Þjóðviljinn - 20.10.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 20.10.1985, Blaðsíða 3
Arkitektar mmmmam—mmm—ammmmmmm—mmj* og trúðar a^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmcM stofna félag [ nýútkomnu Lögbirtingablaöi lesum við að stofnað hafi ver- ið sameignarfélag með ótak- markaðri ábyrgð undir nafn- inu Samtök myndlistar- manna, arkitekta, rokkara, trúða og alvarlegra raun- særra tónlistarmanna sf. Eigendur eru Magnús Ragn- arsson og Kjartan Ólafs- son...B eða þannig.. Amadeus er sýndur núna í Háskólabíói við feiknarlegar undirtektir. Upphaflega varð hann til sem leikrit eftir dúndur- mennið Peter Shaffer og frum- sýndur í þjóðleikhúsi breta, Nat- ional Theater þar sem sör Peter Hall leikstýrði. Síðan var stykkið flutt til Broadway í New York og gekk þar lengi, og enn lengur á öðrum stöðum þar í landi. En nú er komin upp firna deila í kringum tekjur sör Peters, því í Ijós er kom-ið að hann mun hafa haft ríflegar prósentur af tekjunum sem komu inn af flutningi stykkis- ins til Broadway. í allt mun Pési hafa haft upp úr krafsinu hálfa miljón sterlingspunda, meðan National Theater fékk miklu minna. Ekki bætir úr skák fyrir sörinum, að í dagbókum sem hann gaf út fyrir nokkrum árum ræðir hann einmitt vendilega hvernig hann hyggist græða á Amadeusi með því að koma hon- um til New York, og var farinn að leggja á þau gróðamið meira að segja áður en frumsýnt var í Lundúnum. Þetta þykir firna vont mál á meðal breska leikara og aumingja sör Pétur á víst ekki sjö sæla daga nú um stundir. Nema þegar hann fer í bankann, auðvitað...* Nevada er eitt af þeim ríkjum Ameríku sem stærir sig af því að vera frjálsast ríkja og leyfa allt. Þar er til að mynda vændi lög- leyft. Úr hóruhúsum Nevada ber- ast nú bæði vondar f réttir og góð- ar. Þær góðu eru, að vændisfólki mun hér eftir skylt að gangast undir AIDS-prófun til að athuga hvort það sé komið með sjúk- dóminn válega. Vondu fréttirnar eru þær, að finnist AIDS í fólki, þá má það samt halda áfram að selja sig...» Hjónaböndum þar sem konan hefur meiri tekjur en eiginmaður- inn, lýkur miklu oftar með skilnaði en öðrum. Sérstaklega er líklegt að illa fari ef konan fer skyndilega og alveg uppúr þurru að fá miklar tekjur. Þetta er auðvitað ekki al- gengt vandamál hér á íslandi, en samt þess virði að íhuga það! Menn sem hafa frá upphafi sætt sig við þessa niðurlægingu og gifst tekjuháum konum eru þó lík- legri til að halda þetta út, en hinir sem lenda í þessu alls óviðbúnir, þeir telja þetta oftast jafngilda framhjáhaidi, segir í merkri rann- sókn á hjónaböndum. Því má bæta við að þær konur sem höfðu lent í þeim ósköpum að fá meira í umslagið en eiginmenn- irnir, földu oftast hluta af launun- um fyrir manninum eða reyndu á annan hátt að afsaka eða fela smánina. Sem sagt konur, - hjónabandið eða launaumslag- ið... • ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Vinningaskrá í happdrætti Hjartaverndar 1985 1. Til íbúðarkaupa kr. 1 milljón á miða nr. 59288. 2. Bifreið Mitsubishi Galant á miða nr. 131716. 3. Greiðsla upp í íbúð kr. 300 þúsund á miða nr. 123243. 4. Greiðsla upp í íbúð kr. 250 þúsund á miða nr. 29197. 5. -19. 15 ferðavinningar á kr. 50 þúsund hver á miða nr. 9388, 24139, 29116, 29978, 47415, 50666, 58179, 69335, 72298, 76519, 96012, 103661, 117853, 152775 og 153508. 20.-29. 10 myndbandstæki á kr. 45 þúsund hvert á miða nr. 4917, 18629, 22466, 42045, 44816, 66734, 76135, 117506, 132320 og 152720. 30.-55. 26 heimilistæki á kr. 25 þúsund hvert á miða nr. 6589, 25343, 31719, 35677, 38739, 41109, 42303, 42994, 45661, 53312, 64995, 67326, 70427, 75253, 79848, 81038, 84157, 85033, 92213,107121,108928,124595,130488,133655, 141852 og 151157. Vinninga má vitja á skrifstofu hjartaverndar að Lág- múla 9, 3. hæð. Þökkum landsmönnum veittan stuðning. PÓST- SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða BRÉFBERA til starfa í austurborgina. um hálft starf er að ræða. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu póstmiðstöðvarinnar að Ármúla 25. 0i\ ^ síwnirimwfM LUBOÐ Gróft matarsalt 2 kg f Piparkökur 250 gr Skorpur 225 gr pö'e Ananasmauk k 567 gr Ananassneiðar 567 gr siLOim Tómatsósa S c. 525 §r S,nneP490 gr Tekex 200 gr Kruður 110 gr ...vöruverð í lágmarki $»MV»JNl)SC«UBOON« 10 Konan mín Guðný Guðmundsdóttir frá Syðstu-Görðum til heimilis að Laufskálum 43, Hveragerði andaðist 13. október á Landspítalanum. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Guðmundur Sigurgeirsson börn, tengdabörn, bamaböm og barnabarnabörn. Þroskaþjálfar athugið Þroskahjálp á Suðurnesjum vill nú þegar ráða for- stöðumann við Ragnarssel, dag- og skammtímavistun félagsins, að Suðurvöllum 7, Kefla- vík. Krafist er þroskaþjálfamenntunar. Umsóknir berist formanni félagsins Ellert Eiríkssyni, Norðurgarði 6, Keflavík, fyrir kl. 13, þriðjudaginn 29. október, og veitir hann allar nánari upplýsingar i síma 92-7108 og 92- 7150. Stjórnin ALfA BETA NORÐDEKK munstriö er sérhannaö fyrir íslenskar aö- stæöur aö vetrarlagi — meö áherslu á gott grip. Viö full- yröum aö NORÐDEKK munstriö taki öörum fram og auki öryggi í akstri — einkum þegar akstursskilyröi eru slæm. Léttu af þér óþarfa kvíöa, kauptu NORÐDEKK undir bílinn — og þú kemur brosandi á áfangastaöl NORÐDEKK — íslensk gæöaframleiösla. heilsóluö radíal dekk á veröi sem fær þig líka til aö brosa! CUMMI VINNU STOFAN HF Sendum gegn póstkröfu — samdægurs Umboösmenn um land allt - SKIPHOLTI 35 RÉTTARHÁLSI 2 s 3I055 s. 84008/84009

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.