Þjóðviljinn - 07.03.1987, Síða 14

Þjóðviljinn - 07.03.1987, Síða 14
MINNING Þorsteinn Krístján Sigurðsson Fæddur2. ágúst 1904 - Dáinn 1. mars!987 Mig langar meö nokkrum fá- tæklegum orðum að minnast afa konunnar minnar og vinar míns Þorsteins Kr. Sigurðssonar. Þeg- ar ég hugsa til baka til þeirra ánægjuríku stunda, sem við átt- um saman, þá koma upp í huga minn ótal myndir. Það er einmitt á svona stundu sem maður verður var við hvað orð eru í raun fátæk- leg, við hliðina á þeim myndum, sem maður geymir í minningu sinni af liðnum atburðum. Þorsteinn fæddist og ólst upp á Hellissandi á Snæfellsnesi. Hann var sonur hjónanna Steinunnar Magnúsdóttur og Sigurðar Þor- steinssonar skipstjóra og útgerð- armanns. Systkini Þorsteins voru Jónína, sem er elst, næst kom Sólborg og yngst var Sigríður. Einnig áttu þau tvo hálfbræður, Jónas og Kjartan Lárussyni, frá fyrra hjónabandi Steinunnar. Sigurður faðir Þorsteins lést af veikindum, þegar Þorsteinn var á unglingsárum. Það segir sig sjálft að erfitt hefur verið fyrir Steinunni að framfleyta heimili við þessar aðstæður, en með að- stoð barna sinna og einstæðum dugnaði og skapfestu gekk það vel og minntist Þorsteinn þessara ára með þakklæti. Þorsteinn varð eins og aðrir unglingar á þessum tíma að byrja að vinna um leið og hann gat vettlingi valdið og hefur það ásamt stórbrotnu umhverfi, sem hann elst upp í, átt sinn þátt í að móta hann. Náttúrufegurðin á Snæfellsnesi átti alla tíð sterk ítök í honum og hef ég fáa hitt, sem jafn mikla tilfinningu og næmi höfðu fyrir fegurð landsins og því ríkidæmi, sem móðir náttúra er, ef maður aðeins gefur sér tíma til að skynja umhverfi sitt. Fljótlega eftir lát föður síns fer Þorsteinn suður til að leita vinnu og fæst við ýms störf í landi. Einnig dvaldist hann um stund í Vestmannaeyj- um þar sem hann fékkst við sjó- sókn. f kringum 1928 er Þorsteinn í vinnu við fiskverkun í Viðey hjá Kárafélaginu, sem stundaði þar umfangsmikla útgerð. Býr hann þar ásamt móður sinni og systr- um. Þar hittir hann eftirlifandi eiginkonu sína, Guðmundínu Kristjánsdóttur, sem var þar að aðstoða bróður sinn Kristin við heimilishald í veikindum konu hans. Kristinn var netagerðar- meistari og sá um verkstæðið fyrir Kárafélagið. Gengu Þor- steinn og Guðmundína í hjóna- band í október árið 1930, og var það eitt gæfuríkasta spor sem Þorsteinn steig um ævina. Var hjónaband þeirra í alla staði óvenju farsælt. Fyrstu hjúskapar- árin áttu þau í Viðey, en þegar halla fór undan fæti hjá Kára- félaginu og útgerð lagðist niður, þá neyddust þau eins og aðrir til að flytja annað og fluttust þau árið 1933 að Hákoti á Álftanesi þar sem þau bjuggu um eins árs skeið. Var Þorsteinn einn af síð- ustu starfsmönnum Kárafélags- ins. Minntust þau hjónin oft tím- anna í Viðey með söknuði og töldu það einn besta tíma ævinn- ar. Þar var margt ungt fólk á þess- um tíma og því félagslíf mikið og blómlegt og oft dansað og skemmtanir haldnar. Það er framandi að heyra, að fyrir að- eins fimmtíu árum hafi verið þar nokkur hundruð manna byggð, þar sem aðeins standa örfá hús í dag og í eyði. Af Álftanesinu fluttu þau í eitt ár á Akranes til æskustöðva Guðmundínu og svo þaðan til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu síðan. Guðmundína og Þorsteinn eignuðust fjóra syni, elstur er Sig- urður, vélstjóri að mennt, giftur Þórdísi Brynjólfsdóttur. Næst elsturer Kristján, vélstjóri, giftur Hrefnu Jónsdóttur. Þá kemstu Ragnar, vélvirki, giftur Steinunni Bjarnadóttur, og yngstur er Hallgrímur, endurskoðandi