Þjóðviljinn - 07.03.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 07.03.1987, Blaðsíða 13
HEIMURINN Afvopnun Einhugur um nýjan samning Vorontsof spáir samningi um meðaldrœgarflaugar í sumar, tekur drögum Bandaríkja- mannavelogsegir aðeins tœknivinnu eftir. Shultz og Shevardnadze hittast í apríl Bjartsýni eykst meö hverj- um degi um að risaveldunum takist samningar um fækkun meðaldrægra eldflauga, og sagði Júlí Vorontsof aðal- samningamaður Sovétmanna á blaðamannafundi í París í gær að búast mætti við undir- ritun eftir þrjá mánuði eða fjóra, það er í júli eða ágúst. Fregnir frá Washington herma að utanríkisráðherrarnir Shultz og Shevardnadze hittist í Moskvu um miðjan apríl. Sjöundu lotu afvopnunarvið- ræðnanna í Genf lauk í gær, og eiga þær að hefjast aftur formíega 23.apríl, - er því búist við að á Moskvufundi utanríkisráðherr- anna verði gengið frá helstu á- Karpof/Sókólof Jafntefli í fimmtu skák Fimmtu skák þeirra Andreis Sókólofs og Anatolis Karpofs lauk með jafntefli eftir að leiknir höfðu verið þrjátíu og átta leikir. Sókólof stýrði hvítu mönnun- um og lék sem fyrr kóngspeðinu fram um tvo reiti. Karpof er líka vanafastur og svaraði hann með Karó-Kann vörn einsog hans er vandi í þessu einvígi. Eftir þrjátíu og þrjá leiki var skipt upp á flest- um mannanna og fjaraði þá út bardagaskap keppenda. Staðan er nú sú að Karpof hef- ur þrjá vinninga en Sókólof tvo. Sá sem fyrr hlýtur sjö og hálfan vinning stendur uppi sem sigur- vegari í einvíginu og teflir við Garrí Kasparof um heimsmeist- aratitilinn í haust. - ks. England Slátrarar geta stráka Opinberar skýrslur í föður- landi Shakespeares og miss Marple sýna fram á að mun al- gengara sé að getinn sé piltur en stúlka þegar slátrarahjón geri hitt og barn dettur í brók. í niðurstöðu könnunar sem nær til áranna 1980-’84 kemur fram að á móti hverjum eitt- hundrað meybörnum en slátrarar geta með spúsu sinni eru eitt- hundrað tuttugu og eitt svein- barn. Þrír sprenglærðir læknar segja skýringuna líklega vera þá að slátrarar éti mikið ket og að í keti sé mikið af karlhormónum. ___________________- ks. greiningsmálum fyrir lokasprett- inn. Pótt lotunni sé lokið í Genf að sinni halda þær undirnefndir áfram viðræðum sem hafa með- aldrægar eldflaugar á sinni könnu. Oddviti þeirrar banda- rísku undirnefndar, Glitman, sit- ur nú á rökstólum í Hvíta húsinu en er væntanlegur innan fárra daga aftur til Genf. Vorontsof sagði í París að síð- ustu dagar mörkuðu þáttaskil í afvopnunarviðræðunum í Genf, og eru það fyrstu viðbrögð Sovét- manna við bandarísku samnings- drögunum frá því á miðvikudag- inn. Hann sagði alla vísa benda í bjartsýnisátt og væri í raun aðeins eftir tæknileg vinna kringum samninginn. Vorontsof sagði að Shevardnadze, Shultz. Hittastí Moskvu um miðjan apríl. Bandaríkin Reagan lítið vinsælli í tveimur spánnýjum skoð- anakönnunum sem gerðar voru til að kanna viðbrögð Bandaríkjamanna við sjón- varpsávarpi forseta síns kem- ur i Ijós að fleiri en áður telja hann standa sig bærilega í starfi. Hinsvegar er það sláandi að enn telur helmingur aðspurðra að Reagan hafi logið í vopnasölu- málinu. Könnun CBS sjónvarpsstöðv- arinnar leiddi í ljós að fimmtíu og eitt prósent spurðra fannst forset- ' inn standa