Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 12
Vann meista blind „Myndin er ekkert út í gegn einhver rosa Hollywood-læti,“ segir Haukur M. Hrafnsson, ný- bakaður kvikmyndaleikstjóri sem frumsýnir ódýrustu biómynd ís- landssögunnar í Háskólabíói á morgun. „Þetta er raunsæ mynd um mann úti í bæ og mér finnst hún ganga upp í smáatriðum og þá skiptir heildin ekki svo miklu máli.“ Nú kostaöi myndin tvœr og hálfa millu, fékkstu einhverja styrki? „Nei. Ég borga þetta allt sjálfur og vil með því koma þeim skila- boðum á framfæri að það þarf bara gott handrit til að komast af stað. Það þarf enginn á Kvik- myndasamsteypunni eða Kvik- myndasjóðnum að halda til að gera bíómynd sem fólk getur horft á.“ Er einhver búinn aö sjá mynd- ina? „Nei,“ svarar Haukur. „Það hef- ur enginn utanaðkomandi séð hana. En vinir mínir hafa séð hana og þeir eru ekkert að segja mér að láta mig hverfa og ég er því sæmilega bjartsýnn." Var með stelpu sem hélt fram hjá „Þetta er náttúrlega saga sem allir þekkja,“ segir Haukur um myndina sína. „Hún fjallar um strák sem er með stelpu sem byrj- ar með besta vini hans. Þetta er eitthvað sem allir hafa lent í eða horft upp á vini og kunningja lenda í.“ Hefur þú lent í því? „Já,“ svarar Haukur hreinskil- inn og brosir. „Það var þannig að ég var með annarri stelpu en ég er með núna þegar ég byrjaði að skrifa þetta handrit. Þá notaði ég það trix til að fá reiðina inn í handritið að ímynda mér að besti vinur minn og hún væru að byrja saman. Síðan þrem mánuðum seinna þá var ég staddur á sjó, í Smugunni, til aö safna fyrir gerð myndarinnar. Þá segir hún mér allt í einu upp vegna þess að hún heldur við einhvern strák og næstu tvo mánuðina klára ég handritið í rosalega mikilli reiði. Ég notaði meira að segja nafnið á þessum strák i handritið og þau eru saman í dag. Þessi mynd er samt ekkert skot á þau.“ Haukur var í Smugunni allt sumarið í fyrra og úr þessari norsku Smugu koma því fimm hundruð þúsund krónur sem fóru allar í myndina. Fyrir utan þann pening kostaði myndin tvær millj- ónir sem Haukur útvegaði með því að láta mömmu og pabba skrifa undir víxil. Ekki í samkeppni við Star Wars Þú leikur aöalhlutverkiö sjálf- ur. Var þaö ekki erfitt? „Jú. Ég var alveg þrjá mánuði að koma mér í hlutverk. Safnaði hári í átta mánuði og létti mig um tuttugu kíló og reyndi að vera sem ólíkastur sjálfum mér svo fólk sem þekkir mig segði ekki bara: „Já, þama er Haukur í ein- hverju rugli.““ Og hvert veröur framhaldiö, á nú aö fara aö sœkja um styrki og gerast vinur Friöriks Þórs? „Nei. Ég ætla ekki að fara að betla. Hluti af ástæðunni fyrir þvi að ég gerði þessa mynd var að ég sá þarna fréttina um að Miramax ætlaði að gera sex myndir hérna. En það em engir sex leikstjórar hér á landi sem geta leikstýrt myndum. Þess vegna kom ég mér bara í samkeppnina með þessari mynd og ég mun gera fleiri myndir ef þessari verðm- ágæt- lega tekið. Ef það klikkar og myndin floppar þá fer ég bara út í skóla og kem aftur eftir nokkur ár og byrja aftur. íslendingar eru svo fljótir að gleyma og það er náttúrlega kostur ef myndin klúðrast," segir Haukur og bætir því við að það kosti bara fimmhundruðkall inn á myndina. En hann er að vona að hún hald- ist í bíó til 17. ágúst þvi þá er mánuður í Star Wars og hann er ekki alveg viss hvort það borgar sig að fara í samkeppni við hana. Voru ekki margir sem hjálpuöu þér viö aö gera þessa mynd? „Nei. í lok myndarinnar er ör- ugglega stysti sérstakar þakkir listinn sem hefur verið á ís- lenskri bíómynd. Þeim sem ég borgaði pening fyrir græjur og annað þakka ég ekki því þeir gátu ekki einu sinni beðið þar til ég var búinn að frumsýna heldur fóru strax i að hóta manni lög- mönnum og öllu því.“ Ekkert mál að fá dóp Haukur bjó í Reykjavík til tíu ára aldurs. Þá flutti hann til Hafn- ar i Hornafirði og síðan aftur í bæinn þegar hann var tvítugur. Nú er hann tuttugu og þriggja ára. Hvernig var að alast upp úti á landi? „Það var fínt. En maður var alltaf svona FM-gæi og ég á meira að segja Club FM kort númer fimm.