Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 22
•V LificJ eftir vmnu | I í f ó k u s Þaö er ekkert hallærislegra en elli- smellir sem reyna að hanga á gelgjustiginu meö því að tileinka sér talsmáta krakkanna. En það eru margir sem þrjóskast samt við. Þessum skal bent á að samkvæmt tiðindamanni Fókuss í gelgjufræð- um er “æst“ það sem er mest í fók- us þessa dagana, sbr. „þetta var æst góður mat ur, mað- ur“ eða „vá, æst góð mynd!“. Önnur unglinga- tiltæki sem eru í fókus og eru eiginlega orðin klassísk eru „ýkt“ og „ógeðslega". Hins vegar er „geðveikt" þetta og „geðveikt" hitt á hraðri útleið og „þokkalega" þyk- ir orðið þreytt. í staðinn þykir miklu ferskara að nota „prýðilega" eöa „bærilega". Þá er gott að hafa persónulegan stíl, eins og t.d. að heilsa með „ævinlega!" og finnast góðir hlutir vera „þvílikir" - það ber merki um þroska. ú r f ó k u s Nú eru eflaust margir farnir að dusta rykið af sólgleraugunum sin- um en þeir ættu alveg að láta það vera þvi fátt er meira úr fókus en að ganga með sólgleraugu. Þetta er tilgangslaust hjálpartæki og alvöru- fólk pírir bara augun á móti sól- inni. Sólgleraugun falla í sama flokk og hjálmar, öryggisbelti og endurskinsmerki. Nú vilja allir lifa í vemd, eins og það sé möguleiki á að sleppa við að deyja. En fólk lifir náttúrlega bara þar til það deyr. Þetta vissi Clint Eastwood í spaget- tivestrunum og það hefði verið jafn- mikil fjarstæða að hann gengi með sólgleraugu í þeim og ef hann hefði haft hjálm, öryggisbelti og endur- skinsmerki þegar hann kom ríð- andi á hestinum. Nú benda eflaust margir á að Clint var með sólgler- augu í Dirty Harry myndunum og það er rétt. Þær myndir gerðust þó aðallega á nóttunni og Clint notaði sólgleraugun til að venja sig við myrkrið. Og það má. Sólgleraugu um nótt þykja flott, sólgleraugu á daginn eru tott. ífundir Náttúrulækningafélag Reykjavíkur bo&ar til málþings „Líf án streltu" í þingsal 1 á Hótel Loftlelöum kl. 20. Meðal spurninga sem leit- að verður svara við eru: Er streita nútima- vandamál? Hvernig tökum við á streitu? Veld- ur trúleysi streitu? Getum við nýtt streitu til góðs? (Óskum eftir manni á barmi taugaá- falls.) Frummælendur eru: Þórkatla Aöal- steinsdðttlr sálfræðingur, Konráö Adolphsson skólastjóri, Katrín Fjeldsted (athugið að hún er í framboöi til þings) og Hlldur Hákonardótt- Ir, forstöðumaður Listasafns Árnesinga. Þegar þetta fólk hefur lokið sér af mæta fleiri til um- ræöunnar: Anna Elísabet Ólafsdóttir næringa- fræðingur, Anna S. Pálsdóttir prestur og sjálf- ur Magnús Scheving þolfimikennari (og ís- landsmethafi í fyrirlestrum). Aðgangur kr. 400 fyrir utanfélagsmenn. Miðvikudagur 17. mars t; 1 e i k h ú s Leikfélag eldri borgara, Snúöur og Snælda, leikur í Mörgulelkhúslnu kl. 16. Símar 588 2111 og 551 0730. fyrir börnin Barnasöngleikurinn „Hattur og Fattur, nú er ég hissa“ eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur í Loftkastalanum kl. 18. Þeir sem hafa minni til, muna sjálfsagt eftir þessum fé- lögum úr Stundinni okkar frá því fyrir áratug eða tveim, Þeir eru mjög Ólafshaukískir, glettnir trúðar og þjóðfélagslega sinnaðir - ekki ósvipaðir og Olga Guörún þegar hún syng- ur efni frá Ólafi. Guömundur Ingi Þorvaldsson og Felix Bergsson eru Fattur og