Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 3
Er með konu og barn? í nýlegu Eystrahorni eraug- lýsing sem samrýmist ekki al- veg þeim jafnréttisanda sem nú svífur yfir vötnum. Yfirskrift auglýsingarinnar er „Vantar íbúð!“, en textinn er á þessa leið: „Verkstjóra í Skinney h/f vantar íbúð á leigu, er með konu og barn. Öruggar greiðslur og jafnvel góð fyrir- framgreiðsla." Og svo fram- vegis. En vantar konuna og barnið ekki íbúð? Eru þau bara einskonar fylgihlutir? Hvernig yrði fólki við ef aug- lýsingin hefði verið svona: „Konu og barn vantar íbúð á leigu, eru með verkstjóra í Skinney h/f“? ■ Ýtt við slóðunum Sumir kennarar í Háskólan- um brugðust mjög illa við síð- astliðinn vetur þegar Stúdent- aráð beitti sérfyrir harðari að- gerðum vegna lélegra ein- kunna skila og var m.a. gripið til þess að búa til lista með þeim 20 kennurum sem lengstan tíma voru að fara yfir próf. Sumum þeirra sem þar komust á blað fannst ósæmi- lega vegið að persónu sinni og orðstír. Á fundi með ne- mendum lagadeildar gagn- rýndi deildarforsetinn m.a. að kennurum hefði ekki verið gefinn kostur á að gefa skýr- ingar á seinaganginum og hann fullyrti jafnframt að það væri einfaldlega ómögulegt að skila prófum í deildinni á þremur vikum vegna þess að prófdómarar færu yfir öll próf og það væri ekki í valdi kenn- ara að reka á eftir þeim. Eftir að Háskólaráð felldi tillögu hans um að lengja frestinn í þeim tilfellum sem prófdómari færi yfir próf hafði hann á orði að þá yrðu bara engir próf- dómarar hafðir. Eftir sem áður voru öll próf í lagadeild dæmd af prófdóm- urum í vor og nú brá svo við að langflestareinkunnirvoru birt- ar á innan við þremur vikum eftir próf, sem er sá tími sem gefinn er og sumar einkunnir voru komnar upp 10 dögum eftir próf sem er alger mettími. Fordæmi formanns KSÍ Rolf Johansen heildsali sem umboð hefur fyrir Heineken-bjór bauð fjölmiðla- fólki til veislu í fyrradag í tilefni af því að nú er hægt að kaupa þennan hollenska mjöð í verslun ÁTVR uppá Stuðla- hálsi. Eins og Rolfs er von og vísa voru veitingar ekki skornar við nögl frekar en fyrri daginn. En sá sem var fyrstur til að kaupa mjöðinn í ríkinu var enginn annar en Ellert Schram ritstjóri DV og for- maður Knattspyrnusam- bands íslands. ■__________ Grútarkletturinn Þó fyrrum hrefnuveiðimenn hafi ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu vegna banns við hrefnuveiðum hafa þeir þó ekki glatað kímnigáfunni. For- maður nýstofnaðs félags hrefnuveiðimanna lýsti Hall- dóri Ásgrímssyni sjávarút- vegsráðherra og rimmu hans við hvalavini á eftirfarandi hátt í málgagni þeirra framsóknar- manna: Karlinn er eins og leð- ur. Þeir renna á honum hvar sem þeir taka á honum. Hann er eins og leður í lýsi. Ráð- herrann er því ekki lengur ein- hver venjulegur klettur í haf- inu heldur ósvikinn grútar- klettur. ■ Open your mouth Það er ekki aðeins að við- skiptavinir Hagkaupa geti átt von á að verða svarað á enskri tungu á málræktarár- inu. Svo virðist sem aldraðir og sjúkir þurfi þess einnig. Eins og kunnugt er hefur gengið mjög erfiðlega að fá hjúkrunarfræðinga og ófagl- ært starfsfólk til starfa í heilbrigðisgeiranum og af þeim sökum hefur orðið að leita liðsinnis útlendinga sem hafa hlaupið undir bagga og ekkert nema gott eitt um það að segja. Hins vegar veldur það oft á tíðum erfiðleikum hjá öldruðum og sjúkum að skilja viðkomandi þegar enginn er til að túlka. ■ Barbecued Moby Dick! Sú saga hefur heyrst úr túr- istabransanum, að stúlka nokkur sem starfar í þeim bransa hafi á dögunum bent túristum á nokkuð nýstár- legan mat. Þannig var að nokkrar ameriskar ferðakon- ur, í hefðbundnum amerísk- um klæðnaði og með græn- friðungamerki í barmi, hafi komið til stúlku þessarar þess erindis að spyrja hvar McDon- alds-hamborgarastaðirnir væru staðsettir í Reykjavík. Hún sagði sem var, að engir slíkir væru hér á landi, en hún gæti hins vegar bent þeim á alveg hreint frábæran skyndi- bita. Léttan og þjóðlegan rétt. Það væri „barbecued Moby Dick with green pease and see sheppardsaucé“. Þær urðu hinar ánægðustu með þessar upplýsingar og örkuðu af stað í ieit að veitingahúsi sem byði uppá þennan skemmtilega rétt. ■ Hagstætt verð Leðurklæddir hvíldarstólar m/skammeli, litur brúnt og svart Verð kr. 27.700,- afb. 25.000,- stgr. ÉZ mjmocMa 1 VALHÚSGÖGN Armúla 8, sími 82275. UTVARP AJJLRAIANDSMANNA þar er enginn undanskilinn. q % 20 15 io-- Rás 1 Rás 2 Bylgjan Stjarnan Veit ekki UTVARPIÐ Hinn 12. júnísl. kannaði Gallup á íslandi útvarpshlustun um landið allt. Könnunin náði tilfólks á aldrinum 15-70 ára. Spurt var hvort viðkomandi hefði eitthvað hlustað á útvarp þann dag og á hvaða stöð hann hefði hlustað, fyrir hvern klukkutíma frá sjö að morgni til átta að kvöldi. Eins og línuritið sýnir nýtur Ríkisútvarpið yfirburðavinsælda. .0 UTVARPIÐ 0 Kl. 7 Utvarpshlustun 12. júní 1989. Landið allt (aldurshópurinn 15-70 ára). 8 * 9 —i— 10 11 12 1220 13 14 15 16 17 18 19 19 ,30 20 AUK/SlA k586d25-42

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.