Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 DV * * íslendingur í slagtogi með Vítisenglum og Bandidos: er ekki grimmur að eðlisfari ekki markvisst neina bardagalist í minni klíku.“ Að sögn Kalla þurfa klúbbar að skapa sér ímynd í byrjun ferils síns og sanna hugrekki sitt. Þeir mega ekki gefa neitt eftir því þá eru þeir álitnir huglausir og verða þá aldrei látnir í friði. Þegar virðingu er náð er aldrei abbast upp á þá. „Þeir sem gera eitthvað á hluta einhvers úr hópnum eru einfaldlega eltir heim til sín og barðir. Það ger- ir enginn á hluta einhvers úr hópn- um og kemst upp með það. Þá hefur klúbburinn tapað andlitinu og virð- ingu sinni. Þessar reglur eru áreið- anlega ekkert ósvipaðar og gilda hjá gengjum í hinum og þessum löna- um.“ Ólöglegur næturklúbbur Mótorhjólaklúbburinn sem Kalli var í rak ólöglegan nætm-klúbb á þeim tíma þegar skemmtistöðum á sumum Norðurlöndunum var lokað snemma. Klúbburinn hafði til um- ráða stórt hús með íbúðarhúsnæði og viðgerðarverkstæði auk nætur- klúbbsins. Há girðing umlukti klúbbhúsið og sjónvarpsmyndavél var á staðnum. Lögreglan var í skóginum og tók myndir af öllum sem komu og fóru. „Það voru aldrei nein skrílslæti eða röflandi fyllibyttur leyfð í klúbbnum þó hann væri opinn alla nóttina. Ef fólk var með einhver læti fór það beinustu leið út. Þeir sem sóttu staðinn voru sukkararn- ir, dópistamir og mafíósamir ásamt mótorhjólaklúbbunum. Það skipti okkur engu máli hverjir komu þama inn ef þeir versluðu og voru til friðs.“ Lyfjadeildin seldi dóp „Það fylgir oft lífsstílnum að neyta eiturlyfja og sumir gerðu það. Amfetamínneysla er til dæmis al- geng í mótorhjólaklúbbum en auð- vitað er þetta einstaklingsbundið." Auðvelt var að nálgast dóp á næt- urklúbbnum en það var ekki skylda að vera í dópi til þess að vera með i klúbbnum. „Lyfjadeildin seldi dóp innan klúbbsins en það voru einstaklingar innan hans. Dópið var ekki selt í nafni klúbbsins. Þeir sem vildu selja dóp gerðu það og klúbburinr skipti sér ekki af því. Dópsala var ekki talin næg ástæða fyrir þvi að reka menn. Samt er ekki hægt að benda á svona klúbb og segja að all- ir séu krimmar. Nokkuð öruggt er þó að krimmarnir leynast innan um í höröum mótorhjólaklúbbum eins og þeim sem ég var í. Margir sem voru í klúbbnum voru ágætisnáung- ar og úr ólíkum stéttum. “ Klúbbfélágamir héldu reglulega fundi þar sem þeir skipulögðu há- tíðir og eyddu oft tímanum á bam- um og töluðu um hjólin sín. Hátíð- imar vom yfirleitt mjög vel skipu- lagðar. Lán hjá klúbbnum Aðgangseyrir og allar tekjur runnu óskiptar til klúbbsins. Ef fé- lagar fóm til útlanda til þess að hitta aðra mótorhjólaklúbba keypti klúbburinn miðana. Það voru mjög miklir peningar til hjá klúbbnum og menn gátu einnig fengið lán ef þeir þurftu. Menn borguðu samt alltaf „Ég var ekki önnum kafinn við að myrða fólk alla daga eins og margir halda um meðlimi mótorhjóla- klúbba. Ég er ekki grimmur aö eðl- isfari. Maöur verður þó að vera reiöubúinn til þess að gera hvað sem er fyrir klúbbinn og þetta er mjög sérstakt karlasamfélag í stóra samfélaginu. Menn fara ekki í svona klúbba án þess að trúa á mál- staðinn og helga sig honum af heil- um hug,“ segir fyrram mótorhjóla- maöur sem umgekkst bæöi Vít- isengla og Bandidos mótorhjóla- gengin fyrir nokkrum árum. Við- mælandi okkar vill ekki láta nafns síns getiö í viötalinu vegna hætt- unnar sem hann gæti lent í en við skulum kalla hann Kalla. Hann var eitilharður mótorhjólamaöur sem ók um á Harley Davidson í merktu leðurvesti og var meðlimur í harðsvíruðu mótorhjólagengi á Norðurlöndunum. Nú hefur hann skipt út Harleynum og vestinu fyrir steinsteypu og er orðinn fjölskyldu- maður. Mótorhjólaáhuginn liggur í dvala meðan verið er að koma þaki yfir höfuðið. Kcilli áttaði sig á því að meiri alvara var að færast í klúbbana eftir að pólitík og völd komu í spilið. Einnig haföi áhrif á hann að hann eignaðist sitt fyrsta barn á þessum tíma. Klúbburinn sem Kalli var i umg- - ekkst mótorhjólaklúbb sem siðar varð hinir illræmdu Bandidos. Kalli umgekkst einnig Vítisenglana og hafa margir félaga Kalla gengið í Vítisenglana eða bíða þess að kom- ast inn. Nöfnin Vítisenglamir