sig í starfi eftir að hafa hlýtt á ræðuna en fjörutíu og tvö prósent höfðu verið þeirrar skoð- unar áður en Reagan birtist á skjánum. Fimmtíu og fjögur prósent spurðra voru þeirrar skoðunar að forsetinn leyndi enn upplýsingum varðandi vopnasölumálið og sex- tíu prósent töldu að halda bæri áfram rannsókn. Ennfremur sögðu fimmtíu og átta prósent að stjórn Bandaríkj- anna væri yfirleitt í höndum ann- arra en Reagans sjálfs. Fimmtíu og níu prósent spurðra hefði þótt við hæfi að Ronald Reagan bæði bandarísku þjóðina afsökunar á athæfi sínu. - ks. skoðanamunur um skammdræg- ar flaugar ætti ekki að standa í vegi. Risaveldin virðast sammála um þann ramma frá Reykjavík að útrýma meðaldrægum flaugum sínum í Evrópu og skilja aðeins eftir slíkar flaugar í Bandaríkjun- um og Asíuhluta Sovétríkjanna, 100 kjarnaodda hvorumegin. Sovétmenn hafa fallið frá kröfu sinni um að með í samningum verði hafðar 162 meðaldrægar flaugar Frakka og Breta. Bandaríkjamenn hafa krafist þess að mörk Asíu og Evrópu verði í þessu samhengi skilgreind uppá nýtt og höfð nokkuð austan Uralfjalla. Vorontsof sagði um þetta mál að Bandaríkjamenn hefðu fundið áhugaverðan stað fyrir eldflaugar Sovétmanna, - Sovétmenn mundu líka finna áhugaverðan stað fyrir banda- rískar eldflaugar. Takist samkomulag um með- aldrægar eldflaugar yrði það fyrsti afvopnunarsamningur risa- veldanna síðan ABM- samkomulagið var gert árið 1972. Vorontsof harmaði það í gær að þrátt fyrir þessi þáttaskil miðaði ekkert í Genfarviðræðum um langdrægar flaugar og um geimvopn. -m Róm Atak gegn nautgripapest Á ráðstefnu Matvæla-og land- búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem haldin var í Róm nýlega voru sérfræðingar á einu máli um að stórefla þyrfti átak gegn nautgripapest í löndum þriðja heimsins. Þessi banvæni og bráðsmitandi sjúkdómur fer sem eldur í sinu í heitum löndum og vilja visinda- menn að árið 1988 verði hrint af stað herferð gegn þessum vágesti í fimm löndum, Bangladesh, Bútan, Indlandi, Nepal og Pak- istan. Menn voru þeirrar skoðunar að slíkt átak myndi ekki kosta minna en tvöhundruð og þrjátíu milljónir bandaríkjadala og yrðu ríkisstjórnir landanna að bera þyngsta baggann en stofnunin myndi væntanlega einnig leggja fram fé. Slíkur fjáraustur myndi að öllum líkindum margborga sig því talið er að allt að tvöhundruð og fjörutíu milljónir nautgripa á Indlandi einu séu í bráðri smit- hættu. -ks. DJÓÐVILJINN mm límimi 681333 0 681866 ^ 0 68 63 00 Blaðburður er 0 68 13 33 rmm íui 0 681866 0 686300 BESTA TRIMMIÐ og borgar ssg Blaðbera vantar víðsvegar um borgina Hafðu samband við okkur DJOÐVIUINN Síðumúla 6 0 68 13 33 Veríð velkomin Laugardaginn 7. mars nk. flytja Verslunin Málarameist- arinn og Heildverslun Þor- steins Gíslasonar Nordsjö- umboðið á íslandi, sem verið hafa að Grensásvegi 50, ínýtt og betra húsnæði að Síðu- múla 8 fíeykjavík. Nordsjö málning og lökk eru sænskar gæðavörur, Tinto- rama litakerfið býður upp á þúsundir lita jafnt úti sem inni. Verið velkomin á nýja staðinn og sannfærist um að góð þjónusta geturorðið enn betri. yv Verslunin Málarameistarínn Heildverslun Þorsteins Gíslasonar Síðumúla 8, 108 Reykjavík Símar 689045 og 84950

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.