Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1999, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999
Gabriel höggdeyfar
fyrir fólksbíla, jeppa og vörubila
Qivarahlutir
HAMMSHÖfÐA 1 S. 687 6744 Fax 567 3783
Útlönd
Jeltsín rekur Stepasjín og skipar nýjan forsætisráöherra:
Krónprinsinn
Vladímír Pútín
- fyrrum KGB-njósnari tekur við stjórninni
/
JJrval
- gott í hægindastólíim
Borís Jeltsín kom heiminum í
opna skjöldu í gær þegar hann
leysti upp ríkisstjórn Stepasjíns for-
sætisráðherra og skipaði sjötta for-
sætisráðherra Rússlands á síðustu
18 mánuðum, fyrrum KGB-njósnara
að nafni Vladimir Pútín.
Jeltsín sagði enn fremur að hann
styddi Pútín sem arftaka sinn í for-
setaembættinu og treysti honum
best til að sameina landið á kom-
andi öld, en Jeltsín neyðist sam-
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Vladimir Pútín
kvæmt lögum til að láta af embætti
um mitt næsta ár.
Grái kardínálinn
Pútín hefur sagst munu bjóða sig
fram til forsetaembættisins. Hann
starfaði sem njósnari KGB í Austur-
Þýskalandi á níunda áratugnum og
segja gagnnjósnaskýrslur hann þar
hafa sýnt mikla skipulags- og stjóm-
unarhæflleika. Reynsla hans af
stjórnmálum er nær engin utan að
hafa gegnt embætti aðstoðarborgar-
stjóra í Sankti Pétursborg fyrr á
þessum áratug.
Þar fékk hann viðurnefnið grái
kardinálinn fyrir daufan en hús-
bóndahollan stjórnunarstíl sinn.
Talið er að meginástæða ákvörð-
unar Jeltsíns sé ótti hans við kosn-
ingabandalag hins vinsæla borgar-
stjóra Moskvu, Júrí Lúshkov, og
ýmissa svæðisleiðtoga sem stefnir
að því að koma Lúshkov eða Príma-
kov, fyrrum forsætisráðherra, í for-
setastólinn. Báðir hafa fallið í ónáð
hjá Jeltsín í kjölfar aukinna vin-
sælda þeirra en forsetinn er talinn
leggja allt kapp á að tryggja að
valdataumarnir verði áfram í hönd-
um stuðningsmanna hans, sem oft
eru kallaðir „Fjölskyldan".
Dúman greiðir atkvæði um Pútín
næsta mánudag og telja margir ólík-
leg að honum verði hafnað þar sem
stutt er til kosninga og þingmenn
ragir við ágreining við forsetann.
Hjarðarhagi
Kvisthagi
Ægisíða
Norðurmýri
Miðbæ
Hlíðar
Akurgerði
Heiðargerði
Hvammsgerði
Austurbrún
Norðurbrún
Fákafen
Faxafen
Skeifan
ALMYRKVI SÓLAR
Miðvikudaginn 11. ágúst mun almyrkvi á sólu veröa yfir hluta Evrópu, Mið-
Austurlöndum og Indlandi. Þá mun skuggi tunglsins falla á jörðina og fara yfir
Atlantshafiö, landsvæöi nálægt miðbaug og enda austan viö Indland í Bengalflóa.
É^! Upplýsingar veitir afgreiðsla
• DV í síma 550 5777
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Stillholti
16-18, Akranesi, sem hér segir
á eftirfarandi eignum:
Akursbraut 9, neðsta hæð, Akranesi,
þingl. eig. Bermúda-verslun ehf., gerðar-
beiðandi Bflanaust hf., mánudaginn 16.
ágúst 1999 kl. 11.00.
Einigrund 11, hluti 0201, Akranesi, þingl.
eig. Kristín Ósk Kristinsdóttir, gerðar-
beiðandi Akraneskaupstaður, mánudag-
inn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Garðabraut 2, Akranesi, þingl. eig. Völ-
undur Þorgilsson, gerðarbeiðandi Akra-
neskaupstaður, mánudaginn 16. ágúst
1999 kl. 11,00.
