Þjóðviljinn - 07.03.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.03.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 7. mars 1987 55. tölublað 52. árgangur Kosningabaráttan Það er engin þjóðarsátt Porsteinn Pálsson: Kratar um margt áþekkir okkur. Alþýðubandalagið er ílœgð vegnaþjóðarsáttar. Svavar Gestsson: Blekking að tala um þjóðarsátt. Þorsteinn talar einsog hrokafullur einrœðisherra Það er engin þjóðarsátt í gildi og það hefur engin þjóðarsátt verið gerð. Allt tal um slíkt er blekking. Þó að gerðir hafí verið kjarasamningar nú eins og hundrað sinnum áður, þá er ljóst að verkalýðshreyfingin hefur átt undir högg að sækja og að víg- staða hennar til sóknar verður aldrci sterk nema Alþýðubanda- lagið verði ennþá sterkara, hvort sem það er í stjórn eða stjórnar- andstöðu. Þetta sagði Svavar Gestsson í gær um þau ummæli I’orsteins Pálssonar að Alþýðubandalagið lifði við pólitískt tilgangsleysi sökum þess að launþegahreyf- ingin hefði valið aðrar leiðir til að ná fram kjarabótum en þær sem flokkurinn vildi. „Þegar Alþýðubandalagið er í lægð þá eigum við ekki verðuga andstæðinga heldur einungis keppinauta og Alþýðuflokkurinn er nú okkar aðalkeppinautur og skoðanir okkar eru um margt áþekkar, sagði Þorsteinn Pálsson í samtali við Þjóðviljann í gær. Þetta lýsti sér í því að verið væri að ýta ýmsum forystumönnum flokksins í verkalýðshreyfingunni og þingflokknum til hliðar. Þorsteinn lagði áherslu á að Sjálfstæðisflokkurinn yrði í for- ystu í næstu ríkisstjórn, og kvað langt í land með að Jón Baldvin yrði forsætisráðherra. „Yfirlýsingar Þorsteins boða kaflaskipti í kosningabarátt- unni,“ sagði Svavar Gestsson. „Alþýðuflokkurinn er greinilega í hans augum orðinn allt of líkur Sjálfstæðisflokknum, enda hefur formaður Alþýðuflokksins gert allt til þess að svo mætti verða. Þorsteinn Pálsson talar einsog hrokafullur einræðisherra í eins- flokkskerfi enda má til sanns veg- ar færa að því er varðar Fram- sóknarflokk og Alþýðuflokk að þar ráði hann því sem honum sýn- ist.“ -Ig/ös. „Sjálfstæðisflokkurinn er og verður okkar höfuðandstæðingur. Það ear athyglisvert hvernig hann vegur að Alþýðubandalaginu um leið og hann segir að Alþýðuflokkurinn sé aðal keppinautur Sjálfstæðisflokksins. Þetta er spaugilegt með hliðsjón af því að þessir flokkar ætla sér að mynda ríkisstjórn saman“, sagði Svavar Gestsson m.a. þegar kosningamiðstöð Alþýðubandalagsins í Reykjavík var formlega opnuð að viðstöddu fjölmenni síðdegis í gær. (Mynd : Sig) Korpúlfsstaðir Tryggingar Kartöflur fyrir myndlist Reykjavíkurborg úthýsir Sverri Olafssyni myndhöggvara á Korpúlfsstöðum í kjölfarþess að myndir hans eyðilögðust af völdum sprunginnar leiðslu. Skýring: myndlistarverkstœðin eiga að verða kartöflugeymslur Hrakfalla- bálkar í umferðinni Borgarverkfræjðingur hefur sagnarinnar er sögðu sú að borg- sent Sverri Ólafssyni mynd- in þurfí að breyta vinnuaðstöðu- höggvara bréf þar sem honuro er nni í kartöflugeymslu. sagt upp vinnuaðstöðu sinni á „Ég lít á þetta sem hreinan