Þjóðviljinn - 21.10.1986, Síða 3
■■ ORFRETTIR ■■■
Norrænu versl-
unarmanna-
samtökin
hafa krafist allsherjar stöðvunar
allra viðskipta við S-Afríku. Sam-
tökin hafa lýst stuðningi við þá
viðleitni SÞ að beita sér fyrir
þrýstiaðgerðum á breiðum
grundvelli og ganga út frá því
sem vísu að ríkisstjórnir Norður-
landanna séu reiðubúnar aö
beita samnorrænu viðskipta-
banni, takist öryggisráði SÞ ekki
að samþykkja á næstu mánuð-
um nægilega bindandi ákvæði
um þrýstiaðgerðir.
Slysaskráning
Umferðaráðs fyrir september
leiðir í Ijós að slysum með
meiðslum ferfækkandi. í mánuð-
inum urðu 57 umferðarslys með
meiðslum en á sama tíma í fyrra
68 slys. Það sem af er þessu ári
hafa orðið 384 slys með
meiðslum en á sl. ári voru slys á
sama tima orðin 465. Athygli vek-
ur að eignatjón á ökutækjum er
meira nú þrátt fyrir fækkun slysa.
Demetrious
Haracopos
sem er grískur sálfræðingur er nú
hérlendis í boði umsjónarfélags
einhverfra barna. Hann heldur
fyrirlestur í Kennaraháskólanum
kl. 16.00 á miðvikudag, í Nor-
ræna húsinu kl. 17.00 á föstudag
á vegum Sérkennarafélagsins
og stendur fyrir námskeiði um
heildar- og langtímaúrræði fyrir
geðveik/einhverf börn í Borgar-
túni 6 á laugardag.
Hjálpið okkur
að hjálpa ykkur heitir námskeið
sem Hjálparsveit skáta í Reykja-
vík efnir til á miðvikudag og
fimmtudag fyrir rjúpnaskyttur og
almenning. Fyrra kvöldið verður
bóklegt en verkleg æfing úti
síðara kvöldið. Þátttaka tilkynnist
í síma 12045. Þátttökugjald er
500 kr.
Iðnaðarbankinn
mun í næsta mánuði stofna nýtt
fyrirtæki, Verðbréfamarkað Iðn-
aðarbankans. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins verður dr. Sig-
urður B. Stefánsson hagfræðing-
ur.
Sjálenski
blásarakvintettinn heldur kam-
mertónleika í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20.30. Kvintettin sem
hefur hlotið alþjóðlega viður-
kenningu, leggur metnað sinn í
að flytja verk sem ekki heyrast oft
í hljómleikasölum. Á efnisskránni
eru verk eftir Mozart, Ligeti, Villa-
Lobos og Carl Nielsen.
Aukasýning
á Toscu
verður n.k. laugardagskvöld og
hefst miðasalan í Þjóðleikhúsinu í
dag. Uppselt hefur verið á fyrri
sýningar. Vegna fjarvista Kristján
Jóhannssonar verður síðan sýn-
ingahlé á joscu fram til 19. nóv-
ember.
T
FRETTIR
Vesturbœjarskóli
Heilsugæsla á vergangi
Hjúkrunarfrœðingurinn sagði upp. Engin aðstaða til heilsugœslu í 90 ára
húsnœði Vesturbœjarskóla. Bergljót Líndal hjúkrunarforstjóri: Er ráðalaus
Eg er alveg ráðalaus, það er
engin aðstaða fyrir heilsu-
gæslu í Vesturbæjarskóla og á
meðan ástandið er þannig þá
treysti ég mér ekki til að auglýsa
eftir hjúkrunarfræðingi, sagði
Bergljót Líndal, hjúkrunarfor-
stjóri Heilsuverndarstöðvarinnar
í samtali við blaðið, en hjúkrun-
arfræðingur skólans sagði upp
störfum þegar Ijóst var að ekki
tækist að útvega aðstöðu.
„Fram að þessu hefur verið
hægt að rýma til í litlu húsnæði
skólans, en nú var engin smuga til
þess“, sagði Bergljót. „Við
reyndum að fá aðstöðu í Landa-
kotsspítala, hjá Rauða krossin-
um og í Hagaskóla en án áran-
gurs. Ég sendi heilbrigðismálar-
áði bréf um þetta en ég sé ekki
fram á að hjúkrunarfræðingur
verði við skóíann næsta vetur.
Skólalæknir er við skólann,
hvernig sem hann fer að.“
Að sögn Kristínar Á. Ólafs-
dóttur, fulltrúa í heilbrigðisráði
var vakin sérstök athygli borgar-
ráðs á húsnæðisvanda Vesturbæ-
jarskóla. „Hér er um að ræða
vanda sem borgarráð verður að
bregðast við“, sagði Kristín.-vd.
Vesturbœjarskóli
Hörmulegt
ástand í
húsnæðismálum
Ragnar Júlíusson formaður skólamálaráðs:
Hœgt verði að hefja kennslu í nýju húsnœði
nœsta haust
g kólamálaráð mun leggja það jarskóla í samtali við blaðið
til við borgaryfirvöld að stað-
ið verði við fyrri loforð um bygg-
ingu nýs húsnæðis fyrir Vestur-
bæjarskóla þannig að hægt verði
að hefja kennslu í því haustið
1987, sagði Ragnar Júlíusson for-
maður skólamálaráðs í samtali
við blaðið, en hönnun á nýju
húsnæði fyrir skólann er nú lok-
ið.
