Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
Viðskipti
Petta helst: ■■■ Viðskipti á VÞÍ aðeins 336 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 193 m.kr. ... Samherji 71 m.kr.,
lítil hækkun ... íslandsbanki 49 m.kr. ... FBA hækkar um 5,25% í 25 m.kr. viðskiptum ... Lyfjaverslun íslands lækk-
ar um 7,8% ... Básafell hækkar um 14,5% ... Úrvalsvísitala hækkaði um 0,425% og er nú 1.293,7 ...
Betri afkoma ís-
lenskra sjávarafurða
Hagnaður íslenskra sjávarafurða
hf. og dótturfélaga þess nam 38,6
milljónum króna á fyrstu sex mánuð-
um ársins samanborið við 209 millj-
óna tap fyrri hluta síðasta árs. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi nam nú
46,7 milljónum en á sama tímabili á
síðasta ári var tap af reglulegri starf-
semi 317 milljónir. Afkoma af reglu-
legri starfsemi batnar þannig um 363
milljónir króna milli tímabila.
Heildarrekstrartekjur samstæð-
unnar námu nú 14,9 milljörðum
króna á móti 13,4 milljörðum króna á
sama tímabili árið áður og jafngildir
það 11% aukningu milli ára. Tölum-
ar endurspegla þó ekki raunaukn-
ingu á veltu félagsins þar sem um-
sýsluviðskipti hafa dregist saman en
aukning hefúr oröið í beinum kaup-
um afúrða. Afkoma félagsins er i takt
við spár fjármálasérfræðinga.
Betri afkoma dótturfyrirtækja
Mikil umskipti uröu á rekstri
Iceland Seafood Corporation í Banda-
ríkjunum frá fyrra ári og nam tap árs-
ins af reglulegri starfsemi nú 20 millj-
ónum króna samanborið við 388 millj-
ón króna tap á sama tímabili á síðasta
ári. Afkoman hjá Gelmer-Iceland
Seafood í Frakklandi hefur einnig
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
11‘;% Sími: 568 3330
hiip://%v\v\v.\ ortex.is/~skip/
t
Faxafeni 8
*/
ppið: (/
/lánud-fimmtud. 10-18
Föstudaga 10-19
Laugardaga 10-18
Sunnudaga _12 - 17
- afkoma dótturfyrirtækja batnar
batnað og var félagið rekið með 10
milljóna króna tapi af reglulegri starf-
semi á fyrrihluta ársins. í rekstrará-
ætlun er gert ráð fyrir að báðar verk-
smiðjumar verði reknar með hagnaði
á síðari hluta ársins. Hagnaður var af
allri annarri starfsemi samstæðunnar
fyrstu sex mánuði ársins ef undan er
skilið dótturfélagið í Þýskalandi.
Verulegur söluhagnaður
Umtalsverðar eignir hafa verið
seldar á árinu. í júní var gengið frá
sölu Vöruhúss og Þróunarseturs fyr-
ir samtals 305 millj.kr. Nú í ágúst var
gengið frá sölu á skrifstofuhúsnæði
félagsins að Sigtúni 42 og undirritað-
ur var
samning-
ur, sem
endanlega
verður
staðfestur
um miðjan
september,
um sölu á
gömlu
verk-
smiðju ISC
í Pennsyl-
vaníu. Þá
hefur verið
gengið frá
sölu á umbúðalager og að stærstum
hluta á rekstrarvörulager. Samtals
nemur söluverðmæti þessara eigna
einum milljarði króna. Á móti er
áætlað að fjárfesta í nýju skrifstofu-
húsnæði fýrir rúmar 100 milljónir
króna.
Óreglulegar tekjur samstæðunnar
námu 147,8 milljónum króna en þar
af nemur söluhagnaður af sölu Vöru-
húss og Þróunarseturs 140,5 milljón-
um króna. Óregluleg gjöld nema 134
milljónum króna og eru m.a. afskrift-
ir á yfirverði hlutabréfa, áætlað tap á
sölu umbúða- og rekstrarvörulagers
og kostnaður vegna starfslokasamn-
inga. I áætlunum er gert ráð fyrir að
afkoma af reglulegri starfsemi á síð-
ari hluta ársins verði ívið betri en á
fyrrihluta ársins. -bmg
Finnbogi Jónsson,
forstjóri ÍS.
