Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
Fréttir
Svavar Gestsson í umræöum á Alþingi:
Kólumbía fær ekki lán
nema að hafa starfsleyfi
- þaö er ástæðan fyrir því að starfsleyfið var gefið út kvöldið fyrir skírdag
„Af hverju lá svona mikið á að
veita starfsleyfi? Af hverju mátti
ekki biða eftir niðurstöðu Alþingis,
úrskurðanefndar og niðurstöðu
hins lýðræðislega ferlis? Af hverju
þurfti að beita fólkið í landinu
valdi? Það er vegna þess að það er
verið að veita starfsleyfi aðila sem
hefur svo veika fjárhagsstöðu að
hann fær hvergi uppáskriftir á
þennan samning um byggingu ál-
vers í Hvalfirði nema að það liggi
fyrir starfsleyfl eins og gefið hefur
verið út. Svarið við spumingunni
um hvers vegna lá svona mikið á er
það að sá aðili sem menn hafa verið
að reyna aö gera samning við er
ekki trúverðugri en svo að það
þurfti skyndistimpil úr umhverfis-
ráðuneytinu til þess að hann fengi
uppáskriftir á sína álpappíra," sagði
Forsvarsmenn SÓL-ar f Hvalfirði fylgdust grannt meö
umræðum á Alþingi í gær. DV-mynd E.ÓI
Svavar Gests-
son alþingis-
maður í utan-
dagskrárum-
ræðu um starfs-
leyfið fyrir ál-
ver á Grundar-
tanga, sem gef-
ið var út kvöld-
ið fyrir skírdag.
Sighvatur
Björgvinsson
fór í ræðustól
og spurði Guð-
mund Bjama-
son umhverfis-
ráðherra hvort
þetta væri rétt.
Guðmundur
Bjamason stað-
festi að Kól-
umbía hefði talið það liðka fyrir að
fá starfsleyfið en svaraði að öðru
leyti ekki því sem Svavar fullyrti og
Sighvatur ítrekaði.
Umræðan, sem- Hjörleifur Gutt-
ormsson hóf, fór út um víðan völl
eins og oft vill verða. Guömundur
Ámi Stefánsson kom þó að kjama
málsins þegar hann sagði að á ís-
lendinga rynni eins og gullæði þeg-
ar stóriðja væri annars vegar. Hann
sagðist styðja álver á Gmndartanga
en hann sagðist ekki líta það gagn-
rýnislausum augum. Menn yrðu að
horfa á málin frá öllum hliðum og
reyna að fara milliveginn. Hann
benti líka á að Kólumbía-fyrirtækið
hefði enn ekki náð að fjármagna
byggingu álvers og því hefði ekki
enn verið ákveðið að reisa þetta ál-
ver. -S.dór
Lagadeild HÍ:
Mikil óánægja
vegna frest-
unar á prófi
„Prófiö féll niður þar sem kenn-
ari, sem átti aö prófa nemendurna,
boðaði veikindaforföll skömmu fyr-
ir prófið. Það gafst ekki tími til að fá
annan kennara og því var ekki um
annað að ræða en að fella það niður.
Það verður fundað um hvernig best
sé að leysa úr þessu máli þannig að
það komi sem minnst niður á nem-
endunum," segir Jónas Guðmunds-
son, kennslustjóri í lagadeild Há-
skóla íslands.
Mikil óánægja varð meðal 15 laga-
nema á 4. og 5. ári í lagadeild þegar
munnlegu prófi, sem þeir áttu að
taka í umhverfisrétti, var frestað
með örstuttum fyrirvara í gær.
„Þetta er auðvitað mjög slæmt
fyrir nemendur sem voru búnir að
búa sig undir þetta próf. Það er hins
vegar ljóst að það er ekkert hægt að
gera við því þegar veikindi koma
upp með svo stuttum fyrirvara.
Lagadeild þyrfti að hafa þetta í huga
í framtíðinni þannig að varakenn-
ari sé til taks ef svona staða kemur
upp,“ segir Vilhjálmur Vilhjálms-
son, formaður stúdentaráðs. -RR
Búiö er að rétta af fremri krana Víkartinds og er hann nú tilbúinn til notkunar. Ætlunin er að að byrja að losa þá gáma
sem eftir eru á dekki skipsins nú í dag. Að því loknu verður byrjaö að hffa þá gáma sem eru í lestum skipsins í land
og flytja þá á brott. Teliö er aö fremri kraninn nái a.m.k. 3/4 af þeim farmi sem f skipinu er. DV-mynd BG
Blackpool:
Islendingar sigra enn
í gær var aðalkeppnin í s-amer-
ískum dönsum hjá aldursflokknum
12-15 ára, þ.e. cha cha cha, samba,
rúmba, paso double og jive. 217 pör
voru skráð í keppni og þar af 25
pör frá íslandi. Þau Benedikt Ein-
arsson og Berglind Ingvarsdóttir
sigruðu í þessari keppni. Þetta er
annað árið í röð sem íslendingar
vinna þessa keppni en í fyrra voru
það Sigursteinn Stefánsson og El-
ísabet Sif Halldórsdóttir. í aldurs-
flokknum 6-11 ára var keppt í ein-
um dansi, vínarvalsi, og var ekkert
íslenskt par þar í úrslitum en þau
Davíð Gill og Halldóra Sif drógu
sig í hlé þar sem þau unnu aðal-
keppnina í standarddönsimum. í
dag er aðalkeppnin I aldursflokkn-
um 6-11 ára í suðuramerískum
dönsmn og verður spennandi að
fylgjast með hvernig gengur.
