætti og þegar launa- skatturinn var notaður til Breiðholtsframkvæmdanna. Þær blikur eru nú á lofti í hús- næðismálum þessarar þjóðar sem benda til þess að láglaunafólk og ungt fólk muni í framtíðinni eiga jafnvel enn erfiðara uppdráttar en hingað til. Það er því nauðsyn- legt að standa vörð um og efla hinar félagslegu lausnir eins og hægt er. Að mínu áliti er lag fyrir verkalýðshreyfinguna á komandi hausti að knýja fram nýtt stór- átak í félagslegum íbúðabygging- um, svo sem gert var fyrir 19 árum. Jón Rúnar Sveinsson er félagsfræðingur og formaöur Húsnæðissamvinnufélagsis Búseta Þær blikur eru nú á lofti í húsnœðismálum þess- arar þjóðar sem benda til þess að láglaunafólk og ungtfólk muni íframtíðinni eiga jafnvel enn erfiðara uppdráttar en hingað til. Það er því nauðsynlegt að standa vörð um félagslegar lausnir. LESENDUR Óhugnanleg f síðustu viku, var Vestmanna- eyingur nokkur látinn koma fram í útvarpinu og lýsa því yfir, að ef frystihúsin í Éyjum stöðvuðu starfsemi sína, mundi allt athafn- alíf þar leggjast í auðn. Sjómenn verða atvinnulausir, heimilin leggjast í rúst og bæjarfélagið gjaldþrota. Margir héldu að þetta væri bara venjuleg hótun í sambandi við launakröfur verkalýðsfélag- anna þar, og þar á meðal forustu- menn verkalýðsfélaganna. En þeir virðast ekki gera sér það ljóst að þetta er bláköld staðreynd, staðreynd sem maðurinn sagði, fámenn klíka frystihúsaeigenda hefur raunverulega svo mikið vald að þeir geta framkvæmt allan þenn- an verknað eftir geðþótta sínum. Þeir geta gert sjómenn atvinnu- lausa, lagt heimilin í rúst og bæjarfélagið gjaldþrota. Þetta er hinn raunverulegi draugur, sem verkalýðurinn þarf að berjast við, ef þeir ætla sér að lifa þarna áfram mannsæmandi lífi. Minnka vald þessa óhugnan- lega draugs, sem hefur örlög alls fólksins þar á valdi sínu. M.F. Flmmtudagur 25. október 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.