Þjóðviljinn - 12.05.1990, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 12.05.1990, Blaðsíða 8
Opinber rannsókn eða kæra til umboðsmanns? Ástráður Haraldsson lögfræðingur sem skipar 4. sœti G-listans í Reykjavík rekur mörg dœmi um misnotkun og meirihlutafrekju íhaldsins í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar - Þaðerótrúlegt hvað íhaldinu hefurtekist vel aö leyna því hvernig það hefurstjórnað í raun og veru. Það er ótrúlegt að borg- arbúar með 75% stuðningi við Davíð Oddsson séu að sam- þykkja spiliingu og misnotkun í borgarkerfinu á undanförnum árum og áratugum. Þetta segir Ástráður Haralds- son 29 ára gamall lögfræðingur, sem skipar 4. sæti G-listans í Reykjavík. Ástráður var virkur í stúdentapólitíkinni sem einn af forystumönnum Röskvu og var fulltrúi Röskvu í háskólaráði. Hann hefur verið virkur félagi í Alþýðubandalaginu frá unglings- árum og kom að sjálfsögðu við í allskonar hópum vinstrimanna fyrir á árum. Én getur hann nefnt dæmi um spillinguna sem við- gengst í borgarkerfinu? Aö þekkja mann sem þekkir mann hjá íhaldinu - Já. Það er hægt að efna ótal dæmi. Má ég nefna lóðamálin. Davíð segir að með því að hafa nóg framboð á lóðum þá sé aldrei mismunað. Staðreyndin er hins vegar sú að lóðirnar eru mismun- andi og þeir sem þekkja mann sem þekkir mann í íhaldskerfinu þeir fá bestu lóðirnar. Davíð hæl- ir sér af því að hafa afnumið punktakerfið sem vinstrimenn komu á á sínum tíma. Þar var þó einfaldlega verið að afnema ára- tuga klíkuskap íhaldsins við lóð- aúthlutanir og þegar það kerfi var afnumið tók við annar klíku- skapur- ekki betri bæði með einkalóðir og með lóðir fyrir at- vinnufyrirtæki. Borgarráösmaður sækir um lán til sjálfs sín og fær lánið! - En einstök dæmi um mis- notkun valds. - Þau eru mýmörg. Má ég til að byrja með að nefna Katrínu Fjeldsted borgarráðsmann sem úthlutaði sjálfri sér peningum úr húsverndarsjóði Reykjavíkur- borgar - hæsta láninu sem var út- hlutað það árið; hærra en nokkur félagasamtök fengu sem báðu um samskonar fyrirgreiðslu. Þetta var lán upp á yfir 2 miljónir króna. Það þætti líklega mörgum gott að fá lán upp á tvær miljónir króna til að gera við húsið sitt - en það fær enginn „venjulegur mað- ur“. Það er í fyrsta lagi siðlaust að borgarráðsmaður skuli sækja um lán til sjálfs sín. Það ber að vísu að taka fram að þessi sjóður varð til að frumkvæði vinstri manna - en hann var vissulega ekki stofnaður til þess að hjálpa borgarráðs- mönnum sem auk þess er í þessu tilviki læknir í fullu starfi og sjálf- sagt á margföldum meðalmán- aðarlaunum. - Var þessu mótmælt? - Fulltrúi Alþýðubandalags- ins í umhverfismálaráði sam- þykkti þetta, Össur Skarphéðins- son, þannig að okkar borgarfullt- rúar voru í svolítið erfiðri stöðu á þeim tíma. En mótmæli komu fram og afstaða okkar manna var skýr og um málið urðu deilur í borgarráði. Þegar vinir borgar* fulltrúa íhaldsins eiga sjoppur Og það má líka nefna í þessa sögu sjoppu í Breiðholti sem heitir Staldrið og stendur við Stekkjarbakka. Eigandinn er vinur Júlíusar Hafstein. Honum fannst ekki nægilega góð aðkoma að sjoppunni sinni og hann óskaði eftir því að það yrði rofin miðeyja til að opna aðkeyrsluna betur. Umferðarsérfræðingar borgarinnar fengu þetta mál til umsagnar og þeir voru allir and- vígir þessu, eindregið. En þeir voru látnir bakka með sitt álit og málið var keyrt í gegn. Þetta var harðlega gagnrýnt. Þarna var hagsmunum almennings af greiðri og hættulausri umferð fórnað fyrir hagsmuni sjoppu- eiganda af því að hann var og er sjálfsagt