Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 18
18
Menning
Afmæli meistarasmíðar
í dag eru nákvæmlega tíu ár síðan Klais-orgel Hallgrímskirkju var vígt
/ dag, 13. desember, eru 10 ár frá
vígslu stóra og glœsilega pípuorgelsins
í Hallgrímskirkju. Það er langstœrsta
hljóðfœri landsins, 15 metra hátt og 25
tonn að þyngd. Þaó státar af 72 rödd-
um sem skiptast á fjögur hljómboró og
fótspil. Orgelpípurnar eru alls 5275
talsins! Listvinafélag kirkjunnar
stendur fyrir afmœlishátíó dagana
14.-16. desember með þrennum org-
eltónleikum og hátíóarmessu þar sem
orgelió veróur í heiöurssœti.
Þetta mikla orgel, sem var byggt af
Klais-orgelsmiðjunni i Bonn 1 Þýska-
landi, hefur sett mikinn svip á tónlist-
arlíf Reykjavíkurborgar siðasta ára-
tug. Það hefur hljómað á ótal tónleik-
um íslenskra og erlendra organista,
þjónar veigamiklu hlutverki við
helgihald í Hallgrímskirkju og hróður
þess hefur borist víða. Það gerði flutn-
ing á stórum verkum fyrir orgel og
hljómsveit mögulegan á íslandi.
Þannig lék Björn Steinar Sólbergsson
hinn fræga orgelkonsert Jóns Leifs
ásamt Sinfóníuhijómsveit Islands í
Hallgrímskirkju um árið og þar var
konsertinn einnig hljóðritaður af
sænska útgáfufyrirtækinu BIS. Eftir-
minnilegur er líka flutningur á org-
elsinfóníunni eftir Saint-Saéns, þar
sem nútímatækni gerði Herði Áskels-
syni kleift að spila á orgelið í Hall-
grímskirkju i fuilkomnum samhljómi
við hljóðfæraleikara Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, sem sátu i Háskólabíói
ásamt fullu húsi tónleikagesta, sem
fylgdust með Herði á hvíta tjaldinu!
Draumur sem rættist
Þetta er sannkallað afmælisár í
Hallgrímskirkju því bæði Mótettukór-
inn og Listvinafélagið eru tvítug í ár.
Þetta kemur einfaldlega til af þvi að
20 ár eru liðin síðan Hörður Áskels-
son kom til starfa hjá kirkjunni sem
organisti með sína fersku vinda sunn-
an úr álfu.
„Hann vildi auðvitað hafa meira
umleikis en hefðbundna messutón-
list,“ segir Kristján Valur Ingólfsson,
formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju
DV-MYND ÞÖK
Hið glæsilega Klais-orgel Hallgrímskirkju
Innvígðir kalla þaö ástúölega „ Stóra-Kláus“ enda veröa öll önnur
orgel landsins sannkallaöir litlu-kláusar viö hliöina á því.
„þess
vegna var félagið sett á fót sem eins konar
stuðningshópur við hugmyndir hans. Fyrsti
formaður þess var Sigurbjörn Einarsson bisk-
up en Hörður hefur sjálfur verið framkvæmda-
stjóri öll þessi ár.“
- Var þá strax farið að huga að stóru orgeli í
kirkjuna?
„Já, það var strax draumurinn að kirkjan
eignaðist viðeigandi hljóðfæri. Mönnum þótti
rétt að ísland eignaðist eitt orgel á heimsmæli-
kvarða. Sá draumur rættist fyrir tíu árum.“
Dagskrá hátíðarinnar
Eins og sjá má í ramma hér til hliðar hefst
afmælishátíðin með samkomu í safnaðarsal
Hallgrímskirkju á morgun kl. 14 þar sem Phil-
ippe Klais, forstjóri Klaisorgelsmiðjunnar, og
fleiri flytja ávörp. Sýnd verður heimildamynd
um hönnun og uppsetningu orgelsins og notið
veitinga. Kl. 17 verða svo allsérstæð-
ir tónleikar í kirkjunni þar sem
Hans-Dieter Möller frá Dússeldorf í
Þýskalandi og Hörður Áskelsson,
organisti Haligrimskirkju, kynna
orgelið með íjölbreyttum tóndæmum
og leika af fingrum fram. Orgelverk-
ið Innsigli eftir Þorkel Sigurbjöms-
son verður frumflutt en það var
samið í tilefni af afmælinu. I lok tón-
leikanna verður flutt dansverkið
Steeples (Klukkuturnar) eftir enska
danshöfundinn Peter Anderson sem
var samið fyrir Listráð Langholts-
kirkju og frumflutt í Langholts-
kirkju i október. Verkið er samið viö
Passacagliu í c-moll fyrir orgel eftir
Johann Sebastian Bach og verður
flutt af höfundinum ásamt þremur
öðrum dönsurum; við orgelið verður
Höröur Áskelsson.
