Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
35
DV
Tilvera
■ mAmmmm
Quentin Tarantino
38 ára
Kvikmyndaleikstjór-
inn Quentin Tarantino
verður 38 ára í dag.
Tvær fyrstu kvikmynd-
ir hans, Reservoir Dogs
og Pulp Fiction, hafa haft mikil áhrif á
gerð sakamálamynda á síðustu árum.
Tarantino, sem segist aldrei hafa ætl-
að að vinna við neitt annað en kvik-
myndir, vann sem afgreiðslumaður á
myndbandaleigu þegar hann fór að
safna fyrir Reservoir Dogs. Tarantino
hefur, auk þess að leikstýra eigin
myndum, leikið í kvikmyndum og
skrifað handrit fyrir aðra.
Gildir fyrir miövikudaginn 28. mars
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
>Þú hugsar til liðins
tíma og einhvers sem
hefur misheppnast.
Hætt er við að það
valdi þér angri. Gættu þess að það
skaði ekki sjálfstraust þitt.
Rskarnlr(19 febr.-20. marsl:
Hegðun annarra hefur
. áhrif á þig. Nú
er betri tími til fram-
kvæmda en áætlana-
gerðar í hagnýtmn málum. Happa-
tölur þínar eru 7,13 og 35.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
. Menn eru hjálpsamir
'og vingjamlegir en þú
gætir orðið fyrir gagn-
rýni. Þú tekur það
nærri þér. Smáuppörvun væri næg
til að þú tækir gleði þína á ný.
Nautlð (20. apríl-20. maíl:
Þú gleðst innilega þeg-
> ar þú uppgötvar að
eitthvað sem þú óttað-
ist var ástæðulaust. Þú
ert óþarflega svartsýnn í dag.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
V Þú þarft að gera það
/7*'besta úr hlutunum.
Einhver þér nákominn
hefur gert mistök.
Smámálin þarfhast líka athygli.
Krabbinn (22. iúní-22. iúffl:
Eitthvað fær þig til að
| bregða út af vananum
' og er það af hinu góða.
Ekki er von á neinum
stórkostlegum framförum.
Liónið (23. iúlí- 22. ágúst):
Þú ert mjög móttæki-
legur fyrir nýjum hug-
myndum, sérstaklega
þeim sem gætu haft
ávinning í for með sér.
IVIevlan (23. áeúst-22. sept.i:
Áhrif sem þú verður
fyrir leiða til persónu-
legra framfara. Þú
færð tækifæri til að
bæta fjárhag þixm allverulega.
Hafðu augun opin.
Vpgin (23. sept.-23. okt.>:
Þú hefur mjög mikið
að gera og hefur minni
tíma fyrir sjálfan þig
en þú hefur haft.
Hafðu gætur á buddunni. Þú færð
uppörvandi fréttir af vini þínum.
Sporðdreki (24. okt.-2t. nóv.l:
Rómantikin gerir vart
við sig. Giftir eiga góð-
ar stundir saman.
Ekki er rétt að vera
með allt of mikla stjómsemi.
Bogamaður (22. nóv.-2i. des.):
- .Þér líður best með fólki
rsem þú þekkir vel. Þú
átt í einhverjum erflð-
leikum með samskipti
við þá sem þú þekkir lítið. Happa-
tölur þinar eru 8, 22 og 31.
Steingeitln (22. des.-19. ian.l:
Þú ert undir einhverju
álagi sem þú hefur ekki
verið undir áður. Þú
bregst skjótt við fréttum
sem.þú færð. Ekki láta neitT uppi
urn persóriul'egár áæfláhír'þinaV.
Rúsínan í pylsuendanum
Jagúar átti lokatónana á laugardaginn og hristi ærlega upp í áhorfendum
enda er aldrei nein lognmolla í kringum sveitina.
Edda kveður
sér hljóðs
- Hafnarhúsið breyttist í hljómleikahöll
Hin nýstofnaða tónlistardeild
Eddu blés til stórtónleika í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi á
laugardaginn. Þar stigu á stokk
ýmsir tónlistarmenn sem komnir
eru á mála hjá fyrirtækinu og
sýndu hvað í þeim býr. Listamenn-
imir sem komu fram voru rokk-
hljómsveitin Úlpa, Jóel Pálsson,
Rússíbanarnir og Jagúar og er því
óhætt að segja að talsverð fjöl-
breytni einkenni hina nýju útgáfu.