„Ég er orðin langsvekkt á því
hörmulega ástandi sem ríkir í
húsnæðismálum skólans og fagna
því innilega þessari ákvörðun
ráðsins", sagði Kristín G. And-
résdóttir skólastjóri Vesturbæ-
Húsnæði skólans var byggt árið
1898 og er eftir því úr sér gengið.
Heill árgangur nemenda er nú við
nám í Miðbæjarskólanum og þar
fer einnig öll sérgreinakennsla
Vesturbæjarskóla fram. Að sögn
Sigurjóns Péturssonar borgar-
fulltrúa hefur verið marglofað að
skólinn fái nýtt húsnæði og til
stóð að það yrði byggt jafnhliða
Foldaskóla. „Það hefur verið
svikið æ ofan í æ, og það kemur í
ljós við gerð fjárhagsáætlunar í
janúar hvort loforð verða efnd
núna“, sagði Sigurjón.
-vd.
Börnin ( Vesturbæjarskóla eru nú í húsnæði sem byggt var fyrir tæpum 90
árum, og hjúkrunarfræðingur skólans hefur sagt upp vegna aðstððuleysis.
Mynd Sig.
Listamenn
Þrir fái starfslaun
Minnihlutinn íborgarstjórn: Starfslaunum listamanna verði
fjölgað í3 árlega
Fulltrúar minnihlutans í borg-
arstjórn fluttu á síðasta borg-
arstjórnarfundi tillögu þess efnis
að frá og með næsta ári verði veitt
úr borgarsjóði starfslaun til
a.m.k. þriggja listamanna í
þremur ólíkum starfsgreinum.
Borgarstjórn vísaði tillögunni til
menningarmálanefndar og til
gerðar
árs.
fjárhagsáætlunar næsta
Kristín Á. Ólafsdóttir, sem tal-
aði fyrir tillögunni á fundinum,
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að árið 1980 hefði verið
ákveðið að greiða árlega einum
listamanni allt að 12 mánaða
RUV
Gegn tekjumissi
Utvarpsráð mótmœlir niðurskurðaráformum ífjárlögum
■ tvarpsráð
samhljóða
hefur samþykkt
að mótmæla á-
formum í fjárlögum um að svipta
ríkisútvarpið mikilvægum tekj-
ustofni af aðflutningsgjöldum
útvarps- og sjónvarpstækja, sem
nú eiga að renna beint í ríkissjóð.
í ályktun ráðsins er minnt á „að
staðfest var í nýjum útvarps-
lögum sem tóku gildi um síðustu
áramót að Ríkisútvarpið hefði
tekjur af aðflutningsgjöldum
hljóðvarps- og sjónvarpstækja og
hluta til þeirra. Ekkert hefur
breyst sem réttlætir að svipta
stofnunina þessum tekjum,“
segir í ályktun ráðsins. „Miklu
fremur ættu stjórnvöld að kapp-
kosta að treysta rekstur Ríkisút-
varpsins sem mikilvægrar menn-
ingarstofnunar og öryggistækis
alþjóðar.“
starfslaun, svo hann gæti einbeitt
sér að list sinni, en þyrfti ekki
jafnframt að sinna launavinnu
annarri. Sú hefð virðist hafa
skapast að veita eingöngu mynd-
listarmönnum þessi starfslaun,
en tillaga minnihlutans nú gerir
ráð fyrir því að ólíkar listgreinar
hafi möguleika á starfslaunum
borgarinnar.
í greinargerð með tillögunni
segir að hún sé flutt í fullvissu
þess að Reykvíkingum sé listalíf
borgarinnar miklvægt og því til-
búnir að leggja örlítið meira fram
úr borgarsjóði til að hlú að þess-
um þætti menningarinnar.
Listamennirnir sem fram til
þessa hefur verið veitt starfslaun:
Magnús Tómasson, Bragi Ás-
geirsson, Ingunn Eydal, Messí-
ana Tómasdóttir, Ásgerður Búa-
dóttir, Valtýr Pétursson,
Steinunn Þórarinsdóttir og Jón
Gunnar Árnason. Launin eru
miðuð við taxta BHM og nema
tæplega 40 þúsund krónum á
mánuði.
-88
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Prófkjör
Albert
langefsfiur
Albert Guðmundssson iðnað-
arráðherra fékk langflest at-
kvæði í fyrsta sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
um helgina, 2374, en alls 4091.
Friðrik Sóphusson fékk 2166
atkvæði í 1 .-2. sæti, Birgir ísleifur
Gunnarsson 3116 í 1.-3. sæti,
Ragnhildur Helgadóttir varð í
fjórða sæti með 3201, Eyjólfur
Konráð Jónsson í fimmta sæti
með 2893 atkvæði, Guðmundur
H. Garðarsson varð næstur með
2559 atkvæði, Geir H. Haarde
varð sjöundi með 3088 í 1.-7.
sæti, Sólveig Pétursdóttir varð
áttunda með 3456 atkvæði. Að
öðru leyti varð röðin þessi: 9. Jón
Magnússon, 10. María E. Ingva-
dóttir, 11. Vilhjálmur Egilsson,
12. Esther Guðmundsdóttir, 13.
Bessí Jóhannsdóttir, 14. Ásgeir
H. Eiríksson og 15. Rúnar Guð-
bjartsson flugstjóri.
Halldór Blöndal varð langef-
stur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi ey-
stra, en næstir honum komu
Björn Dagbjartsson, Tómas Ingi
Olrich, Vigfús Jónsson, Margrét
Kristinsdóttir, Stefán Sigtryggs-
son, Birna Sigurbjörnsdóttir og
Tryggvi Helgason.