Benedikt Einarsson og Berglind
Ingvarsdóttir sigruðu f aðalkeppn-
inni f suöuramerískum dönsum f
Blackpool.
Kjarasamningar:
Flugvirkjar
sömdu í gær
Síðdegis í gær undirrituðu flug-
virkjar og Flugleiðir hf. nýjan kjara-
samning til þriggja ára. Samningur-
inn er á sömu nótum og þeir samn-
ingar sem gerðir hafa verið að und-
anfornu.
Nýmæli er í samningnum um
nýtt vaktafyrirkomulag sem gerir
vinnutima flugvirkja sveigjanlegri.
Það gefur fýrirtækinu möguleika á
að sækja fleiri verkefni á alþjóðleg-
an viðhaldsmarkaö. -S.dór
Aflamet:
Mesti mánaöar-
aflinn frá upphafi
Heildaraflinn í febrúarmánuði
síðastliðnum varð 504.724 lestir sem
er mesti afli sem borist hefur á land
á íslandi á einum mánuði. í sama
mánuði í fyrra varð aflinn 452.939
lestir.
Að sjálfsögöu er það fyrst og
fremst loðnuaflinn sem veldur
þessu. Alls veiddust 457.078 lestir af
loðnu í febrúrar, 19.332 lestir af
þorski og alls af botnfiski 39.395 lest-
ir. -S.dór
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Var páskaþáttur
Spaugstofunnar guðlast?
Slysið við Hafnaríjall:
Ákærður
fyrir mann-
dráp af
gáleysi
51 árs karlmaður hefur verið
ákærður fyrir manndráp af gá-
leysi og umferðarlagabrot með
því að hafa án nægilegrar að-
gæslu ekið bifreið á konu sem
hélt á tæplega 7 mánaða bami
sínu með þeim afleiðingum að
konan lést eftir að hún hafði
stigið út úr rútubifreið á móts
við Hafnarfjall í Borgarfirði í
september síðastliðnum.
Ökumaðurinn telst hafa ekið
bíl sinum til suðurs of hratt
miðaö við aðstæður. Rútubif-
reiðin var kyrrstæð og með
akstursstefnu í átt að Borgar-
nesi. Konan var komin út og var
á leiðinni yfir veginn í vesturátt
þegar slysið átti sér stað. Konan
er talin hafa látist samstundis
en bamið slasaðist. Aðstæður á
slysstað voru óhagstæðar -
hvassviðri og dimmt. Eins og
oftast gerist þegar banaslys eiga
sér stað krefst ríkissaksóknari
þess að ákæröi verði dæmdur til
refsingar og sviptingar ökurétt-
inda samkvæmt umferðarlög-
um. -Ótt
Stuttar fréttir
Brak á Snæfellsnesi
Spýtnabrak úr Skeiðarárbrú sem
tók tU sjávar í Grímsvatnahlaupinu
í vetur hefur rekið á land á Stakk-
hamarsfjöru á SnæfeUsnesi. Morg-
unblaðið segir frá.
Fram af brúninni
Hjörleifúr Guttormsson alþingis-
maður segir að umhverfisráðherra
sé genginn fyrir björg og rúinn öUu
trausti eftir framgöngu sína í mál-
efhum Norðuráls á Grundartanga
og veitingu starfsleyfis fyrir verk-
smiöjuna. Ráðhen-a segir svo ekki
vera og segir að kjósendur muni
skera úr um það í næstu kosning-
um. Stöö 2 sagði frá.
Opið prófkjör
Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík
hafa samþykkt opið prófkjör fyrir
næstu sveitarstjómarkosningar.
Áfram á breiöbandinu
Stöð 2 og Sýn verða áfram á
breiðbandi Pósts og síma fyrst inn
sinn þar sem verulegur fjöldi
áskrifenda hefur tengst breið-
bandinu. Stjómarformaður Stöðvar
2 segir að þetta sé gert tU að firra
áskrifenduma vandræðum. Stöð 2
sagði frá.
Blöndal í Græniandi
HaUdór Blöndal samgönguráð-
herra gerði samkomulag við sam-
gönguráðherra Grænlands í ný-
legri opinberri heimsókn tíl lands-
ins um að kanna möguleika á lækk-
un farmgjalda mUli íslands og
Grænlands og um efldar samgöng-
ur og flutninga mUIi landanna
Meiri gjaldeyrir
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
styrktist um 1,6 mUIjarða í mars og
nam í mánaðarlok 24,8 milljörðum
króna. Erlend skammtímalán lækk-
uðu um 1,3 milljarða og gjaldeyris-
staða bankans batnaði í heUd um
2,9 mUljarða.
11 misstu skírteinið
11 atvinnuflugmenn hafa misst
flugskírteini sín varanlega undan-
farin átta ár af heUsufarsástæöum
að sögn Morgunblaðsins.
60% lokiö
Búið er að bora um 60% af vega-
lengd ganganna undir Hvaltjörð eða
um 3,3 km. HeUdarlengd þeirra verð-
ur um 5,5 km. Mbl. segir frá -SÁ