Hátíðin heldur áfram á sunnudag-
inn. Kl. 11 verður hátíðarmessa þar
sem sérstök áhersla verður lögð á
margþætta notkunarmöguleika org-
elsins í helgihaldinu. Kl. 20 leikur
Möller á orgeltónleikum verk, m.a.
eftir Bach, Toumemiere og sjálfan
sig. Hann er i hópi virtustu orgel-
leikara Þýskalands.
Á mánudagskvöldið kl. 20 kemur
síðan fram margverðlaunaður ungur
orgelleikari frá Þýskalandi, Christi-
an Schmitt, sem leikur fjölbreytta
efnisskrá, m.a. með verkum eftir
Bach, Reger og Messiaen. Þessir tón-
leikar eru haldnir að frumkvæði
Þýska sendiráðsins og eru framlag
þess til afmælishátíðar hins þýska
Klais-orgels.
rgel Hallgrímskirkju 10 ára
*ur 14.12.
: Hátíðarsamkoma og afmæliskaffi.
: Tónadans. Hans-Dieter Möller frá
Idorf og Höröur Áskelsson, kantor Hall-
grimsKirkju, kynna hljóðheim orgelsins meö
fjölbreyttum tóndæmum. Ókeypis aðgangur.
Sunnudagur 15.12.
11.00: Orgelmessa. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sig-
urði Pálssyni. Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur. Organistar: Höröur Áskelsson og
Hans-Dieter Möller.
20.00: Orgeltónleikar. Hans-Dieter Möller. Að-
gangur 1500 kr.
Mánudagur 16.12.
20.00: Christian Schmitt frá Þýskalandi. Að-
gangur 1500 kr.
Bókmenntir
Ekkert stöðvar hugmynd
Andri Snær Magnason
Ástarstjarnan skín enn yfir Hraundranga en nú í
Nema persónur eins og Sigríður og Indriði sem
halda fast í ást sína eins og í Pilti og stúlku forð-
um og lenda af þeim sökum í ómældum hremm-
ingum!
I upphafi trúir LoveStar á hugmyndir sínar
sem á teikniborðinu virðast alsaklausar og miðast
fýrst og síðast við að afmá landamæri og þar með
ósætti og stríð. En inn í „saklausa" hugmynda-
fræði LoveStar læða sér laumufarþegar sem setja
strik í reikninginn og raska jafnvægi hins „full-
komna“ heims. Þá renna tvær grímur á LoveStar
sem þekkir af eigin raun að ekkert fær stöðvað
hugmynd, hversu geggjuð sem hún er.
Lovestar er nokkurs
konar fullorðinsútgáfa af
bamabókinni Bláa hnett-
inum sem kom út árið
1999.1 báðum bókunum er
veröldin í hættu sökum
græðgi og valdasýki og
sjónum beint að neyslu-
samfélaginu sem gleypir
börnin sín ef ekki er að
gáð. Báðar eru þrungnar
samfélagsádeilu sem kæfir
þó ekki lesandann vegna
þess að textinn er svo
frumlegur og skenimtileg-
ur. í LoveStar hnykkir
höfundur eftirminnilega á
dv-mynd þok ýmsum hugmyndum úr
omo„; _____, Bláa hnettinum en bætir
° J við nyjum sem hann
laumar í umbúðir tákna
og vísana í ævintýri, hrollvekjur, vísindaskáid-
sögur, dæmisögur og ástarsögur. Slík úrvinnsla er
vandmeðfarin en Andri Snær nær að vinna
þannig úr efniviði sínum að sagan stendur á
traustum grunni fi-á upphafi til enda. Frásögnin
er fjörug og fyndin en einníg skelfiieg og vekur
lesandann til sterkrar umhugsunar um það sem
mestu máli skiptir í lífmu, þ.e. kærleikann og feg-
urð náttúrunnar sem enn kristaliast i ástar-
stjömu yfir Hraundranga.
Sigriður Albertsdöttir
Andrl Snær Magnason: LoveStar. Mál og menning 2002.
Ástarstjörnu
yfir Hraundranga
skýla nœturský.
Þannig hljóma upphafsorðin í
einu ffægasta ástarkvæði sem
ort hefur verið á íslenska tungu,
Ferðalokum eftir Jónas Hall-
grímsson. Ljóðið er þrungið feg-
urð og kyrrð náttúrunnar og trúnni á ástina sem
er eilíf og ekkert fær bugað þrátt fyrir sorg og að-
skilnað. Út af þessu fallega kvæði leggur Andri
Snær Magnason m.a. í nýjustu skáldsögu sinni,
LoveStar.
Aðaipersóna bókarinnar er LoveStar sem hlut-
gerir sjálfan sig í ástarstjömu framtíðarinnar sem
skín enn yfir Hraundranga en nú í annarri og
breyttri mynd. í nútímanum skín hún tæknivædd
og blikkandi yfir skemmtigarði sem reistur hefur
verið í Öxnadal en þar hefur LoveStar komið á fót
heilmiklum ferðamannaiðnaði. Hugmyndaauðgi
hans hertekur ekki aðeins Öxnadal heldur allan
heiminn því á örfáum áratugum tekst honum að
byggja upp alþjóðafyrirtæki sem hefur lif fólks og
örlög í greipum sér. Hjá honum vinnur her manns
sem með fjarstýringu stjórnar löngunum, þrám,
smekk og tilfinningum, skipuleggur ástarlíf fólks
og markaðssetur dauðann. Með aðstoð tækninnar
nær LoveStar að heOaþvo þorra manna sem verða
fómarlömb markaðshyggjunnar og treysta fremur
á tölfræðilegar staðreyndir en eigin skynsemi og
tilfinningar. Yfir hverjum einstaklingi vakir hið
alsjáandi auga LoveStar og smátt og smátt gleym-
ir fólk að einu sinni hafði það sjálfstæðan vilja.
