Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Side 17
16
25
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla. áskrift:
Þverholti 11, 105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjöimiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverö 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Rœtur kynþáttahaturs
Eftir ósigra í Burgenlandi og Styriu í fyrra hefur kyn-
þáttahatursflokkur Jörgs Haider enn tapað í héraðskosn-
ingum í Austurríki, í þetta sinn i Vínarborg, þar sem fylg-
ið fór úr 28% niður í 20% um helgina. Saman er þetta
þrennt visbending um, að sóknin hafi stöðvazt.
Svipað hefur verið að gerast í ýmsum öðrum löndum
Vestur-Evrópu. Kynþáttahatarar i Noregi hafa átt í erfið-
leikum að undanförnu. Flokkur þeirra í Frakklandi hefur
klofnað og tapað fulltrúum í kosningum. í Danmörku hef-
ur ílokkur þeirra ekki náð neinu flugi enn.
Annars staðar eru þetta víðast hvar áhrifalausir smá-
flokkar á jaðrinum. Óeðlilega háar fylgistölur í Austurríki
benda til, að þar séu sérstakar aðstæður, sem séu víti til
að varast. Oftast hefur samanburðar verið leitað við
Þýzkaland, þar sem kynþáttahatarar fá lítið fylgi.
Eftir síðari heimsstyrjöldina hreinsuðu Þjóðverjar sig
af nazismanum og Hitler, voru einlægir í sinni yfirbót og
voru á þeim grundvelli teknir inn i samfélag vestrænna
þjóða. Austurríki, föðurland Hitlers, gerði hins vegar enga
yfirbót á virkri aðild sinni að nazismanum.
Síðan gerðist það á síðasta áratug tuttugustu aldar, að
flóttamenn frá styrjöldum og fjöldamorðum Balkanskaga
flúðu hópum saman norður til Austurríkis, þar á meðal
mikill fjöldi múslíma, sem skera sig á ýmsan hátt úr aust-
urrísku þjóðfélagi, til dæmis í klæðaburði.
Ætla hefði mátt, að Austurríkismenn væru vanir fjöl-
breytni í háttum og siðum, því að landið er afgangur af
fyrstu tilrauninni frá tímum Rómarveldis til að búa til
fjölþjóða stórveldi með virkri þátttöku margra þjóða, svo
sem Ungverja, Tékka, Slóvena og Feneyinga.
En munurinn er sá, að hinar mörgu þjóðir keisaradæm-
is Habsborgara i Vínarborg sameinuðust allar í kaþólskri
trú. Þótt alls konar og ólik tungumál hafi öldum saman
verið töluð á götum borgarinnar, var fólkið allt af sama
menningarheimi hins heilaga keisaradæmis.
Hinir nýju innflytjendur í Vínarborg fylgja hins vegar
margir grisku kirkjunni, sem ræður ríkjum i Serbiu og
enn fleiri játa trú á Allah, sem er við völd í Bosníu og
Kosovo. Þeir koma af svæðum, sem öldum saman til-
heyrðu öðru stórveldi, soldánsins í Miklagarði.
Reynslan sýnir, að fólk á tiltölulega auðvelt með að
samlagast innan menningarheima, en lendir í vanda, ef
það flytur milli þeirra. Þannig eiga allar vesturkristnar
þjóðir auðvelt með að taka sameiginlega þátt í vestrænu
lýðræði. Pólverjar samlagast til dæmis íslendingum.
Fólk frá menningarheimi íslams flytur hins vegar með
sér önnur sjónarmið, þegar það kemur til Vesturlanda og
á erfitt með að laga sig að vestrænum háttum. Til dæmis
er staða múslímskra kvenna svo miklu veikari en vest-
rænna, að það jaðrar við lögbrot á Vesturlöndum.
Eðlilegt er, að vestrænar þjóðir vilji ekki samþykkja, að
sumir hættir múslíma flytjist með þeim. Þannig hafa
Frakkar reynt að tyrkneskri fyrirmynd að banna andlits-
slæður stúlkna og kvenna í skólum. Mál af svipuðu tagi
eru farin að koma upp hjá hótelkeðju í Noregi.