Heiðargerði 24, efri hæð, Akranesi, þingl.
eig. Brynjar Þorlákur Emilsson, gerðar-
beiðendur Akranesveita og Rafmagns-
veitur rfldsins, Reykjavík, mánudaginn
16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Jaðarsbraut 17, efri hæð, Akranesi, þingl.
eig. Sigurdór Halldórsson, gerðarbeið-
andi íslandsbanki hf., höfuðst., 500,
mánudaginn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Jaðarsbraut 35, Akranesi, þingl. eig.
Guðni Jónsson og Ingveldur M. Sveins-
dóttir, gerðarbeiðandi Akraneskaupstað-
ur, mánudaginn 16. ágúst 1999 kk 11.00.
Kirkjubraut 58, hluti 0201, Akranesi,
þingl. eig. Stefán Þorsteinsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins, mánu-
daginn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Kirkjubraut 6a, Akranesi, þingl. eig.
Valdimar Bjami Guðmundsson og Ulrika
Margareta Iwarsson, gerðarbeiðendur
Akraneskaupstaður, Húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar, Olíuverslun Islands hf.
og sýslumaðurinn á Akranesi, mánudag-
inn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Lerkigrund 6, hluti 0102, Akranesi, þingl.
eig. Þórhildur Björg Þórisdóttir, gerðar-
beiðandi Akraneskaupstaður, mánudag-
inn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Merkigerði 10, þingl. eig. Jens I. Magn-
ússon, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður
ríkisins og fbúðalánasjóður, mánudaginn
16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Merkigerði 4, 0101, Akranesi, þingl. eig.
Þráinn Þór Þórarinsson og Berglind Guð-
mundsdóttir, gerðarbeiðendur Akranes-
kaupstaður, Byggingarsjóður ríkisins og
Lífeyrissjóður sjómanna, mánudaginn
16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Reynigrund 13, Akranesi, þingl. eig.
Guðmundur Rúnar Davíðsson, gerðar-
beiðandi Búnaðarbanki íslands hfl, Akra-
nesi, mánudaginn 16. ágúst 1999 kl.
11.00.
Reynigrund 24, 75,34% eignarhluti,
Akranesi, þingl. eig. Agnar Guðmunds-
son, Sigríður Kristín Óladóttir og Helga
Atladóttir, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki
íslands hf., Akranesi, mánudaginn 16.
ágúst 1999 kl. 11.00.
Skagabraut 34, Akranesi, þingl. eig. Anna
Margrét Vésteinsdóttir og Eiríkur Karls-
son, gerðarbeiðendur Búnaðarbandi fs-
lands hf., Akranesi og íbúðalánasjóður,
mánudaginn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Sóleyjargata 13, Akranesi, þingl. eig. Er-
lingur Birgir Magnússon, gerðarbeiðend-
ur Akraneskaupstaður, Byggingarsjóður
ríkisins og Lífeyrissjóður Austurlands,
mánudaginn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
Vesturgata 25, hluti 0201, Akranesi,
þingl. eig. Ásdís Lilja Hilmarsdóttir,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna,
mánudaginn 16. ágúst 1999 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESl
HVAÐ GERIST?
1000Gmt 1030Gmt 1100Gmt
Myrkvi verðurþegar
jörðin fer inn í skugga
tunglsins
Alskugg!
Jörö
Tungl
-Hálf-
skuggi
Brenni-
punktur
myrkva
1230Gmt
Mismikill hlutmyrkvi sólar sést á
stórum svæðum sem lenda
undir hálfskugga tunglsins.
0% Hlutlali myrkurs 100%
ii
0930Gmt
LEIÐ SKUGGANS
ATH: Horfið aldrei beint í myrkvann. Það skaöar augun og veldur jafnvel blindu.
Heimild: Reuters/ NASA / GSFC
Bardagar halda áfram í Dagestan:
Hætta á að Moskvu-
stjórnin missi landið
Sergei Stepasjln, frá-
farandi forsætisráð-
herra Rússlands, sagði í
gær að hætta væri á að
stjórnin í Moskvu missti
Dagestan-hérað úr hönd-
unum. Bardagar geisuðu
þar þriðja daginn í röð
milli rússneskra her-
manna og uppreisnar-
manna úr röðum
múslíma.
Hundruð vopnaðra að-
skilnaðarsinna hafa hafa
náð að minnsta kosti þremur fjalla-
þorpum í Dagestan á vedd sitt. Þeir
hafa staðið af sér þriggja daga árás-
ir rússneska hersins sem
hefur meðal annars beitt
stórskotaliði og flug-
skeytum í bardögunum.
