Þjóðviljinn - 31.10.1984, Síða 9

Þjóðviljinn - 31.10.1984, Síða 9
MENNING Tónlist Örsmá eilífðarbrot Sinfóníuhljómsveit íslands hélt sína fyrstu tónleika á starfs- árinu 1984-5 laugardaginn 27. okt. s.l. í Háskólabíó. Vegna verkfallsins var ekki hægt aö halda þá fyrr. Stjórnandi var Jean-Pierre Jacquillat og ein- leikari á píanó var Nicolas Eco- nomu, grískur að þjóðemi. Efn- isskráin var ekki af verri enda- num, bæði fróðleg og skemmti- leg. Fyrst var frumflutningur hér á landi á verki eftir Atla Heimi Sveinsson er hann kallar „Infi- nitesimal Fragments of Etemity“ (Örsmá eilífðarbrot). Þetta sýnir að tónskáld nútímans em ekki síður hugmyndarík á nafnaval á tónverkum sínum en á sjálft inni- hald tónverkanna. En þá kemur spurningin hvort ekki megi kalla allt sem er á þessari jörðu, bæði dautt og lifandi, og plánetuna með, því sama, þegar borið er saman við eilífðina og alheiminn. En þetta er nú útúrdúr. Verkið „Infinitesimal Fra- gments of Eternity" er samið að tilhlutan norrænu tónlistarsam- takanna NOMUS, fyrir kammer- sveit í St. Paul í Minnesota og frumflutt þar í tengslum við nor- rænu menningarkynninguna í Bandaríkjunum „Scandinavia Today“ haustið 1982. Það var gaman að verkinu, það er hugvit- samlega samið, eins og Atla er von og vísa, og skrifað af mikiili kunnáttu og yfirsýn. Verkið er skrifað fyrir kammersveit, eins og áður er nefnt, en það er sin- fónískur tónn í verkinu sem kom fram í safamiklum en stuttum melodí-línum og miklum átökum í hljóðfærum, sem allt eins gat átt við stóra hljómsveit en kammer- sveit. Því miður hefir undirritaður ekki átt þess kost að heyra verkið fyrr en á þessum tónleikum, og getur þess vegna ekki dæmt um það hvort einhverjir gallar hafi verið á uppfærslunni, en í mínum eyrum hljómaði þetta vel, og verkið er ekki það flókið, að ekki væri hægt að fylgjast með fram- vindu þess. En það hefði verið þakksamlega þegið ef höfundur hefði komið með smá analysu í efnisskrána um verkið. Þakka þér fyrir Atli. Næst á efnisskránni var Pínó- konsert í c moll op. 37 eftir Beet- hoven. Þetta verk þekkir hvert mannsbarn sem hlustar á annað borð á klassíska tónlist og ætla ég þessvegna að snúa mér beint að píanistanum. Þetta er svo sem enginn unglingur lengur, 31 árs gamall maður og þessvegna er ekki hægt að fyrirgefa honum svona meðferð á Beethoven. Það var svo margt sem manni datt í hug meðan á þessari „túlkun“ stóð. Þarf maðurinn að ná í flug- vél sem fer í loftið eftir hálftíma eða er hann að springa úr reiði út í einhvem og lætur það bitna á Beethoven eða hvurslags læti eru þetta eiginlega? Hann er einn af þessum straumlínupíanistum sem svo fullt er af á þessari öld. Spumingin virðist fyrst og fremst vera um að hafa sem mesta og yfirgengilegasta tækni, en þegar hún er notuð á þennan hátt í við- kvæmum kiassískum meistara- verkum, án tillits til hefðbund- innar túlkunar konserta Beet- hovens (skyldi maðurinn aldrei hafa heyrt t.d. Wilhelm Kempff spila tempoa, og ég tala nú ekki um allan þann óútskýrða sjarma sem þetta verk er svo fullt af, þá er nú fokið í flest skjól. Fyrsti og síðasti kaflinn voru einn allsherjar hraði sem á ekkert skylt við Beethoven. En það brá fyrir fallegum leik á einstaka stað, sbr. í úrvinnslunni í 1. þætti þegar aðalstefið kemur g moll með rytmiskum undirleik hljóm- sveitar og sem modulerar svo inn í f moll, einn mest hrífandi stað- urinn í öllum konsertinum. Það var fallega spilað. Sama má segja um brotnu hljómana í miðjum öðrum kaflanum. En það var líka allt og sumt sem var fallega gert hjá þessum gríska píanista. Hljómsveitin spilaði heldur ekk- ert allt of vel í þessum ansvítans látum. Eftir hlé stjómaði Jacquillat sinfóníu nr. 2 eftir Jóh. Brahms. Nú féll allt í Ijúfa löð, því þessi stórbrotna og jafnframt yndis- lega sinfónía, sem hefir verið líkt við sólskin meðal sinfónía Brahms, var túlkuð á svo listræn- an og lifandi hátt, að lengi verður í minnum haft hjá þeim sem á hlýddu. Ég hefi ekki heyrt hljóm- sveitina spila öllu betur. Það áttu allir þátt í að gera þessa spila- mennsku