Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1999, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 OV 26 01gtfÓlk , --------- Fegursti gjaldkerinn Bryndís Björg Einarsdóttir, fegurðardrottning Reykjavíkur 1999. Hún verður aðalfulltrúi höfuðborgarinnar í keppn- inni um ungfrú ísland. DV-mynd E.ÓI. Fegurðardrottning Reykjavíkur vinnur í banka. Þar ætlar hún að vera í sumar og er um þessar mund- ir að læra inn á starf þjónustufull- trúans. í haust langar hana annað- hvort að klára stúdentinn eða fara í ferðamálaskóla. En hvað kom til að hún ákvað að fara í keppnina um fegurstu stúlku Reykjavíkur? „Tvær vinkonur mínar hentu for- svarsmönnum keppninnar á mig og þeir höfðu samband. Ég var treg til og vildi ekki alveg samþykkja í fyrstu en vinnuveitandi minn hringdi þá líka til þess að hnykkja á þessu. Framkvæmdastjóri keppn- innar hafði samband aftur og þá ákvað ég bara að drífa mig,“ segir Bryndís. í prufuna koma mjög margar stúlkur, því hver vill ekki verða feg- urðardrottning höfuðborgarinnar? Bryndís segist hafa heyrt að i ár hafl yfir hundrað stúlkur komið í prufuna. Allar stelpur sem bent er á eru teknar inn. Tekiö er við þær stutt viðtal, þær ljósmyndaðar og látnar labba um á sundbol. Sundbol- urinn á eftir að koma meira við sögu ef stúlkan kemst inn í keppn- ina. Það þekkir Bryndís en segir að það hafi ekki verið neitt mál. Síst á úrslitakvöldinu þar sem hún haföi harðsnúiö lið stuðningsmanna á bakvið sig. En hafði hana áður langað að fara í fegurðarsamkeppni? „Ég fylgdist aUtaf með slíkum keppnum en hugsaði þá hugsun að ég gæti tekiö þátt aldrei til enda. Ég vissi að aUt tUstandið í kringum keppnina væri skemmtUegt, en það kom mér á óvart hvað það var rosa- lega skemmtilegt," Hvað er svona skemmtUegt? „Númer eitt, tvö og þrjú er félags- skapurinn. Það er ótrúlegt en satt að maöur þroskast líka mjög á þessu. Þær sem eru feimnar læra að opna sig og koma fram og að er gott fyrir hverja manneskju að geta komið fram án þess að líða iUa. Keppnin er þó fyrst og fremst kær- komið tækifæri tU þess að eignast nýja vini og á æfmgunum þjappast hópurinn betur og betur saman. Ég leyfl mér aö fuUyrða að í keppninni í ár voru bara góðar stelpur og skemmtUegar," segir Bryndís og hlær. í útlöndum standa kvenréttinda- konur oft með skUti og æpa að það sé niðurlæging fyrir konuna að láta meta sig eins og hvem annan naut- grip. Hér á íslandi hafa konur ekk- ert mikið verið með mótmælaskUti utan við Broadway en hvað segir Bryndís við því að fegurðarsam- keppni sé bara ein tegund gripasýn- inga. Finnst henni til dæmis ekkert óþægUegt að láta mæla sig svona út? „Ég er ósammála því að fegurðar- samkeppni sé gripasýning. Mér þyk- ir heldur ekkert óþægUegt að láta horfa á mig ef ég er ánægð með hvemig ég lít út og er í þvi formi sem ég vU vera. Þá er ég ánægð uppi á sviði sem annars staðar,“ segir Bryndís og hefúr lítið annað við andstæðinga fegurðarsamkeppna að segja. Kærasti Bryndísar heitir Sigmar Vilhjálmsson, sonur sUfurmannsins Vilhjálms Einarssonar sem hlaut silfurverðlaun í þrístökki á ólymp- íuleikum fyrir aUmörgum árum. Sigmar er 22 ára markaðsfuUtrúi hjá íslenska útvarpsfélaginu. Þau Bryndís og Sigmar em ekki farin að búa eða ráðgera neitt svoleiðis enda hafa þau bara verið saman í tæpa fimm mánuði. Þegar Bryndís er spurð enn frekar um framtíðina seg- ist hún ekki alveg sjá sig í fegurðar- eða fyrirsætubransanum í fuUu starfi þó að það gæti verið gaman svona inn á mUli. „Mig langar tU útlanda,“ segir hún. „Ég hef mikinn áhuga á því að verða flugfreyja tíma, ferðast er- lendis og starfa. Ég hef búið í Svi- þjóð í eitt ár og var þar líka i sum- ar á vegum Nordjobb að vinna á lestarstöð. Stundum grípur mig löngun til þess að fara út og láta svo ráðast hvað gerist. Ég er vön því að bjarga mér og er alveg óhrædd." -þhs ... í prófil Björn Ingi leikari Fullt nafn: Bjöm Ingi Hilm- arsson. Fæðingardagur og ár: 17. ágúst 1912, held ég. Maki: ÓþægUeg spuming. Böm: Ammundur Emst/Karate Kid. Starf: Bakari, kranamaður og leikari. Skemmtilegast: Vinna á góð- um krana og leika. Leiðinlegast: Augnablikið þegar ekki er lengur skemmti- legt. Uppáhaldsmatur: Súrir sels- hreifar + creatín. Uppáhaldsdrykkur: Góð prótínhræra. Fallegasta manneskjan (fyrir utan maka): María mey. Fallegasta röddin: Stefán frá Möðmdal. Uppáhaldslíkamshluti: Óprenthæft svar. Hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ríkistjóminni: Hvaða rúds- stjóm? Með hvaða teiknimynda- persónu myndir þú vilja eyða nótt: FÍlnum Júmbó. Uppáhaldsleikari: Bjöm Bjömsson, Leikfélagi Dalvík- ur. Uppáhaldstónlistarmaður: Danni bróðir. Sætasti stjórnmálamaður- inn: Væri tU í að eyða nótt með Möggu Thatcher. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Skjáleikurinn. Leiðinlegasta auglýsingin: íbúðalánasjóður. Leiðinlegasta kvikmyndin: Wicked Jenny. ■ ' Sætasti sjónvarpsmaður-J inn: EmmanueUe IV. Uppáhaldsskemmtistaður: Borgarleikhúsið. Besta „pikköpp" línan: „Við emm tvö náttúrublóm." (Virkaði ekki.) Hvað ætlar þú að verða þeg- ar þú verður stór: Eitthvað stórkostlegt. Eitthvað að lokum: Getm- einhver sagt mér hvemig maður kemst i samband við skiptiborðið?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.