I ,o\ i S J.\k*
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
_________________________X>'V
Umsjón: SiEja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
Ungir einleikarar
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
verða á sunnudaginn kl. 17 í Áskirkju. Þar
verða leikin verk eftir Georg Fr. Handel, Ant-
onio Vivaldi og Josef Haydn. Að venju býður
Kammersveitin ungum og efnilegum hljóð-
færaleikurum að koma fram sem einleikarar
og að þessu sinni eru þeir fjórir: Stefán Ragn-
ar Höskuldsson, flauta, Hrafnkell Orri Egiis-
son, selló, Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló,
og Stefán Jón Bemharðsson, horn. Þeir hafa
allir nýlega lokið framhaldsnámi erlendis.
Litla lirfan ljóta
Nú geta aðdáendur teikni-
myndar Gunnars Karlssonar
um Litlu lirfuna ljótu líka les-
ið söguna um hana því hún er
komin út í bók. Sagan er eftir
Friðrik Erlingsson sem líka
skrifaði Benjamín dúfu og
fleiri bækur. CAOZ hf. gefur bókina út og
Bjartur dreifir henni.
Teiknimyndin um lirfuna litlu hefur vakið
mikla hrifningu hér heima og erlendis og
hlotið verðlaun og viðurkenningar, nú síðast
tvenn Eddu-verðlaun. Myndin er líka komin
út á DVD-diski þar sem einnig er skemmti-
legur pödduleikur og ýmsar upplýsingar um
gerð myndarinnar.
Jólasveinninn og
töfratrumban
Finnska teiknimyndin Jólasveinninn og
töfratrumban frá 1996 verður sýnd í Norræna
húsinu á sunnudaginn kl. 14. Frítt er inn.
Myndin er gerð eftir vinsælum jólasveina-
teikningum og sögum Mauri Kunnas. Leik-
stjóri er Pekka Lehtosaari.
í Jólaþorpinu er allt á fullu við undirbún-
inginn fyrir aðfangadagskvöld en þó er ekki
alit með feUdu. Hver slökkti á norðurljósun-
um? Hvers vegna er vírus í tölvunni einmitt
þegar jólasveinninn er að finna lausn á
vandasamri gjöf? Einhver er að stríða jóla-
sveininum! Hvers vegna í ósköpunum?
Ævisaga Tolkiens
Nú þegar Hringadróttins-
saga leggur heiminn að fótum
sér er vel til fundið hjá PP for-
lagi að gefa út ævisögu höf-
undar hennar, J.R.R. Tolki-
ens. Þetta er splunkuný bók,
kom út fyrir ári á frummál-
inu, og höfundur hennar,
Michael White, er vfðkunnur
ævisagnaritari. Hann hefur sjálfur verið ein-
lægur aðdáandi Tolkiens frá unglingsárum
eins og hann lýsir í inngangi bókar sinnar.
White fjallar um einkalif Tolkiens,
bemskuárin í S-Afríku og uppvaxtarárin í
Englandi, ástir hans, þátttöku hans í fyrri
heimsstyrjöldinni, háskólalífið í Oxford, vin-
áttu hans og barnabókahöfundarins C.S.
Lewis, gegndarlausan áhuga hans á fomum
kvæðum og sögum, þar á meðal norrænni
goðafræði, eddukvæðum og íslendingasög-
um, baráttu hans fyrir því að koma bókum
sínum út og viðbrögð hans við frægðinni.
Ágúst Borgþór Sverrisson þýddi bókina.
Lífsorka
Þórir S. Guðbergsson, fé-
lagsráðgjafi, kennari og rit-
höfundur, hefur gefið út
bókina Lífsorku, um lífsstíl.
heilsu og samskipti fólks.
Einkum talar hann þar til
þeirra sem nálgast starfslók
og bendir á leiðir til að
rækta huga og hönd og
horfa glaður til framtíðar.
í bókinni er fjallaö um réttindi fólks, hlut-
verk lífeyrissjóða, bætur almannatrygginga,
félagasamtök og félagsþjónustu, áfóll og sorg.
Þórir leggur áherslu á gildi hreyfmgar og
réttrar næringar og nauðsyn þess að eiga sér
holl áhugamál.
Lífsorka er bók fyrir þá sem hafa áhuga á
sjálfum sér í bráð og lengd. Hugsmiðjan gef-
ur út.
Bókahappdrættið
Dregið hefur verið í happdrætti Bókatíð-
inda fyrir 13. des. nr.: 80.070.
Sjá meira menningarefiii á bls. 22