Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Síða 15
14
27
+
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
FOSTUDAGUR 4. APRIL 1997
Iþróttir
Iþróttir
KR vann Val
KR sigraði Val, 2-1, í A-deild
Reykjavíkurmótsins í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Þórhallur
Dan Jóhannsson og Þorsteinn
Jónsson skoruðu fyrir KR en
Guðmundur Brynjólfsson fyrir
Val. Staðan í deildinni er
þannig:
Fram 3 3 0 0 9-2 9
KR 3 2 1 0 6-3 7
Valur 3 111 5-3 4
Víkingur 3 111 3-3 4
Fylkir 3 0 12 1-6 1
ÍR 3 0 0 3 2-9 0
Ármann vann KSÁÁ, 3-1, í B-
deildinni í gærkvöld. -VS
Paraguay efst
Paraguay tók í fyrrinótt for-
ystuna i Suður-Ameríkuriðlin-
um í undankeppni HM í knatt-
spymu með góðum sigri á Kól-
umbíu, 2-1.
Bólivía komst í þriðja sætið
með 2-1 sigri á Argentínu, Perú
og Ekvador skildu jöfn, 1-1, og
Uruguay vann Venezuela, 3-1.
Eftir níu umferðir af 16 er
Paraguay með 20 stig, Kólumbía
er með 17, Bólivía 13, Ekvador
13, Argentína 13, Uruguay 13,
Perú 10, Chile 9 og Venezuela 1
stig. Fjögur efstu liðin komast í
lokakeppnina í Frakklandi. -VS
Juninho fer ekki
Bryan Robson, framkvæmda-
stjóri Middlesbrough, sagði í
gær að ekki kæmi til greina að
selja Brasilíumanninn Juninho
til Valencia á Spáni fyrir 770
milljónir króna. Robson sagði að
það þyrfti að bæta einu núlli aft-
an við þá tölu. -VS
Donartapaði
Herbert Amarson og félagar í
Donar töpuðu í gærkvöldi fyrir
Finish Profíles, 83-82, á útivelli.
Þetta var annar leikur liðanna í
undanúrslitum hollenska körfu-
boltans og staðan er 1-1. Þrjá
sigra þarf til að komast í úr-
slit. -VS
Gotfferö til Slóveníu
Golfdeild Úrvals-Útsýnar
ætlar að bjóða upp á golfferð
til Slóveníu 20.-25. maí. Þar
verður spilað golf við hinar
bestu aðstæður í 5 daga.
Verðið í þessa ferð er
krónur 63.900 staðgreitt á
mann í tvíbýli, 67.400 stað-
greitt á mann í einbýli og
53.100 staðgreitt á mann án
golfs. Allar nánari upplýsing-
ar fást hjá Úrval-Útsýn í
síma 569-9300. -GH
Bergljót og Jóhann
Bergljót Kristinsdóttir,
GKG, sigraði í kvennaflokki
á golfmóti sem Úrval-Útsýn
hélt á Islantilla á Spáni á
dögunum. Bergljót fékk 32
punkta. Guðrún Garðarsdótt-
ir, GR, varð önnur með 27
punkta og Guðrún Guðmunds-
dóttir, GK, þriðja með 27 punkta.
Hjá körlunum sigraði Jóhann H.
Sigurðsson, GKJ, með 31 punkta.
Guðmundur Hallsteinsson, GK,
varð annar 29 punkta og Andrés
Guðmundsson, GKG, þriðji með
29 punkta. -GH
NBA-deildin í nótt:
Chicago tapaði
Óvæntir hlutir áttu sér stað í Robinson 15, Brown 13, Newman 13.
NBAí nótt. Chicago tapaði fyrir
Washington og Orlando lá á
heimavelli fyrir LA Clippers. Úr-
slitin í nótt:
New Jersey-Charlotte.....87-93
Gill 26, Casell 18, Jackson 14 - Rice 24,
Pierce 19, Heiger 18.