enn vinur eins af borgar- fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. - Borgar hann í kosningasjóð- inn? - Hvað vitum við um það, en dæmi um slíkt höfum við frá fyrri árum. Ármannsfell er þekktasta dæmið. - En svo er það Tommi í Tommahamborgurum sem biður um að opna leið að Sprengisandi enda þótt sú opnun sé þvert á alla almannahagsmuni. Hún var sam- þykkt og Katrín Fjeldsted beitti sér einmitt fyrir því - enda skyld Tomma, enda þótt hún í öðrum málum beiti sér oft fyrir góðum umferðarmálum í borgarkerfinu. Formaöur fjármála- ráös fær sérstaka þjónustu Og nýjasta dæmið er Heklu- húsið: Þar er líka gengið gegn hagsmunum borgarbúa í þágu Heklu hf. - en svo sérkennilega vill til að aðaleigandi Heklu hf. er formaður fjármálaráðs Sjálfstæð- isflokksins og það var kannski líka bara sérkennileg tilviljun að í síðasta prófkjöri íhaldsins hafði Katrín kosningaskrifstofu í hús- næði Tomma - sem fékk beygjuna heim að sjoppunni sinni. Hvaö þarf stóra lóö fyrir símsvara? - Og svo er það Júlíus Haf- stein. - Það er kannski eitt ljótasta dæmið. Birgir ísleifur tilkynnti græna byltingu og tiltók ákveðin svæði og á einu svæði sem Júlíus fékk lóð á var ætlunin að geyma möguleikana til þess að hafa svo- kölluð mislæg gatnamót. Allt í einu er grænu byltingunni ýtt til hliðar og hugmyndunum um mis- læg gatnamót líka og tveimur lóð- um úthlutað á eftirsóttum stað - undiratvinnustarfsemi. Og Júlíus Hafstein fær aðra lóðina. Teikningar eru samþykktar með tilliti til þarfa fyrirtækisins af því að hér er um svokallaða sérstaka atvinnustarfsemi að ræða. Að- stæður Júlíusar breyttust hins- vegar svo að fyrirtækið dróst saman og er nú í raun aðeins sím- svari. Og þá hefði hann átt að skila lóðinni samkvæmt reglum borgarinnar samkvæmt skilmál- um sem hann hafði sjálfur fallist á þegar hann fékk lóðina. Fyrir nokkrum árum bar það sama við fyrir sambandsfyrirtækið Drátt- arvélar hf. Fyrirtækið hafði feng- ið úthlutað lóð en svo breyttust aðstæður og þá skilaði fyrirtækið lóðinni aftur. Reyndar hafði fyr- irtækið óskað eftir því að fá að láta annan aðila hafa lóðina og yfirtaka hana en því var hafnað. Þeir voru svo vitlausir að vera heiðarlegir og þar við sat en auðvitað gátu þeir notað aðferð Júlíusar Hafstein og selt lóðina og hirt 5 til 10 milj ónir á silfurf ati. Þegar hann hafði fengið lóðina var gefið út graftarleyfi án þess að gatnagerðargjöld hefðu verið gerð upp. Þau voru svo borguð þegar það komst upp að hann hafði breytt starfsemi fyrirtækis- ins og var að selja það. Þetta er þess vegna margföld spilling: 1. Það er gengið á grænt svæði sem er rangt að gera. 2. Það gerist í þágu borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins sem hirðir aðra af tveimur eftirsóttum lóðum. 3. Þegar starfsemi fyrirtækisins breyttist í símsvara átti hann auðvitað að skila lóðinni því sím- svarar þurfa ekki mörg hundruð fermetra. 4. Loks kemst hann upp með að byrja framkvæmdir án þess að borga gatnagerðargjöld. En samt er maöur- inn boöinn fram á D-listanum Þetta segir svo sína sögu um meirihlutafrekju íhaldsins að það Ástráður Haraldsson lögfræðing- ur skipar 4.sæti G-listans í Reykjavík. lætur sig hafa það þrátt fyrir þetta svínarí að láta manninn í framboð aftur eins og ekkert hafi í skorist. - Hvaðhefurgerstíþessumáli síðan? - Okkar menn gagnrýndu þetta harðlega, en meirihlutinn beitti valdi sínu til þess að hilma yfir. - Hvað er hægt að gera? Eru borgarbúar varnarlausir and- spænis misnotkun valds af þessu tagi. - Nei. Það er hægt að setja hlutlausar