“ Og ertu enn þá chocko? „Nei. Ég er frelsaður. Enda var þetta FM-lið ekkert svo slæmt hérna ‘95 og hefur breyst rnikið," segir Haukur, fyrrum chocko, nú- verandi lopahúfa. Á þá aö fara og fá fast sœti á Kaffibarnum? „Nei, nei. Bara Kaffi Thomsen en hann hefur samt dalað aðeins eftir að skipt var um eigendur." Nú er eitthvaö um dóprugl í myndinni, hefuröu sukkaö mikiö? „Já. Það byrjaði náttúrlega allt þegar maður var sautján. Þá safn- aði maður sér pening í mánuð og kom síðan í bæinn og eyddi hundrað og þrjátiu þúsund á einni helgi.“ / hvaö? „Maður fór kannski í Sautján þegar maður kom í bæinn og dressaði sig upp. Svo var farið í Ríkið og eytt tuttugu þúsund kalli. Síðan farið út að skemmta sér, í parti sem fannst með því að hringja á X-ið eða í eitthvert fólk sem þú hafðir kynnst. Þaðan var náttúrulega farið á barinn og hreinlega öllum boðið í glas og hangið niðri í bæ til klukkan sex um morguninn. Þá fór maður á gistiheimilið og svaf úr sér og á sunnudeginum var djammið búið og maður fór heim, skítblankur. Þetta voru utanlandsferðirnar okkar, þeirra sem eru utan af landi.“ Haukur M. Hrafnsson er fyrrum íslandsmeistari í frjálsum íþróttum, sukkari, dópisti og Club FM félagi. Núna er hann óháðasti kvik- myndagerðar- maðurinn á íslandi. Fókus tók kauða tali og athugaði hvaðan þessi maður er eiginlega. „Þetta er raunsæ mynd um mann úti í bæ og mér finnst hún ganga upp í smáatriðum og þá skiptir heildin ekki svo miklu máli,“ segir Haukur M. Hrafnsson, höfundur ódýrustu bíómyndar íslandssögunnar. Varstu þá ekkert aö nota fikni- efni í þessum innanlandsferöum? „Jú, jú. Þetta var náttúrlega all- ur pakkinn. Það er ekkert mál að útvega sér dóp í Reykjavík þótt maður komi utan af landi.“ Spítt til að geta drukkið meira „Þetta byrjaði hjá mér af því að mér fannst ekkert gaman að verða bara allt of fullur og fara heim og drepast. Þá kom bara spíttið til greina og það var hel- víti fínt. Maður gat djammað alla helgina. Hélt sér bara við með amfetamíni. Ég mótmæli líka stranglega þegar fólk segir að hass sé vímuefni sem leiði mann út í sterkari efni. Það er náttúr- lega bara áfengið sem gerir það.“ En varstu aldrei i hassinu? „Ég náði að halda mér helvíti lengi frá því. Eða þangað til ég fór á eitthvað sextán daga fylliri og endaði grútþunnur hjá einhverju fólki sem sagði mér að fatan myndi taka alla þynnku frá mér. Ég prófaði það og lá alveg hvítur í framan í einhverjum sófa í fjóra klukkutíma. En fann ekki fyrir þynnku, að vísu.“ Hvenœr hœttiröu svo? „Fyrir tveimur árum hætti ég að drekka og byrjaði að skrifa handrit. Ég var líka búinn að lenda nokkrum sinnum á spítal- anum út af brisinu í mér og ef ég fer aftur á fyllirí mun ég deyja. En þegar ég hætti að drekka reykti ég bara hass í ár en hætti því fyrir ári.“ Þú hefur ekkert fariö í afvötnun? „Jú. Þegar ég var átján ára en það virkaði ekkert. Þar er bara keyrt á einhverri sektarkennd sem maður veit ekkert um.“ Er þá skárra aö hœtta bara sjálfur? „Já. Ég er líka það heppinn að hafa fólk í kringum mig sem var tilbúið að hjálpa mér. En breyt- ingin er alveg svakaleg frá því að sukka mikið og vera edrú þar sem ég er enn þá í sama hóp og ég var. Ég fór ekkert frá vinum minum eða neitt þannig.“ Mikið sukk í frjálsum íþróttum Þú varst líka íþróttastjarna á tímabili? „Já. Ég var í landsliðinu i frjáls- um frá því ég var 14 og þar til ég varð 20,“ segir Haukur, en á þessu tímabili varð hann nokkrum sinn- um íslandsmeistari í kringlu-, spjót-, kúlu- og sleggjukasti. En hvernig fór drykkja og íþrótt- ir saman? „Það er meira sukk í íþróttum en þú getur ímyndað þér. Það er örugglega mesta sukkið í kringum þær. Það fylgir þessu. Maður er svo lítið heima hjá sér. Um hverja helgi er verið einhvers staðar úti á landi og það er alltaf eitthvert fyllirí í gangi.“ Lumaröú þá ekki á góöri íþrótta- sukkssögu? „Jú. Ég var til dæmis með Jack Daniels í brúsa á vellinum þegar ég vann íslandsmeistaratitilinn í kúlu, sleggju og kringlu en var síð- í an eiginlega orðinn þunnur þegar það kom að spjótinu og kastaði I tuttugu metrum undir mínum besta árangri," segir Haukur, en þetta gerðist þegar hann var átján j ára gamall. Þaö má því segja aö íþróttir hafi | ekki haldiö þér frá sukkinu, eins og \ sagt er aö þær eigi aö gera? „Nei. Um leið og ég hætti að drekka þá hætti ég í íþróttum. Sama dag- inn, meira að segja.“ Já, það vantar ekki í hann Hauk M. Hrafnsson heivítis at- orkuna. 12 f Ó k U S 16. júlí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.