Að vestrænni sýn er slæðan tákn um undirgefni
konunnar og er þannig opinber yfirlýsing, sem stangast á
við grundvöll vestræns lýðræðis, jafnrétti kynjanna. Að
mati múslíma eru opinber afskipti af slæðum hins vegar
dæmi um menningarlegt ofbeldi stjómvalda.
Þverstæðan í öllu þessu er, að það er ekki ímyndaður
líkamlegur munur kynþátta, sem veldur mestum vanda,
heldur raunverulegur munur menningarheima.
Jónas Kristjánsson
+-
-F
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
DV
Skoðun
Bush beygir til hægri
Ekki er sjáanlegt af orð-
um eða gerðum Bush
Bandaríkjaforseta að hann
hlaut færri atkvæði en A1
Gore og varð aðeins forseti
vegna íhlutunar Hæstarétt-
ar Bandarikjanna og þá
með atkvæðum dómara
sem faðir hans skipaði.
Hann lætur þvert á móti
sem hann hafi umboð þjóð-
arinnar til víðtækrar
stefnubreytingar innan-
lands og utan og vill nýta
sér meirihluta repúblíkana
í fulltrúadeildinni og oddaatkvæði
Cheneys varaforseta í öldungadeild-
inni til að koma málum fram. Ekki
eru nema tveir mánuðir liðnir síðan
hann tók við, en línurnar í stefnu
hans eru að koma i ljós.
Honum hefur þó geflst tími til að
snúa við stefnunni í umhverfismál-
um og fara i einu og öllu að óskum
þeirra risayrirtækja sem lögðu mest
fé í kosningasjóöi hans, þ.á m. kola-
námu- og olívinnslufyrirtækja sem
ekki þurfa lengur að óttast skakka-
fóll vegna mengunarreglugerða. Til
dæmis er nú leyfilegt að hafa allt að
10 þúsund sinnum meira arsenik í
Gunnar
Eyþórsson
blaöamaöur
drykkjarvatni en Clinton
stefndi að sem er þessum
fyrirtækjum í hag. Ekki
verða settar hömlur á losun
gróðurhúsaefna sem þó var
eitt af kosningaloforðum
Bush. Sett verða ný lög um
gjaldþrot og greiðslustöðvan-
ir, sem greiðslukortafyrir-
tækin hafa mestan hag af. -
Hagsmunir fyrirtækja ganga
fyrir gagnvart almenningi.
Kauphallarhrun
Verðhrunið á bandariska
verðbréfamarkaðnum undanfarið er
opinberlega sagt aðallega stafa af
óraunhæfum væntingum til nýrra
net- og hátæknifyrirtækja. En verð á
verðbréfamarkaði endurspeglar hug-
arfar kaupenda, hvort þeir eru bjart-
sýnir á framhaldið eða ekki. Sam-
dráttur í efnahagslífinu er ekki síður
af huglægum orsökum en fjármála-
legum. Þar sem um helmingur
Bandaríkjamanna á nú verðbréf má
segja að verðþróunin nú endurspegli
væntingar almennings um framtíð-
ina. Hvort sem það er rökrétt fram-
hald eða ekki verður ekki fram hjá
því litið á pólitískum vettvangi að
niðursveiflan hófst svo til alveg
á sama tíma og Clinton lét af
embætti.
Með réttu eða röngu er Bush
nú þegar órjúfanlega samtvinn-
aður núverandi og sívaxandi
samdrætti í efnahagslífinu.
Þetta er þeim mun meira áber-
andi að í stjórnatíð Clintons,
sem repúblíkanar hata eins og
pestina, var uppgangurinn nær
órofinn og hagur almennings
með meiri blóma en nokkru
sinni fyrr. Bush segir að þetta
séu rök fyrir stórfelldri skatta-
lækkun sem mun reyndar ekki
koma til framkvæmda á þessu
ári og ekki að fullu fyrr en 2006
og þá ná mest til auðmanna.
Demókratar segja að hann
stefni ríkissjóði í hallarekstur á
ný og framtíð almannatrygg-
inga og niðurgreiðslna í heil-
brigðisþjónustu sé í hættu.
Þetta verður prófsteinnin á efnahags-
stefnu Bush þegar þingið afgreiðir
málið.
