Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 11
am. Hann útskýrði líka fyrir okkur að þetta væri svipað og að leika i atriði í bíómynd. Leikarinn hefur ekki hug- mynd um hvernig allt passar saman fyrr en á frumsýningunni." Skilnaðurinn tók á Tvær síðustu plötur Blur hafa hoppað beint í fyrsta sæti breska breiðskífulistans. Eftir helgi kemur í ljós hversu sterkar taugar Bretar bera enn til hljómsveitarinnar. Lagið „Tender" náði öðru sætinu, aðeins smápian Britney Spears seldi meira. Það verður að teljast ágætur árangur því lagið er rúmar sjö mínútur og ekki líkt neinu sem Blur hefur áðm- gert. Nú er hljómsveitin á mikilli yf- irreið um Bretland og síðan á að snúa sér að öðrum stöðum og kynna plöt- una sem mest. Damon hefur játað að í textunum sé hann aðallega að syngja um skilnaðinn við Justine Frischmann úr Elasticu en þau höfðu verið saman í átta ár. Textam- ir eru í fyrstu persónu og plötunni fylgir ekki textablað. „Skilnaðurinn neyddi mig til að syngja um tilfinn- ingar mínar af því ég hafði ekkert annað að halla mér að,“ segir Damon. Hann er orðinn þritugur og heim- spekilegar hugleiðingar sækja á hann. „Ég er ekki hræddur við að segja það sem mér sýnist,“ segir hann, „en maður þarf að fara varlega þegar maður gerir jafnpersónulega plötu og þessa. Það getur virikilega fokkað upp á manni hausnum." -glh Blur tók dálitið af nýju plötunni sinni upp hér í Stúdíó Sýrlandi. Þeim var innan handar Arnþór Örlygsson sem er betur þekktur i bransanum sem Addi 800: „Þeir tóku upp söng og hljómborð til dæmis, en ekki á alla plötuna. Ég veit ekki hvað mikið af upptökun- um endaði á plötunni. Svo voru einhverjar borvélar og svoleiðis í gangi. Þeir voru hérna í tíu daga, ef ég man rétt, Damon og Alex bassaleikari og svo William Orbit og John Smith upptökumaður. Ég var aðstoðarupptökumaður, innan- búðarmaður, enda þekki ég hljóð- verið út og inn.“ Eru þetta duglegir strákar? „Þeir eru afskaplega hressir og fínir en ég myndi ekki segja að það hafi verið unnið stíft nema á köfl- um. Það var því meira pælt og djammað en ekkert horft á sjón- varpið nema þegar fótbolti var í því.“ Er Damon búinn aö vera mikiö í Sýrlandi? „Ekki upp á síðkastið, nei, en' hann var dálítið á síðasta ári.“ Voru þeir aó hlusta á einhverja aðra músík? „Já, ég man að William leyfði okkur að heyra Madonnu-plötuna sem þá var nýkomin út. Hann virt- ist vera mjög stoltur af sándinu á henni.“ Hvaö er núnafram undan hjá þér? „Ég er að taka upp hljómsveitina Vinýl sem er að koma með plötu á árinu, Land og synir koma þar í kjölfarið, íslandslög og SSSól þar á eftir. Akkúrat núna er ég að „mastera" Hatt og Fatt sem á að endurútgefa." Þú œtlar ekki að kíkja út og reyna fyrir þér þar? „Ekki í nánustu framtíð, en það er aldrei að vita. Við eigum bara svo flnt stúdíó hérna að þessir er- lendu tónlistarmenn vilja miklu frekar koma hingað. Aðstaðan er vel bjóðanleg, góðar græjur og al- veg sambærilegt við það besta er- lendis.“ -glh lagasarp á tólf mánuðum en aðeins eitt lag var fullmótað þegar bandið fór í hljóðverið. „Við höfðum enga hug- mynd um hvernig plata þetta yrði,“ segir Graham Coxon gítarleikari. Upphaflega ætlaði Blur aðeins að gera þrjú lög með William Orbit en samvinnan tókst það vel að hann tók alla plötuna að sér. Á fyrri plötum höfðu lögin verið fullmótuð þegar bandið mætti í hljóðver og hver hljóð- færaleikari tekið sinn part upp sér. Nú „djammaði" bandið dögum saman og William tók upp fleiri klukkutíma af ómótuðum hugmyndum. Svo var grúskað í upptökunum og pælingun- um splæst saman brot fyrir brot. „William var algjörlega á okkar bylgjulengd,“ segir Damon, „hann sá dýptina í djamminu og það má frekar segja að hann sé arkitektinn að plöt- unni heldur en