Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Page 24
36
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
Full bama-
deild
„Bamadeildin er full hjá okk-
ur og 10-15 böm, smituð af vei-
runni, hafa verið í einangrun á
deildinni nú undanfarinn mán-
uð.“
Pórólfur Guönason um RS-veiruna í
DV
Ófyndni alvarleg
„Af mönnum sem gefa sig út
fyrir að vera spaugarar og
skemmtikraftar hlýtur það að
vera stóralvarlegur hlutur að
bjóöa upp á efni sem er ekki hið
minnsta íyndið."
Herra Ólafur Skúlason f Degi-Tíman-
um.
Skammast sín
„Sumir segjast hreinlega
skammast sín fyrir að vera
Tyrkir því að þeim finnst svo
hræðilegt hvemig búið er að
koma fram við bömin og mig.“
Sophia Hansen f Morgunblaöinu.
Ummæli
Kararstefnan
„Ég er lengi búinn að vera í
andstöðu við kararstefnuna sem
ríkt hefur gagnvart öldruðu
fólki, menn eru reknir í körina
70 ára þó þeir hafi meiri þekk-
ingu en þeir sem yngri eru og
geti unnið áfram.“
Hafsteinn Stefánsson í Morgunbiaöinu.
Samningur felldur
„Ég mun leggja til á fundi
Iðjufélaga hér á Húsavík að þessi
samningur verði felldur og von-
andi verður það gert, bæði hér
og annars staðar."
Aöalsteinn Baldursson á Húsavfk f DV.
Hlustað á fréttir árið 2000 eins og
menn gerðu sér í hugarlund fyrir
réttri öld.
Utvarps-
lampi
Árið 1907 fann Lee De Forest
(1873-1961) upp fyrsta útvarps-
lampann sem hann nefndi
audion. Þarna hafði útvarpstæk-
ið seint og um síðir fengið búnað
sem var ákaflega næmur. Nú var
hægt að stilla og styrkja
boðsendingar af mikiili ná-
kvæmni og ná þannig fram blæ-
brigðum í töluðu máli, tónlist og
öðmm hljóðum.
Blessuð veröldin
Vasasjónvörp
Japönsku fyrirtækin þrjú,
Sony, Seiko og Casio, kynntu
fyrstu vasasjónvarpstækin á
markaðnum 1984. Það vom
Watchman-tæki Sonys (með 5,08
cm myndskjá), armbandsúr
Seikos (2,04 cm myndskjár) og
smátæki Casios (6,35 cm mynd-
skjár).
Slydda eða snjókoma
Yfir NA-Grænlandi er 1031 mb
hæð sem þokast austur. Um 500 km
austur af Hvarfi er 996 mb lægð á
leið austnorðaustur.
Veðrið í dag
Veðurhorfur fyrir landið næsta
sólarhringinn gera ráð fyrir all-
hvassri eða hvassri austanátt í dag,
slyddu eða snjókomu og síðan rign-
ingu og hita nálægt frostmarki um
landið sunnanvert. Norðan til verð-
ur austan- eða norðaustan stinning-
skaldi eða allhvasst, skýjað, litils
háttar él og frost 1 til 4 stig. Síðdeg-
is verður vindur norðaustlægari og
þá dregur úr úrkomunni suðvestan
til.
Á höfuðborgarsvæðinu er gert
ráð fyrir allhvassri eða hvassri
austanátt með slydduéljum. Norð-
austlægari, skýjað en að mestu
þurrt síðdegis. Hiti nálægt frost-
marki.
Sólarlag 1 Reykjavík: 20.28
Sólarupprás á morgun: 06.31
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.17
Árdegisflóð á morgun: 04.40
* *
*
o°* f-.y/.
*\.
Veðrið kl. 6 í morgun
Veöriö kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö -7
Akurnes snjókoma -1
Bergstaóir skýjaö -8
Bolungarvík skafrenningur -5
Egilsstaóir alskýjaö -7
Keflavíkurflugv. alskýjað 0
Kirkjubkl. snjókoma 0
Raufarhöfn úrkoma í grennd -6
Reykjavíit alskýjaö -1
Stórhöföi rigning og súld 1
Helsinki skýjað -1
Kaupmannah. léttskýjaó 3
Ósló léttskýjaö 3
Stokkhólmur skýjað 1
Þórshöfn skýjaó -1
Amsterdam léttskýjað 5
Barcelona léttskýjaó 12
Chicago þokumóða 12
Frankfurt úrkoma í grennd 6
Glasgow skýjað 0
Hamborg snjóél á síð.kls. 2
London léttskýjaö 4
Lúxemborg skúr 3
Malaga léttskýjaó 11
Mallorca lágþokublettir 6
París léttskýjaö 6
Róm þokumóöa 4
New York alskýjað 17
Orlando heiöskírt 15
Nuuk
Vín alskýjaó 6
Washington rign. á síð.kls. 13
Winnipeg hálfskýjaö 3
Daníel Jakobsson fjórfaldur íslandsmeistari í skíðagöngu:
Ætlar í viðskiptafræði
DV, Olafs&rði:
Daníel Jakobsson sem sýndi
ótrúlega yfirburði í skíðagöngu
karla á landsmótinu er nú á leið í
langþráð frí á Spáni ásamt unn-
ustu sinni, Hólmfríði Völu Svav-
arsdóttur frá Ólafsfirði. Daníel
hefur æft í Svíþjóð undanfarin sjö
ár og nánast lifað sem atvinnu-
maður í greininni. En nú er kom-
ið að tímamótum hjá þessum
margfalda íslandsmeistara.