Hattur. Snuöra og Tuðra eftir lö- unni Steins- dóttur verða I Möguleikhús- inu við Hlemm bæði kl. 10.30 og 14. Sími 562 5060. Ssport Fótbolti: Reykjavíkurmótið heldur áfram með leik Fylkls og Þróttar Reykjavík í B riðli á gervigrasvellinum í Laugardal kl. 20.30. Fimmtudági>’ 18. mars •klúbbar ✓á uppastaðnum Rex munu plötusnúðarnir dj. Ámi, dj. Margeir og dj. Alfred More heyja baráttu við saxófón Óskars Guöjónssonar. Þessa glímu skratz og blásturs kalla þeir fé- lagar Improve Groove - að sjálfsögðu - og hefst leikurinn kl. 22. C p°pp ✓Músíktilraunlr halda áfram í Tónabæ. í öðr- um riðli keppa í kvöld: Frumefni 114, Messí- as, Stafræn tæknl, Dlkta, Farivél, Jah og fleiri. Gestabönd að þessu sinni eru sú bjarta von Ensími og Súrefni (sem eru bjartir þótt þeir séu ekki eins bjartir og Ensími). • krár Glen Valentlne gefur sig ekki á Café Romance. Bretinn Michael Young er nýjasti tengdasonur íslands. Hann er hönnuður, og ekki nóg með það, hann er einn af hæfi- leikaríkustu hönnuðum ungu kynslóðarinnar og forsprakki nýrrar, breskrar hönnunarbylgju. Michael er giftur Katrínu Pét- ursdóttur, sem er líka hönnuður. Saman eru þau með stúdíó í Reykjavík þar sem þau hanna svokölluð nútímahúsgögn. Mich- ael segir að það sé gott að vera á íslandi, þar sem þau hjónin meti frið og rólegheit mikils. Enda hef- ur maðurinn fengið nóg af erli heimsborganna þar sem hann hefur komið víða við um dagana, til dæmis í Tókýó, Köln, London og París. Líkt og þeir Azkinazy og Diet- er Roth, sem hafa einnig hlotið heiðursnafnbótina „tengdasynir íslands", trekkir Michael er- lenda athygli að ís- landi, en það er nú einmitt það sem góðir tengdasynir eiga að gera. Tveir kollegar hans ætla að opna með honum sýn- ingu á fimmtu- daginn á Kjarvals- stöðum. Þeir eru ungir eins og Michael og heita Jasper Morri- son og Marc Newson. Marc er frá Ástralíu en - ' Jasper er „mjög breskur", eins og Michael orðaði það þegar Fókus spurði hann h v a ð a n þ e s s i r m e n n k æ m u . Spessi ljós- m y n d a r i ætlar líka að leggja sitt af mörkum til sýningarinnar. Verk Michaels hafa vakið athygli úti um allan heim og nokk- ur þeirra eru í eigu stofnana eins og Pompidou-safnsins í París og Design Museum í London. Eins og sjá má eru hús- gögnin hans mjög frumleg og þá vaknar óneitan- lega upp sú spurn- ing hvort þau séu virkilega líka þægi- leg? „Já, þau eru þægileg. Alla vega eru þau keypt af mér og þá í þeim til- gangi að láta fólki líða vel,“ segir Michael. Erlend fyrirtæki á borð við Sawaya&Moroni, Cappelini, Infla- te og Englander eru með fram- leiðsluréttinn að verkum hans, en hann hefur ekki enn verið í sam- starfi við neitt islenskt fyrirtæki. „Það eru eiginlega ekki til nein íslensk fyrirtæki sem tengjast þessu sem ég er að gera. AUa vega ekki ennþá,“ segir Michael. Hann þarf nú samt ekki að örvænta, þar sem hann er kominn í þá óskastöðu að geta valið úr fyrir- tækjum sem vilja ólm framleiða hönnun hans. Þessi maður er landi og þjóð til sóma. Gunnar Páll mætir alltaf á réttum tíma til vinnu á Grand hótel. ) k 1 a s s í k Karlakórlnn Helmlr heldur tónleika I Grafar- vogskirkju kl. 20.30. Á efniskránni eru lög eft- ir innlenda og erlenda höfunda á borð við Gelr- mund Valtýsson og Verdl. Einar Halldórsson og Álftagerölsbræöur