Þjóðviljinn - 21.10.1986, Qupperneq 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
21
október
1986
þriðju-
dagur
239. tölublað 51. örgangur
MANNLIF
IÞROTTBR
HEIMURINN
Breiðholtsbraut
Sjoppueigendur ráða ferðinni
Umferðareyja við Staldrið opnuð. Umferðarsérfrœðingar: Augljós slysahœtta. Óeining í Sjálfstœðis-
flokknum. Sigurjón Pétursson: Hagsmunir sjoppueigenda. Umferðaröryggi kastað fyrir róða
Með þessu hefur verið gengið
algerlega í berhögg við álit um-
ferðarsérfræðinga og heilbrigða
skynsemi. Það er augljóst að við
þetta skapast talsverð slysahætta,
en tilgangurinn með þessu er að-
eins sá, að viðkomandi sjoppu-
eigandi tapi ekk: viðskiptum,
sagði Sigurjón Pétursson borg-
arfulltrúi Abl. í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Sjö borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og Bjarni P. Magnús-
son borgarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins samþykktu í borgarstjórn í
síðustu viku að leyfa vinstri
beygju í gegnum umferðareyju á
Stekkjarbakka, yfir tvöfalda ak-
grein og að söluturninum Staldr-
ið. Umferðarsérfræðingar hafa
lagst eindregið gegn þessari fram-
kvæmd vegna þeirrar hættu sem
hún skapar. Þannig hefur verið
haft eftir Óla H. Þórðarsyni að
þetta brjóti í bága við grundvall-
aratriði í umferðaröryggi.
Tillaga um þetta var felld sam-
hljóða í umferðarnefnd borgar-
innar. Hún var einnig felld í borg-
arráði, en þegar hún var borin
Fatlaðir
Þorsteinn
harðurá
niður-
skurðinum
30 miljónir teknar af
Framkvœmdasjóði
fatlaðra í ríkissjóð
Áform ríkisstjórnarinnar um
að skerða lögbundin framlög til
Framkvæmdasjóðs fatlaðra hafa
sætt harðri gagnrýni m.a. á
landsþingi Þroskahjálpar.
A alþingi í gær skoraði Helgi
Seljan á fjármálaráðherra að
falla frá fyrirhuguðum niður-
skurði enda hefði raungildi fram-
laga til sjóðsins farið síminnkandi
undanfarin ár. Þorsteinn Pálsson
upplýsti að fyrirhuguð skerðing
næmi um 30 miljónum. Hann
sagði nær að tala um það á alþingi
hversu mikil uppbyggingin hefði
verið í þessum málaflokki undan-
farin ár í stað þess að tala ein-
göngu um skerðingu. Nauðsyn-
legt væri að hyggja að öðrum
mikilvægum og þörfum útgjöld-
um og eins því hversu mikil skatt-
byrði væri á fólk leggjandi. ,
Sjá bls. 2. —AI.
Úttektin
Doktor hafnað
Hvers vegna var doktor í búvís-
indum hafnað í starf fram-
kvæmdastjóra Búnaðarsam-
bands Suðurlands? Hvers vegna
var garðyrkjufræðingur ráðinn í
starfið? Hvers vegna ákváðu for-
ráðamenn B.S. að brjóta lög?
Hvað gerir ráðherra? Allt um
málið í Úttekt Þjóðviljans í dag.
Sjá bls. 7
upp í borgarstjórn fékkst hún
samþykkt með úrslitaatkvæði
Bjarna P. Magnússonar. Athygli
vakti að Davíð Oddsson og Katr-
ín Fjeldsted treystu sér ekki til að
styðja flokksfélaga sína í þessu
máli, en það heyrir til algerra
undantekninga að óeining ríki
meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í atkvæðagreiðslum. Jú-
líus Hafstein, Árni Sigfússon og
Bjarni P. voru eindregnastir
stuðningsmenn tillögunnar í
borgarstjórn, en Sigurjón Péturs-
son og fleiri mæltu hart gegn sam-
þykkt hennar. Júlíus, Arni og
Bjarni töldu mat umferðarsér-
fræðinga á málinu einfaldlega
rangt.