eftirminnilega, en þó vil ég sérstaklega minnast á fyrsta hornistann Joseph Ognibene sem spilaði aldeilis meistaralega og þá ekki hvað síst í miðjum hæga kaflanum. Jean-Pierre Jacquillat sýndi á sér allar sínar bestu hlið- ar, og er þá ekki að sökum að spyrja. Ég segi við hann og hljóm- sveitina: Bravó! R.S. Tvœr íslenskar lista- konur sýna í Svíþjóð Jakob Jónsson listamálarl Listasafn ASÍ Sýning Jakobs fram- lengd Sýning Jakobs Jónssonar listmálara, sem undanfarnar vik- ur hefur staðið í Listasafni ASÍ, hefur nú verið framlengd til sunn- udagsins 4. nóv. en á henni eru 48 olíumálverk og 5 teikningar. Hún er opin daglega kl. 14-22. Jakob Jónsson er fæddur á Bfldudal 1936. Hann hóf mynd- listarnám 1965 á Ný Calsberg Glyptotek og að því loknu stund- aði hann nám í Listaháskólanum hjá prófessor S. Hjort Nielsen, en þar lauk hann námi árið 1971. Jakob hefur áður haldið tvær einkasýningar, í Bogasal Þjóð- minjasafnsins árið 1976 og í Listasafni ASÍ árið 1981. Húsið í Danmörku Síðan í byrjun september hefur íslenska kvikmyndin Húsið eftir Egil Eðvarðsson verið á sýning- um í kvikmyndahúsum í Dan- mörku og munu þau alls hafa ver- ið 17 sem myndin hefur verið sýnd í. Það er Kommunefilm, annar stærsti eigandi kvikmyndahúsa í Danmörku, sem fékk myndina til sýninga en milligöngu um sýning- arnar annaðist Gunnar Ámason. Þau Egill Eðvaldsson leikstjóri og Lilja Þórisdóttir, sem fer með aðalhlutverk í myndinni, vom bæði viðstödd frumsýningu í Ballerup. - GFr Á laugardaginn var opnuðu tvær íslenskar listakonur, þær Ástríður Andersen og Sigrún Jónsdóttir, sýningu í Gávle höll í Gávle í Svíþjóð þar sem þeim var boðið að sýna. Landshöfðinginn í Gávle, sem býr einnig í höllinni, Hljómsveitin Kukl hefur nýlokið 10 þúsund kílómetra tónleika- ferðalagi um Bretland, megin- land Evrópu og Skandinavíu. Var m.a. leikið í London, Cardiff, Birmingham, Liverpool, Sunder- land, Shefífield, Manchester, Berlín, París, Montpellier, Rotter- dam, Hamborg, Osló, Kaup- mannahöfn og að lokum var endað í London þar sem hljóðrit- uð var ný breiðskífa. í fréttatilkynningu frá Kukli segir að viðbrögð hafi víðast ver- opnaði sýninguna ásamt Bene- dikt Gröndal sendiherra. Gávle höll er reist á 16. öld og kemur mikið við sögu Svíþjóðar en þar eru nú sýnigarsalir auk bú- staðar landshöfðingjans eins og fyrr sagði. íbúar í Gavle em um ið slík að hljómsveitin sé greini- lega ein sú sérstæðasta í heimi. Hafi hún bókstaflega snúið hverju einasta „gigi“ upp í „head- lining success" og skipti þá engu máli hvort spilað væri meðal þeg- ar heimsþekktra nafna eins og Tom Verlains, John Cale, Jah Wobble, Spear of Destiny, X- mal Deutschland eða Sisters of Mercy - allir féllu í skuggann. Þá segir að breiðskífan The Eye hafi hvarvetna hlotið frá- bæra gagnrýni og virðist hafa 300 þúsund. Sýningin mun standa í 2 vikur og eru þar um 35 málverk eftir Ástríði en Sigrún sýnir á 5. tug verka, kirkjulega listmuni, ofnar veggmyndir, batik og fleira. - GFr skipað sér allstöðugan sess á óháðum vinsældalistum. Eftir nánast hverja tónleika rigndi til- boðum yfir Kuklara um tónleika- ferðir, útvarpsþætti og blaða- greinar. í fréttatilkynningunni segir orðrétt: „Má með sanni segja að þetta sé í fyrsta skipti síðan á söguöld að íslenskir listamenn nái slíkum árangri með fmmsköpun af þessu tagi en ekki ódýrum eftirlíking- um sem nú virðist helst vera tíðk- aðar“. Nótt, últrablár draumur eftir Joh Van't Slot frá Hollandi Gallerí Gangurinn Samsýning 12 listamanna í galleríi Ganginum, Reka- granda 8, stendur yfir samsýning 12 listamanna frá fjórum löndum, og mun hún hanga uppi til nóvemberloka. Listamennirn- ir eru Anselm Stalder, Helmut Federle, Martin Disler, John M. Armleder og Klaudia Schiffle frá Sviss, Peter Angermann frá Þýskalandi, John van’t Slot frá Hollandi og Daði Guðbjörnsson, Tumi Magnússon, Árni Ingólfs- son, Kristinn G. Harðarson og Helgi Þ. Friðjónsson frá íslandi. Sýningin var valin af Helmut Fe- derle og húsráðanda í samein- ingu. „AHir féllu í skugga Kuklara" ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.