Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
Neytendur_______________________________
Verð- og magntollar á grænmeti:
Atlaga landbúnaðar-
ráðuneytisins að
heimilum í landinu
- segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
„Neytendasamtökin telja vemdar-
tollana á grænmeti atlögu landbúnað-
arráðuneytisins á heimilin í landinu.
Grænmetisbændur hafa haldið því
fram að þeir geti á grundvelli gæða
keppt að vetri til með framleiðslu
sem framleidd er með raflýsingu.
Þess vegna teljum við út í hött að
hleypa upp veröinu á innflutta græn-
metinu áður en sú innlenda kemur
að einhverju mæli inn á markað,"
segir Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtakanna,
um verð- og magntolla á grænmeti.
„Háar álögur á innflutt grænmeti gef-
ur innlendum framleiðendum aukið
svigrúm til að koma inn á markaðinn
með mjög hátt verð. Neytendasam-
tökin hafa ítrekað mótmælt þessum
vemdartollum."
Bændur skjóta sig í fótinn
Jóhannes segir að stjórnvöld hafi í
upphafi lagt mjög háa tolla sem síðan
hafi lækkað.
„Ég hef haldið fram að þar með
hafi verið eyðilagðir þeir möguieikar
sem Gatt-samningurinn gat haft fyrir
íslenska neytendur. Að okkar mati
eru grænmetisframleiðendur að
skjóta sig í fótinn með því að styðja
þessa aðgerð því þegar verðið hækk-
ar draga neytendur úr kaupum á vör-
unni.“
Samdráttur í sölu
í samtölum DV við smásala i mat-
vöru kom ítrekað fram að mikill
samdráttur væri í sölu á papriku í
dag miðað við það sem hefði verið í
vetur. Þeir segja að neytendur séu
fljótir að átta sig á hækkuninni sem
hafi komið fram á papriku og verði á
tómötum á næstunni. Þeir töldu að
nýjar íslenskar agúrkur, sem eru nú
að koma á markaðinn, myndu vera á
skikkanlegu verði.
Tollarnir margtapast
Smásalar telja að það taki alltaf
tíma að venja fólk á neyslu vörunnar
á ný eftir að neytendur hafa tekið
hana af innkaupalistanum.
„Þessir tollar margtapast í þjóðfé-
laginu því fólk hættir að kaupa. Svo
ekki sé talað um heilsufarið," sagði
einn og sagði að þótt verð væri hátt í
dag væri ljóst að það ætti eftir að
hætta enn frekar.
Þegar svo sé komið gefist smásalar
bara upp á innflutningnum og selji
eingöngu íslensku framleiðsluna,
segja þeir. Það sé einfaldlega ekki
hægt að bjóða fólki upp á papriku
sem kostar yfir þúsund krónur hvert
kíló. Sumir verslunareigendur hafi
pínt verðið niður í verslunum sínum
og selji paprikukilóið langt undir
kostnaðarverði.
Allt aö 30% verðtollur
Á meðfylgjandi töflu sem unnin
er eftir reglugerð landbúnaðarráðu-
neytisins, sem útgefin var 2. apríl
1997, sést glögglega hvemig verðtoll-
ar og magntollar hafa áhrif á útsölu-
verðið. Tollamir eru mismunandi
eftir tímabilum og í maí og júní
mun innflutt paprika bera 22,5%
verðtoll og 298 krónu magntoll á
hvert kíló. Þar sem verðtollurinn er
reiknaður sem hlutfall af innkaups-
verði er hann breytilegur en magn-
tollurinn er fóst tala óháð innkaups-
verðinu. Fyrir utan tolla leggst svo
14% virðisaukaskattur á vöruna og
smásöluálagning, mishá eftir versl-
unum. Það fer svo eftir innkaups-
verðinu hvað paprikan kostar út úr
búð. Grænmetissalarnir, sem DV
ræddi við, segja að í dag kosti
paprikan ekki undir 600 krónum í
innkaupi með tollum og þar við
bætist virðisauki og smásöluálagn-
ing. -jáhj
Verð- og magntollur vegna
innflutnings á papriku
- 2. apríl til 1. júlí 1997 -
Vara Timabll Verötollur % Magntollur kr./kg
Paprika 2/4 - 13/4 30 0
Paprika 14/4 - 20/4 7,5 99
Paprika 21/4 - 27/4 15 199
Paprika 28/4 - 30/6 22,5 298
Reglugerö frá landbúnaöarráöuneytlnu frá 2. apríl ösa
Aldraðir í samstarf við Neytendasamtökin:
Skilgreiningu vantar á þjónustuíbúðum
Þjónustuíbúðir aldraðra, sala á
vöru og þjónustu, ábyrgðir fyrir
skuldum og rétturinn til að láta
skoðun í ljós er meðal þeirra mála
sem brenna mest á öldruðum. Nýve-
rið héldu Neytendasamtökin fund
með fulltrúum eldri borgara og
þeirra er starfa að málefnum eldri
borgara í þeim tilgangi að hefja
samvinnu. Að sögn Stefaníu Bjöms-
dóttur, gjaldkera Félags eldri borg-
ara Reykjavíkur og nágrennis,
binda aldraðir vonir með að þetta
samstarf skili árangri í þágu þeirra.
