Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 22
22
bttp-J/simntt. is/homedecorl928/
Skoðið heimasíðuna
okkar og kikið á tilboðin
Erutn að taha
upp ttýjar
jólavörur.
Bjóðutn áfratn
jólaafsláttinn!
jl horni Laugavegar og Klapparstigs
Menning
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
DV
Kynni af drekum
Benedikt búálf-
ur er mættur í
íjórða sinn og
lendir í miMum
ævintýrum að
venju. Að þessu
sinni fer Bene-
dikt með Arnar
Þór, litla bróður
Dídíar (sem les-
endur þekkja úr fyrri bókum um
kappann), til Álfheima. Þegar þang-
að er komið heimsækja þeir hinn
geðþekka Daða dreka sem er ósköp
hnugginn. Hann þarf nefniiega að
fara í afmæli Vigdísar drekadrottn-
ingar og sanna að hann sé dreki
með því að borða kjöt. Daði hefur
verið mörg ár í útlegð því að hann
er grænn á lit og borðar ekki kjöt.
Benedikt reynist honum sannur
vinur og fer með sem málsvari
Daða. Og þá fylgir Amar Þór lika en
það er ekkert gamanmál fyrir lítinn
snáða að heimsækja Gjána óhugn-
anlegu þar sem drekarnir búa.
í hverri sögu um Benedikt búálf
má segja að lesendur kynnist liýjum
kima Alfheima. 1 síðustu sögu var
Andinn í Miklaskógi í aðalhlutverki
en nú er komið að drekasamfélag-
inu. Heimsmynd bókanna heldur at-
hygli og lesandi er alltaf dálítið
spenntur að fá að vita meira um Álf-
heima og kynnast nýjum verum og
svæðum. Að þessu leyti er bóka-
flokkurinn um Benedikt búálf ansi
vel heppnaður.
Að þessu sinni er sögð nokkurs
konar þroskasaga; Daði dreki þarf
að glíma við sjálfsmynd sína sem
dreki. Helst af öllu vill hann sleppa
því að fara, „vera bara héma þar
Daði hittir Vigdísi drekadrottningu
Ein afmyndum Ólafs Gunnars viö bók sína.
í
■J
Áriö sem senn er á enda er ár
fjallsins og DV-jólasveinninn
því forvitinn um heiti fjalla vítt
og breitt um landið. Hann er
ekki alveg viss hvaö fjöllin heita
þannig að hann ætlar að biðja
ykkur að hjálpa sér.
Til að auðvelda ykkur þrautina
gefum við þrjá svarmöguleika.
Ef þið vitið svarið krossið þið
við nafnið á hlutnum, klippið
seðlana út úr blaðinu og geymið
þá á vísum stað. Safnið saman
öllum tíu hlutum getraunarinnar en þeir birtast einn af öðrum fram að jólum.
Munið að senda ekki inn lausnirnar fyrr en allar þrautirnar hafa birst.
Jóiagetraun^
Hvað heitir fjallið sem jólasveimim er að skoða?
Vinningar fimm til tíu eru bækur frá Eddu - útgáfu hf. Tilhugalíf- Jón Baldvin,
Röddin - Amaldur Indriðason, Nafnlausir vegir - Einar Már Guðmundsson, Leiðin
til Rómar - Pétur Gunnarsson, Líf í skáldskap / Halldór Laxness - Ólafur Ragnarsson,
LoveStar - Andri Snær Magnason, í upphafi var morðið - Árni Þórarinsson og
PáU Kristinn Pálsson, Stolið frá höfundi stafrófsins - Davíð Oddsson, Flateyjargáta
- Viktor Ingólfsson, KK Þangað sem vindurinn blæs - Einar Kárason.
Jólagetraun l> §.
