Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 13
U-SIÐAN Hvað býður ASSE upp á? Dvöl í Bandaríkjunum eða Kanada1* í eitt skólaár. Ef þú ert 16 eða 18 ára við brottför héðan í ágúst getur þú sótt um: Búsetu hjá fjölskyldu, sem hefur boðist til að taka að sér skipti- nema og gera hann að hluta fjöl- skyldunnar. Fulltrúar ASSE í Bandaríkjunum, sem eru um 300 talsins, hafa valið þessar fjöl- skyldur vandlega úr stórum hópi umsækjenda. Þær taka til sín skiptinema án nokkurrar greiðslu vegna þess að þeim finnst áhuga- vert og ánægjulegt að hafa í fjöl- skyldunni ungling fr’á öðru landi. Flestar fjölskyldurnar hafa opn- að þannig heimili sín áður, einu sinni eða oftar. Skólavist í „High-school“ í eitt skólaár. High-school er síðustu þrjú árin af 12 ára skólagöngu í Bandaríkjunum og þaðan út- skrifast fólk 17-18 ára gamalt. Því samsvarar High-school í rauninni 9. bekk og tveimur fyrstu árunum í framhaldsskóla. Valfrelsi nem- enda er mikið hvað varðar hin ýmsu fög, og félagslíf í skólanum er alla jafna mun meira en gerist hér á landi. Hvað er ASSE? ASSE er skammstöfun fyrir AMERICAN SCANDINAVI- AN STUDENT EXCHANGE og á sér nærri hálfrar aldar sögu. Upphafið var í Svíþjóð þar sem forystumenn menntamála beittu sér fyrir því, að sænskir unglingar ættu kost á námsdvöl í öðrum Evrópulöndum. Síðar komu Bandaríkin inn í myndina og síð- an 1975 hafa unglingar á Norður- löndum átt kost á námsdvöl í Bandarikjunum og bandarískir unglingar átt kost á námsdvöl í hinum ýmsu Evrópulöndum, bæði á Norðuriöndum, Sviss, Bretlandi og Þýskalandi. Þrjú síðastnefndu löndin senda líka ASSE-skiptinema vestur um haf. ASSE á nána samvinnu við menntamálaráðuneytin í Svíþjóð og Finnlandi og Æskulýðsráðið í Noregi, svo og bandarísk yfir- Hvað kostar námsdvöl í Bandaríkjunum á vegum ASSE og hvað er innifalið í verðinu? Námsdvöl kostar 2960 dollara. í verðinu er innifalið: • Flug frá íslandi til Bandaríkj- anna og heim aftur • Flug innan Bandaríkjanna (eða Kanada) til og frá heimaborg fjölskyldunnar, sem dvalið verður hjá • Fararstjórn og aðstoð meðan á ferðum stendur • Fæði og húsnæði meðan á dvölinni stendur • Skólavist í High-school og skólabækur • Undirbúningsnámskeið á ís- landi fyrir brottför • Allar upplýsingar, sem þú þarfnast og öll sú vinna, sem unnin er hér heima og í Banda- rikjunum varðandi val á fjöl- skyldu Ferða- og slysa- tryggingar eru ekki innifaldar í verðinu Hluti af hópnum sem fór út f ágúst sl. ásamt leiðbeinendunum Stefaníu Harðardóttur og Kjuregej Alexandra leikkonu. Æðislegt fjör U-síðan rabbar við Stefaníu Harðardóttur starfsmann ASSE Þar sem U-síðuna langaði til að forvitnast meira um ASSE ísland, var stefnan tekin á skrifstofuna til að hitta Stefan- íu Harðardóttur starfsmann samtakanna. Þegar mig bar þar að garði sat hún í óða önn við að sleikja frímerki. - Ég er að ganga frá sendingu í alla framhaldsskóla á landinu. Þetta er einskonar kynning á starfseminni. - Hvemig hefur hún gengið? - Það er nú ekki komin mikil reynsla á þetta hér hjá okkur. 1. hópurinn var sendur í ágúst s.l. og nú erum við að byrja undir- búning fyrir næsta hóp sem mun fara í ágúst ’85. - Vex það ekki í augum ung- linganna að vera heilt ár að heiman? - Auðvitað gerir það það, námsdvöl eins og þessi í Banda- ríkjunum er ekki sambærileg við skemmtiferð til útlanda. Þó engu að síður sé hún meiriháttar ævin- týri. Þar kemurðu í nýtt umhverfi þar sem enginn þekkir þig og þú þekkir heldur engan og átt þess kost að eignast nýja vini, kynnast öðrum siðum og lífsgildum og breyttum aðstæðum. I því felst líka álag, sem reynir á getu þína, þor og hæfileika til að umgangast annað fólk. Sjóndeildarhringur- inn víkkar og þú lærir enskuna vel með því að lifa og hrærast í enskumælandi umhverfi. Og þá er fátt eitt talið. - En hvernig eru væntanlegir skiptinemar undirbúnir undir all- ar þessar breytingar? - Já, þar komum við að veiga- mesta hluta starfsins. Krakkarnir taka þátt í undirbúningsnám- skeiði, þar sem þeim er kennd t.d. leikræn tjáning, þau fá til- sögn og æfingu í landkynningu og ræðumennsku. Einnig höfum við fengið til liðs við okkur fyrrver- andi skiptinema sem koma og segja frá reynslu sinni og miðla góðum ráðum. - Hvernig gekk svo með hóp- inn sem er úti núna? - Þetta var alveg æðislega skemmtilegt, það var svo mikið fjör