Þjóðviljinn - 07.06.1991, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 07.06.1991, Blaðsíða 19
íslenski gambíturinn Getið þið frætt mig eitthvað um íslenska gambítinn? var eitt sinn spurt í lesendadálki þess víð- lesna skákblaðs New in chess. Eitthvað vafðist fyrir blaðinu að svara, en þó var kveðið upp úr með það að íslenski gambíturinn væri sennilega runninn uppúr skandínavíska leiknum 1. e2 - e4 d7 2. exd5 Rf6 3. c4 og nú 3... e7 - e6. Gambíturinn er dálítið órök- rökréttur því eftir 4,. dxe6 Bxe6 5. d4 fær hvítur sterkt peðamiðborð að því er virðist fyrir hreint ekki neitt og peð í kaupbæti. Þessu er öfúgt farið eftir 3... c6, sem er al- þekktur leikur, því eftir 4. dxc6 Rxc6 hefúr svartur gott tangar- hald á d4 - reitnum reitnum og því greinilegar bætur fyrir peðið. Haustið 1985 komst ég fyrst í tæri við skandinavíska leikinn er ég háði fjöltefli í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Einn mótherjanna var úlpuklæddur og mikil hetta huldi andlit hans og ég kom honum því ekki alveg fyrir mig. Byrjunin var sú sama og gef- in var upp hér að framan og þegar staða mín fór versnandi sá ég að Hannes Hlífar Stefánsson leynd- ist bak við úlpuna. Hann er að öll- um líkindum upphafsmaðurinn; það er ekki svo Iítið afrek að upp- götva nýjan gambít og fá það skjalfest á tímum, „þegar búið er að yrkja allt,“ eins og eitt óinn- blásið ljóðskáld komst að orði endur fyrir löngu. Svo var það nokkru síðar á al- þjóðlegu móti í Dortmund i V- Þýskalandi 1988 að ég settist and- spænis v-þýska stórmeistaranum Ralf Lau. Hann lék undireins 1. e2 - e4, kveikti sér í sígarettunni og blés stróknum beint í augu mér. „Þú ætlar þó ekki að fara reykja?“ spurði ég. „Sum mót eru reyklaus og önnur ekki,“ svaraði Lau og lét sér fátt um finnast. „Allt í lagi vinur minn. Ef þú ætl- ar að fara að reykja hér þá tefli ég bara skandínavíska leikinn,“ sagði ég og lék 1. .. d7 - d5 og vann létt. Þvi miður gaf Lau ekki kost á íslenska gambítnum, því í stað 3. c4 lék hann 3. d4, en tap- aði, skákina tefldi hann eins og dæmdur maður. Enski stórmeistarinn Jonathan Speelman er einn þeirra skák- manna sem hafa auga fyrir þvi óvenjulega. Síðla árs 1988 er At-skákkeppnin Sovétríkin- Heimurinn fór ffam í Barcelona á Spáni og íslenski gambíturinn ekki mörgum kunnur, beitti Spe- elman honum í einni skáka sinna. Hvor skákmanna hafði 25 mínút- ur til að ljúka skákinni. Við skul- um líta á árangurinn: Andrei Sokolov - Jonathan Speelman Skandinavíski leikurinn - Islenski gambíturinn 1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. c4 e6 4. dxe6 Bxe6 5. d4 Bb4t 6. Bd2 De7 7. Bxb4 8. Rd2 Dxb4t (Annar möguleiki er 8. Dd2, eftir 8. .. Rc6 9. Dxb4 Rxb4 á hvítur í miklum erfiðleikum vegna hótunarinnar 10. .. Rc2+. Annar möguleiki er 8... De7 með hóluninni 9. .. Bxc4.) 8. Rc6! (Speelman er vel með á nót- unum í íslenska gambítnum. Nú getur hvítur leikið 9. d5, en eftir 9. .. O-O-O! er hvítur ekki öf- undsverður af stöðu sinni t.d. 10. dxc6 Re4 11. cxb7+ Kb8 12. RgO Rxd2 13. Rxd2 Hhe8 14. Be2 Bxc4! og vinnur eða 10. dxe6 Re4 11. Rgf3 Re5! og vinnur.) 9. Rf3 0-0-0! 10. d5 Bg4 (Speelman er við sama hey- garðshomið. Ef nú 11. dxc6 þá 11. .. Hhe8+ 12. Be2 Bxf3 13. gxB Rh5 ásamt 14... Rf4.) 11. Be2 Bxf3 12. BxB Hhe8t 13. KH Rd4 (Byijun svarts hefúr heppnast fúllkomlega og Sokolov var þeg- ar orðinn tímanaumur.) 