Washington-Chicago .... 110-102
Strickland 26, Muresan 24, Cheaney 17
- Jordan 34, Pippen 26, Caffey 10.
Orlando-LA Clippers .... 94-113
Hardaway 27, Anderson 21, Seikaly 18 -
D.Martin 31, Vaught 15, Outlaw 12.
Seattle-Milwaukee.......103-89
Payton 22, Perkins 17, Schrempf 13 -
Golden State-Dallas .....106-90
Sprewell 25, Price 16. Smith 15 -
Harper 19, Pack 17, Danilovic 17.
Miami-Indiana............92-78
Mashbum 23, Mouming 17 - Smits 16,
Best 13.
Washington hafði mikla yfir-
burði gegn Chicago í fráköstunum
en þar söknuðu meistaramir
Dennis Rodmans sem er meiddur.
Rod Strickland lék vel fyrir
Washington, skoraði 26 stig, átti
14 stoðsendingar og tók 8 fráköst.
Líklegt er að þessi félög mætist í 1.
umferð úrslitakeppninnar. -GH
Haukastúlkur í
góðum málum
- eftir annan sigur á Stjörnunni
Það var skemmtilegur leikur sem
áhorfendur fengu að sjá í viðureign
Hauka og Stjörnunnar í úrslita-
hrinu 1. deildar kvenna í handbolta
í gærkvöld. Bæði lið sýndu
skemmtilega takta, leikurinn hrað-
ur og áhorfendur vel með á nótun-
um. Haukar sigruðu, 28-22, og em
með 2-0 forystu í einvígi liðanna, og
geta tryggt sér titilinn með sigri í
þriðja leiknum á morgun.
„Þetta var erfitt eins og allir þess-
ir leikir verða. Liðin era það jöfn að
þetta ræðst ekki fyrr en á síðustu 10
mínútunum. Við eram að spila
sterka vörn og fá hraðaupphlaup
sem gerir gæfumuninn. Nú er bara
að mæta í næsta leik eins og hvem
annan leik, óháð því hver staðan er
í dag,“ sagði kátur þjálfari Hauk-
anna, Magnús Teitsson.
Gestimir byrjuðu leikinn af mikl-
um krafti, staðráðnar í því að bæta
fyrir síðasta leik. Þær gerðu fyrstu
tvö mörkin og héldu forystunni
fyrstu 20 mín. Þá jöfnuðu Haukam-
ir 7-7, náðu yfirhöndinni og leiddu í
hálfleik með tveimur mörkum, 11-9.
Síðari hálfleikur var siðan jafn og
spennandi lengst af. Stjaman komst
yfir 13-14 þegar 10 mín. voru liðnar
af hálfleiknum og þegar 9 mín. vora
eftir var staðan jöfn, 19-19, og allt
virtist í járnum. En Haukastúlkur
voru ekkert á því að auka
spennustigið síðustu mínútumar og
gerðu sex mörk i röð.
Atkvæðamestar Hauka vora þær
Vigdís Sigurðardóttir og Andrea
Atladóttir en hjá Stjörnunni átti
Ragnheiður Stephensen mjög góðan
leik og gerði 14 mörk. Herdís Sigur-
bergsdóttir var einnig sterk og þá
sér í lagi í vöminni. -ÖB
Vinnur Beck-
ham tvöfalt?
I gær var tilkynnt hvaða leikmenn
hefðu verið tilnefndir í kjöri enskra
knattspymumanna á leikmanni ársins
og efhilegasti leikmaður ársins. Úrslit-
in veröa kynnt þann 13. apríl.
David Beckham hjá Manchester
United á möguleika á tvöföldum sigri
því hann er tilnefndur í báðum flokk-
um. Þessir koma til greina:
Leikmaður ársins: Beckham, Roy
Keane (Man.Utd), Steve McManaman
(Liverpool), Alan Shearer (Newcastle),
Ian Wright (Arsenal), Gianfranco Zola
(Chelsea).
