Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 11
Gamli vinstrigræni þjóðlagarokk- arinn hann Billy Bragg hefur verið að böggast í stórstjömunum i Man- ic Street Preachers síðustu dag- ana. Hann vill meina að frægðin hafi stigið bandinu til höfuðs og að nú sé það orðið of fint með sig til að ganga örna sinna meðal alþýðunn- ar. Manics hafa svarað fyrir sig og kalla Billy „nefljótan aula sem ætti að halda kjafti og hætta að stela lögum Woody Guthrie." Þetta kúkamál hófst á Glaston- bury-hátíðinni en þar hefur löngum tíðkast að stórstjörnurnar noti sömu hátíðarkamra og gestir. Stjörnur á borð við Michael Stipe hafa losað á ferðaklósettum skipu- leggjanda og ekki sett það fyrir sig. Billy rak i rogastans þegar hann sá baksviðs sérmerkt ferðaklósett á vegum velska tríósins sem á stóð: „Þessi aðstaða er eingöngu fyrir Manic Street Preachers. Vin- samlegast virðið það.“ Þar sem Manics hafa löng- um sungið slagorðakennd popplög eins „If You Tolerate This Your Children Will Be Next“ fannst Billy málið ekki bara lykta af kúk heldur líka hræsni. Gagnrýndi hann því hljómsveitina opinberlega. Þegar Manics komu á svið til- einkaði Nicky Wire Billy eitt lagið og sagði: „Ég vildi ekki að hólkur- inn á Billy kæmi nálægt minni kló- settsetu þó allir peningar heimsins væru í boði. Hann ætti að drulla sér aftur í herinn og halda kjafti." Billy dó ekki ráðalaus eftir þetta skitkast og hafði samband við vikublaðið NME. Hann sagði að þessi orðræða Nicks staðfesti hversu Manics væri komið langt frá sinum vinstrisinnuðu rótum. Hann bauð Nicky í pólitískar kappræður til að hreinsa mannorð sitt. Þegar NME hafði samband við Nicky sagðist hann ekki hafa áhuga á að tala við „útbrunninn skíthæl" eins og Billy. ---------------- Sportkryddið pönkar Mel C, „Sport- kryddið" í Spice Girls, hefur klárað upptökur á fyrstu sólóplötunni sinni. Fyrsta lagið af skíf- unni kemur út á smáskífu í septem- ber og heitir „Goin’ Down“. Rokkklárinn Rick Rubin, sem m.a. hefur unnið með Run DMC og Beastie Boys, tók plötuna upp með Mel í LA. Sú krydd- aða virðist vera komin á fullu í rokkið þvi innan- búðarfólk segir tónlistina á plöt- unni helst minna á tónlist Garbage. Mel C kom nýlega fram á tónleik- um með gamla kynlífshólkinum honum Steve Jones. Sex Pistols-gít- arleikarinn er nú í bandinu The Neurotic Outsiders og var að spila i Viper-klúbbnum hans Johnny Depp þegar Mel stökk upp á svið og söng gamla pönksmellinn Anarcy in the UK. Hún breytti að vísu textan- um, söng: „I am an Antichrist / I am a Sporty Spice“. Ekki er vitað hvort John Lydon var á staðnum og þá hvort hann hafi hlaupið ælandi út. Mel C hefur stundum verið köll- plötudómur Svona er sumarið ‘99 ★ Það er heldur ódýr lausn hjá út- gefanda þessarar safnplötu að nota sama umslagið og í fyrra á plötuna sína, þó litunum sé reyndar aðeins breytt. Gagnrýninn hlustandi hlýt- ur að fá það á tilfinninguna að tón- listin sé sú sama og í fyrra og þar hefur hann nokkuð til síns máls. Þetta er a.m.k. ekki byltingarkennd útgáfa heldur hin árlega „sumar- böndin kynna nýjustu smellina"- plata. Ég hef þegar tjáð mig um plötur Klamedíu-X, Skítamórals og Á móti sól og frá þeim eru fimm lög á þess- ari safnplötu, eitt með Klamedíunni og tvö með hinum tveim. Að auki eru ellefu lög af ýmsum gerðum. Stuðmenn æpa á gróðursetningu, gott ball og gróðrabrall í hinu hressa og miðaldra dreifbýlispoppi „Komdu með“ og eru stuðmannaleg- ir í einu og öllu. Sömuleiðis er Stjórnin stjómarleg í sínu innleggi, laginu „Ég vil“, með djúpvitrum og nokkuð góðum texta eftir Stefán Hilmarsson um samskipti kynj- anna. Hljómsveitin Sixties virðist vera búin að herma eftir öllum lög- unum sem Bítlavinafélagið hafði þegar hermt eftir og mæta því með næpuhvítt fónkpopp, lagið „Eggj- andi“, sem er spælegg. Þeir sem koma mest á óvart eru aflituðu drengirnir í Landi og son- um. Lagið þeirra, „Saga“, er vel