Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 20
24 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 r Iþróttir unglinga DV Krakkahópur Tae Kwon Do. Aftari röð frá vinstri: Hulda Sóiveig þjálfari, Hrólfur, Ílía, Rannveig, Högni, Bjarni, Guðrún og Linda. Fremri röð frá vinstri: Ómar, Halldór, Benedikt Aron, Bárður, Sigurður og Daníel. Krakkahópur Tae Kwon Do: Urvals utras - fyrir krakkana sem bera mikla virðingu fyrir greininni Ílía, Linda og Daníel eru öll með græna beltið í Tae Kwon Do en það þýðir að þau séu best í sínum hópi. ília er rússneskur að uppruna og kynntist Tae Kwon Do þar í landi. Hann flutti hingað fyrir einu ári og tók strax að æfa með krakkahópnum í Júdó Gym. „Mér finnst bara allt skemmtilegt við þetta,“ sagði Ílía og brosti fullur af áhuga. Hann er aðeins 9 ára og yngsti iðkandinn með græna beltið í þessum hópi. Daníel er 13 ára og finnst íþróttin veita sér sjálfstraust. „Ég er í Tae Kwon Do til þess að geta varið mig og svo er þetta skemmtilegt líka. Við æfum þrisvar í viku og svo keppti ég í tveimur mótum í vetur og varð i þriðja sæti í báðum,“ sagði Daníel. Linda er 12 ára og búin að æfa Tae Kwon Do í tæp tvö ár. Þrátt fyrir það stendur hún sig vel og gefur piltunum ekkert eftir. „Ég fékk græna beltið fyrir þremur mánuðum. Ég þurfti að taka próf til að ná því og það var mjög stressandi," sagði Linda sem að sjálfsögðu stóðst prófið með miklum sóma. Sjálfsvamaríþróttin Tae Kwon Do hefur verið stunduð hér á landi í nokkur ár. Fyrir tveimur árum stofnaði Hulda Sólveig Jóhannsdóttir iþróttakennari krakkahóp í íþróttinni. Krakkamir hittast þrisvar í viku og æfa í Júdó Gym. „Þetta byrjar yfirleitt þannig hjá krökkunum að þeir mæta á æfingu því þeim fmnst þetta gaman. Siðan sjá þeir hvað íþróttin veitir þeim gott sjálfsöryggi og þeir fá góða útrás í þessu,“ sagði Hulda. Hulda leggur ekki mikið upp úr keppni heldur að krakkarnir læri íþróttina vel og þroskist líkam- lega og andlega við ástundun hennar. „Hópurinn er alltaf að stækka. Það er mjög mik- ill áhugi hjá þessum krökkum. Ég hvet þá til að prófa aðrar íþróttir yfir sumartímann til að fá al- gjört fri frá Tae Kwon Do,“ sagði Hulda. Berjast ekki utan æfinga Áður en krakkarnir byrja að æfa Tae Kwon Do þurfa þeir að skrifa undir samning þess eðlis að þeir muni ekki beita íþróttinni utan salarins nema í algjörri sjálfsvöm. Ef upp kemst um einhvern sem beitir Tae Kwon Do er honum meinaður að- gangur á æfingar í ákveðinn tíma. Hulda sagði hins vegar að sem betur fer hefðu þau aldrei þurft að grípa til þess ráðs að refsa krökkunum því \ I fyrsta sinn á 01 Tae Kwon Do hefur verið sýn ingargrein á tveimur síðustu ólympíuleiku og á næstu leikum, í Sidney árið 2000, verðui keppt í fyrsta sinn í þessari skemmtilegu bar- dagaíþrótt. Það verður spennandi að sjá hvort ísland muni senda ákafa unga keppendur þang- að. íþróttin skiptist í nokkra hluta líkt og karate. Krökkunum er fyrst kennd grunntækni. Síðan læra þeir poomse eða form þar sem þeir berj- ast við ímyndaðan andstæðing. Svo kemur að æfingum þar sem skipulagðar árásir og vörn era