Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 Aðalfundur Íslandsbanka-FBA hf. Aöalfundur Íslandsbanka-FBA hf. áriö 2001 verður haldinn í Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu mánudaginn 12. mars 2001 og hefst kl. 14.00. Dagskrá 1. Aöalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á hlutabréfum í Íslandsbanka-FBA hf. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningar félagsins fyrir árið 2000 verður hluthöfum til sýnis í höfuðstöðvum bankans aó Kirkjusandi, Reykjavík, frá og meó mánudeginum 5. mars 2001. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út mánudaginn 5. mars næstkomandi kl. 14.00. Framboðum skal skila til skrifstofu forstjóra, Kirkjusandi. Atkvæðaseðlar og aögöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað, Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu frá kl. 12.00 á fundardegi, mánu- daginn 12. mars næstkomandi. 1. mars 2001 Bankaráð Íslandsbanka-FBA hf. ÍSLANDSBANKIFBA Helgarblað ÐV DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR Rui Horta „ Upphafið er í vatninu; móöurkviðurinn er líka fullur af vatni. Sjálf erum viö að stórum hluta vatn; eins og plastpoki fullur af vatni. Þar kemur tengingin við nafn sýningarinnar Pocket Ocean: hafið er innra með okkur. “ íslenski dansflokkurinn frumsýnir í kvöld tvö ný verk: Danshöfundurinn er eins og raðmorðingi „Danshöfundurinn er eins og raðmoröingi." Hljómar einkennilega en þetta eru orð Rui Horta um dans- höfundinn. Þessi orð þarfnast útskýr- ingar og ekki stendur á þeim hjá Rui Horta: „Raðmorðingi getur fengist við hroðalega iðju sína í mörg ár án þess að komist upp um hann. Rannsakend- ur þekkja verksummerki hans betur og betur eftir því sem voðaverkin verða fleiri. Þeir safna upplýsingum af vettvangi og smám saman raða þeir BUNAÐARBANKI ISLANDS H F Aðalfundur 2001 Súlnasal Hótel Sögu 10. mars kl. 14:00 Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár. n Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram. Q Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári. Tillögur til breytinga á 21. og 22. gr. samþykkta er varða fækkun bankastjóra úr þremur (tvo. fjþ Kosning bankaráðs. Kosning endurskoðanda. Q Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna. Tillaga um heimild bankaráðs til kaupa á eigin hlutum í bankanum, sbr. 55. gr. hlutafélagalaga. Tillaga um framlag í Menningar- og styrktarsjóð Búnaðarbanka íslands hf. Tillaga um stofnun sjóðs skv. 103. gr. hlutafélagalaga. Önnur mál. Fundargögn liggja frammi á skrifstofu bankastjórnar. ® BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF saman myndinni af morðingjanum. Eins er það með danshöfundinn; áhorfendur kynnast honum aldrei beint heldur raða þeir í huga sér sam- an brotunum sem hann gefur þeim með hverju verki, hverri sýningu." Hafið innra með okkur Rui Horta er staddur hér á landi um þessar mundir en í kvöld frum- sýnir íslenski dansflokkurinn verk hans, Pocket Ocean, og einnig verk Jo Stromgren, Kraak Een Kraak Twee. Rui Horta er ekki ókunnur íslenskum dansheimi því áður höfum við fengið að njóta verka hans, Diving og Flat Space Moving. Rui segir að íslending- ar séu einkennileg þjóð. Rui segist leggja mikið upp úr heildaráhrifum sýninga á áhorfand- ann. Þess vegna er hann ekki einung- is með dansinn á sinni könnu heldur einnig lýsingu og sviðsmynd. Og oftar en ekki er að finna vatn á sviðinu í verkum hans. Hann er portúgalskur og ólst upp við hafið; það skemmtileg- asta sem hann gerði sem barn var að fara á ströndina og synda. Síðar varð hann atvinnumaður í sundi og keppti á stórmótum. „Ég var ekki einn af þeim stóru í sundinu en í Portúgal þótti ég ágæt- ur,“ segir Rui hógvær. „Vatnið er mér mjög hugleikið. Vatnið er stór hluti af umhverfí okkar og okkur sjálfum. Hversu oft heyrum við ekki spurning- una um hvort vatn sé á Mars? Forsendan fyrir lífi er vatn. Okkur er lífs- nauðsynlegt að drekka vatn. Þegar vinnudegi lýkur þykir okkur gott að fara í sund eða í bað. Upp- hafið er í vatninu; móður- kviðurinn er líka fullur af vatni. Sjálf erum við að stórum hluta vatn; eins og plastpoki fullur af vatni. Þar kemur tengingin við nafn sýningarinnar Pocket Ocean: hafið er innra með okkur.“ í skamman tíma var Rui við nám í arkitektúr. Hann viðurkennir að kannski blundi enn í hon- um arkitekt. Á heimili hans eru nær einvörð- ungu bækur um arki- tektúr og hann er gesta- kennari í háskólanum í Bourge í Frakklandi. Það er þvi ekkert skrýtið aö hann vilji ráða sviðs- myndinni líka. „Ég er líklega dæmi um öfgamar. Ég vil ráða heildaryfirbragði sýning- arinnar." Rui Horta semur þó ekki tónlist við verk sín. „Ég læt það alveg vera. Ég fæ tónlistarmenn til að semja tón- listina og safna einnig saman tónlist fyrir verkin." Áframhaldandi sköpun í klassíska dansinum em til orð yfir minnstu hreyfingar dansaranna og því er hægt að lesa dansa klass- ískra verka eins og nótnabækur. Nú- tímadansinn er gjörólíkur þeim klass- íska að þessu leyti. Danshöfundar not- ast mikið við eigið minni og videó- tökuvélar. Rui segir að hann leggi ekki mikið upp úr því að safna eigin verkum og halda nákvæma ferilskrá. „Sýningarnar lifa í minninu sem einstakir atburðir. Að mér liðnum er þó hægt að flnna einstök verk á mynd- böndum." Ef hægt er að tala um dans sem tungumál, sem margir gera, þá mætti eflaust líkja klassíska dansinum við morse-kerfið þar sem öll merking er niðurnegld með nákvæmum skil- greiningum. Dansinn er flókið form og margrætt. „Samspil danshöfundarins og dans- arans er mjög mikilvægt. Dansarinn er eins konar framlenging á höfundin- um. Hann er hluti af sköpuninni og gefur verkinu aukið líf. Það skemmti- lega við dansinn er einnig að hann er margræður og sköpunin heldur áfram í túlkun áhorfandans. Eftir sýningu kemur margræðnin í ljós í ólíkri túlk- un hvers og eins.“ -sm Pocket Ocean „Samspil danshöfundarins og dansarans er mjög mikilvægt. Dansarinn er eins konar framlenging á höfundinum. Hann er hluti af sköpuninni og gefur verkinu aukið líf. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.