DV-MYNDIR EINAR J.
Úlpa á sviöinu
Rokkhljómsveitin Úlpa hefur vakiö
mikla athygli aö undanförnu fyrir
tónlist sína sem er í senn kröftug
og seiömagnandi.
Jóel í ham
Jóel Pálsson er í hópi þeirra lista-
manna sem Edda hefur tekiö upp
á arma sína.
Rússíbanarnir
Gleðisveitin Rússíbanarnir á auðvelt meö aö koma fóiki í gott skap meö
sérstakri tónlist sinni.
Jagger með nýja kærustu
Fyrirsætan Sophie Dahl, barna-
bam norska rithöfundarins Roalds
Dahls, er kærasta Micks Jaggers ef
marka má fullyrðingar breska slúð-
urblaðsins The Sun. Orðrómur hef-
ur verið á kreiki i rúmt ár um að
Mick Jagger og Sophie, sem er 24
ára, eigi í ástarsambandi þar sem
þau hafa oft sést koma út af hótel-
herbergi í London á morgnana.
Fullvíst þykir að skötuhjúin hafi
ekki verið að spila lönguvitleysu á
næturnar. Sophie hefur hins vegar
alltaf vísað orðróminum á bug.
Unnusti Sophie, leikarinn og leik-
stjórinn Griffln Dunne, er sagður
hafa vísaö Sophie á dyr úr flottri
íbúð þeirra í London vegna sam-
bands hennar við rokkarann gamla.
Hann mun hafa verið orðinn þreytt-
ur á umtalinu og gert sér grein fyr-
ir að eitthvað hlyti að liggja að baki
orðróminum. Sophie dvaldi í Paris
um síðustu helgi með Mick Jagger,
Sophie Dahl
Fyrirsætan hefur sýnt föt meö
dóttur Jaggers og eiginkonu.
að sögn Sun.
Mick Jagger er enn með sama
heimilisfang og fyrrverandi eigin-
kona hans, Jerry Hall, í Richmond í
London. Mick og Jerry koma enn
saman í veislur og á góðgerðarsam-
komur í London. Haft hefur verið
eftir Jerry að tími sé kominn til að
Jagger flytji endanlega að heiman
en þegar þau sjást saman opinber-
lega virðist fara ákaflega vel á með
þeim. Reyndar hefur Jerry sagt að
hún muni alltaf elska Mick þó hún
sé löngu hætt að vera ástfangin af
honum.
Sophie Dahl er vinsæl fyrirsæta
og hún hefur meðal annars sýnt föt
með dóttur Micks, Elizabeth, sem er
17 ára, og Jerry Hall. Mynd af
Sophie, þar sem hún liggur nakin á
flauelsábreiðu og auglýsir ilmvatn,
varð fræg þegar Frakkar bönnuðu
hapa. Frökkum fannst myndin of
djörf.
Ball í
Gúttó
eftir
Maju Árdal
Frumsýning
miðvikud. 11. apríl kl. 20.00
2. sýning
fimmtud. 1 2. apríl. kl. 20:00
Þýðing
Valgeir Skagfjörð,
Leikmynd og búningar
Helga Rún Pálsdóttir,
Ljósahönnun
Alfreð Sturla Böðvarsson,
Tónlistarstjórn
Valgeir Skagfjörð,
Dansar:
Jóhann Gunnar Arnarsson.
Leikarar:
Hinrik Hoe Haraldsson,
Saga Jónsdóttir,
Sigríður E. Friðriksdóttir,
Skúli Gautason,
Þóranna K. Jónsdóttir og
Þorsteinn Bachmann
Dansarar:
Aron Bergmann Magnússon,
Friðgeir Valdimarsson,
Guðjón Tryggvason,
HilmarMár Hálfdánarson,
ír Helgadóttir,
Katrín Rut Bessadóttir,
Rakel Þorleifsdóttir,
Sigursveinn Þór Magnússon,
Þórdís Steinarsdóttir,
Þórhildur Ólafsdóttir
T-veir tnisþftte
Á Akureyri
og á leikferð
Sniglaveislan
eftir:
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjórn:
Sigurður Sigurjónsson.
Sýningar í Iðnó
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Allt til alls
►I 550 5000