Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Blaðsíða 10
24 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 DV SVAR [MJCÍMQU^ljZáX 903 • 5670 Hvernig á að svara auglýsingu í svarþjónustu >7 Þú hringir í síma 903-5670 og eftir kynninguna velur þú 1 til þess aö svara smáauglýsingu. >7 Þú slærö inn tilvísunarnúmer auglýsingar, alls 5 stafi. *7 Þá heyrir þú skilaboö auglýsandans ef þau eru fyrir hendi. 7 Þú leggur inn skilaboð aö loknu hljóömerki og ýtir á ferhyrninginn aö upptöku lokinni. 7 Þá færö þú aö heyra skilaboöin sem þú last inn. Ef þú ert ánægö/ur meö skilaboöin geymir þú þau, ef ekki getur þú talað þau inn aftur. Hvernig á að svara atvinnu- auglýsingu í svarþjónustu 7 Þú hringir I síma 903-5670 og eftir kynninguna velur þú 1 til þess aö svara atvinnuauglýsingu. 7 Þú slærð'inn tilvísunarnúmer auglýsingar, alls 5 stafi. 7 Nú færö þú aö heyra skilaboö auglýsandans. . 7 Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á 1 og heyrir þá spurningar auglýsandans. 7 Þú leggur inn skilaboö aö loknu hljóömerki og ýtir á ferhyrninginn aö upptöku lokinni. 7 Þá færö þú aö heyra skilaboöin sem þú last inn. Ef þú ert ánægö/ur meö skilaboöin geymir þú þau, ef ekki getur þú talaö þau inn aftur. 7 Þegar skilaboöin hafa veriö geymd færö þú uppgefiö leyninúmer sem þú notar til þess aö hlusta á svar auglýsandans. Mikilvægt er aö skrifa númeriö hjá sér því þú ein(n) veist leyninúmeriö. 7 Auglýsandinn hefur ákveöinn tíma tii þess aö hlusta á og flokka svörin. Þú getur hringt aftur í síma 903-5670 og valiö 2 til þess aö hlusta á svar auglýsandans. Þú slærö inn leyninúmer þitt og færð þá svar auglýsandans ef þaö er fyrir hendi. Allir í stafræna kerfmu með tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu. 903 • 5670 A&eins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn. Htónlist Kristileg1~pönl( Pönktríóið MxPx frá Suður- Kaliforníu hefur ekki átt sjö dagana sæla upp á síðkastið. Þeir félagar eru ekki hefðbundin pönkhljómsveit sem syngur um það að sniffa lím og gera uppreisn gegn kerfmu. Þeir eru and- lega sinnaðir enda gefa þeir sig út fyrir að vera kristileg pönkhljóm- sveit. Þar fylgja þeir í kjölfar hljóm- sveita eins og Stryper sem var kristi- leg þungarokkssveit á sínum tíma. „Það má eiginlega segja að það sé sótt að okkur úr öllum áttum,“ segir gítarleikari hljómsveitarinnar, Tom Wisnievski. Það er ekki fjarri lagi því þegar þeir hituðu upp fyrir pönk- sveitina Queers i Seattle á dögunum voru þeir púaðir niður af áhorfend- um og nokkuð bar á því að tónleika- gestir rifu biblíur á meðan hljóm- sveitin spilaði. En aðkastið kemur líka frá sannkristnum sem segja þá ekki vera nógu heittrúaða og textar þeirra of fjarri hinu heilaga orði. Þeir hafa samt unnið nokkuð fylgi hjá unglingsstúlkum sem hlusta á pönktónlist enda þykja þeir miklir kvenkostir. Það er sérstaklega sökum þess að þeir eru allir hreinir sveinar og segjast ekki trúa á kynlíf fyrir hjónaband. Sjálfir segjast þeir taka öllum bónorðum frá aðdáendum sín- um með fyrirvara. „Þær vilja bara giftast okkur af því að við erum í hljómsveit," segja þeir. -JAJ Þegar þeir í MxPx hituðu upp fyrir pönksveitina Queers í Seattle á dögunum voru þeir púaðir niður af áhorfendum og nokkuð bar á því að tónleikagestir rifu biblíur á meðan hljómsveitin spilaði. Fyrrum nágranninn NatalieJ^ Im’bruglia Ef einhver þyk- ist hafa séð söng- konuna Natalie Imbruglia áður þá hefur það sjálfsagt verið á sjónvarps- skjánum því að um tveggja ára skeið lék hún Beth í áströlsku sápuó- perunni Nágrönn- um. En hún kunni því hlutverki sínu illa og hélt því til Los Angeles í leit að frægð og frama. Þar gerði hún samning við fyrr- um útgáfufyrir- tæki Take That. Ólíkt öðrum ung- um söngkonum sem skipt hafa úr sápuóperunum yfir í poppið fór Natalie ekki út í þá vitleysu að fara að gera froðupopp. Frumraun hennar sem er breiðskífan Left of The Middle er ágætis rokkplata með áhrifum úr þjóðlagatónlist. henni. í kjölfar þess hóf hún svo nám þegar hún var sextán ára í listaskóla í Sydney. Þar dvaldi hún stutt við og hóf að reyna fyrir sér með vinnu á leiklistarsviðinu. Sex mánuðum eftir að hún hætti í skólanum fékk hún svo hlutverk Beth í Nágrönnum. Á þeim tíma Lagið Torn sem er að finna á henni hefur verið geysivinsælt um allan heim að undanförnu og ýtt enn frekar undir vinsældir henn- ar. Natalie Imbruglia segir að þeg- ar hún var þrettán ára hafi hún grátbeðið foreldra sína um að fá að fara í söngtíma sem þau svo leyfðu sem hún lék í Nágrönnum var hún sífellt að fá tilboð um að syngja einhver froðupopplög en hún seg- ist aldrei hafa haft áhuga á því að gera nokkuð nema sína eigin tón- list. Og það virðist hafa borgað sig. -JAJ Skotheldir Áður fyrr gættu rapptónlistar- menn öryggis síns meö þvi að mynda um sig vegg af stórum og grimmdarlegum lífvörðum ef þeir þurftu að bregða sér af bæ. Nú er öldin önnur og enginn rappari í Bandaríkjunum lætur sjá sig opin- berlega án þess að klæðast skotheld- um fatnaði af einhverju tagi. í kjöl- far morðanna á röppurunum Tupac Shakur og Biggie Smalls hefur orð- ið gríðarleg aukning á sölu á skot- heldum tiskufatnaði. Nú er hægt að eignast skothelda leður- og galla- jakka, íþróttaskó, skósíða loöfeldi og jafnvel brjóstahaldara. Teflon kallast undraefnið sem notað er til að gera fatnaðinn skotheldan og segja þeir sem til þekkja að næstum ómögulegt sé að sjá muninn á skot- heldum fatnaði og venjulegum. Fatnaðurinn er á verðinu 300 dollar- ar og allt upp í 3000 fyrir það dýrasta. Og ef þú átt einhverja upp- áhaldsíþróttaskó eða -peysu þá er litið mál að gera það skothelt. Reyndar svo skothelt að fatnaður- inn stoppar byssukúlu úr .357 Magnum, sem er ein öflugasta skammbyssa veraldar. Meöal þeirra rappara sem nú þegar hafa keypt sér skotheldan tískufatnað af einhverju tagi má nefna Puff Daddy, Busta Rhymes, Queen Latifah og Jungle Brothers sem sjást á myndinni hér að ofan íklæddir skotheldum sportjökkum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.