„Já, það eru tímamót hjá mér
núna. Ég fer ekki aftur til Svíþjóð-
ar, þar sem ég er búinn að vera
síöan ég var 17 ára. Það er afráðið
að ég er hættur að æfa af þeim
krafti sem verið hefur. Ætli ég
Maður dagsins
verði ekki bara aftur venjulegur.
Þetta er orðið ágætt, kannski of
mikið. Ég fæ aldrei frí og maður
sér varla nánustu ættingja. maður
er líka kominn á þann aldur að
hugsa um framtíðina".
Hvað ætlar Daníel að gera?
„Ætli ég fari ekki í viðskipa-
fræði, eins og allir hinir,“ segir
Daníel Jakobsson.
Daníel hlæjandi. „Ég byrja í há-
skólanum í haust."
Daníel er þó ekki hættur að æfa
eða keppa; hann er fráleitt hættur.
„En ég verð rólegri hér eftir og tek
keppnina ekki eins alvarlega og
áður. Reyndar er ég búinn að vera
í toppformi að undaníornu og er
ánægður með árangurinn á lands-
mótinu. Ég bjóst alveg eins við að
vinna allar mínar greinar, þar
sem hinir hafa ekki æft alveg eins
mikið. Ætli ég hafi ekki verið sá
eini sem var nánast atvinnumaður
í þessu.“
Hann segist ætla að hlaupa í
sumar og taka þátt í hálf-maraþon-
inu, þó ekki sem harður keppnis-
maður, heldur fyrst og fremst til
að bæta hollustuna. „Og ég mun
keppa á næsta landsmóti,“ segir
hann ákveðinn, „en það verður á
öðrum forsendum en ég hef gert
hingað til.“
Daníel segir að vel hafi gengið
hjá honum í allan vetur nema á
sænska meistaramótinu en þá var
hann veikur; síðan fór hann nán-
ast óæfður á heimsmeistaramótið
þar sem hann lenti í 72. sæti. Síð-
an kom hann heim og skyldi aðra
eftir í ryki.
Hólmfríður Vala, unnusta Daní-
els stundar nú nám við Myndlist-
arskóla Reykjavíkur en hefur hug
á að þreyta inntökupróf viö Mynd-
lista- og handíðaskólann í vor.
-HJ
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1773:
Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki.
Hvað gera Duranona og félagar á
sunnudag i Mosfellsbænum?
Mikið
að
gerast
Úrslitakeppnin í blakinu
stendur nú sem hæst. Þróttur í
Reykjavík og Þróttur á Neskaup-
stað eigast við eystra í karla-
flokki í kvöld kl. 19.30 og ÍS og
Víkingur mætast í Víkinni í
kvennaflokki kl. 20.
íþróttir
Á morgun eigast Þróttur í
Reykjavík og Stjaman við í bik-
arkeppninni kl. 13 í Austurbergi
og kl. 16 mætast Stjarnan og
Haukar í handknattleik kvenna.
Á sunnudag fer íslandsmótið í
fimleikum fram. Þá verður leik-
ið í úrslitakeppninni í blakinu,
Keflavík og Grindavík eigast við
í körfuboltanum og Afturelding
og KA mætast i fyrsta leik lið-
anna í úrslitakeppninni í hand-
knattleik. Leikurinn hefst kl. 16 i
Mosfellsbænum.
Bridge
Segja má að úrslit Landsbanka-
mótsins í sveitakeppni hafi ráðist í
8. umferð þegar sveit Búlka vann
stórsigur, 25-4, á sveit Landsbréfa.
Fyrir þá umferð hafði sveit Lands-
bréfa 18 stiga forystu á sveit Antons
Haraldssonar. Sveit Antons náði
hins vegar tveggja stiga forystu á
sveit Landsbréfa í 8. umferðinni
(með 24-6 sigri í sínum leik). Fyrsta
spilið í síðari hálfleik í leik Búlka
og Landsbréfa var fjörugt þó að það
hafi fallið í samanburðinum. Sagnir
gengu þannig í opnum sal, norður
gjafari og allir á hættu:
* K104
* K1062
* Á2
* ÁK63
* 9872
V D
4 D964
* D972
* ÁG65
* ÁG98743
4 --
* 108
Norður Austur Suður Vestur
Jón B. Sigtr. Sævar Bragi
1 * 3 4 3» 5 4
5 * pass 5 * pass
7 * p/h
Jón Baldursson og Sævar Þor-
bjömsson sóttu spilið alla leið upp í
7 hjörtu, enda á það góða möguleika
á að standa. Sævar drap tígulútspil
vesturs á ás og henti spaða heima.
Hann trompaði strax tígul, lagði
niður hjartaás og spilaði síðan
hjarta á kónginn. Enn kom hjarta á
áttuna heima og síðan ÁK í laufi og
lauf trompað heima. Nú var hjarta-
níunni spilað á tíuna í blindum, sið-
asta laufið trompað og Sævar sá að
austur ætti sennilega 2-1-7-3 skipt-
ingu (frekar en 1-1-8-3). Vestur var
líklegri til að eiga spaðadrottning-
una og því var spaðaás lagður niður
og spaðatíunni svínað.
ísak Öm Sigurðsson