sjá um einsöng, Stefán R. Gíslason stjórnar, en Thomas Higgerson og Jón St. Gíslason spila undir. © 1 e i k Fe g u r ö a r- drottnlngin frá Línakrl eftir M a r t I n McDonagh verður á litla sviöi Borgar- leikhússlns kl. 20.30. Þetta er kolsvört kómedía og að sjálf- sögðu með harmrænum undirtóni. Mag og Maureen eru mæðgur sem búa í litlu þorpi á írlandi. Samskipti þeirra einkennast af mikilli grimmd og mæðgurnar skiþtast á að níðast hvor á annari. María Siguröardóttir leikstýrir en Margrét Helga Jéhannsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir leika mæðgurnar. Ellert A. Ingimundarson og Jóhann G. Jóhannsson leika einnig. Síminn í Borgarleikhúsinu er 568 8000. Maöur á mislitum sokk- um eftir Arnmund Back- man er á Smíöaverk- stæöi Þjóðleikhússins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og því er uppselt í kvöld. Enn eitt gangstykkið með „gömlu leikurunum" - að þessu sinni Þóru Frlö- rlksdóttur, Bessa Bjarnassynl og Guörúnu Þ. Stephensen. Sími 5511200 fyrir þá sem vilja þanta miða á sýn- ingu einhvern tfma I framtíðinni. b í ó Goethe-Zentrum, Lindargötu 46. Bíósýning kl. 20.30. Der Papagei eftir Ralf Hutter með Har- ald Juhnke, Dominlc Raacke, llse Zielstorff og Veronicu Ferres. Sagan segir frá Dieter Stricker, atvinnulausum leikara sem fær nýtt hlutverk. Það felst í því að leiða lista öfgafulls hægri flokks og koma honum á þing Bæjara- lands. Æsingaræður hans og spillingarmál gera hann snemmendis þekktan stjórnmála- mann. Þetta er háðsádeila um uþþgang hægri flokka og nýnasista í Þýskalandi. Enskur texti og ókeyþis inn. •opnanir ✓Tengdasonur Is- lands, hönnunarsnill- ingurinn Mlchael Young, oþnar sýningu á verkum sínum og fé- laga sinna Jasper Morrison og Marc New- son (sem eru ekkert síöur klárir og heimsfrægir) á Kjarvals- stööum í kvöld. Á sama tíma opnar Spessi sýningu á Ijósmyndum sem hann hefur tekið af bensínstöðvum hringinn í kringum landið (svolftið Dleter Roth-leg hugmynd). Á opnunni verður tónlist, mikið fönk og fjör og allir sem vilja tilheyra artf-smartí-partí-liðinu verða að mæta. Góða skemmtun! -4 hverjir voru hvar HieiXzraL ai www.visir.is Á hinni æðislegu strippbúllu, Maxim f Hafnar- stræti, er stemningin svipuð og f gamalli Derrick- mynd. Þar var rólegt framan af á föstu- dagskvöldið en svo færðist Iff f tuskurnar enda gestir ekki af verri endanum. Þarna voru t.d. fjöllistamennirnir Bibbi Curver og G.G. Gunn. Sá fyrri var f andlegum undirbúningi áður en hann fór að taka til f her- berginu sfnu og Gunn var að halda upp á utan- ferð sfna, en hann var á lelð til Kaliforníu með tfkinni sinni sem hann hyggst láta vinna fyrir sig. Á Maxim voru líka mættir tveir helstu trommarar landsins, Blrglr Baldursson og Ólafur Hólm, og Ingi Björn Albertsson var mættur f miklu stuðí ásamt stórum hópi manna. Á Kaffibarnum sátu Kolkrabbakrakkarnir f stóra sófanum og glöddust yfir enn einni sig- urviku f sjónvarpinu, Bogi úr Stjörnukisa átti í hrókasamræðum við Hössa úr Quarashi og Karl Th. Blrgisson fv-ritsjóri og Jakob Brynjar útvarpshundur störðu oní bjórglös og voru meö munnræpu. Á föstudagskvöldið var heljarfjör á Astró og margir af mestu stuöboltum bæjarins voru mættir. Þar voru meðal annars Svala fallega, Magga V. og Hulda Bjarna af FM 957. Einnig