þjálfuð og að lokum læra þeir síðan að brjóta spýtur með spörkum eða höggum. Stúlkurnar gefa strákunum ekkert eftir og hér eru þær að æfa spörkin. krakkarnir bera mikla virðingu fyrir greininni og það hefur aldrei komið fyrir að þeir hafi notað hana utan æfinga og keppni. Uppruna að rekja til Kóreu íþróttin er kóresk að uppruna og hefur verið stunduð þar í landi frá því árið 50 f. kr. Hulda leggur ríka áherslu á að íþróttin sé ekki tengd trúarbrögðum. Agi er hins vegar mikilvægur og börnin læra ýmis orð á kóresku. ....... Umsjón B. Eysteinsdóttir Högni fylgist áhugasamur með þegar Hulda Sólveig þjálfari gefur Tae Kwon Do-skipanir á kóresku. Stefnumótun ÍBR og íþróttafélaganna: Horft til framtíðar íþrótttabandalag Reykja- víkur hefur i samvinnu við Janus Guðlaugsson sett frarn stefnumótun í íþrótt- um bama og ung- linga. „Þama er verið að skapa ákveðinn ramma í íþrótta- félögun- um sem nær til stjóm- sýslu fé- laganna og starfs þjálfara. Um leið á þetta að skila sér í bættum árangri bæði upp- eldislega, félagslega og ár- angurslega," sagði Janus sem er umsjónarmaður verkefnisins. Samin hefur verið náms- skrá fyrir íþróttafélögin til þess að starf félaganna verði markvissara og einnig til að stefnumótun í íþrótt- um bama og unglinga sé skýr. Nokkur lið í Reykja- Forsvarsmenn nýrrar stefnumótunar í íþróttum. Reynir Ragnarsson, formaður ÍBR, Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBR, Janus Guðlaugsson íþróttafræðingur og Þór Símon Ragnarsson, formaður Víkings. kostlegt fyrir Víking og ÍBR að vera komin þetta langt á ekki lengri tíma. Við þurf- um að gera okkur grein fyr- ir þvi að námsskrá- in er ein- göngu tæki til að nýta fyrir starfsem- ina. Hvernig tækið er nýtt er háð þeim sem stjórna í félögun- um,“ sagði Janus að vík hafa tekið undir þessa stefnumótun og var Víking- ur fyrsta félagið til að panta námsskrá af Janusi. „Það er mjög mikilvægt að foreldrar þekki til starfs félagsins og að félagið geti rökstutt það sem þeir eru að sækjast eftir. Það er stór- lokum. Með stefnumótuninni er miðað að því að sigur skuli ekki alltaf vera markmið yngri flokka heldur aö börn- in þroskist og kynnist mörg- um íþróttagreinum til að geta síðar valið það sem hentar þeim best. Ilía kynntist Tae Kwon Do í Rúss- landi og var feginn að komast að því að greinin væri einnig stunduð hér á landi þeg- ar hann flutti hingað fyrir einu ári. Hjálpar mikið Þórður Hjörleifsson hefur starfað sem skíðaþjálfari hjá Vikingi i 18 ár og honum líst bara vel á að starfa eftir nýrri stefnumótunarskrá. „Mér finnst þetta bara mjög gott mál. Það eru skýr markmið í námsskránni og þetta er vel sett upp og spennandi," sagði Þórður. Hann sagðist jafnframt vera hlynntur því að bömin prófuðu sem flestar iþróttagrein- ar meðan þau væra enn ung og veldu svo þá grein sem hentaði þeim best. „Hver deild á að sjálfsögðu eft- ir að skoða þetta og setja dæmið upp hjá sér. Það era t.d. mis- mundandi áherslur fyrir skíði og boltagreinar en námsskráin hjálpar mikið,“ sagði Þórður. „Vil geta varið mig“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.