Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 19
DV LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 19 Óskar Jensen með teikningu aö hringrás vatnsins. DV-mynd Pjetui Níræður uppfinningamaður gerir teikningar að raforkuvélum: Uppfinningar af himnum ofan Níræða uppfinningamenn rekur ekki á fjörur blaða- manns á hverjum degi. Óskar Jensen er ekkert venjuleg- ur níræður maður þar sem hann er stöðugt að gera nýj- ar teikningar að hinum og þessum uppfinningum. Félag hugvitsmanna á íslandi og Einkaleyfaskrifstofan á fs- landi hafa ekki haft áhuga á að skoða uppfmningar Ósk- ars en hann gefst ekki upp við svo búið og hefur sent teikningar að tvenns konar sparneytnum rafmagnsvél- um til Einkaleyfaskrifstofunnar í Danmörku. „Ég fékk hugmyndina fyrst árið 1962. Uppfinningar eru áhugamál hjá mér en ég er sjálflærður og segi oft að uppfinningamar komi til mín af himnum ofan. Önnur hugmynd mín miðar að því að framleiða rafmagn með hringrás vatnsins og hin að þvi að nota tómarúm sem orkugjafa til framleiðslu á rafmagni. Ég kynnti hug- myndimar fyrir einkaleyfaskrifstofunni á íslandi en þeir em orðnir leiðir á mér og vildu ekkert af mér vita. Þá leitaði ég til Danmerkur og hugmyndimar mínar liggja þar en ég á ekki peninga til þess að halda áfram og láta smíða vélarnar," segir Óskar Jensen. Málari og bóndi Óskar fæddist á íslandi en ólst upp í Þórshöfn í Fær- eyjum frá sjö ára aldri. Hann fluttist aftur tii íslands nitján ára, eftir að hafa lært prentiðn i Færeyjum. Ósk- ar hefur víða komið við á sínum langa ferli. Hann hef- ur starfað í prentsmiðjum, verið bóndi, sjómaður og uppfinningamaður, svo eitthvað sé nefnt. Óskar hefur auk uppfinningastarfanna fengist við að mála og í íbúð hans í Kópavoginum getur að líta ógrynni málverka eft- ir hann. Óskar kallar aðra uppfinninguna Perpetual Motion Systemet eða hringrás vatnsins en hina tómarúm sem orkugjafi. Hugmyndin að hringrásinni er til staðar en peninga og vilja til þess að prófa hugmyndina skortir. Með þessari aðferð er hægt að framleiða rafmagn og nota til þess sama vatnið. Óskar er með á hreinu að þessi aðferð verði notuð í framtíðinni. „Það er aldrei litið við þvi sem eyðir minna en það framleiðir, eins og segja má um þessa uppfinningu. Hringrás vatnsins framleiðir orku en eyðir henni ekki,“ segir Óskar. Auk þessara fyrrgreindu uppfinninga hefur Óskar stungið upp á því að dúnn verði notaður til taugerðar og liggur sú hugmynd hjá Félagi hugvitsmanna. Hann hef- ur engin viðbrögð fengið við því. Óskar hefur sent hug- myndir i hugvitsmannakeppnir og er ein hugmynda hans að nota skolprennsli sem áburð. Átti að þegja yfir hugmyndinni „Ég hef farið nokkrum sinnum með ófullgerðar hug- myndir á einkaleyfaskrifstofuna hérna en árangurs- laust. Ég hafði símasamband við Félag hugvitsmanna og sagði þeim að ég hefði hugmynd að vél sem framleiddi meiri orku heldur en hún eyddi. Ég fékk þau svör þar að ég ætti engum að segja frá þessu heldur halda þessu fyrir sjálfan mig. Það viðgengst um allan heim að líta ekki við neinu sem framleiðir meiri orku en það eyðir. Þegar raf- orka er fram- leidd í gegnum tómarúm er notað vogarafl sem gengur upp og niður. Teikning af tækinu sem drífur vogar- aflið áfram er á einkaleyfaskrif- stofunni í Dan- mörku. -em Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum oM mlll/ hiny0s sama dag er a^' Smáauglýsingar af annarri auglýsingunni ov 550 5000 Borgartúni 26, Reykjavík Bílcfshöföa 14, Reykjavík Skeifunni 5, Reykjavík ~ ' j, Hafn Bæjarhrauni 6, arfirði E-vítamín er öflug vörn fyrir frumur líkamans 30 HVIJO E-SUPEf NÁnÚHL'lEGT Skortur á E-vítamíni veldur sjúkdómum og ófrjósemi hjá dýrum. Vitneskja um þetta hefur gert E-vítamín þekkt sem kynorkuvítamínið. Yfirgripsmiklar rannsóknir benda til að E-vítamín sé mikilvæg vörn gegn alvarlegum sjúkdómum. E-vítamín er öflugt andoxunarefni (þráarvarnarefni) sem ver frumur líkamans með því að hemja skaðleg sindurefni. E-víta- mín vinnur þannig gegn hrörnun frumanna. Rannsóknir hafa undanfarið einkum beinst að E-vítamíni til viðhalds heilbrigðu hjarta og starfsemi þess. Fœst í heilsubúðutn, apótekum og heilsuhillum matvörubúða Kringlutini & Skólavörbustíg GULI MIÐINN TRYGGIR GÆÐIN! Éh eilsuhúsiö Jlagur-'ðltmixm -besti tími dagsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.