Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 4
Sofið enaur Eins og réttilega hefur verið bent á borgar sig fyrir konur að safna hári ekki seinna en núna ef þær vilja á annað borð tolla í tísk- unni. Sítt hár er málið. Og það besta við að hafa hárið sítt núna er að það á helst að vera alveg náttúrlegt sem þýðir að konur með sítt hár geta sofið hálftíma lengur en áður. Algjör óþarfi að vera að dedúa eitthvað við þetta, bara vakna og i mesta lagi renna bursta í gegnum hárið. Þessi tíska mun vera uppreisn gegn öllum þessum listrænu gelgreiðslum sem hafa verið í tísku undanfarin ár. Nú á hárið bara að vera hreint, heil- brigt og sítt og ef það eru liðir í því er algjörlega bannað að slétta úr þeim. Af hverju að vera að klína einhverjum efnum í fallegt hár? Hendið nú gelinu og hár- blásaranum, þvoið hárið og lát- ið náttúruna um hitt Bryndís Asmundsdóttir söng- kona, fyndnasta kona íslands og vonandi verðand! leikkona. Bryndís er ekki bara fyndin kona. Hún titlar sig tónlistarmann í símaskránni og hefur getið sér gott orð sem söngkona í nokkram jazzböndum, auk þess að taka þátt í prímadonnusýningunni á Broad- way sem er í gangi núna. í fyrra reyndi hún að komast inn í Leik- listarskólann og komst næstum því inn. Hún ætlar að reyna aftur núna enda langar hana mikið til að verða leikkona. Þegar blaðamaður Fókuss hringdi í hana snemma morguns var hún heldur rotin- púruleg í röddinni og blaðamaður spurði hvort hann hefði verið að vekja hana. Þá kom strax og ber- lega í ljós að Bryndís er ekki bara hress, hún er alltaf og ævinlega í jafn ofboðslega góðu skapi. Ný- vöknuð sagði hún: „Ó, jú. Þú varst að vekja mig og það er dásamlegt." Og það sem meira er; hún var að meina það. En hvernig kom þaö til aö þú ákvaöst taka þátt í brandara- keppni? „Þetta var þannig að það voru bara strákar sem létu skrá í sig í keppnina. Þá þurfti ég með minn stóra kjaft endilega að glopra því út úr mér að það væru sko líka til fyndnar stelpur og hneykslaðist svo eitthvað á öllum þessum karl- kynskeppendum. Þetta endaði auð- vitað með því að ég var sjálf skráð í keppnina. Ég þorði ekki en keppti samt. Uppistaðan í prógramminu minu var grín að sjálfri mér, enda samdi ég ekki neina brandara. Þetta var gaman en líklega það erf- iðasta sem ég hef gert. Ég stefni ekki á að leggja þetta fyrir mig.“ Er draumurinn þá aö gerast leik- kona? „Leikkona eða söngkona, ef það er á sviði, já.“ Aöalatriöið er aö vera uppi á sviöi? „Já.“ Athyglissýki? „Já. Hrikaleg." Helduröu aö þú komist núna inn í Leiklistarskólann? „Ég vona það. En sían þar er mikil og strembin." Langar þig þá helst aö gerast gamanleikari? „Kómíkin hefur alltaf heillað mig en það þarf samt ekki að vera að ég velji þá hillu frekar en ein- hverja aðra. Þegar maður fer út í leiklistina verður maður alæta á öll form listarinnar." Eru gamanleikkonur eins og Helga Braga og Edda Björgvins þá engar sérstakar fyrirmyndir þínar? „Nei, ekki fyrirmyndir. En þær I standandi-brandara- karlakeppninni sem var kaldin á Astró fýrr í vetur var einn kven- kyns keppandi, Bryndfs Ásmundsdóttir, sem Ifldega er með þeim hressari hér í bæ. Hún þótti fýndin og komst f úrslit en eíns og kunnugt er sigraði Sveinn Waage og hlaut titilinn fyndn- asti maður ísiands. Bryndís er þess vegna af mörgum talin fýndn- asta kona íslands. Enda vflar hún ekki fyrir sér að hoppa upp á svið þegar henni sýnist svo og þá er henni nokk sama hvort hún slær í gegn eða gerír sig að fffli- eru brillíant og í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Konur eru fœstar til í aö ,Jlippa“ fyrir framan aöra eins og þú og fjöldinn allur af karlmönn- um gerir. Hvaöa feimni er þetta í kvenþjóöinni? „Þetta á auðvitað ekki að vera svona og ég veit ekki ástæðuna fyr- ir þessari spéhræðslu kynsystra minna. Þetta er fáránlegt. Ég held að ofboðslega margar konur, meiri- hlutinn af kvenþjóðinni, sitji á sér, nagi sig í handarbökin og séu við það að springa af því að þær lang- ar svo til að gera ýmsa hluti sem þær leyfa sér ekki. Ég vil sjá konur láta það vaða.“ Af hverju þorir þú aö láta þaö vaöa hvar sem er og hvenœr sem er? „Ég hef bara svo ofboðslega gam- an að líflnu, hef aldrei verið feimin og elska athygli. Ef maður er ekki tilbúinn að stinga sér alveg út í laugina þá er ekkert gaman. Mér finnst gaman að skora á sjálfa mig. Ég geri nú samt ekki hvað sem er til að komast upp á svið en samt rnargt." Þú tókst ekki þátt í erótísku list- danskeppninni þarna um daginn? „Nei, en ég þurfti að binda mig við rúmið og hélt mig heima.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.