og heiðarlegar reglur og með slíkum aðferðum er hægt að verja borgarbúa fyrir svona vinnubrögðum. íhaldið hreykir sér af því að hafa afnumið punktakerfið, en í staðinn verða borgarbúar að sætta sig við að væla utan í borgarfulltrúum íhaldsins til þess að fá góðar lóð- ir. Okkar menn í borgarstjórn hafa líka lagt til að avinnulóðir innan Elliðaáa verði seldar á upp- boði. Það hefur verið gert og fyrir það fékkst stórfé í borgarsjóð. En auðvitað ætti að athuga það að láta fara fram opinber rann- sókn á vinnubrögðum borgar- stjórnar íhaldsins í þessu máli - eða skjóta málinu til umboðs- manns alþingis. Margir miljaröar á kjörtímabili og röö mistaka - En nú eru verkefnin boðin út. - Já, en framkvæmdaráðið sem við skipuðum var lagt niður og þess vegna er nú auðveldara með klíkuskap að ráða málum til lykta. En hönnunin er ekki boðin út. Og það eru margir miljarðar sem fara í hönnunarkostnað á hverju kjörtímabili. Það hefur til dæmis komið fram að það er vel á annan miijarð sem fer í hönnun nokkurra stórbygginga á þessu kjörtímabili. Og þama fær eng- inn að komast að sem ekki er hreinræktaður hjá íhaldinu. Og því miður fer ekki alltaf saman fagleg hæfni og flokkssskírteini í Sjálfstæðisflokknum. Með þess- um vinnubrögðum hefur íhaldið útilokað hundruð mjög hæfra fagmanna. Þetta kostar oft stórfellda fjármuni umfram það sem vera þyrfti: Arkitektar fengu að skipu- leggja Rimahverfi í Grafarvogi. En þeir kunna ekki til verka. Það vantar dýptarlínurnar. Þegar það er byrjað að grafa fyrir fyrsta ein- býlishúsinu kemur í ljós að þetta er fjögurra metra dýpi. Það gengur ekki upp þannig að það þurfti að breyta skipulaginu - eftir að það var búið að leggja götur. Og það að breyta skipu- laginu kostar miljónir króna. Inn meö kaupmenn en út meö aldraöa - Það er athyglisvert að kaupmannasamtökin eiga full- trúa í skipulagsnefnd en ekki aðr- ir. - Já. Það er eitt dæmið um fjarstæðurnar sem sýnir í þágu hverra er verið að stjórna. En þegar Guðrún Ágústsdóttir lagði fram tillögu í félagsmálaráði við sérstakar kringumstæður var því hafnað sem algerri fjarstæðu. Þessu var hafnað af íhaldinu sem algerri fjarstæðu! Af sömu mönnum og hafa Kaupmannas- amtökin inni á gafli í aðalskipu- lagsnefnd. Það er líka lýsandi í þessu sambandi þegar íhaldið setti allt á annan endann til að koma í veg fyrir að starfsmenn strætó fengju aðild að stjórn SVR. Það var talið trufla starf- semi stjórnarinnar og svo fram- vegis. Nú skammast þeir sín fyrir að hafa verið á móti þessu, en þessi þrjú dæmi um ólýðræðis- lega afstöðu íhaldsins ættu að nægja til þess að sýna fram á það sem hér var nefnt í upphafi: Meirihlutavaldi í áratugi fylgir: a) spilling b) ólýðræðisleg meðferð mála. Það er af þessum ástæðum sem ég tel að eitt brýnasta verkefni Alþýðubandalagsins í þessum borgarstjórnarkosningum sé að ganga til atlögu gegn meirihluta- viðhorfunum bæði almennt og sértækt. He ilsteypt og heiö- arlegt fólk gegn yf ir- gangi íhaldsins En hinu má heldur ekki gleyma að vegna þess að Alþýðubanda- lagið hefur verið sterkt og aðal- aflið gegn íhaldinu hefur oft tek- ist að halda þessum ólýðræðis- legu spillingaröflum í skefjum. Þess vegna þarf G-listinn að koma þannig út úr þessum kosn- ingum að Alþýðubandalagið verði ótvírætt stærsti íhaldsand- stæðingurinn. Ella er hætta á ferðum sem mun kosta útsvars- greiðendur miljarða króna í þjónustufé handa flokksgæðing- um Sjálfstæðisflokksins. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. maí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.