Korpúlfsstöðum með þriggja terrorisma og hefndaraðgerðir", mánaða fyrirvara. Ástæða upp- sagði Sverrir Ólafsson í samtali Hvalfjörður Hraðvaxta kræklingur Tilraunir við Hvítanes lofa góðu Tilraunir með kræklingaeldi við Hvítanes í Hvalfirði lofa mjög góðu. Á síðasta ári óx kræklin- gurinn að meðaltali um 2,7 sentí- metra sem að sögn Björns Björns- sonar, starfsmanns Hafrann- sóknastofnunarinnar telst góð niðurstaða. Jafnframt er hlut- deild innmatar með því besta sem gerist erlendis í kræklingarækt. Þetta kom fram í erindi Björns á ráðstefnu í fiskeldi, sem hófst í gær og heldur áfram um helgina. Björn sagði hins vegar, að þrátt fyrir góðan vöxt væru fram- tíðarmöguleikar kræklingaeldis nokkuð takmarkaðir, því heimsmarkaðsverð væri lágt á kræklingum, sökum mikils frant- boðs á þeim frá Suður-Evrópu. -ÖS við blaðið. „Við höfum verið þarna í yfir 10 ár og aldrei borið skugga á. Húsnæðið hefur verið kynt á okkar kostnað allan þenn- an tíma, og við höfum lagt mikla vinnu í viðhald og endurnýjun þess. Þetta húsnæði væri vafa- laust ónýtt nú ef við hefðum ekki haldið því við. Það hefur verið talað um að gera Korpúlfsstaði að einhvers konar menningar- miðstöð í framtíðinni, en nýjasta stefna borgaryfirvalda í þessum málum virðist nú vera að fylla húsið af kartöflum." Sem kunnugt er varð mikið tjón á verkum félaga í Mynd- höggvarafélaginu í desember s.l. þegar heitavatnslögn í vinnustof- um félagsins í kjallara Korpúlfs- staða sprungu. Sá sem varð fyrir mestu tjóni var Sverrir Ólafsson myndhöggvari, en hann hefur haft vinnuaðstöðu á Korpúlfs- stöðum í 10-12 ár, og var á sér húsaleigusamningi við borgina. Myndhöggvarafélagið fól Arnmundi Bachman lögfræðingi að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart borginni vegna þessa tjóns, og sendi hann borgarverk- ■ fræðingi bréf fyrir rúmum mán- uði, þar sem farið var fram á við- ræður við borgina vegna tjóns þessa og hugsanlegar bætur borg- arinnar. Borgarverkfræðingur hefur ekki látið svo lítið að svara bréfinu, en hefur nú þess í stað sagt Sverri upp vinnuaðstöðu I sinni. Ekki náðist í borgarverkfræð- ing í gær, en vonandi eiga eftir að koma fram nánari skýringar á þessu máli. Sverrir Ólafsson heldur þó ótrauður áfram mynd- sköpun sinni, því nú um helgina opnar hann sýningu á andlits- myndum úr málmi í Gallerí Grjót við Skólavörðustíg. -ólg. Tjónagreiðslur vegna umferðaróhappa aukist verulega. Stórhœkkuð iðgjöld Skráð umferðaróhöpp í febrú- ar sl. voru 500 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum hafa að meðaltali verið skráð 38 óhöpp á degi hverjum. Þessi aukning umferðaróhappa það sem af er þessu ári og á sl. ári hefur m.a. leitt til þess að bif- reiðatryggingar hækkuðu um 19% um sl. mánaðamót. í fyrra greiddu tryggingafélög- in 829 miljónir í bætur vegna um- ferðaróhappa sem var 30% hærri fjárhæð en árið á undan. Ið- gjaldagreiðslur námu hins vegar ekki nema 752 miljónum þannig að tjónabætur voru um 10% um- fram iðgjöld. -RK.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.