Sá efnilegasti: Beckham, Ole Gunn-
ar Solskjær (Man.Utd), Robbie Fowler
(Liverpool), Emile Heskey (Leicester),
Chris Perry (Wimbledon), Patrick
Vieira (Arsenal). -VS
Haukar (11) 28
Sljaman (9) 22
0-2, 1-2, 3-5, 7-7, 9-7, 10-8, (11-9),
11-10, 12-10,13-14, 17-15, 19-19, 25-19,
25-20, 28-22.
Mörk Hauka: Andrea Atladóttir 7,
Thelma Ámadóttir 6, Auður Her-
mannsdóttir 4, Hulda Bjamadóttir 4,
Hanna G. Stefánsdóttir 3, Judit Ez-
stergal 3, Harpa Meisted 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir
15.
Mörk Stjörnminar: Ragnheiður
Stephensen 14/4, Herdis Sigurbergs-
dóttir 3, Björg Gilsdóttir 2, Sigrún
Másdóttir 1, Nína K. Björnsdóttir 1,
Rut S^insen 1.
Vaiin skot: Fanney Rúnarsdóttir
11.
Bróttvísanir: Haukar 4 mín.,
Stjaman 4 mín.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson
og Gísli H. Jóhannsson, góðir.
Áhorfendur: Um 350.
Maður leiksins: Ragnheiður
Stephensen, Stjörnunni.
Þetta er Dagný Linda Kristjónsdóttr,
skíöadrottningin unga frá Akureyri sem
sló f gegn á skíöalandsmótinu. í vik-
unni hafa tvívegis birst rangar myndir
meö fréttum af Dagnýju, á forsíöu og í
viötali í Dags-önn. Hér er hún loksins
sjálf og DV biöur hana velviröingar á
ruglingnum.
Meistaratitillinn
blasir viö Keflavík
- eftir sigur í hörkuleik í Grindavík, 97-100
DV, Suðurnesjum:
Gunnari gekk
vel hjá Malmö
Gunnar Már Másson, knattspyrnumaður úr Leiftri, er kominn heim eftir
vikudvöl hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö FF. Þar gekk honum mjög
vel og svo gæti farið að hann léki með þessu kunna félagi í sumar.
„Ég spilaði tvo leiki með Malmö gegn liðum úr 2. deild, auk þess sem ég
æfði tvisvar á dag með liðinu. I fyrri leiknum skoraði ég tvö mörk í 5-0
sigri og í þeim síðari gekk mér líka vel. Þá unnum við 3-1 en ég bað um
skiptingu i hálfleik því ég var alveg útkeyrður eftir erfiða viku. Forráða-
menn Malmö buðu mér að vera lengur en ég varð fyrir tognun í læri og
varð að taka mér nokkurra daga hlé og því fór ég heim,“ sagði Gunnar
Már við DV í gærkvöld.
Um framhaldið sagði Gunnar að það réðist af gengi Malmö í fyrstu leikj-
um úrvalsdeildarinnar sem hefst á sunnudag. „Malmö er með fjóra sókn-
armenn en þeim hefur gengið mjög illa að skora til þessa. Forráðamenn
félagsins ætla að bíða og sjá hvort rætist úr því i fyrstu leikjunum, en ef
það gerist ekki er liklegt að þeir hafi samband við mig aftur. Aðstæðum-
ar hjá Malmö eru frábærar, glæsilegur völlur og góð umgjörð, og það
yrði gaman að fá þar tækifæri," sagði Gunnar Már.
-VS
Keflvíkingar eru komnir með aðra
höndina á íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik eftir annan sigur sinn á
Grindavík, 97-100, í mögnuðum leik í
Grindavík í gærkvöld. Þar fengu áhorf-
endur að sjá allt það besta sem gerist í
íslenskum körfubolta. Keflvíkingar
geta tryggt sér titilinn i þriðja leiknum
á heimavelli sínum á sunnudaginn.