frambærilegt með nettu R&B-intrói og þrýstnu viðlagi; langþesta lag disksins sem kveikir áður óþekktar væntingar um framtíð bandsins. Sóldögg hefur átt nokkur smellin popplög í gegnum tíðina en sýna litla tónlistarlega framþróun í sín- um hljóðdæmum hér, ágætu stuð- lagi og la la ballöðu. Buttercup er með sama litróf, kassagítarballöðu og kraftgallahetjurokk, einfalt stöff og ágætt. Hin nýja kynslóð sveita- ballasveita hefur mest tekið arfleið Sálarinnar til fyrirmyndar en Butt- ercup eru meira á Sólar-línunni og Valur Heiðar söngvari á bara þús- und flöskur af skosku viskíi eftir til að hljóma eins og Bonnie Tyler. Þrjú bönd til viðbótar eiga lög, Tvö dónaleg haust spilar frískt grín- pönk með blæstri og krafti, Geir- fuglarnir slá á létta strengi í Grund- arlegum ellismelli og Url fær eitt banda að syngja á ensku, ofan á uð „indí-spæs“ en hún hefur oft lýst yfir ánægju sinni með bönd eins og Oasis, Radiohead, Blur og Supergrass. „Beibí-spæsið" Emma Bunton hefur einnig tekið upp lag með vini sínum Tin Tin Out en ekki er vitað hvort það sé upphafið að glæstum sólóferli. Þrátt fyrir þetta sólóbras hefur ekki verið gefið út dánarvott- orð á Spice Girls en það liggur samt í loftinu að krydd-ævintýrinu sé lokið. Að minnsta kosti eru smá- stelpurnar, tryggustu aðdáendurn- ir, eflaust flestar þúnar að líma eitt- hvað annað upp á vegg hjá sér. Þeir sem koma mest á óvart eru aflituðu drengirnir í Landi og sonum. Lagið þeirra, Saga, er vel frambærilegt... hamrað hakkabuffspopp sem í klisj- unni miðri sýnir vott af frumleika og von um hugsanleg poppafrek. Þetta hefur verið afleitt sumar varðandi veðurfarið og Svona er sumarið ‘99 ber því kannski nafn með rentu: Poppsúld og dumbungur að mestu þó stundum stytti upp í hugmyndalítilli súldinni. Gunnar Hjálmarsson (Tónlistin úr) Matrix ★ ★ fyrir " ’ markhop Á síðustu tiu árum hefur kvik- myndatónlist þróast i tvær áttir: annars vegar er tónlistin órjúfan- legur hluti af stemningunni á tjald- inu, hins vegar er tónlistin aðlað- andi tónlistarbland í poka fyrir markhóp myndarinnar. Þessar full- yrðingar passa báðar við Matrix. Tónlistin býr til sæperpönkaðan heim en lögin i myndinni hafa flest komið út áður þó hér sé stundum boðið upp á nýjar útgáfur af þeim. Sumum flnnst ekkert skemmti- legra en að sjá þyrlu detta ofan af skýjakljúfi í sló-mósjón og leikara í svörtum frakka komast undan byssukúlum í þrivíddarforriti. Fyr- ir þann stóra hóp er þessi plata himnasending sem hægt er að steyta hnefann við í partíum. Likt og bíómyndin gengur tónlistin út á nýjustu tækni og vísindi og er hröð og árásargjörn og bullandi af horm- ónum og reiði, en reiði er mjög í tísku þessi misserin. Það er samt spurning af hverju tónlistarmenn eins og þeir í Ministry, Prodigy og Rammstein eru svona reiðir. Kannski fundu þeir ekki kókaín- pokann sinn eða pipulögnin í ætt- aróðalinu sem þeir voru að kaupa er farin að leka. -glh Scott 4 - Works Project LP ★ ★ ★ Scott 4 er tríó frá London og þetta er önnur stóra platan. Það fer víða í leit að stíl og minnir á ýmis- legt. Það hristist eins og skrugga á milli folk-rokks, í anda Neil Young og Beck, yfir í einfaldleika Young Marble Giants og hljóðgerflapopps a la Add N to X. Sem sagt, algjör kássa, en góður söngur fyrirliðans Scott Blixen heldur henni saman. Platan er þó of löng, 15 lög á 65 mínútum. Stundum fór að bera á óþoli hjá hlustandanum og þá er gott að grípa til >/-takkans. Auð- vitað hefði mátt sleppa því þunn- asta úr og það er óþolandi hve margir finna sig knúna til að fylla upp í rýmið sem geisladiskaformat- ið gefur. Sumt á plötunni er þó verulega skemmtilegt og vel ferskt. Þeir sem fíla listamennina sem nefndir eru hér að ofan, auk dEUS, Cake og krautrokkið, ættu ekki að sjá eftir því að tékka á þessari plötu, þó hún sé engin gólandi og geðveik snilld. -glh 30. júlí 1999 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.