Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 13
13
MÁNUDAGUR 6. MAl 2002
DV
Menning
Að lifa eða ekki lifa
Aðeins átta ár eru síðan Sumargestir eftir
Gorkí voru síðast leiknir í Nemendaleikhúsinu í
eftirminnilegri uppsetningu Kjartans Ragnars-
sonar. En Guðjón Pedersen, leikstjóri nýrrar
uppsetningar Nemendaleikhússins, segir að
þetta sé gott verk fyrir upprennandi listamenn af
því hvað það spyr ágengra spuminga. Orðræða
leiksins ber svip af stað og stund þegar það var
samið, en spumingar um tilgang lifs og listar
falla ekki úr gildi.
n IIIIIIMWHIill i' >i"
Sennilega skiptir heldur engu máli hversu oft
maður sér þetta leikrit. Það er svo heppið að vera
nokkum veginn laust við söguþráð, en býður
upp á endalausa möguleika í persónusköpun,
sem ekki vom síður nýttir nú en fyrr, og textinn
er til að smjatta á. Þar eru dásamlegar setningar
- til dæmis að sönn ást sé eins og sólin á himn-
um, enginn viti hvað heldur henni uppi - og
dónaskapur eins og þegar talað er um Maríu
Lvovnu lækni sem „dömu á seinna vormisseri"!
Við erum í sumarbústaðalandi þar sem öllum
leiðist og allir þrá að vera annars staðar. Á Nýja
sviði Borgarleikhússins er breiddin notuð og
mikil ferð á fólki fram og til baka og út af þvi á
báðum endum. Gretar Reynisson sýnir miskunn-
arlaust hvað þetta fólk fer illa með umhverfi sitt,
hendir úrgangi hiröuleysislega rétt út fyrir stétt-
ina. Hins vegar er það sjálft vel til haft, og bún-
ingar vom glæsilegir og stílhreinir eins og vera
ber. Þetta rímaði hvort tveggja vel við yfírbragð
sýningarinnar sem var kalt og laust við þá fortíð-
arþrá sem einkennir venjulega „búningaleikrit".
Útskriftamemamir em ijónheppnir með gesta-
leikara sína fjóra. Ólafur Darri Ólafsson var
sterkur í hlutverki Sergeis Basofs málafærslu-
manns, bæði sem auðmjúkur ástarþræll og karl-
rembusvin. Segulstálið á sumargestina, Sjalímof
rithöfund, leikur Ellert A. Ingimundarson frá-
bærlega; þvílíkt skriðdýr sem opinberaði sig
undir elegant yfirborðinu! Sigurður Karlsson gaf
ríka frændanum Dvoétotsje einstaklega persónu-
legan og eftirminnilegan svip, og Bjöm Ingi
Hilmarsson var aumingjalegur Súslov verkfræð-
ingur.
Þau þrá öðruvísi líf
Brynja V. Gísladóttir sem María Lvovna og Gísli Pétur Hinríksson sem Dúdakof.
Unn'ur Ösp Stefánsdóttir er myndarleg í hlut-
verki Varvöm, hinnar óhamingjusömu og
ósnertanlegu konu Sergeis Basofs, en hún var of
stíf á frumsýningu til að ná utan um þessa marg-
slungnu persónu. Bróður Varvöm, Vlas, trúðinn
meðal sumargestanna, lék Ólafúr Egill Egilsson
og var líka nokkuð takmarkaður, náði þó að sýna
mun á ytri persónu og innri manni, einkum í
samskiptum við Maríu Lvovnu lækni sem
Brynja Valdís Gísladóttir lék af öryggi.
Systur Sergeis, skáldkonuna Kaleríu, lék Vig-
dís Hrefna Pálsdóttir af innileik og mýkt og varð
marktækt mótvægi við Sjalímof Ellerts. Tinna
Hrafhsdóttir var fögur, freistandi og glötuð í
hlutverki Júlíu, konu Súslovs. Tragíkómísku
hjónin Kíríl Dúdakof og Olgu konu hans léku
Gísli Pétur Hinriksson og Ambjörg Hlíf Valsdótt-
ir af dásamlega tvíræðri innlifun. Loks lék ívar
Öm Sverrisson lítið hlutverk Zamislofs ftúltrúa
og elskhugá Júlíu svo eftir var tekið.