Grindvíkingar vora með góða for-
Arnar hjá
Lokeren
DV, Belgíu:
Arnar Þór Viðarsson, knatt-
spymumaðurinn efnilegi úr FH,
dvelur þessa dagana hjá belgíska
1. deildar liðinu Lokeren. Hann
lék sem vinstri bakvörður með
unglingaliði félagsins gegn Tielen
á miðvikudag og átti ágætan leik
en Lokeren vann, 4-0. Um helgina
spilar Arnar með varaliði Lok-
eren gegn Harelbeke. -KB
ystu lengst af en Keflvíkingar höfðu
meira úthald á lokaminútunum. Þeir
höfðu hvílt sína menn meira meðan
mikið mæddi á lykilmönnum Grind-
víkinga frá fyrstu mínútu. Það voru 3ja
stiga körfurnar og vömin sem skiluðu
Keflavík sigrinum. Falur Harðarson
fór fremstur í flokki og skoraði sjö 3ja
stiga körfur, þar af 5 í síðari hálfleik.
„Við neituðum að gefast upp eftir að
þeir náðu góðu forskoti. Með tapi hefð-
um við farið aftur á byrjunarreit,“
Skoraði þrennu á
tveimur mínútum
Valdimar Kristófersson setti líklega Is-
landsmet, ef ekki eitthvað meira, þegar hann
skoraði þrjú mörk á tveimur mínútum í 7-1
sigri Stjörnunnar á Aftureldingu í deildabik-
arnum í knattspyrnu í gærkvöld. Hin mörk-
in gerðu Ragnar Árnason 2, Helgi Björgvins-
son og Gauti Laxdal en Ágúst Guðmundsson
svaraði fyrir Aftureldingu.
Breiðablik vann Ægi, 5-1. Kjartan Einars-
son 2, Sævar Pétursson, Bjarki Pétursson og
ívar Sigurjónsson skoruðu fyrir Blika en
Björgvin Stefánsson fyrir Ægi. -VS
sagði Falur. Damon Johnson var öflug-
ur undir lokin, bæði í vörn og sókn,
Guðjón átti góðan leik og Kristinn og
Albert í síðari hálfleik.
„Þetta eru vonbrigði eftir að hafa
spilað vel framan af. Vörnin klikkaði á
lokakaflanum og því fór sem fór,“ sagði
Marel Guðlaugsson, fyrirliði Grindvík-
inga. Hjá þeim var Myers frábær, sem
og Jón Kr., og Helgi, Pétur og Unndór
áttu allir góðan fyrri hálfleik.
-ÆMK
Steinar Ingimundarson í einkamál gegn Skotanum Tony Ashcroft:
„Niðurstaða kvið-
dómsins ótrúleg"
- segir Gunnar Guömundsson lögfræðingur um dómsniðurstöðuna í Skotlandi
Steinar Ingimundarson knatt-
spymumaður fer væntanlega í
einkamál við skoska leikmanninn
Tony Ashcroft, sem kjálkabraut
hann í vináttuleik Víðis úr Garði
gegn Pollock í Skotlandi í fyrra-
vor. Eins og fram kom í DV í gær
var dómsniðurstaða í Skotlandi sú
að ekki væri sannað að Ashcroft
hefði kjálkabrotið Steinar.
„Það var ríkissaksóknari Skot-
lands sem kærði Ashcroft, í kjölfar
lögregluskýrslu sem tekin var eftir
leikinn. Málið þótti það alvarlegt
að það var tekið fyrir af efsta dóm-
stigi undirréttar, með 15 manna
kviðdómi. Saksóknarinn taldi
greinilega mjög alvarlegt að svona
atvik ætti sér stað í vináttuleik
gegn erlendum gestum. Enda var
Ashcroft dæmdur í sex leikja bann
fyrir þetta atvik og skoska félagið
bað Víðismenn afsökunar á
framkomu hans,“ sagði Gunnar
Guðmundsson lögfræðingur sem
var viðstaddur réttarhöldin í Skot-
landi í síðustu viku.