Utanríkismál
Bush á það semeiginlegt með
bandarískum almenningi að vera
„Samdráttur í efnahagslifinu er ekki
síður af huglœgum orsökum en fjár-
málalegum. Þar sem um helmingur
Bandaríkjamanna á nú verðbréf má
segja að verðþróunin nú endurspegli
væntingar almennings um framtíðinad
áhugalaus og fáfróður um umheim-
inn. Hann virðist enn bundinn í hug-
arfjötra kalda stríðsins og leitar að
óvinum, m.a. í Kína. Hann hyggst
selja fullkominn vopnabúnað til Taí-
vans, sem er bein ögrun við Kín-
verja, en fyrst og fremst er það
Ríður Sjónvarpið tungunni að fullu?
Listamenn eru til alls vísir, þeirra
atvinnugrein er sú eina þar sem enn-
þá ríkir frelsi. Þeir eru ekki háðir
reglubákni eða eftirlitsstofnunum,
hjá þeim ræður sköpunin auk agans
og færninnar sem þeir tileinka sér.
Þeir vilja ná til áhorfendanna, þeir
nota oft brellur til þess, þeir tala
stundum útlendum tungum. Lista-
mennirnir eru óútreiknanlegir, þeir
eru bestir þannig. Öðru máli gegnir
um ríkissjónvarpið; það er best þeg-
ar það er á íslensku, áhorfendur þess
eru íslenskir.
Hverfandi íslenskt efni
Stofnun ríkisútvarpsins varð á
sinum tíma til þess að stækka notk-
unarsvið íslenskunnar, eftir nærri
sjö alda tvísýnan bardaga við evr-
ópskt skrifflnnamál. Þegar ríkissjón-
varpið fór svo af stað vonuðu menn
að sjónvarp landsmanna sjálfra
myndi flytja gott og íslenskt efni og
verða framvörður íslenskrar tungu
og menningar. En lítið virðist ganga
að framleiða islenskt, leikið afþrey-
ingar- og menningarefni í sjónvarp-
ið. Lengi var mikiö af barnaefninu
framleitt hér, fyrir um hálfum ára-
tug var um fjórðungur íslenskt. Nú-
orðið varla einn tuttugasti.
Gerviafþreying á útlensku
Það mætti halda að enska sé aðal-
tungumál landsmanna. Megnið af af-
þreyingarefninu í ríkissjónvarpinu
er á ensku. Það er ekki hægt að sjá
„Krákkamir eru famir að segja hvert öðru brandara á
ensku; sjónvarpið er svo áhrifamikið að það mótar talsmáta
áhorfendanna. Hvemig œtli ástand íslenskunnar vœri ef DV
og Morgunblaðið væm líka að mestu leyti á ensku?“
að það sé framvörður ís-
lenskrar tungu sem menn
setjast fyrir framan á kvöld-
in. Menn fá á skjáinn
bandariskan þátt um ein-
hverja sorapeyja, eða
Sopranos, annað kvöldið
einhvers konar gerviklám,
eða Beðmál í borginni,
þriðja kvöldið ofbeldisþátt.
Mestallt talað á ensku.
Krakkarnir eru famir að
segja hvert öðru brandara á
ensku; sjónvarpið er svo
áhrifamikið að það mótar
talsmáta áhorfendanna. Hvernig ætli
ástand íslenskunnar væri ef DV og
Morgunblaðið væru líka að mestu
leyti á ensku?
Auövelt að taisetja
Það er ekkert þvi til fyrirstöðu að
fá íslenska leikara til að tala þýðingu
inn á gott, erlent, leikið afþreyingar-
efni (þetta gera Þjóðverjar og Spán-
verjar). Islensk talsetning teikni-
mynda hefur stundum tekist mjög
vel. Kostnaðurinn er herkostnaður
landsmanna til eflingar og útvíkkun-
ar notkunarsviðs íslenskunnar. Fé
úr ríkissjóði yrði betur varið í þetta
en margt annað, það færi ekki úr
landinu heldur til innlendrar at-
vinnusköpunar. Það mætti sleppa lé-
lega erlenda afþreyingarefninu,
spara með því að afpanta sorapeyj-
ana og gerviklámið, en eyða fénu í
að tala islensku inn á færri og betri
erlenda afþreyingarþætti.
