Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 11
Sambúð og frelsi Einn algengasti erfiöleikinn, sem tengist sambúð, varðar per- sónulegt frelsi einstaklinganna eftir að sambúð er hafin. AUtof oft gerist það meir eða minna ómeðvitað að einstaklingar í sambúð hefta sjálfa sig og hvorn annan. Heftingin getur falist í kröfum um að gera allt saman, tilætlun um ákveðnar hefðir um það sem gera þarf, koma ætíð beint heim o.s.frv. Því meira sem þetta gerist ómeðvitað og allt að því „af því bara“, þeim mun meiri og sterkari verður upplifunin af þvingun og höftum. Oftast verð- ur slík ómeðvituð upplifun til þess að smá mál verða að stór- málum og smá kýtingar að stór- rifrildi með ásökunum á báða bóga og fullyrðingum um að „þú gerir þetta alltaf', þú gerir aldrei...“, ég þarf alltaf' o.s.frv. Oftast enda slík rifrildi með spurningu um sigur eða tap. Van- líðan vegna upplifunar af frelsis- skerðingu er yfirleitt frekar lúmsk og læðist að einstakling- num án þess að hann átti sig á því fyrr en hún er orðin yfirþyrm- andi. Eitt af því, sem ég hef rekist á í þessu samhengi er mismunandi upplifun kynjanna af því hvað frelsi og frelisskerðing í sambúð er. Mér virðist, sem karlmenn upplifi meira að þegar þeir séu komnir í sambúð sé brauðstritið þeirra mesta hefting, þ.e. að þeir þurfi að sjá til þess að koma þaki yfir höfuð fjölskyldunnar og líta á það sem eins konar frelsisfórn frá sinni hendi. Þeir líta því gjaman svo á að á meðan þeir vinni eins og skepnur geti konan lagt sitt af mörkum með því að gæta bam- anna, sjá um heimilið og rekstur þess og helst að vinna með, svo framarlega sem bæði leggi nokk- urn veginn jafnlangan vinnudag að baki. Konur virðist mér hins vegar upplifa meiri heftingu í því, sem felst í því að vera eiginkona og móðir við þessar kringumstæður, þ.e. bindingin við heimilið og börnin og sú ábyrgð, sem á þær leggst við það að maðurinn frýjar sig þátttöku í heimilislífinu á þeirri forsendu að hann sé að byggja upp fyrir framtíðina. Þannig verða oft til rifrildi milli sambúðarfólks við þessar að- stæður, sem ganga út á ásakanir konunnar á manninn fyrir að gleyma sér og börnunum, hann sé of lítið heima, hún komist aldrei neitt og hann sé miklu frjálsari til að sinna sjálfum sér en hún. Hann skilur hvorki upp né niður í ásökunum hennar, vegna þess að honum finnst hann fórna a.m.k. jafnmiklu, hann sé alltaf að vinna og síðast en ekki síst að hann sé jú alltaf að hugsa um hana og böm- in, og því leggi hann allt þetta á sig. Rifrildið gengur síðan út á hvort leggi meira á sig og hversu réttlætanleg ásökunin er. Ekki bætir úr skák, að þjóðfélagið heldur með manninum. í fjölsyldunni er mikið rætt um hversu duglegur hann sé og hversu heppin hún hafi verið að ná í hann, en það gleymist að hún situr uppi með ábyrgðina á böm- unum og heimilinu. Hann er það þreyttur að hann hefur ekki orku í að ræða dagleg vandamál og áhyggjuefni og hún verður að leysa þau ein af hendi. Við göngum enn svo ákveðið út frá gömlum hlutverkum kynjanna að það þykir sjálfsagt mál að hún sjái um þessa hluti og því fær hún ekkert hrós. Það er því ekki óal- gengt að kona í þessari stöðu fái sektarkennd yfir því að Iáta sér detta í hug að ásaka manninn eða gera til hans kröfur um deilda ábyrgð á áhyggjum og erfið- leikum í uppeldi og heimilis- rekstri. Þar til að hún hefur setið svo lengi á sér að upp úr sýður og stórrifrildi skapast. Og svo fær hún sektarkennd eftirá. Hugsar með sér að hún hafi nú e.t.v. ver- ið ósanngjörn og þegir þar til hún springur næst. Ef rifrildin verða mörg og ásakanirnar þungar og stóryrtar, er stutt í hjónaskilnað. Gjá myndast smám saman, sem ekki verður brúuð, þó svo að þakið myndist yfir höfuðið. Rifrildin hér ganga auðvitað út á aukaatriði, eins