Dómarinn nákvæmur en
leikmenn meö nýja sögu
„Niðurstaða kviðdómsins var
ótrúleg. Dómari leiksins bar vitni
og lýsti atvikinu nákvæmlega.
Hann sagði að brotið hefði verið a
Steinari, sem hefði verið að búa
sig undir að taka aukaspyrnu þeg-
ar Ashcroft kom hlaupandi og
skallaði hann í andlitið. Síðan
bára þrír leikmenn Pollock vitni
og komu með nýja sögu. Þeir
sögðu að Ashcroft hefði ætlað að
stilla til friðar, Steinar hefði
skyndilega dottið og enginn vitað
hvað gerðist.
Skoskur lögmaður sem fer með
mál Steinars fyrir skoskum dóm-
stólum leggur til að Steinar fari í
einkamál. Staða hans I slíku máli
sé mjög sterk vegna vitnisburðar
dómarans.
Við höfum skrifað KSÍ og óskað
eftir stuðningi sambandsins í
þessu máli þar sem Steinar hefur
orðið fyrir miklum fjárútlátum.
Undirtektir þar verða vonandi já-
kvæðar því þetta hlýtur að vera
kjörið dæmi fyrir KSÍ að styðja,"
sagði Gunnar.
Steinar sagði við DV í gærkvöld
að sinn kostnaður vegna læknis-
og lyíjameðferðar væri orðinn á
þriðja hundrað þúsund krónur og
ekki sæi fyrir endann á honum.
„Svo vil ég taka fram, vegna frétt-
ar DV í gær þar sem vitnað var í
Daily Record, að það kom skýrt
fram hjá mér í réttinum að kjálka-
brotið hefði ekki bundið endi á fer-
il minn hjá Víði. Annað er mis-
skilningur hjá skoska blaðinu,“
sagði Steinar Ingimundarson.
-VS
ísland (16) 31
Kína (10) 22
0-1, 2-2, 6-2, 9-3, 10-4, 15-6, (16-10),
18-11, 19-14, 21-17, 22-19, 26-20, 31-22.
Mörk íslands: Gústaf Bjamason
21/2, Patrekur Jóhannesson 4, Gunn-
ar B. Viktorsson 2/1, Geir Sveinsson
1, Róbert Sighvatsson 1, Jón Freyr
Egilsson 1, Júlíus Jónasson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 13, Reynir Þór Reynisson
10/1.
Mörk Kína: Wang Xindong 7,
Song Gang 4, Zhang Jingmin 4, Liu
Dedong 3, Yan Tao 2, Mo Zhujihan 1,
Guo Weidong 1.
Varin skot: He Jun 13, Wang Bin
4.
Brottvísanir: ísland 4 mín„ Kína
4 mln.
Dómarar: Stefán Amaldsson og
Rögnvaldur Erlingsson, höfðu mjög
góð tök á rólegum leik.
Áhorfendur: Um 800, fullt hús.
Maður leiksins: Selfyssingurinn
Gústaf Bjamason.
Met hjá Gústa
- skoraði 21 mark gegn Kínverjum á Selfossi
DV, Selfossi:
Grindavík (48) 97
Kefíavík (43) 100
10-0, 14-4, 22-11, 28-15, 32-21, 43-31,
46-34, (4543), 48-49, 52-53, 69-58,
78-76, 84-76, 92-88, 92-96, 94-96,
94-100, 97-100.