Ríkisafþreyingarsjónvarp óþarft
Aðstæöur hafa breyst síðan sjón-
varpið var stofnað. Nú býðst afþrey-
ing, fréttir og jafnvel menningarefni
á öðrum íslenskum sjónvarpsstöðv-
Friðrik
Daníeisson
efnaverkfræðingur
um sem og erlendum,
spóluleigur eru um allt,
flóðið er nærri ótakmarkað.
Það er því ekki lengur þörf
fyrir ríkisrekið afþreying-
arsjónvarp með efni sem er
almennt aðgengilegt aiinars
staðar. Það sem eftir er af
þörfinni fyrir ríkissjón-
varpið er menningarhlut-
inn; tilveruréttur íslensks
ríkissjónvarps byggist á
þörflnni fyrir að halda ís-
lenskri tungu og menningu
lifandi. Það er reyndar
grundvöllurinn fyrir tilveru sér-
stakrar þjóðar hér á eyjunni.
Inn með íslenska leikara
Ríkissjónvarpið getur orðið mikil
þróunarmiðstöð listamanna sem
vinna með íslenskuna. Sandkassi ný-
sköpunar í tungumáli sem á efnivið
til listsköpunar sem fá önnur mál
eiga. Það eru til í landinu leikhópar,
félög og kvikmyndafyrirtæki, góðir
listamenn sem vinna með íslensk-
una. Það eru þeir sem eiga að búa til
efnið fyrir ríkissjónvarpið, þar á
meðal afþreyingarefnið.
Að sjálft ríkissjónvarp íslendinga,
eigandi hinnar sígildu menningar-
tungu Norðurálfu, skuli láta sér
detta í hug að senda megnið af
skemmti- og afþreyingarefninu, og
jafnvel menningarefni, á öðrum mál-
um en íslensku, er hin mesta hneisa.
Það má ekki fréttast til nágranna
okkar sem styðja landið og lands-
menn vegna þessarar menningararf-
leifðar. - Það yrðu fleirum en íslend-
ingum vonbrigði ef tungumálaglund-
ur ríkissjónvarpsins riði íslenskri
tungu að fullu.
Friðrik Daníelsson
áhersla hans á elflaugavarnir
sem mælist illa fyrir, ekki að-
eins í Kína heldur hvarvetna.
Þetta er skylt stjörnustríðsáætl-
un Reagans sem Bush segir að
eigi að beinast gegn löndum á
borð við írak og N-Kóreu. Kín-
verjar eiga nú fá kjarnavopn ög
örfá flugskeyti.
Nái þessi áætlun fram mun
það knýja Kínverja út í gereyð-
ingarvopnakapphlaup því að
fyrirhugaðar eldflaugavarnir
mundu gera núverandi fæling-
armátt þeirra að engu. Bush vill
þjarma enn að írak og styðja
ísrael í öllu. Hann segist vera
fylgjandi fríverslun, sem var
meginstoðin í utanríkisstefnu
Clintons, en hikar við að hleypa
Kínverjum inn í WTO. Hann
horfir aftur á bak en ekki fram.
Sagt er að Bush sé maður sem
ómögulegt sé að líka illa við per-
sónulega. Út á það fór hann í forseta-
framboð sem snerist svo upp í feg-
urðarsamkeppn,i milli hans og Gore
þar sem stefnumál hurfu í skuggann.
Stefnan skiptir máli og við hana er
auðvelt að mislíka.
Gunnar Eyþórsson
Ummæli
Aö hætti strútsins
„Skuldasöfnun
> okkar erlendis er
j ógnvekjandi í kjölfar
" þráláts viðskipta-
halla en hann er
ekki aðallega vegna
arðbærra fjárfest-
inga fyrir framtíð-
ina. Hver flögurra manna flöl-
skylda skuldar umfram eignir í út-
löndum um 6 milljónir. Skuldir
heimilanna við innlendar lána-
stofnanir hafa meira en tvöfaldast á
síðustu þremur árum. Vaxtakostn-
aður er að sliga heimilin og fyrir-
tækin en ríkisstjórnin stingur höfð-
inu í sandinn að hætti strútsins."
