Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 DV 23 Helgarblað Lýtaaðgerðir: Amma, af hverju ertu með svona há kinnbein? Rauðhetta átti ömmu sem var ný- komin úr aðgerð. Gamla konan var nógu vel á sig komin líkamlega til að missa plássið sitt á sjúkrahúsinu dag- inn eftir aðgerðina og lá því ein heima í litlu íbúðinni sinni í miðjum Kópa- voginum. Rauðhetta tiplaði upp stig- ann og að dyrunum hjá ömmu gömlu. Hún bankaði. Amma kom til dyra og tók blíðlega á móti henni. Þegar Rauð- hetta leit framan í ömmu sína tók hún eftir breytingu: „Amma, af hveiju ertu með svona há kinnbein?" „Læknavís- indin, bamið mitt, læknavísindin." Amma brosti til litlu stúlkmmar sem rak strax augun í teinréttar tennumar. „Amma, rosalega ertu með réttar tenn- ur.“ „Læknavísindin, barnið mitt, læknavísindin," sagði amma og gekk á undan Rauðhettu inn eftir ganginum og inn í íbúðina. „Viltu kakó, væna?“ spurði amma en beið ekki eftir svari heldur hellti kakóinu í þunga könnu. Þegar amma rétti Rauðhettu könnuna varð stúlkunni starsýnt á áberandi brjósta- skoru ömmu gömlu sem hafði dýpkað nokkuð frá því í síðustu heimsókn. „Amma, af hverju ertu með svona stór brjóst?“ „Læknavísindin, barnið mitt, læknavísindin," sagði amma og rétti henni bækling um lýtalækningar og óútfyllta ávísun. Reiði guðs Læknavísindin hafa fært okkur mikla gæfú þótt alltaf séu einhverjar skuggahliðar. Margir óttast erfðatil- raunir nútimans sem hafa í það minnsta nú þegar fært okkur eina kind - og mundu margir segja að ekki væri á bætandi. Frá upphafl hefur maðurinn í bók- menntum sínum og listum dregið upp svarta mynd af því þegar menn færa sig of nærri sköpunarverki guðs. Eitt frægasta dæmið er saga Biblíunnar af Babelstuminum. Guð refsaði mönnum fyrir bygginguna með því að láta mennina tala ólik tungumál sem skild- ust ekki milli manna. Þekkt er sagan af Frankenstein sem bjó til mann. Það hafði að sjálfsögðu ófyrirsjáanlegar afleiðingar enda daðr- ið við að setja sig í sæti guðs ófyrirgef- anlegt. Líkamsbreytingar og lýtaaðgerðir hafa svo vitað sé ekki kallað reiði guðs yflr lækna og sjúkrahússtarfsfólk. Fólk breytir líkama sínum yfirleitt til að fá útlit sem passar betur við hina nú- tímalegu fegurðarstaðla. Annað fólk gengur lengra - breytir líkama sínum til að fá útlit annars kyns. Athygli hins kynsins í fomum indverskum texta segir frá því þegar gyðjan skiptir um ham: Dag einn stríddi Shiva konu sinni, gyöjunni Parvati, á dökku hörundi hennar og kallaöi hana „hina svörtu“ (Kali) og sagöi aö þegar hörund þeirra mœttust vœri þaö eins og svartur snák- ur sem hringar sig utan um sandelstré. Hún svaraói af þjósti og þau rifust og hrópuöu móöganir hvort aó öóru. Æf af brœöi fór hún burtu til aö öðlast innri hita til aö fá fagurt gulliö hörund. Son- ur hennar litli, Viraka, grátbaö hana um aö fá aó koma meö en hún sagöú „Þessi guð [Shivaj eltir konur þegar ég er ekki hér svo þú veröur aö vakta dyr hans og kíkja í gegnum skráargöt til aö tryggja aö engin kona komist að hon- um.“ Síöar kom guöinn Brahma til henn- ar og veitti henni ósk um aö fá gullinn líkama og veröa hálfur líkami Shiva. Hún hamfletti af likama sínum dökka konu sem hét Kali og fór til fjalla. Parvati, meö sitt gullna hörund (Gauri), fór heim en sonur hennar þekkti hana ekki, stöövaói hana í dyr- Drottning lýtaaögerðanna Cher hefur breyst eilítið í gegnum tíðina. Þar verður ekki aftur snúið. Efrí myndin er eldrí. unum og sagði: „Faróu burt! Þú mátt ekki koma hingað. Sá eini sem má korna hér inn er móðir mín, Parvati, sem elskar son sinn afar mikið." Parvati sagði við son sinn: „ Viraka, ég er móöir þín; ekki veröa ringlaöur. Ekki efast um mig, sonur minn; láttu ekki blekkjast af hörundi mínu og limum: Brahma gaf mér gulliö útlit.