Afkoma Bakkavarar hf. fyrstu 6 mánuði 1999:
Hagnaður nam 41 milljón króna
Hagnaður Bakkavarar og dótt-
urfyrirtækja fyrstu 6 mánuði árs-
ins 1999 nam samtals 41 milljón
króna en allt árið 1998 var hagnað-
urinn 20 milljónir króna Rekstrar-
tekjur samstæðunnar námu 471
miUjón króna samanborið við 719
milljónir króna allt árið 1998.
Veltufé frá rekstri nam 31 milljón
króna en var 78 miUjónir króna
allt árið 1998. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnskostnað var
85 miUjónir króna samanborið við
109 milljónir króna aUt árið 1998.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 41 mUljón króna.
Eigið fé Bakkavarar er nú 779
miUjónir króna og hefur það auk-
ist um 537 miUjónir króna frá árs-
byrjun 1999. Eiginfjárhlutfall er
31% en var 20% í ársbyrjun 1999.
VeltufjárhlutfaU er 1,7.
Aukin umsvif
Fyrstu sex mánuðir ársins voru
viðburðaríkir hjá Bakkavarar-
samstæðunni. Á tímabilinu keypti
Bakkavör sænska fyrirtækið
LysekUs Havsdelikatesser AB og
kemur rekstur þess inn í sam-
Bakkavör hf. í Reykjanesbæ.
stæðu Bakkavarar þann 1. júní.
Umsvif samstæðunnar munu því
aukast verulega seinni hluta árs-
ins þegar rekstur LysekUs Havs-
delikatesser kemur að fullu fram í
samstæðuuppgjöri Bakkavarar.
Bakkavör hf. efndi tU hlutafjár-
útboðs í maí þar sem boðið var út
nýtt hlutafé sem skilaði félaginu
um 500 MKR. Hlutaféð seldist allt
til forkaupsréttarhafa.
Starfsemi félagsins á fyrri helm-
ingi ársins einkennist jafnan af
hráefnisvinnslu en þá fer hráefnis-
öUun félagsins og undirbúningur
þess fram en sú vinnsla skUar að
jafnaði verri afkomu en fuUvinnsla
afurðanna sem fer að mestu fram
seinni hluta ársins.
Mikil vinna hefur verið unnin
við skipulagningu samstæðunnar
á undanförnum mánuðum en
Bakkavör keypti nýlega franska
fyrirtækið Comptoir Du Caviar og
mun sameina starfsemi þess
rekstri Bakkavarar France frá og
með 1. september. Stjómendur fé-
lagsins hafa undanfarið unnið að
framtíðarskipiUagningu samstæð-
unnar með það að markmiði að
fullnýta samlegðarmöguleika félag-
anna og ná fram þeirri hagræð-
ingu sem samvinna þeirra á milli
getur skUað.
-bmg
Aukinn munur inn- og útflutnings
Inn- og útflutningur í milljörðum króna
- fyrstu sex mánuði ársins
Utflutt vara alls
64,0
58,0
fjj
A
W
Innflutt vara alls
65'° 61,0 64>5
80,5
1996
Heimild: ÞjóOhagsstofnun
1997
1998
72,5
83,0
mm
1999
rsra
Síðastliðin tvö ár
hefur vöruskiptajöfn-
uður verið óhagstæður
fyrstu sex mánuði árs-
ins eða um 16 milljarða
í fyrra. Á þessu ári er
því spáð að haUinn
minnki í 10,7 milljarða.
Þetta kemur fram í
frétt frá Þjóðhagsstofn-
un. Heildarverðmæti
innflutnings jókst um
3,6% mUli árshelminga
1998 og 1999 en verð-
mæti útflutnings óx
heldur hraðar eða um
12,5% á sama tímabUi.
Munar þar mest um
veröhækkanir á sjó-
frystum sjávarafurðum
og afurðiun í saltfisk-
verkun. Þrátt fyrir
verðlækkanir á afurð-
um álvinnslunnar jókst heildar-
verðmæti miUi fyrri árshelminga
áranna 1998 og 1999 um 9% sem
helgast af mikUli magnaukningu í
framleiöslu en hún var rúmlega
30%. Á öUu árinu 1998 var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður um
25,5 miUjarða en viðskiptahaUinn í
heild var 33,5 miUjarður. Á grafínu
sést hvemig vöxtur útflutnings
hefur verið meiri en vöxtur inn-
flutnings. Það hefur skUað sér í
auknum mun á inn- og útflutningi.