14. Dcl RxB 15. RxB He4 16. b3 Hde8 17. h3 Rh5 18. g3 a b c d e f g h (Hvítur er að reyna að losa um sig með 19. Kg2, en Speelman gefúr engin grið.) 18... Rxg3t! 19. fxg3 He3 20. Rgl Dd6 (Svartur hefur þunga sókn fyrir manninn og á hinum tak- markaða tíma tekst Sokolov ekki að leysa úr vandamálum stöðunn- ar.) 21. Hh2 Hxg3 21. Db2 Dg6! 23. Kf2 Hee3! (Hótar 24. .. Df5+. Hvítur á ekki nema einn leik...) 24. Re2 HgOt 25. Kel Dglt 26. Kd2 Dxh2 27. Hel Df2 - og Sokolov gafst upp. Glæsileg sýnikennsla í með- höndlun íslenska gambítsins. Helgi Olafsson FLUGMÁLASTJÓRN Eg i I sstaðaf I u g völ I u r, ný flugbraut Forval verktaka Flugmálastjórn mun viðhafa forval á bjóðendum til lok- aðs útboðs í 5. verkáfanga Egilsstaðaflugvallar, þ.e. efnisvinnslu í efra burðarlag og útlögn þess svo og efn- isvinnslu, framleiðslu og útlögn malbiksslitlags á flug- braut, tengibrautir, flughlað og axlir, alls um 165.000 ferm. Eftirfarandi magntölur gefa til kynna stærð verksins: Burðariag (mulið berg): 40.000 rúmm Slitlag (malbik): 36.000 tonn ídráttarrör 9 km Áætluð verklok eru haustið 1992. Þeir verktakar, sem áhuga kunna að hafa á að bjóða í verkið, geta keypt forvalsgögn á Almennu verkfræði- stofunni hf., Fellsmúla 26 (4. hæð), Reykjavík, og hjá umdæmisstjóra Flugmálastjórnar, Egilsstöðum. Verð kr. 1000,- per eintak. Flugmálastjórn Auglýsið í Nýju Helgarblaði Viðskiptaráðuneytið Ritari Laus er staða ritara (100% starf) í viðskiptaráðuneyt- inu. Skilyrði er að viðkomandi hafi gott vald á íslensku, ensku, dönsku og ritvinnslukerfinu Orðsnilld (wordper- fect). Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu fyrir föstudag- inn 14. þ.m. ásamt upplýsingum um menntun og lýrri störf. Viðskiptaráðuneytið RAFRUN H.F. Smiðjuvegi 11 E Alhliða rafverktakaþjónusta Allt efni til raflagna Sími 641012 GLÓFAXIIIE ÁRMÚLA42 108 REYKJAVlK SlMI: 3 42 36 Lekur hjá þér þakið? Haíðu þá samband við mig og ég stöðva lekann! Upplýsingar í síma 91-670269 Vopna- fjörður - opinn fundur Fundur verður með Hjör- leifi Guttormssyni oc Þuríði Backman í Aust- urborg, Vopnafirði, mánudagskvöldið 10. júní kl. 20.30. Allir velkomnir. Alþýöubandalagið Höfn - opinn fundur Fundur verður með Hjör- leifi Guttormssyni og Einari Má Siguröarsyni í Verkalýðshúsinu á Höfn I Hornafirði föstudags- kvöldið 7. júní kl. 20.30. Allir velkomnir. Alþýðubandalagið Hjörleifur Þurlður Hjörleifur Einar Már Miðstjórnarfundur Miðstjóm Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar á Selfossi dagana 8.-9. júnl. Fundurinn hefst kl. 10.30 á laugardag og stefnt er að því að Ijúka fundi um miöjan dag á sunnudag. Rútuferöir eru frá Umferðarmiðstöðinni og fara bflar 6.50 og 9.30 á laugardagsmorgun. Nánari upplýsingar verða sendar út I fundarboði. Dagskrá: Fundarsetning. 1. Kosningabaráttan - aðferðir og árangur. 2. Stjórnarskiptin - stjórnmálaviöhorfið. 3. Staða Alþýðubandalagsins - starfið framundan. 4. Skýrsla starfsháttanefndar og tillögur. 5. Önnur mál. 6. Afgreiðsla mála. Stefnt er að þvl að fundi Ijúki ekki seinna en kl. 16. Steingrímur J. Sigfússon formaður miðstjórnar AB Keflavík og Njarövíkum Opið hús Opið hús I Asbyrgi á laugardögum kl. 14. Félagar og stuöningsmenn velkomnir I kaffi og rabb. Stjórnin Alþýöubandalagið í Reykjavík Kosningahappdrætti Dregið hefur verið I kosningahappdrætti G-listans I Reykjavlk. Vinningsnúmerin voru innsigluð og verða birt fljótlega. - Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að gera skil sem allra fyrst. Kosningastjórn G-listans. Föstudagur 7. júní 1991 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.