“ Gyöjan sneri síðan til Shiva og þau elskuöust í mörg ár. Sögnin hér að ofan á eflaust vel við skoðanir margra á lýtaaðgerðum. Margir telja að fólk láti „laga“ útlit sitt til að vekja fremur athygli hins kyns- ins. Það gekk sannarlega upp hjá gyðj- unni Parvati. Ekki enn. Ekki enn. Ein svakalegasta „lýtaaðgerð" kvik- myndanna síðustu ár er eflaust í myndinni Face/Off þar sem persónur Nicholas Cage og Johns Travolta skiptu um andlit og fleira. Eins og í mörgum skáldverkum tók tæknin á sig fremur óhugnanlega mynd en ólíkt Frankenstein og Babelsævintýrinu fór allt vel að lokum. Áhugi fólks á lýtaaðgerðum er mik- ill, sérstaklega hvað varðar útlitsbreyt- ingar frægs fólks. Við höfum andaktug fylgst með bijóstum Pamelu Anderson ýmist rísa eða hníga; Michael Jackson sjáum við breytast úr sætum svörtum strák í einhvers konar teiknimynda- flgúru; Cher telur fjármunum sínum betur varið í læknishjálp en líkams- rækt og svo mætti lengi telja. Á síðustu árum hefur það færst i vöxt að almenningur leiti til lýtalækna til að breyta útliti sínu. Mest hefur ver- ið rætt um bijóstastækkanir en einnig um brjóstaminnkanir, nefaðgerðir, augnaðgerðir og hærri kinnbein. Líklega verður fólk að fá að ráða því hvað það gerir við líkama sinn. En það er samt gaman að velta því fyrir sér hvort fólk sem hefur látið breyta sér mikið „til hins betra“ eigi enn gömlu fjölskyldualbúmin. Hvort það sé ekki bara vandræðalegt að segja: „Héma var ég tvítugur og ekki búinn að fara í neinar aðgerðir." Verður það kannski svo eftir nokk- ur ár að þegar maður hittir gamla vini/vinkonur á fómum vegi með ung böm sín og segir: „ég get ekki séð að bamið sé neitt líkt þér“, þá svari sá sem er ávarpaður: „Ekki enn. Ekki enn.“ -sm Verð áður Leðursófasett 3+1+1 ___ w Carol....................2&L560^- Sófasett 3+2+1 _______ 1040/1012.................343Æ80Í- Sófasett 3+2 _______ USA 3364.................. 15&420?- > Hægindastóll + skemill w Harlekin..................Ji2«930^ 3ja sæta sófi ____ Sputnik...............> Hornsófi __ w Panama.....................136^40^ Glerskápur _______ Wega sv/kirsuber......__93Æ40Í- '' Hillusamstæða _______ USA........................JJJ690? > Skenkur Modena, kirsuber........122<550^- Veggsamstæða _______ Intens................ Borðstofusett Elements................1$6«44ÖÍ- Borðstofustóll _______ Nicole................._jL5*?70p- Hægindastóll _______ leöur......................J25*WÖ^ > Borðstofusett + skenkur + _______ skápur Millwood, USA..393ÆWJÍ- ‘ Kommóða _______ Zilo..................„28^7> Kommóða ________ Selecta....................J2460Í- > Svefnsófi , Jupiter............... Höfðagafl _______ Cairo180sm....................90^- > Náttborð _______ Cairo.....................J!5r?70^ > Höfðagafl + náttborð Sabrina.................__JJ«640Í- > Rúm ___ hvítt 105 sm.............J3i84Q|- Rúm + dýna Savoy 180 sm............_Ji6«98OJ- > Bókahilla . Mahogny 80 sm...........__J3rT2ö^- > Skrifborðsstóll _____ Oxford...................J18.860Í- > Skrifborð , . USA........................^&L390? > Höfðagafl v Twin Islamarada 97 sm.__J5«170ý- Fataskápur ____ Flex breidd 200 sm......_J9«94OJ- Tölvuborð _______ Jack...................... ^9J980? > Verð nú 130.000,- 130.000,- 108.890,- 25.170,- 48.840,- 99.000,- 27.000,- 33.330,- 73.530, - 68.890,- 116.510,- 10.980,- 37.530, - 273.930,- 16.990,- 22.870,- 22.870,- 4.860,- 6310,- 35.820,- 20.300,- 40.200,- 7.870,- 15.090,- 45.070,- 10.620,- 39.950,- 5.990,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.