Ágúst Einarsson í nýjasta
vefpistli sínum
Sjálfstraust
og öryggi
„Afmæli vamar-
samningsins við
Bandaríkin og sér-
staða hans bæði fyr-
ir okkur og Banda-
ríkjamenn ætti að
verða hvati til að
ræða um utanríkis-
og öryggismál okkar í víðara sam-
hengi en aðeins með hliðsjón af
Evrópuþróuninni. Við höfum frá
því að ísland varð lýðveldi ekki átt
nánara samstarf við nokkra aðra
þjóð en Bandaríkjamenn og reynsla
okkur af því hefúr eflt með þjóðinni
sjálfstraust og sjálfsöryggi í sam-
skiptum við allar þjóðir."
Björn Bjarnason
á nýjasta vefpistli sínum.
Spurt og svarað
Lúðvik Bergvinsson
þingmaður Samfylkingar.
„Skýrsla
Rannsókn-
arnefndar
flugslysa
um Skerja-
flarðarslysið
veltir upp
áleitnum
spumingum
um flugöryggi sem brýnt er
að fá svör við. Því höfum við
fulltrúar Samfylkingar í sam-
göngunefnd Alþingis óskað
eftir fundi í nefndinni þar
sem þetta mál yrði tekið sér-
staklega fyrir. Þar gæfist
nefndarmönnum færi á því
að spyrja fulltrúa í rannsókn-
Er eftirlit med innanlandsflusi í molum?
arnefndinni beint, auk þess
að fá að beina fyrirspumum
til flugmálastjóra og sam-
gönguráðherra. Þær spurn-
ingar sem einkum brenna á
okkur snúast um eftirlits-
þáttinn í málinu og hvers-
vegna reglugerð sem herða
átti á honum var frestað árið
1998 og ítrekað síðan. Ég tel
að margt bendi einmitt til
þess aö eftirlit með innan-
landsfluginu sé ekki sem
skyldi og þá ekki síst þegar
um mikla flutninga er að
ræða á skömmum tíma,
einsog til dæmis milli lands
og Eyja um þjóðhátíð um
verslunarmannahelgina ár
hvert.“
Jón Grétar Sigurðsson
Flugfélaginu Jórvik.
„Á undan-
fomum ár-
um hafa ver-
ið gerðar
miklar
breytingar á
öllum þeim
reglum sem
snúa að flug-
rekstri. Ég segi ekki endilega
að reglumar hafi verið hert-
ar, en þær hafa hinsvegar
breyst og þýða meira gæða-
eftirlit og skipulagðari vinnu-
brögð manna. Ýmsir þættir
þessara reglna hafa þegar
tekið gildi, en aðrir munu
gera það í haust. Það er jafn-
ljóst að gæði þjónustunnar
þurfa að aukast annarsstað-
ar, það er ekki bara hjá flug-
rekendum. Flugöryggissvið
Flugmálstjómar mætti til
dæmis standa sig betur, sér-
staklega með tilliti til jafn-
ræðisreglna gagnvart flug-
rekendum þannig að allir
sitji við sama borð. Þótt
rekstur flugfélaganna hafi
verið erfiður nú síðustu árin
tel ég að öryggi flugfarþega
hafi ekki verið ógnað, enda
hafa flugrekendur gert við-
hald og eftirlit að forgangsat-
riði í öllum sínum rekstri og
svo verður lika að vera, regl-
um samkvæmt. Öryggið er
alltaf í fyrirrúmi."
Sigurður Karlsson
einkaftugmadur.
„Það litla
sem ég hef
þekki tfl at-
vinnuflugs-
ins hér inn-
anlands þá
hef ég talið
að eftirlitið
með því sé i
ágætu lagi. Hinsvegar blasir
sú sorglega staðreynd ævin-
lega við að hversu mikið eft-
irlit er með hlutunum munu
óhöpp áfram verða í öllu okk-
ar mannlega bjástri. Skiptir
þá engu hvort við fljúgum,
keyrum, ríðum hrossi eða
ferðumst á postulunum
. AN
Og skattar þessa lítla gríss
voru lcekkaðir...
Reyndar voru skattar allra
litlu grísanna lœkkaðir!!
Á eðlilegum
fermingaraldri
Líkast til hefur hann
verið kirfilega konfirmer-
aður á sínum tíma, sá ágæti
maður sem vildi á dögun-
um vinna milljón í sjón-
varpinu og lenti þar í mikl-
um hremmingum þar sem
hann var ekki alveg með
það á hreinu hvað postul-
arnir hefðu verið margir.