„Það kom margt fram á þessum
fundi sem kom á óvart eins og það
að aldraðir eru útilokaðir frá skoð-
anakönnunum en auðvitað eru þeir
fullgildir borgarar eins og aðrir,“
segir Stefanía.
Neytendasamtökin sendu frá sér
fréttatilkynningu þar sem farið er
yfir þau atriði sem vinna á að.
Löggjafinn skilgreini þjón-
ustuíbúðir
Nauðsynlegt er að löggjafinn
skilgreini hvað sé þjónustuibúð
þannið að tryggt sé að þessar íbúðir
uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur
og verð sé í samræmi við þjónustu
sem í boði er þannig aö ekki sé ver-
ið að selja þetta húsnæði á allt of
háu verði. Byggingaraðilar skulu
hafa tryggingar vegna galla sem
kunna að koma fram á húsnæðinu
og hugsanlegs gjaldþrots þeirra.
Sala á vöru og þjónustu til
aldraöra
Sú krafa er gerð til söluaðila að
þeir kynni viðskiptamönnum stnum
rétt sinn svo sem hinn 10 daga skila-
rétt eins og lög kveða á um. Jafn-
framt að fólk sé upplýst um heildar-
kostnað vöru/þjónustu þegar hún er
keypt á afborgunarkjörum.
Stuðla skal að sem virkastri sam-
keppni á þeim sviðum sem tengjast
öldruðum, einkum varðandi sölu
lyfia.
Fjármálafyrirtækin upplýsi
um ábyrgö
Sú krafa er gerð til fjármálafyrir-
tækja að þau upplýsi aldraða um
Haldiö upp á þaö aö 25 ár eru liöin frá því aö hús aldraöra viö Noröurbrún
voru tekin í notkun. DV-mynd S.
hvað felist i því að gangast í ábyrgð
fyrir fjárskuldbindingum annars að-
ila. Sú krafa er gerð að við veitingu
lána skuli það haft að markmiði að
sá sem lánið tekur beri fjárhagslega
ábyrgð á því en ekki ábyrgðarmaður.
Gefa á öldruðum færi á að láta
skoðanir sínar til ýmissa málefha í
ljós í skoðanakönnunum en í dag er
þessum hópi ekki veittur slíkur rétt-
ur.
Tilkynningar frá hinu opinbera
skulu vera á skýru og skiljanlegu
máli. -jáhj
LIFE EXTENSION
^WIanKgni I24, 114 41 StodJ*1*
120TABLETTER
Life
Extension-
fæðubótarefni
Komið er á markað hérlendis
Life Extension-fæðubótarefnið
sem unnið er úr vanillukjama
„Wild Yam“ (sem er afbrigði af
kartöflu) og hveitigrasi. í leið-
beiningabæklingi segir að hver
dagskammtur innihaldi um 100
mg extrakt úr hverri fæðutegund
fyrir sig af ofangreindu. Life
Extension inniheldur ekki DHEA
eða önnur tilverkuð efnasambönd
en samsetningin inniheldur
ákjósanlegustu næringu fyrir
starfsemi nýrnahettanna, þar sem
DHEA myndast, ásamt kjamasýr-
um fyrir DNA- og RNA-starfsemi
fmmanna til að líkaminn geti
unnið gegn hrörnun. Life
Extension er fæðubót en ekki
vítamín, hver tafla inniheldur þó
einnig 500 mg af C-vítamíni, Acer-
ola. Life Extension fæst í Ingólfs
apóteki og Snyrtihúsi Heiðars.
Nýr ís frá
Kjörís
Kjörís hefur nú sett á markað
nýja bragðtegund í Mjúkís-lín-
unni. Þetta er myntuís með súkk-
ulaðisósu og -bitum. ísinn verður
seldur í eins lítra umbúðum.
Þetta er 7 bragðtegundin í Mjúkís-
línunni en aðrar bragðtegundir
eru vanillu, súkkulaði, núggat,
karamellu og pekanhnetur, hesli-
hnetu og jarðarberja.
Nýr bæklingur
um svínakjöt
Svinaræktarfélag íslands hefúr
sent frá sér nýjan bækling um
meðhöndlun og matreiðslu svína-
kjöts. Hérlendis hefur neysla
svínakjöts þrefaldast síðastliðin
15 ár og gæði hafa aukist til
muna. í bæklingnum er fjallað
um staðreyndir um svínakjöt,
meðhöndlun kjötsins og eldun.
Einnig era birtar nokkrar upp-
skriftir að matreiðslu ýmissa
kjöthluta. Bæklingurinn fæst í
matvöruverslunum.