Þetta er glimrandi skemmtileg sýning og væn-
legur hópur sem fer nú úr skjóh skólans út í
veruleika íslensks leikhúss, fólk sem hefur sýnt
að það getur gleymt sér í öðrum veruleika, er
óhrætt við svið og áhorfendur. Þeim er óskað
góös gengis á komandi árum.
Sifja Aðalsteinsdóttlr
Nemendaleikhús Listaháskóla íslands sýnlr í Borgar-
leikhúsinu: Sumargestir. Höfundur: Maxím Gorkí. Byggt
á leikgerð eftir Botho Strauss og Peter Stein. Þýðing:
Árni Bergmann. HIJ6Ö: Jakob Tryggvason. Lýsing: Lárus
Björnsson. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Leikmynd:
Gretar Reynisson. Lelkstjórn: Guöjón Pedersen.
Gagnrýnin frjáls
Það er leitt - að ekki sé sagt átakan-
legt - hvað alvörudagblöð heimsins
ganga illa um þessar mundir. í stað
blaða með unnar greinar sem hægt er
að leita í aftur og aftur, ítarlegar og
fróðlegar fréttaskýringar sem em svo
nauðsynleg viðbót við sibyiju ljósvaka-
fréttanna, gagnrýni um menningarvið-
burði og efhismikil viðtöl koma nú
víða um heim blöð kennd við neðan-
jarðarlestir sem dreift er ókeypis eins
og hagkaupsbæklingum og sem birta
fréttir og skoðanir í mýflugumynd.
Jafnvel hér þar sem engar lestir eru
kemur út blað af þessu tagi - oft fróð-
legt og skemmtilegt en umfram allt
fljótlesið og fljóthent.
RfJiDNBL'A'DEiTi
Umsjónarmaður menningarsíðu DV
hitti á dögunum kollega á stórblaði í
Svíþjóð sem gefið er út í 400.000 eintök-
um daglega en ber sig ekki vel samt.
Menningarritstjóri þess gat þess í
skemmtilegu samtali að það væri sér-
stakur missir að gagnrýni um bækur
og listviðburði í hinum nýju miðlum.
Rökin sem hann neftidi voru þau að
allir sem skrifuöu eða töluðu í fjöl-
miðla væru undir hæl þess að vera
„pólitískt réttsýnir" (ef það er viðun-
andi þýðing á „politically correct") -
nema þeir sem skrifuðu um menning-
armál. Þar mætti maður hafa skoðanir
og láta þær í Ijósi, burtséð frá því hver
eða hvaða hópur ætti í hlut. Um listina
gilda eigin lögmál. Þar þarf maður
fyrst og fremst að passa sig á að hafa
rök fyrir máli sínu, aðrir þurfa að
passa sig punktur!
Þetta stórblað birtir umsagnir um
valdar bækur, valdar leiksýningar og
valdar myndlistarsýningar, en íhugun-
areftii er að þar er aldrei fjallað um
tónlist. Engir tónleikar þykja svo
merkilegir að um þá sé skrifuð gagn-
rýni...
Opið kl. 8-18 alla virka daga.
án vsk. 32.039 kr.
með vsk. 39.888 lu.
i fylgir i kaupbæti ! j
KEW Hobby
Dynamic 7650 X-TRA
Háþrýstivél
án vsk. 10.352 kr.
með vsk. 12.888 kr.
KEW Hobby
Active 2000
án vsk. 8.745 kr.
með vsk. 10.888
WAP AERO 400
Ryk- og vatnssuga
5uh*. 4*4 9<?CC - fáju
-m w-mkíÆmM
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarháisi 2 • 110 Reykjavík
Simi 520 6666 Bréfasimi 520 6665 • sala@rv.is