í Reykjavík, giftur Jónínu Frið- finnsdóttur. Barnabörnin eru orðin 16 að tölu og barnabarna- börnin 21, allt hið vænlegasta fólk. Þegar Sólborg systir Þor- steins missir eiginmann sinn af slysförum, þá taka þau Guð- mundína að sér eitt barna henn- ar, Sigurð Hallgrímsson, sem nú býr í Vík í Mýrdal og reyndist þeim sem besti sonur. Þorsteinn byggði fjölskyldu sinni hús að Langholtsvegi 31, á krepputímum, og hygg ég að mörgum húsbyggjandanum þættu vandamálin í dag smávægi- leg ef þeir þyrftu að horfast í augu við brot af þeim vandamálum, sem Þorsteinn þurfti að yfirstíga á þeim tíma. Þá var ekki um lán að ræða né úrval byggingarefna og innréttinga heldur skortur og kreppa í algleymingi og kassi, sem hægt var að nota fjalir úr, gulls ígildi. Þótt ekki hafi verið hátt til lofts og vítt til veggja á Langholtsvegi, þá var það sannkölluð höll. Höll þar sem samhent fjölskylda bjó og gladd- ist í sameiningu yfir hverjum áfanga sem náðist. Þar var áfangi hvers og eins framávið sigur allra. Á Langholtsveg var gott að koma og þar var alltaf nægur tími, þægi- legt og hlýlegt andrúmsloft, og ekki síst þegar horfið var aftur til fyrri tíma með skemmtilegum og lifandi sögum þeirra hjóna. Þorsteinn var hagleiksmaður í höndum og mátti sér aldrei una nema að hafa eitthvað fyrir stafni. Var hann eftirsóttur starfskraftur eins og sést á því að þrátt fyrir krepputíma þá hafði hann ávallt vinnu, enda vann hann sín störf af samviskusemi og trúnaði. Eftir að til Reykjavíkur kom hóf hann störf hjá Kol og Salt hf. og starfaði þar í um 25 ár, lengst af sem bifreiðastjóri. Eftir að Kol og Salt er lagt niður, þá hefur hann störf hjá Eimskipafé- lagi íslands, þar sem hann starf- aði til ársins 1977 og hættir þá störfum sjötíu og tveggja ára gamall. Þorsteinn eignaðist marga góða vini og kunningja meðal vinnufélaga og minntist hann ætíð vinnufélaga sinna og stjórnenda með virðingu og hlý- hug. Þorsteinn hafði mikla ánægju af veiði og útiveru. Eru þeir ófáir veiðitúrarnir, sem hann fór með vinum og kunningjum og kom þá oft í ljós þetta einstaka næmi hans fyrir náttúrunni. Hann virtist skynja lífríkið í kringum sig og rataði því ósjaldan á bestu veiðistaðina en magnið var hon- um ekki kappsmál, heldur sport- ið. Þetta næmi hans fyrir um- hverfinu kom ekki síst í ljós í garðinum að Langholtsvegi, þar sem þau hjónin byrjuðu með ber- an melinn, sáðu fræjum og í dag gnæfa þar trén við himinn. Var Guðmundína enginn eftirbátur hans í þessum efnum og virtist allt sem hönd þeirra snerti verða að hinum fegursta gróðri. Er það eini garðurinn þar sem ég hef séð stórar rósir skarta sínu fegursta á kafi í snjó. Á efri árum byggðu þau sér sumarbústað við Þing- vallavatn, og dvöldust þar löngum á sumrin sér til mikillar ánægju og yndisauka. Ferðalög voru þeim mikið áhugamál og leið nánast ekkert sumar án þess að lagt væri land undir fót og keyrt hvert á land sem var og gist í tjöldum og sæluhúsum. Ég minnist Þorsteins sem hæg- láts og hógværs manns, sem var ríkur af hlýju og góðvild, nægju- samur og þakklátur út í tilveruna. Það eru stórkostlegir breytinga- tímar, sem hans kynslóð hefur upplifað og okkur nútímabörn- unum hættir til að gleyma að við eigum þessari kynslóð að þakka þá velsæld og velferð, sem við búum við í dag. Sá grunnur, sem við byggjum á í dag, var byggður af þeim, með berum höndum, svita og tárum, í kreppu og far- sóttum. Mér fannst Þorsteinn alltaf svo ríkur, hann hafði svo mikið að gefa. Verðmæti, sem við nútímabörnin erum alltof fá- tæk af, mitt í allri