og Bandidos hljóma kunnuglega i eyr- um manna. Mörgum er í fersku minni þegar bardagi blossaöi upp á milli þeirra á flugvellinum í Kaup- mannahöfn með blóðbaði og dauðs- fóllum. Lesendur muna áreiðanlega eftir því þegar Vítisenglar keyrðu inn í fangelsi og drápu forseta Bandidos. Kalli fékk leyfi til þess að hætta þegar honum fannst pólitíkin farin að skipta menn meira máli heldur en mótorhjólaáhuginn, fé- lagsskapurinn og bræðralagið. Þeg- ar hann hætti urðu meðlimir geng- isins að fara að taka afstöðu með Englum eða Bandidos og harkan jókst jafnt og þétt. Setja eigin lög „Það má segja að ég hafi stokkið fyrir borð á réttum tíma eða 1990 þegar ýmislegt fór að breytast í mót- orhjólaklíkunum. Ef maður ætlar að vera reglulega töff mótorhjól- atýpa gengur ekki að hafa stelpur í klúbbnum því þetta er hreyfing sem dýrkar karlmannleg gildi. Þeir sem eru í mótorhjólaklúbbum skipta sér ekki af Jóni Jónssyni en hvorki hann né lögreglan skipta máli. Klúbbamir setja sín eigin lög, hafa sinn eigin virðingarstiga og sitt eig- ið valdsvið. Heimurinn fyrir utan klúbbinn er ekki til.“ Það er ekki á Kalla að sjá að hann hafi einhvem tíma verið meðlimur í harðsvíraðum mótorhjólaklúbbi en útlit hans og fas er síður en svo grimmilegt eða ógnandi eins og ímynd mótorhjólatöffara er oft í hugum manna. Klúbburinn sem hann var í var þó með þeim þyngri á þeim tíma. Að sögn viðmælanda okkar eru mótorhjólaklúbbar mjög skipulagð- ir og á vegum þeirra er ekkert gert með hangandi hendi. Menn eru kosnir í embætti og er forsetinn æðstur. Auk þess eru í klúbbnum aðstoðarforseti og „road captain" sem sér um að skipuleggja aUar ökuferðir sem famar eru á vegum klúbbsins. Gjaldkerinn sér um pen- ingamálin, en talsverðir peningar eru í umferð hjá klúbbnum, og vopnaliðþjálfinn sér um varnir og öryggi. Kalli vann engin af þessum störfum. Einn fyrir alla „Harðir mótorhjólaklúbbar era allt annar heimur og er einkennis- orð þeirra yfirleitt „Fuck the World“ eða til fjandans með heim- inn. Skemmtilegast við þetta fannst mér félagsskapurinn, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Mótorhjólin sameinuðu okkur og þetta var mjög spennandi á þessum tíma. Það er ekki vinsælt að fara yfír strikið. Þeir sem gera það, drekka of mikið og tala of mikið eru reknir. Það borgar sig alls ekki að segja eitt- hvað sem kemur sér illa fyrir klúbb- inn eða rýrir álit hans út á við.“ Betur skipulagt en mafían Að sögn Kalla eru mótorhjóla- klúbbar oft betur skipulagðir heldur en mafían. Hann lítur á klúbbinn eins og ættbálk. Mjög mikilvægt er að þegja yfir því sem ekki má líta dagsins ljós. Kalli varð að velja hvort hann vildi verða „biker“ og helga sig klúbbnum eða gera eitthvað annað. Hann er ánægður með sitt val í dag. Englar kaupa skuldir Fjölmargir mótorhjólaklúbbar eru á öllum Norðurlöndunum en einungis sumir meðlimanna eru glæpamenn. Fréttir herma að grun- ur leiki á að Vítisenglamir reki til dæmis rukkunarfyrirtæki sem kaupir skuldir manna. Einnig hafa þeir veriö grunaðir um vemdar- starfsemi á Norðurlöndunum. Þeim hefur fjölgað ótrúlega hratt á Norð- urlöndunum á undanfomum áram og ná sífellt til fleiri borga. Það er alvörumál ef Vitisenglar koma til þess að rukka og fólk þorir almennt ekki að segja nei við þá því þá verð- ur það oft ekki til frásagnar. Vald mótorhjólamanna „Venjulegt fólk var logandi hrætt við okkur en þarna er um mikið vald að ræða sem mótorhjólamaður getur skapað sér. Þegar félagar í klúbbnum mættu sjö til átta saman á einhvem stað reyndu sumir aö nudda sér utan í einhvern úr hópn- um. Þeir sem reyndu það voru snögglega jarðaðir. Að sýna tilburði til þess að berjast gerði aö verkum að viðkomandi var kominn í vond mál. Enginn slær félaga í mótor- hjólaklúbbi án þess að hafa verra af. Ég reyndi stundum að halda mönn- um föstum og ráða þeim frá því að berjast og benda þeim á hættuna sem þeir settu sig í við það. Núna æfa mótorhjólagengi „kick box“ sem er bardagalist en við æfðum Kalli umgekkst menn sem nú eru meðlimir í Vítisenglunum og Bandidos mótorhjólaklúbbunum. (Myndin er sviðsett og tengist ekki viðmælanda.) DV-mynd JAK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.