voru þeir félagar Laugi og Biggi „tenór" af Fin- um miðli á sfnum stað. Þór Bærlng, FM 957- maður, ogfðilfagra konan hans, Hulda, voru á tjúttinu og grínarinn Svelnn Waage skemmti sér og öðrum á meðan. Þá létu þeir sig ekki vanta Golli Ijósmyndari, Stelnl Vinavorsog- blóma-maður og Eric Vegamótamaður. Fjörið hélt svo áfram á laugardagskvöldið á Astró. Svavar Örn, „Versace norðursins", hélt þá uþp á 25 ára afmælið sitt og fyrir vikið gat að Ifta nær alla frétta- menn og konur Stöðvar 2, til dæmis Þorstein Joö og konuna hans, Maríu Ellingsen leikkonu, Brynhildi Ólafs- dóttur (Brynku), Bryndísl Hólm, Árna Snævarr og Steingrím Ólafsson. Þarna var Ifka hún Elín Hlrst á RÚV, Jónína Ben Planet Puls-dekrari og Arnl „HellisbúaEvíta" Vigfússon. Jóhannes f Bónusi og Jón Ásgeir voru á staðnum og líka Guðlaugur Þór „SUS" Þóröarson, Eyþór Arnalds, tónlistar- og sjálf- stæðismaður, Sigurstelnn Másson glæpa- þáttagerðarmaður, strákarnlr f INN og skvísurn- ar f Centrum. Ottó Karl Ottósson fótbolta- bulla lét sig ekki vanta og ekki heldur hin sfhressa Bryndis Ásmundsdóttir, söng- kona og grinari. Arnar á Salon Veh var þarna og Ifka Maggl Magg á FM 957 og konan hans, Lára. Skjöldur smekklegi var einnig aö skemmta sér og væntanlega öðrum, Arna P. skvísa var á svæðinu og síðast en ekki síst skal uþþtalin hún Ása en hún er mamma Svavars Arnar, tískulögreglu og afmælisbarns. Skuggabarinn hýsti marga hressa um helgina. Á föstudagskvöldið létu til dæmis sjá sig Vllli VIII unþólitíkus, Katla, sem er vinkona Huge Hefners Playboykóngs, Hilmar Þór Ijósmynd- ari, Hörður Magnússon FH-ingur, Er- fkur Önundar og Þórir í Hanz sem var flottastur f tauinu að vana. Lars Emil var þarna og líka stjórnmálakonan Amal Rún Quase. Kristin megabeib f Eskimó módels lét sig ekki vanta og ekki heldur Siggi Zoom, Atll Örvars og Biggl tenór hjá Rnum miðli en hann söng liðið út f lok kvölds. Kvöldið eftir var árshátið hjá Gym 80 og var Magga sterka að sjálfsögðu mætt ásamt Magnúsi Ver, Auðuni lyftingakappa og Jóni massa. Díanna og Lovisa playboygellur skemmtu sér vel og það gerðu líka Debbie í Betrunarhúsinu, Nína, Sóiveig Lllja ungfrú ísland, Júlli Kemp, Sverrlr og Lars Emil. íslands- meistararnlr f samkvæm- isdönsum, Halla f Gullsól, Georg Pizza 67, Heimir Guöjóns og Valll sport voru f stuði á dans- gólfinu og sinnig sást í Ástu f Stundinni okk- ar, Kötu lýsistvennu, Söru „hrepp" og allar gellurnar úr ÍS-körf- unni. Pétur Pókus og Biggi tenór voru Ifka á svæðinu. Um helgina sáust Ifka hinir og þessir á Vega- mótum. Til dæmis Viddl á Glaumbar og eigandi Subway, Ari Alex- ander listamaður og Ijósmyndarinn Ari Magg. Þessi staður hefur alltaf eitthvert aðdráttar- afl á leiklistarþjóð- ina og f þetta sinn sáust meðal ann- ars Árnl Ibsen, Þór Túlinius, Stefán Baldursson og Jó- hanna Vigdfs (Hansa) og Nanna Kristfn úr Leiklist- arskólanum. Bryndís Hólm frétta- kona var á svæðinu og líka Sara Guðmundsdóttir, söngkona Lhooq, Hafdís Huld úr Gus Gus, Tinna forsetadóttir, Eglll og Þórir Viðar af Kaffibarnum. Ingvl Stein- ar, Ottó Tynes og Andrés Magnús- son voru þarna Ifka og síðastar en ekki sfstar skulu hér taldar uþþ Kristín Ásta og Árný súperskvísur. k 22 f Ó k U S 12. mars 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.