Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 9
Fréttir
9
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002
DV
Afleiöingar af bágri stöðu blómabænda:
Getur sett að-
lögunarsamning-
inn í uppnám
- helmings samdráttur í paprikuframleiöslu
„Blómaframleiðendur standa
verst núna,“ sagði Magnús Ágústs-
son, garðyrkjuráðunautur hjá garð-
yrkjumiðstöð Garðyrkjuskóla ríkis-
ins, við DV. Hann kvaðst óttast að
sú bága staða sem væri hjá blóma-
bændum yrði til þess að þeir flykkt-
ust unnvörpum yfir í grænmetis-
framleiðslu. Ástæða þessarar stöðu
væri sú að þeir hefðu stööugt verið
að fá minna og minna fyrir fram-
leidda vöru. Samkeppni í heildsölu-
geiranum væri búin að vera mikil
og hörð. Magnús sagði að taka hefði
þurft þann möguleika til athugunar
að úrelda blómastöðvar til jafns við
garðyrkjustöðvar til að minnka fyr-
irsjáanlegan þrýsting á grænmetis-
markaðinn.
Eins og DV greindi frá í gær er
þungt hljóð í grænmetisbændum og
hafa þrettán sótt um heildarúreld-
ingu á stöðvum sínum. Þrjár græn-
metistegundir hafa verið fluttar inn
án tolla. Það eru paprika, gúrkur og
tómatar.
„Ég hef bent á að nú er kominn
aðskilnaður milli blómabænda og
grænmetisbænda, þannig að hinir
síðamefndu eru inni í aðlögunar-
samningnum frá því sl. vor um
verðmyndun garð- og gróðurhúsa-
afurða," sagði Magnús. „Ég óttast að
haldi staðan áfram að versna hjá
blómabændum fari þeir unnvörpum
yfir í grænmetið. Það opnast á bein-
greiðslur árið 2004. Ef stjómvöld
gera ekkert sé ég ekki annað en að-
lögunarsamningurinn sé í uppnámi.
Hann er til .tíu ára, með fastar upp-
hæðir í beingreiðslur. Ef kemur inn
aukið magn á lágu heildsöluverði
verða beingreiðslurnar alltaf lægri
og lægri á kfló. Blómabændur hafa
margir hverjir yfir að ráða mjög
góðum húsum og mikilli lýsingu.
Þeir hafa því tök á að fara beint yfir
í grænmetisframleiðslu. Þá koma
þeir inn í samkeppni við hefð-
bundna grænmetisframleiðendur."
Samkeppnin hörð
Hætt er við sú bága staöa sem
blómabændur búa nú við veröi til
þess aö þeir flykkist unnvörpum yfir
í framleiöslu grænmetis.
Magnús sagði að stöðugar breyt-
ingar væru á markaðnum. Búr ehf.
væri farið að flytja inn grænmeti og
það væri ekkert launungarmál að
flutt hefði verð inn 2. flokks paprika
í allt sumar sem hefði verið í sam-
keppni við 1. flokks íslenska
papriku. Það hefði farið mjög illa
með þá framleiðslu, enda væri fyrir-
sjáanleg fækkun framleiðenda í
þeim geira. Það væri einungis
vegna innflutningsms.
„Við síðustu samantekt sýnist
mér að það verði framleidd paprika
á 7-8 þúsund fermetrum sem er um
það bU helmings samdráttur frá því
í fyrra.“ -JSS
Súlnasal Hótel Sögu
sunnudaginn 8. des
kl. 15.30 -18.00
Fjölbreytt
skemmtiatriði
frábærra
skemmtikrafta:
Hljómsveitin Gleöigjafar: SöngvaramirAndréBachmannogHelgaMöller
Leikhópurinn Perlan: Leikstjóri Sigríður Eyþórsdóttir
Lúðrasveit Verkalýósins: StjórnandiTryggvi M. Baldvinsson
Skemmtikraftarnir: Jóki trúður, Jólasveinar, Ruth Regmalds,
Magnús Sigursson trúbador,
Bjarni Arason, Pétur pókus og Bjarni töframaður,
Móeiður Júniusdóttir, Strákarnir á Popp tívi.
Barnakór Kársnesskóia stjómandi Þórunn Björnsdóttir
Kynnir: Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri og skáld
Miðaverð: Aðeins kr. 500
Miðasala: Á skrifstofu Styrktarfélags vangefinna Skipholti 50c
& við innganginn í Súlnasai kl. 14,30
Sa‘l^:rti>|»okiir frá \óa- Síríiis fyrir liöriiiii
Þökkum þessum aðilum veittan stuöning
NÖI SÍRÍUS
íl>
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLAISLANDS
virtlegiBt til vinmtigí
Hotel Saaa við Hagatorg
SiS25 9930
Nýtur aðstoöar
Mwanaidi, fötluö stúlka sem býr í Dar
es Salaam, mun njóta aöstoöar
tombólukrakka Rauöa kross íslands.
Tombólubörn
stóðu sig vel
Tombóluböm Rauða krossins
sýndu svo sannarlega hvaö i þeim
býr á þessu ári því þau hafa safnað
rúmlega hálfri milljón króna til
hjálparstarfs það sem af er þessu
ári. Féð rennur allt til að aðstoða
munaðarlaus og fotluð böm í Dar es
Salaam í Tansaníu. í þakklætisskyni
fyrir framistöðuna hefur Laugarásbíó
boðið tombólukrökkum Rauða krossins
á kvikmyndina „Pétur og kötturinn 2“
næstkomandi sunnudag.
Þór Daníelsson, sendifulltrúi Rauða
kross Islands í Tansaníu, heimsótti ný-
lega bömin sem ætlunin er aö hjálpa.
„Sum bamanna em munaðarlaus en
önnur fótluð. Þau em í athvörfum þar
sem þau fá mat og húsaskjól. Eldri
krakkamir geta unnið fyrir sér, til
dæmis með saumaskap, og þess vegna
ætlum við að kaupa saumavélar fyrir
þá.“ segir Þór.
Til viðbótar framlagi tombólukrakka
leggst fé sem böm á leikskólanum Norð-
urbergi í Hafiiarfirði söfnuðu við þá
upphæð sem notuð er til aö aðstoða
bömin í Dar es Salaam. -aþ
CORSA
\ sy VC ggZg:}:
Farðu úr bænum á góðum bíl frá Avis - Helgarbíllinn þinn
Hringdu i Avis sími 5914000
Knarrarvogur 2 - 104 Reykjavik - www.avis.is
Við qerum betur
ISLAND-SÆK)