Þjóðviljinn - 07.03.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.03.1987, Blaðsíða 4
_________________LEIÐARI _____________ Orönotkun, hagsmunir og reisn í frétt í Þjóðviljanum í dag er sagt frá fróðlegri umræðu í útvarpsráði þarsem skipst var á skoð- unum um hvort orðnotkun í fréttum ríkisfjölmiðl- anna stæðist yfirlýsta óhlutdrægni stofnunar- innar. Þau Árni Björnsson og María Jóhanna Lárus- dóttir lögðu á fundinum fram bókun þarsem segir að notkun orðsins „vamarlið" um her Bandaríkjanna á íslandi sé í andstöðu við regl- urnar um óhlutdrægni vegna þess hve umdeilt hlutverk hersins er meðal þjóðarinnar. Þettai heiti, - og fleiri, svosem nafnið „íslenska álfé- lagið hf. -, væri hugsað sem innræting af hálfu aðstandenda, og á ríkisútvarpinu ættu menn að hafa sjálfstæði og djörfung til að leiða slíka innrætingu hjá sér. Erindrekar Alþýðu-, Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks í útvarpsráði lögðust auðvitað í sameiningu á árarnar með sínum mönnum suðrá Velli og enn um stund má vænta þess að heyra fréttamenn útvarps og sjónvarps allra landsmanna tala af óttablandinni virðingu um „varnarlið“ í samræmi við opinbera orðabók Natóflokkanna. í upphafi var orðið, stendur í góðri bók, og þessar umræður um orð í útvarpsráði eru merk- ar vegna þess að þær beina sjónum að einni tegund hinnar smágervu hernámsveiru sem hefur nú sótt að þjóðinni í rúma fjóra áratugi, að þeirri tegund hennar sem einkum leggst á hug- arfarið. Með því að tyggja það hægt og bítandi á hverjum degi framaní þjóðina að herinn sé „varnarlið“ er verið að boða þá trú á íslandi að soldátar, Awacs-vélar, kjarnorkuheld byrgi og olíuhöfn séu hér í okkar þágu, hinum íslenska Meðaljóni til varnar gegn veraldarógnunum, og þarmeð órjúfanlegur hluti af íslensku samfélagi. Það er svo til marks um þrautseiga þjóðar- greind að meirihluti íslendinga hefur aldrei fall- ist á þessa skilgreiningu Natómálfræðinga á herliðinu bandaríska, heldur hafa jafnt her- stöðvaandstæðingar sem aronskumenn gert sér grein fyrir því að herinn er hér eingöngu í þágu herveldisins í vestri. Og æ fleiri gera sér nú grein fyrir að herliðið bandaríska er okkur ekki aðeins óþarft og hættulegt í efnahagslegum og hernaðarlegum skilningi, heldur beinlínis þrándur í götu þeirra möguleika sem íslendingum hafa nýverið opn- ast á alþjóðavettvangi. Leiðtogafundurinn hefur gert okkur kleift að ná alþjóðlegri athygli og bjóða fram krafta okkar til að skapa fegurri veröld, um leið og hinir hag- sýnu geta hætt að hugsa um að græða á her og styrjöldum og tekið þess í stað þann skárri kost- inn huga að hagnaði af friðarstarfi. Móttökur þær sem forsætisráðherra fékk í Moskvu í vikunni sýna best breytta stöðu ís- lendinga í samfélagi þjóðanna, og alþjóðlegur ferill ólafs Ragnars Grímssonar hefur sannað okkur að frumkvæði í heimsmálum er ekki nauðsynlega bundið við milljónaþjóðirnar. Því miður er stefna íslenskra ráðamanna í litlu samræmi við þessi breyttu viðhorf. „Varnarliðs“-flokkarnir í núverandi ríkisstjórn hafa gírugir leyft stóraukin hernaðarumsvif und- anfarin ár og oddviti þess „varnarliðs“-flokks sem enn er utan ríkisstjórnar hefur staðið hjá og horft á með velþóknun. Og utanríkisráðherrann Matthías Á. Mathie- sen hefur með ráðum og dáð reynt að hindra að norrænum þjóðum takist að koma á rekspöl fullkomlega raunhæfum og vel rökstuddum áætlunum um að lýsa Norðurlöndin kjarnorku- vopnalaus, þannig að nú blasir við sú staða að andóf Matthíasar og vopnabræðra hans hér- lendis verði til þess að ísland verði sett hjá, útilokað frá þátttöku í þessu norræna friðar- verki, með ófyrirsjánlegum afleiðingum fyrir stöðu íslendinga á alþjóðavettvangi og sam- band þeirra við granna sína. Varnarlið „varnarliðsins" í útvarpsráði hagar sér í fullu samræmi við vilja samstarfsmanna sinna í flokksstjórnum og herráðum. Þeir hafa hinsvegar lagt hið skoplitla lóð sitt á vogar- skálina öndvert íslenskum hagsmunum og ís- lenskri reisn. -m LJÖSÖPIÐ Mynd:E. Ól. þlOÐVILIINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fréttastjórl: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, ólafurGíslason, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar. Ljósmy ndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlitstelknarar: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlf8tofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglyslngar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbrelöslu-og afgreiöslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaöaprent hf. Verð I lausasölu: 50 kr. Helgarblöð:55 kr. Áskriftarverð á mánuði: 500 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.