og ég hef rætt um áður. Aðalatriðið er mismun- andi upplifun af ábyrgð. Hennar áhyggjur og ábyrgð snýst um samskipti, uppeldi, vellíðan, samvinu og ást, en hans áhyggjur eru meira praktísktar og snúast um peninga, reddingar, iðnaðar- menn og hvað þarf að gera og í hvaða röð o.s.frv. Það sem gera þarf er að deiia báðum þessum tegundum áhyggjuefna þannig að ekki komi til upplifun af einangr- un og kýtingur um hvort sé meira virði. Þannig verður hún þátttak- andi í hans áhyggjum og viðræðu- hæf um húsbyggingar og prakt- íska hluti og hann þáttakandi í hennar áhyggjum og man eftir að hringja, bara til að vita hvernig hún hafi það, eða bömin, eða bara til að láta hana vita að hann muni eftir henni, þó byggingin sé mikils virði. Væntanlega seinkar innflutningi fjöjlskyldunnar í húsnæðið ekki mikið vegna slíkra hluta. FJÖLSKYLDAN SIGTRYGGUR JÓNSSON AUGLÝSINGAR - AUGLÝSINGAR - AUGLÝSINGAR Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Stúdentar verða brautskráðir frá skólanum laugardaginn 24. júní kl. 14. Nýstúdentar eru beðnir að koma í skólann á æfingu föstudaginn 23. júní kl. 18. Rektor Sóknarfélagar - sóknarfélagar Sumarferð Sóknar verður farin til Vestmannaeyja helgina 21.-23. júlí n.k. Upplýsingar og pantanir í síma 681150 til 6. júlí n-k- Starfsmannafélagið Sókn Hnnststt vnrá 18M%BjPlföay i 1 w vl w Borðstofuborð, stækkanlegt + 4 stólar Verð 58.000,- afb. 52.000,- stgr. Störf fyrir KÍ Kennarasamband íslands auglýsirtil umsóknar tvær stöður fulltrúa á skrifstofu KÍ. Um er að ræða störf að skóla- kynningar- og kjaramálum svo og félagsmálum og erindrekstri. Óbundið hvort ráðið verður í fullar stöður eða hlutastörf. Umsóknir skulu sendar til stjórnar KÍ, Grettis- götu 89, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10. júlí. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu KÍ, Grettisgötu 89, Reykjavík, símar 91-24070, 91- 12259, 91-25170. Bílastæðasjóður Nokkur mánaðarkortsstæði laus á Bakkastæði og í Kolaporti. Gatnamálastjóri Frá menntamálaráðuneytinu: Lausarstöðurvið framhaldsskóla Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður við eftirtalda skóla framlengist til 30. júní Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til um- sóknar kennarastöður í þýsku, stærðfræði og eðlisfræði. Að Kvennaskólanum f Reykjavík vantar kennara í stærð- fræði. ÁRMÚLA 8, SlMI 82275 Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykja- vík fyrir 30. júní n.k. Menntamálaráðuneytið 111 FÉLAGSMÁLASJOFNUN , REYKJAVÍKURBORGAR Fósturheimili Félagsmálastofnun Reykjavíkur óskar eftir fóst- urheimili fyrir 10 ára dreng með geðræn vanda- mál. Væntanlegt fósturheimili þarf að vera barn- laust, en nauðsynlegt er að reynsla af uppeldis- störfum sé fyrir hendi. Drengurinn þarfnast mik- ils stuðnings og um verður að ræða nána sam- vinnu á milli meðferðaraðila hans og fósturfor- eldra. Nánari upplýsingar veitir Regína Ásvaldsdóttir félagsráðgjafi, félagsmálastofnun Reykjavíkur í síma 685911 frákl. 10.00-12.00 allavirkadaga. A iS&J Frá Bæjarskipulagi W Kópavogs Breyting á deiliskipulagi við Smiðjuveg Tillaga að breyttu deiliskipulagi athafnasvæðis við Smiðjuveg auglýsist hér með skv. gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985. Svæðið af- markast af Smiðjuvegi E til suðurs og mörkum Reykjavíkur og Kópavogs til norðurs og austurs. Uppdráttur, skipulagsskilmálar og skýringarmyndir verða til sýnis á Bæjarskipu- lagi Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð frá kl. 9-15 alla virka daga frá 19. júní til 17. júlí 1989. Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar eru, skal skilaskriflegatil Bæjarskipulags innan auglýsts kynningartíma. Bæjarskipulag Kópavogs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.