Lögreglan í Dagestan
hefur handsamað fjölda
manna úr hópi múslíma
sem sendi frá sér yfirlýs-
ingu um að stofna ætti
íslamskt ríki.
„Staðan í Dagestan er
mjög erfið í dag. Ég tel
að við gætum misst
Dagestan," sagði Stepa-
sjín á síðasta fundi sínum með rík-
isstjórn sinni eftir að Borís Jeltsín
forseta rak hann í gær.
Sergei Stepasjín óttast
um Dagestan.
Stuttar fréttir dv
Ekkert gekk með Kóreu
Síðasta samningafundinum um
varanlegan frið á Kóreuskagan-
um lauk í Genf í Sviss án þess að
nokkuð hefði miðað í samkomu-
lagsátt. Ekki var heldur boðaður
nýr fundur.
Bush keypti búgarð
George W. Bush, ríkisstjóri í
Texas og líklegur forsetafram-
bjóðandi
Repúblikana-
flokksins í
Bandaríkjun-
um, er búinn
að kaupa sér
víðáttumikinn
búgarð í mið-
hluta rikisins.
Nú vantar bara
að hann komist í Hvita húsið eft-
ir kosningarnar á næsta ári.
Fleiri gíslar lausir
Uppreisnarmenn í Sierra Leone
hafa leyst úr haldi fjóra gísla til
viðbótar þeim sem þeir slepptu í
fyrradag. Þar á meðal eru þrir
breskir eftirlitsmenn SÞ.
Ekki til Pakistan
Bandarísk stjórnvöld hafa vís-
að á bug fréttum frá Qatar um að
bandarískár herflugvélar hafi
lent í Pakistan með sérsveitir til
að ráðast á hryðjuverkamanninn
Osama bin Laden.
Drepin eftir 14 daga
Nítján ára gömul dönsk-tyrk-
nesk kona fannst myrt eftir að-
eins fjórtán daga hjónaband meö
tyrkneskum karlmanni. Talið er
að eiginmaðurinn hafi ráðið kon-
unni bana.
Obuchi dalar
Vinsældir Keizos Obuchis, for-
sætisráðherra Japans, meðal al-
mennings hafa
dalaö örlítið í
fyrsta sinn á
þessu ári, að
því er fram
kemur í skoð-
anakönnun sem
birtist í morg-
un. Á sama
tíma gaf ríkis-
stjómin út skýrslu þar sem segir
að aðstæður i efnahagslífi lands-
ins fari batnandi en enn væri þó
of snemmt að vonast eftir skjótmn
bata.
Sofnuðu í ránsferð
Tveir ungir danskir menn voru
handteknir aðfaranótt mánudags
fyrir stuld á 200 kílóa þungum
peningaskáp. Lögreglan furðaði
sig á að sjá bíl þjófanna með pen-
ingaskápinn á aftanívagni á bak
við hús eitt. Þegar að var gáð
reyndust ræningjamir sofa svefni
hinna réttlátu í bílnum.
Hóruhúsi lokað
Frægasta hómhúsinu í Nevada
í Bandaríkjunum, Mustang bú-
garðinum, var lokáð í gær eftir
meira en fjöratíu ára rekstur.
Stjómvöld eignuðust húsið vegria
skulda fyrri eigenda og skipuðu
vændiskonunum að hafa sig á
brott.
Einn drepinn í Jerúsalem
ísraelska lögreglan skaut arab-
ískan mann til bana í morgun eft-
ir að hann reyndi tvívegis að aka
niður fólk á strætisvagnabiðstöð í
Jerúsalem.
Winnie skammar
Winnie Mandela, fyrrum eigin-
kona Nelsons Mandela, veittist að
stjórn Afríska
þjóðarráðsins í
Suður-Afríku í
gær fyrir að
hygla fyrirtækj-
um 1 landinu á
kostnað millj-
óna svartra fá-
tæklinga. Hún
sagði að mikill
fjöldi kvenna gæti ekki sýnt fram
á bætt kjör eftir fimm ára stjóm-
arsetu svarta meirihlutans. Hún
sagði að konur, einkum svartar,
væra álitnar annars flokks.