í mannskapnum. - En hafiði svo eitthvert sam- band við krakkana? - Já, já, við hringjum í þau og svo fáum við líka bréf. Svo að dvölinni úti lokinni þá mynda þeir sem hafa verið skiptinemar með sér félagsskap og aðstoða ASSE við að kynna starfsemina ogveljanýjaskiptinema. Þá gefst þeim einnig tækifæri á að sækja um þátttöku í „Washington Workshop" sem er einskonar námskeið, fyrst og fremst ætlað bandarískum unglingum, sem hafa sérstakan áhuga á stjórnmálum og hafa jafnvel í hyggju að leggja þau fyrir sig. Þá viku sem námskeiðið stendur, eru skipulagðar heimsóknir á; ýmsa staði í Washington, er varða stjórn landsins, svo og fundir með bandarískum þing- mönnum og öðrum framá- mönnum í stjórnmálum landsins og stjórnsýslu. Þeim sem komast inn á þetta námskeið gefst því einstakt tækifæri til að kynnast og fá innsýn í bandarísk stjórnmál. - Hvenær rennur svo umsókn- arfresturinn út? - Ja, vegna verkfallanna fram- lengdum við hann fram í nóvem- ber. ÁÞ til útlanda. Engu að síður er hún meiri háttar ævintýri. Þú kemur í nýtt umhverfi þar sem enginn þekkir þig og þú þekkir heldur engan og átt þess kost að eignast nýja vini, kynnast öðrum siðum og lífsgildum. f því felst líka álag - það reynir á getu þína og þor og hæfileika til þess að umgangast annað fólk. Sjóndeildarhringur þinn víkkar og þú lærir enskuna vel með því að lifa og hrærast í enskumælandi umhverfi. Þá er fátt eitt talið. l)Umsækjendur, sem óska þess sérstaklega, geta ef til vill fengið dvöl í Kanada. Ekki er þó hægt að tryggja öllum, sem þess óska, dvöl í Kanada. Hugmyndasamkeppni a) Nýtt merki fyrir Landsbankann. b) Afmælismerki í tilefni 100 ára afmælis bankans. c) Minjagripur vegna afmælisins. í tilefni af 100 ára afmæli Landsbanka íslands 1986 býöur bankinn til samkeppni um nýtt merki fyrir bankann, afmælismerki og minjagrip vegna afmælisins. Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum Félags íslenskra teiknara og er öllum heimil þátttaka. Fyrir verðlaunahæfar tillögur verða veitt þrenn verðlaun: a) Fyrir nýtt merki kr. lOOþúsund. b) Fyrir afmælismerki kr. 60 þúsund. c) Fyrir minjagrip kr. 40 þúsund. Afmælismerkið er ætlað á gögn Landsbankans á afmælisárinu, svo sem umslög, bæklinga o.fl. Minjagripinn ætlar bankinn til dreifingar til viðskiptaaðilja o.fl. Tillögum að merkjum skal skila í stærð 10-15 sm í þvermál í svörtum lit á pappírsstærð A4. Keppendur skulu gera grein fyrir merkjunum með texta og litum.Tillögurnar skal einkenna með sérstöku kjörorði og skal nafn höfundar og heimilisfang fylgja með í lokuðu ógagnsæju umslagi, merktu eins og tillögurnar. Tillögum að minjagripum má skila sem teikningum eða módeli af gripnum. Hverjum þátttakanda er heimilt að senda fleiri en eina tillögu. Skal hver tillaga hafa sér kjörorð og umslög með nafni höfundar vera jafnmörg tillögunum. Skilafrestur tillagna er til kl. 17:00 fimmtudaginn 1. nóvember 1984. Skal skila þeim í póst eða til einhverrar afgreiðslu Landsbankans merktum: Landsbanki íslands Hugmyndasamkeppni b/t Sigurbjörns Sigtryggssonar aðstoðarbankastjóra Austurstræti 11 101 Reykjavík. Dómnefndin er þannig skipuð: Fulltrúi afmælisnefndar Landsbankans. Fulltrúi Félags starfsmanna Landsbankans. Fulltrúi Félags íslenskra teiknara. Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður aðilja er Sigurbjörn Sigtryggsson. Keppendur geta snúið sér til hans í aðalbanka í síma 91-27722, varðandi frekari upplýsingar um samkeppnina. Dómnefndin skal skila niðurstöðum innan eins mánaðar frá skiladegi. Efnt verður til sýningar á tillögum og þær síðan endursendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfundar. Landsbankinn hefur einkarétt á notkun þeirra tillagna sem dómnefndin velur. Bankinn áskilur sér rétt til að kaupa hvaða tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT. LANDSBANKLNN völd. Starf ASSE byggir á þeirri sannfæringu, að með samvinnu sem þessari megi auka gagn- kvæman skilning milli landa og bæta samskipti þjóða. ASSE ÍSLAND var stofnað í ársbyrjun 1984. Menntamálaráðuneytið og Menningarstofnun Bandaríkj- anna á Islandi styðja og fylgjast með starfsemi samtakanna. Hvað getur þú fengið út úr námsdvöl í Bandaríkjunum? Námsdvöl í Bandarikjunum er ekki sambærileg við skemmtiferð Flmmtudagur 25. október 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.