-bmg
Samruni skilar árangri
Eins og kynnt var fyrir
skömmu munu Stálsmiðjan og
Slippfélagið á Akureyri sameinast
þann 31. ágúst. Þeirri sameiningu
er ætiað að skUa verulegum ár-
angri í rekstri en þó gera félögin
ekki ráð fyrir neinum sýnUegum
árangri fyrr en á næsta ári.
Aukin velta SH
Velta SH-samstæðunnar fyrstu
sex mánuði ársins 1998 var 19,3 millj-
arðar króna á móti 17,3 milljörðum
króna sama tímabU árið á undan og
er veltuaukningin um 11,5%. Þetta
er hins vegar ekki raunaukning á
umsvifum félagsins þar sem aukn-
ing hefúr orðið í beinum kaupum af-
urða í stað umsýsluviðskipta sem
ekki teljast tU eigin veltu. Hagnaður
af reglulegri starfsemi fyrir skatta
jókst um 13% og nam 156 mUljónum
króna. Hagnaður af reglulegri starf-
semi eftir skatta nam 72 mUljónum
króna sem er liðlega tvöfóldun mið-
að við sama tímabU árið 1998. Er
þessi niðurstaða svipuð því sem bú-
ist var við.
Hlutabréfamarkaðurinn hf.
Rekstur Hlutabréfamarkaðarins
hf., Hmarks, gekk vel fyrstu sex
mánuði ársins 1999 en arðsemi eig-
in Qár var 20%. Hagnaður tímabUs-
ins var 38 mUljónir fyrfr skatta og
25 milljónir eftir skatta. HeUdar-
eignir Hmarks voru í júnUok 374
mUljónir. Hlutafé félagsins nam 86
mUljónum og eigið fé alls var 316
mUljónir. TUgangur Hmarks er að
opna einstaklingum, stoöianafjár-
festum og öðrum aðUum greiða og
hagkvæma leið tU að verða þátttak-
endur á hlutabréfamarkaði. Nú
fylgja tveir þriðju hlutar verðbréfa-
eignar Hmarks MSCI-heimsvísitöl-
unni sem Morgan Stanley gefur út,
en sú vísitala mælir ávöxtun í iðn-
ríkjum.
Stálsmiðjan með tap
Á fostudaginn birti Stálsmiðjan
mUliuppgjör. Tap af reglulegri
starfsemi félagsins var 9,3 mUljónir
króna. HeUdartap var hins vegar 22
mUljónir og er mismunurinn vegna
sölutaps hlutabréfa í Landssmiðj-
unni. Þetta er nokkru verri afkoma
en reiknað hafði verið með en félag-
ið sendi þó frá sér afkomuviðvörun
í síðustu viku.
Olíuverð enn hátt
Líklegt er að olíuverð lækki ekki
í bráð eftir að þrír af stærstu olíu-
framleiðendum í heiminum, Sádi-
Arabia, Mexíkó og Venesúela,
ákváðu að viðhalda framleiðslutak-
mörkunum fram í mars á næsta
ári. í kjölfar þessarar yfirlýsingar
hækkaði verð lítUlega á olíu.
Launahækkanir íTékklandi
MikUl uppgangur hefur verið í
mörgum austantjaldslöndum und-
anfarin ár. í Tékklandi hafa nafn-
laun hækkað um 8,6% á einu ári en
raunlaunahækkun er 5,5%. Hag-
vöxtur hefur verið nokkuð góður
þar í landi sem endurspeglar þess-
ar hækkanir. Einkaneysla hefur
aukist í kjölfarið.
Verðlagsstöðugleiki í Evrópu
Klaus Liebscher, stjómarmaður
í Seðlabanka Evrópu, sagði í gær
að vöxtur peningamagns í Evrópu
ógnaði ekki verðlagsstöðugleika.
Vöxtur peningamagns í víðum
skilningi jókst um 5,6% í júlí. Að
mati bankans mun þessi aukning
ekki auka verðbólguþrýsting.
-bmg