Stig Grindavíkur: Herman Myers
37, Pétur Guðmundsson 18, Helgi
Jónas Guðfínnsson 15, Jón Kr. Gísla-
son 10, Unndór Sigurðsson 9, Páll
Axel Vilbergsson 5, Marel Guðlaugs-
son 3.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson
25, Falur Harðarson 23, Guðjón
Skúlason 18, Albert Óskarsson 12,
Kristinn Friðriksson 8, Birgir Öm
Birgisson 7, Gunnar Einarsson 5, El-
entínus Margeirsson 2.
Fráköst: Grindav. 39, Keflavík 31.
3ja stiga körfur: Grindavík 21/9,
Keflavik 31/16.
Vítanýting: Grindavík 18/13,
Keflavik 13/12.
Dómarar: Helgi Bragason og Jón
Bendur, dæmdu mjög vei.
Áhorfendur: Um 750.
Maður leiksins: Falur Harðar-
son, Keflavík.
Gústaf Bjarnason, Selfyssingur-
inn í liði Hauka, ritaði nafn sitt í
sögubækur íslensks handknattleiks
í gærkvöld. Hann skoraði 21 mark
í sigri íslendinga á Kinverjum á Sel-
fossi, 31-22, og er það met í leik hjá
íslenska landsliðinu.
Að loknum fyrri hálfleik hafði
Gústaf skorað 9 mörk og staðan var
16-10.1 siðari hálfleik var sama sag-
an og á síðustu mínútunum snerist
allt um Gústaf. Áhorfendur voru
löngu hættir að kalla: „ísland, Is-
land,“ en þess í stað hljómaði
„Gústi, Gústi.“ Þegar 7 mínútur
voru eftir skoraði Gústaf 18. mark
sitt og þar með var metið slegið.
Hann bætti þremur mörkum við og
þau hefðu getað verið fleiri en Wang
Bin kom í mark Kínverja undir lok-
in og varði nokkur skot frá Gústafi.
Leikur Islands í lokin gekk út á að
bæta metið. „Við vildum að nútíðin
ætti metið," sagði Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari.
Gústaf var mjög duglegur í leikn-
um, var alltaf að, iðinn við að fiska
boltann og nýtti sín færi mjög vel. I
síðustu sóknunum lötraði hann þó
til baka í vörnina eins og gamall
hundur. Stundum komst hann ekki
nema aftur að miðju, þá voru íslend-
ingar búnir að ná boltanum og
sendu auðvitað beint á Gústaf.
Patrekur reif sig einnig oft upp og
í fyrri hálfleik varði Guðmundur
mjög vel. Reynir Þór stóð í markinu
í síðari hálfleik og varði einnig vel. tk
Lítið bar á öðrum leikmönnum en
boltinn gekk vel á milli manna og
hópurinn virðist mjög þéttur sem
heild.
„Við höfum haft lítinn tíma til æf-
inga svo ég er mjög sáttur við út-
komuna úr þessum tveimur leikj-
um. Við sjáum betur hvar við stönd-
um núna gegn liðum eins og Japan
og Suður-Kóreu en þau spila mjög
svipaðan handbolta og Kínverjar.
Hreyfimynstrið er annað hjá þeim
og okkur reynist t.d. betur að spila
6/0 vörn gegn liði sem þessu. Þetta
var þess vegna flnt veganesti og ég
er sáttur,“ sagði Þorbjöm Jensson
við DV. -GKS
Gústaf Bjarnason:
Eg kann hvergi
eins vel við mig
DV, Selfossi:
„Ég er alveg búinn,“ sagði Gúst-
af Bjarnason eftir leikinn í gær-
kvöld. Hann fékk góðar móttökur á
Selfossi, enda Selfyssingur í húð og
hár og lék þar frá barnsaldri þar til
hann söðlaði um fyrir þremur árum
og gekk til liðs við Hauka.
„Ég kann hvergi eins vel við mig
og á Selfossi. Mótttökurnar voru al-
veg frábærar og það var gaman að
koma svona sterkur inn eftir
þriggja ára fjarveru," sagði Gústaf
við DV eftir að hafa skorað 21 mark
úr 26 skotum gegn Kína.