auðlegðinni og lífsgæðakapphlaupinu. Verð- mæti, sem ekki verða lögð inn á bankabók með hæstu lögleyfðu vöxtum, heldur verðmæti, sem koma frá einlægu og hlýju hjarta- lagi, kærleik og þakklæti til lífs- ins. Ég veit að við eigum eftir að hittast aftur og þakka fyrir þær stundir, sem við hjónin áttum með afa Þorsteini. Elsku Guðmundína, ég votta þér innilegustu samúð mína, missir þinn er mikill, en um leið mikið að þakka. Sonum Þor- steins og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína svo og eftirlifandi systrum og öðrum nánum ætt- ingjum. Guðmundur Guðmundsson rALÞYÐUBANDALAGIÐ Ragnar Guðnln Svavar Miðstjórn Alþýðubandalagsins heldur fund 7. og 8. mars í Miðgarði, Hverfisgötu 105, Reykjavík. Til fundarins eru sérstaklega boðaðir efstu frambjóðendur flokksins úr öllum kjördæmum. Dagskrá: Ólafur Ragnar Laugardagur 7. mars: Kl. 10.00 NYSKÖPUN - JÖFNUÐUR - HAGSÆLD Skil efnahags- og atvinnumálanefndar Alþýðubanda- lagsins Kynning Umræður Kl. 14.00 KOSNINGAMÁLIN Framsögumenn: Ragnar Arnalds Guðrún Helgadóttir Svavar Gestsson Ólafur Ragnar Grímsson Umræður Kl. 16.00 STARFSHÓPAR UM KOSNINGAMÁLIN Sunnudagur 8. mars: Kl. 11.00 ÁLIT STARFSHÓPA Umræður Afgreiðsla Matarhlé er báða dagana milli kl. 12 og 13. Stefnt er að fundarslitum fyrir kl. 17.00 á sunnudag. Vinsamlegast tilkynnið skrifstofu þátttöku eða forföll - sími 17500 Formaður Mlðstjórnar AB Alþýðubandalagið Akranesi Aðalfundur Reinar Aðalfundur Reinar verður haldinn laugardaginn 7. mars kl. 14.00 í Rein. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Kaffi og veitingar. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Alþýðubandalagið Kópavogi Morgunkaffi ABK Laugardaginn 7. mars milli kl. 10 - 12 verða Heimir Pálsson bæjarfulitrúi og Kristján Sveinbjörnsson fulltrúi í Skipulagsnefnd og formaður Umferðarnefndar með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11 3.hæð. Allir velkomnir. Stjórnin Unnur Sólrún. Þurfður Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðsfundur Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 9. mars kl. 20.30 í Lárus- arhúsi. Dagskrá: Fundur bæjarstjórnar þriðjudaginn 10. mars. Stjórnin KOSNINGASKRIFSTOFUR i Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins er í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, Akureyri. Til að byrja með verður skrifstofan opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16-18. Starfsmaður er Krist- jana Helgadóttir. Síminn er 25875. Alþýðubandalagið Vestfjörðum Búið er að opna kosningaskrifstofu á Hæstakaupstað, Aðal- stræti 42, ísafirði. Skrifstofan er opin allan daginn. Síminn er 94-4242. Kosningastjóri er Gísli Þór Guðmundsson. Alltaf heitt á könnunni. Austurlandskjördæmi Halló konurí Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars komum við saman í Félagslundi Reyðarfirði kl. 14.00 og ræðum baráttumál okkar með frambjóðendum á lista Alþýðubandalagsins í komandi kosningum. Dagskrá: 1. Fundur settur. 2. Unnur Sólrún flytur ávarp. 3. Niðurstaða hópvinnu. 4. Umræður. 5. Sameiginleg niðurstaða. 6. Fundi slitið. 7. Spjall, kaffi og skemmtun. Takið með ykkur MFA söngbókina. Alþýðubandalagið Austurlandskjördæmi G-listinn Reykjanesi Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir Valþór, Ásdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir eru 41746 og 46275. j Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að i Hafnargötu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listinn Reykjanesi. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.