Sigurjón sagði í gær að svo virt-
ist sem önnur sjónarmið hefðu
verið leidd til öndvegis en það að
tryggja öryggi t umferðinni. „Nú
ræður úrslitum að tryggt sé að
sjoppueigendur verði ekki fyrir
tjóni, en umferðaröryggi kastað
fýrir róða,“ sagði Sigurjón í gær.
-gg
Snjórinn hefur aðeins gert vart við sig í Reykjavík og þessir breiðholtsstrákar
létu ekki segja sér það tvisvar, heldur drógu fram sleðana sína og byrjuðu að
bruna niður brekkurnar í Hólahverfi. Þeir voru hinir ánægðustu með lífið þegar
Ijósmyndari og blaðamaður Þjóðviljans hittu þá í sólinni í gær, höfðu búið sér til
stökkpall og þeyttust í loftköstum niður brekkuna á tryllitækjunum sínum.
-gg/Slg
Sjómenn
Segja upp síldarverði
Óskar Vigfússon: Sjómannasambandið mun segja upp síldarverði ínæsta mánuði.
Matthías Bjarnason: Engir olíusamningar
Þessi verðákvörðun er mikið
áfall, og við höfum gert sjó-
mönnum skýra grein fyrir tekju-
möguleikum þeirra við sild-
veiðar, en það er ekki auðsnúið
við þegar menn eru búnir að
undirbúa sig fyrir þessar veiðar í
hálfan mánuð og eru samnings-
bundnir við útgerðarmenn, sagði
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambands íslands í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Sjómanna- og vélstjórafélag
Grindavíkur samþykkti á fjöl-
mennum félagsfundi á sunnudag
aö skora á Sjómannasambandið
að segja upp sfldarverði um leið
og hægt er og þeim tilmælum er
jafnframt beint til þeirra sem
hafa byrjað veiðar, að sigla í land
og hefja ekki veiðar fyrr en við-
unandi verð hefur fengist. Óskar
sagði að farið yrði að beiðni sjó-
manna og verður sfldarverð þá
laust aftur 15. nóvember. „Við
höfum beint því til sjómanna að
fara ekki á sjó fyrr en þeir sjá
hvað verður boðið fyrir sfldina og
það sama gildir þegar verð losnar
aftur“, sagði Óskar. „Eftir þessa
verðákvörðun eru tekjumögu-
leikar sjómanna ekki miklir.
Miðað við verðið á síðustu vertíð
er þetta skerðing á tekjum um
20% en um 34% ef miðað er við
launaþróun í landinu, þannig að
fyrr má nú rota en dauðrota."
Matthías Bjarnason viðskipta-
ráðherra kallaði sendiherra Sov-
étríkjanna á sinn fund í gær vegna
stöðunnar í sfldarsamningamál-
um. Hann hefur lýst því yfir að
engir olíusamningar verði gerðir
við Sovétmenn fyrr en búið er að
ganga frá sfldarsamningum og
segist tilbúinn að fara utan til við-
ræðna við Sovétmenn. Búist er
við umræðum utan dagskrár á al-
þingi í dag um síldarviðskiptin.
-vd/-Ig.
Albert
Sjálfkrafa raðheiraefni
Hefur áhuga á fjármálaráðuneytinu
„Ég þakka þetta mikilli vinnu
stuðningsmanna undir forystu
dóttur minnar og sona“, sagði sig-
urvegarinn í prófkjöri íhaldsins,
Albert Guðmundsson í gær.
Albert sagðist ekki hafa átt von
á svo góðri útkomu, sem raun
varð á - „eftir það sem á undan er
gengið með þrengingum og sí-
felldum breytingum á próf-
kjörsreglum“, sagði hann.
Hann sagðist gera ráð fyrir því
að sá sem skipar fyrsta sætið á
listanum í Reykjavík væri sjálf-
krafa ráðherraefni flokksins eins
og verið hefði og hann myndi
stefna á embætti fjármálaráð-
herra ef það stæði til boða í næstu
ríkisstjórn. „Það er svo gott
starfsfólk í fjármálaráðuneyt-
inu“, sagði Albert, „samstarfs-
fólk, sem ég sakna þó ég sé síst að
kvarta undan samstarfsfólki
mínu í iðnaðarráðuneytinu, sem
vinnur gott og gríðarlega mikið
starf.“ -ÁI
Sjá nánar bls. 3