Og svo sem engin ástæða til
að ætla að viðkomandi hafi
verið fermdur upp á faðir-
vorið í denn því ýmislegt
glatast jú og gleymist sem
inn í hausinn treðst á lífsleiðinni og
nokkrir postular þar ekki undan
skOdir.
Hins vegar má æOa að ungmenn-
in, sem þúsundum saman láta taka
sig 1 kristinna manna tölu á næstu
vikum og mánuðum, séu með post-
ulatylftina á hreinu, sem og ýmsar
aðrar staðreyndir sem tengjast krist-
inni trú, þó óvíst sé auðvitað hvað
mikið af uppfræðslunni festist á
þerriblaði hugans og hve lengi það
varðveitist. Það er aftur á móti afar
ólíklegt að þorri þessara 14 ára ung-
menna sem nú hyggjast staðfesta þaö
heiti sem gefið var fyrir þeirra hönd
Jóhannes
Sigurjónsson
s krifar
í skírninni hafi fuOan skiln-
ing á eðli guðdómsins og
hvað það felur í sér að gera
Jesúm Krist að leiðtoga lífs
síns.
Kjörtímabiliö
Þar liggur náttúrlega ef-
inn. Og segin saga að þegar
líður að páskum ár hvert
fara ýmsir kverúlantar að
efast opinberlega um að 14
ára unglingar búi yfir þeim
þroska, skilningi og ábyrgð-
artilfinningu sem hlýtur að
teljast nauðsynleg þegar menn vinna
heit fyrir lífstíð. Þannig hefur
margoft verið bent á að 14 ára böm-
um er ekki treyst tO þess að aka bif-
reiðum; þau hafa ekki heimOd tO
þess að kaupa eða drekka vín; þau
em ekki flárráða og þeim er ekki
heldur treyst tO þess að taka póli-
tískar ákvarðanir í kosningum.
14 ára ungmennum er sem sé ekki
treyst tO þess að kjósa á mOli Davíðs
eða HaOdórs tO flögurra ára en þau
eru talin hafa þroska tO þess að
kjósa sér Jesúm að leiðtoga tO lífstíð-
ar og hafna Satani fyrir sama kjör-
tímabO.
Gjafir og græjur
Þessar staðreyndir eru auðvitað
höfuðástæða þess að ýmsir vOja
hækka fermingaraldurinn upp í
17-18 ár og benda réttOega á marg-
ir vitkast með aldrinum og meiri
líkur eru á því að 18 ára unglingar
taki ábyrga ákvörðun en 14 ára
böm. Þetta er þó auðvitað ekki ein-
hlítt.
Það er hins vegar alveg spuming
hvort þetta skiptir yflrleitt nokkru
máli. Því fyrir flestum er guðdóm-
urinn, hinn þríeini guð, meyjar-
fæðingin, fórnardauðinn á krossin-
um og aðrir aðskOjanlegir leyndar-
dómar trúarinnar með öll uóskOj-
anleg fyrirbæri og býttar engu
hvort um er að ræða 4 ára, 14 ára
eða 44 ára einstakling. Og raunar
eins víst að 4 ára bam sé á vissan
hátt nær guödómnum en hinir
eldri.
Vegir guðs era, eins og þar
stendur, órannsakanlegir. Og það
stendur áfram óhaggað þótt ferm-
ingaraldurinn hækki og ungmenn-
in fái að pæla þremur árum lengur
í óhöndlanlegum kjama trúarinn-
ar á meðan beðið er eftir gjöfunum
og græjunum.
tveimur. Með öOum tOtækum
ráðum verðum við aö forðast
slysin og berjast gegn þeim,
en hafa þó í huga að fullnað-
arsigur i slíkri baráttu er
sorglega langt undan. Þeirri
staðreynd vOja menn oft
gleyma og telja að eftirlitið
eitt leysi aOan vanda. Hvað
snýr að einkafluginu þar sem
ég þekki best tO þá tel ég að
skoðun og eftirlit með þess-
um litlu vélum sé í góðu
standi - en einkaflugið er þó
Olu heOli að minnka sökum
þess hve dýrt áhugamál þetta
er. Þeir sem helst fljúga nú
eru flugnemar að safna sér
tímum vegna atvinnuflug-
náms.“
Raddir um þetta heyrast í kjölfar skýrsiu Rugmálastjómar um Skerjafjaröarslysiö
4-
+