hljóðstjóri." Graham tekur í sama streng: „Willi- am hafði svo margar hugmyndir og var svo spenntur að við treystum hon- um 100%. Djammið var fyrir okkur eins konar þerapía. Við spiluðum sam- an eins og hljómsveit sem við höfum ekki gert mikið að áður í hljóðveri. Svona eiga tónlistarmenn að vinna en það hefur dálítið gleymst í seinni tíð. Þess vegna hljóma margar hljóðvers- plötur þurrar og geldar. Ég verð þó að játa að ég var orðinn ansi smeykur þegar djammupptökurnar fóru að hlaðast upp. En þá sá ég viðtal við Madonnu þar sem hún lýsti nákvæm- lega sömu vinnubrögðum með Willi- Fymim eígínkona særfr btypunarketind rokkara Söngvari Aerosmith, Steven Tyler, er með allt niðrum sig og hefur lög- sótt fyrrver- andi konuna sína því hann vill ekki að við sjáum hann beran. Steven hefur lagt fram kæru á hend- ur Kathleen Tallarico sem hann skildi við fyrir tólf árum. Kathleen hafði lýst þvi yfir að í æviminningum hennar yrðu birtar klámfengnar myndir af söngvaranum. Hann var ekki par hrifinn og sendi lögfræðing í málið. Steven segir að myndimir særi blygðunarkennd hans og geti skað- að ferilinn. Á mánudaginn var lagt fram bann á að birta myndirnar fyrr en réttað hefur verið 1 málinu. Meyr með kassagStarinn Neil Young hefur fengist við ýmsa tónlist um dagana, en á túrnum sem hann er á núna er karlinn meyr og einn á ferð. Hann ferðast um með kassagftarinn og spilar smellina á rólegu nótunum, jafnvel „Heart of Gold“, sem hann hefur ekki tekið lengi. Þetta er talin upp- hitun fyrir næstu sólóplötu, sem verður „unplugged“ og róleg. Ekki er von á þeirri plötu fyrr en 1 haust og í millitlðinni kemur út plata með Crosby, Stills, Nash & Young. Þetta verður þeirra þriðja hijóðversplata saman, „Deja vu“ kom út 1970 og „American Drearn" 18 ámm síðar. Nýja platan hefur enn ekki fengið nafn en karlamir fjórir fara á Am- eríkutúr í júní. StanQ í stuðí Islandsvinurinn og hestamaðurinn Sting boðar útkomu sinnar sjöundu plötu 1 haust. Platan á að heita „The Lovers". Þá leikur Sting bar- þjón f myndinni „Lock, Stock and Two Smoking Barrels“, sem kölluð hefur verið næsta „Full Monty". Sting fjármagnaði myndina og konan hans var aðstoðar- framkvæmda- stjóri. Sting er auðvitað alltaf jafn umhugað um regnskógana og næsta fjáröflunarball á hans vegum verð- ur í New York f apríl. Þá koma fram með honum aðrir jálkar eins og James Taylor, BUly Joel og Elton John. Eftir helgina kemur út sjötta breiðskífa Blur. Hún heitir „13“ í höfuðið á hljóðveri Damons í London. Þar var grunnurinn að plötunni lagður en hún svo kláruð í öðrum verum í London og í Stúd- íó Sýrlandi hér í Reykjavík. Upp- tökumanninum Stephen Street, sem unnið hafði að öllum plötum Blur hingað til, var gefið frí og William Orbit ráðinn í staðinn. William komst upp á stjömuhimin hljóðstjómunarinnar þegar hann tók upp síðustu plötu Madonnu. Þó William sé um borð er tónlist Blur söm við sig, hér færir bandið sig ekki út í danstónlistina heldur fer í sömu átt og síðasta plata; tón- listin á „13“ er seigfljótandi, erfið og hrá; mörg lögin hæg og dreymin í þjóðlaga- eða kántrígír en keyrt í pönkáðri spretti inn á milli. Yfirbragðið er þó léttara en á síðustu plötu og jafnvel auðmelt eyrnakonfekt inn- an um, eins og banjóballöðusmell- urinn „Tender" og hið poppaða „Coffee & TV“ sem gæti verið gam- alt Blurlag. Tónlistin á „13“ er þó á heildina litið langt frá því ferming- arpoppi sem sveitin varð vinsæl fyrir og það er einmitt þannig sem bandið vill hafa það. Dýpt í djamminu Þó upptökur á nýju plötunni hafi tekið þrjá mánuði eins og á fyrri plöt- um var ferillinn allt annar. Safnast hafði i Addi 800 aðstoðaði Blur á íslandi: Einhverjar borvélar í gangi 12. mars 1999 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.