„Mér datt aldrei í hug að ég ætti
þetta til og ég er varla búinn að átta
mig á þessu en þetta var óneitan-
lega gaman,“ sagði Gústaf.
Hann er nokkuð ánægður með
leikina gegn Kínverjum. „Þetta var
góð æfing og við erum farnir að
þekkja betur inn á félagana. Ég vil
ekki spá neinu um mótið í Japan.
Ég er alltaf bjartsýnn en við verðum
að halda okkur á jörðinni,“ sagði
Gústaf Bjarnason. -GKS
Eyjastúlkur rændar í Portúgal
- brotist inn í íbúð þeirra og tjónið nam um 300 þúsund krónum
DV, Eyjum:
Nokkrar stúlkur úr kvennaliði
ÍBV í knattspymu urðu fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu í æfingaferð '
í Portúgal fyrir páskana að þær
voru rændar á hótelinu sem þær
dvöldu á.
„Þetta gerðist fyrsta daginn okk-
ar úti,“ sagði Sigurlás Þorleifsson,
þjálfari ÍBV. „Við íslendingar eram
ekki alltaf nógu varir um okkur er-
lendis, skiljum eftir fjármuni og.
svo var ekki gengið frá íbúðinni
eins og átti að gera. Þegar við kom-
um aftur á hótelið eftir nokkurra
tíma fjarveru var búið að fara inn í
eina íbúð og ræna þar flestu fé-
mætu, peningum, myndavélum,
vasadiskótækjum og fleiru.
Sex stúlkur urðu fyrir þessu og
misstu mismikið. Ég reikna með að
samanlagt hafi tjónið verið um 300
þúsund krónur," sagði Sigurlás.
Sannur íþróttaandi
Meistaraflokkar karla hjá Val og
FH voru í æfingabúðum á sama
staö. „Þegar þeir fréttu hvað gerst
hafði söfhuðu þeir 20 þúsund krón-
um innan hópsins og afhentu okk-
m*. FH-ingar fylgdu svo á eftir með
sömu upphæð. Ef þetta sýnir ekki
sannan íþróttaanda, þá veit ég ekki
hvernig hann á að vera,“ sagði Sig-
urlás Þorleifsson. -ÞoGu
Um helgina
Handbolti karla - úrslit:
Afturelding-KA.............S. 16.00
Handbolti kvenna - úrslit:
Stjaman-Haukar (0-2)......L. 16.00
Körfubolti karla - úrslit:
Keflavík-Grindavik (2-0) .. . S. 16.00
Blak karla - úrslit:
Þróttur N.-Þróttur R. (0-1) . F. 19.30
Þróttur R.-Þróttur N.......S. 14.00
Blak kvenna - úrslit:
Víkingur-ÍS (0-1)..........F. 20.00
ÍS-Víkingur................S. 15.30
Blak - bikarúrslit karla:
Þróttur R.-Stjaman . . Aust. L. 13.00
íslandsmótiö í flmleikum:
Liöakeppni ................F. 18.00
Einstaklingskeppni.........L. 13.30
Úrslit á áhöldum...........S. 13.10
Haldið í Laugardalshöll.
Knattspyrna - deildabikar:
Fylkir-Þróttur R.....Hafn. F. 20.00
Leiftur-Fram .......Leikn. F. 20.30
FH-Njarðvík .........Hafn. L. 13.00
Skallagrlmur-Léttir ... Kóp. L. 13.00
Leiknir R.-KA ......Leikn. L. 13.00
Reynir S.-KA...............Hafn. L. 15.00
HK-Grindavík................Kóp. L. 15.00
Víkingur R.-KS .... Leikn. L. 15.00
Fjölnir-Valur.......Leikn. S. 11.00
KS-Ægir.............Leikn. S. 13.00
ÍA-Víkingur Ó..............Hafn. S. 13.00
Haukar-KA ...........Hafn. S. 15.00