□ Hlöðufell □ Felluðlöh □ Öullhlöð
Nafn:__________________________________
Heimilisfang:__________________________
Staður:________________________________
Sími:__________________________________
i_____________
Sendist til: DV, Skaftahtíö 24,105 Reykjavík
Merkt: Jólagetraun DV
sem mér líður vel og nóg er að éta“
(10). Hann er jafnvel reiðubúinn að
sætta sig við ævilanga útlegð frá
drekasamfélaginu vegna þess að
hann vill forðast vandræði og alls
ekki borða kjöt, ekki einu sinni í
þetta eina skipti. En eins og traustir
vinir eiga að gera leyfir Benedikt
búálfur honum ekki að komast upp
með þetta heldur kemur hann með
Daða til að hjálpa honum að standa á
sínu: Maður getur verið öðruvísi og
ekki borðað kjöt en samt verið dreki.
Þroskasaga Daða dreka fléttast
svo saman við mikinn hasar í af-
mæli drekadrottningarinnar (sem
virðist vera eini kvenkyns drekinn
á svæðinu) þar sem lesendur kynn-
ast ólíkum tegundum dreka. En eft-
ir mikla spennu og mikla bardaga
fer auðvitað allt vel að lokum.
Auðvitað kemur ekki margt á
óvart í framhaldsbók sem þessari en
sagan og myndirnar eru prýðileg
eins og búast má við frá Ólafi Gunn-
ari Guðlaugssyni. Aðdáendur Bene-
dikts búálfs eiga eftir að verða
hæstánægðir með þessa sögu.
Katrín Jakobsdóttir
Ólafur Gunnar Guðlaugsson: Benedikt
búálfur. Drekasögur. Mál og menning 2002.
Hljómdiskar
Grípandi línur
Á geisladiski, sem ber nafnið
Rautt silkiband og er með Hólm-
friði Jóhannesdóttur söngkonu,
eru lög eftir óþekkt tónskáld,
Hreiðar Inga Þorsteinsson. Lögin
eru öll við ljóð eftir Nínu Björk
Ámadóttur og þau eru falleg, lag-
línurnar eru grípandi og and-
rúmsloft ljóðanna auðfundið i tón-
listinni. Greinilegt er að Hreiðar
Ingi, sem lauk nýverið tónmennta-
kennaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavik, er afar efnilegt
tónskáld og verður spennandi að
fylgjast með honmn, sérstaklega ef
hann aflar sér aukinnar menntun-
ar í tónsmíðum. Hann skortir
a.m.k. ekki hæfileika.
Flutningurinn á lögunum er
önnur saga, Hólmfríður hefur
góða rödd og ágæta tónlistargáfu
en greinilega ekki mikla reynslu
sem söngkona. Túlkunin er oftar
en ekki lítt mótuð, sumt er óþarf-
lega flatt og skortir nauðsynleg til-
þrif og er útkoman i heild fremur
viðvaningsleg.
Auk Hreiðars Inga á Girnnar
Reynir Sveinsson lög á diskinum,
þar af sex við )jóð Steins Stein-
arrs. Lára Rafhsdóttir píanóleik-
ari leikur með Hólmfríði í lögum
Gunuars Reynis og gerir það fag-
mannlega og af öryggi en Hreiðar
Ingi spilar imdir sín lög. Erfitt er
að meta leik hans því upptaka
Ólafs Elíassonar er alveg ómögu-
leg, söngkonan er alltof nálægt
eins og hún hafi hljóðnemann
milli tannanna en píanóið lengst í
burtu eins og það hafi verið ofan í
sundlaug. Upptakan á lögum
Gunnars Reynis er skárri en samt
ekki góð og kemur þetta verulega
á óvart, þvi aðrir geisladiskar sem
ég hef heyrt þar sem Ólafur hefur
verið upptökustjóri hafa verið
mjög vandaðir. í stuttu máli sagt:
Vonbrigði, þrátt fyrir skemmtileg
lög og góðan píanóleik Láru.
Jónas Sen
Rautt silkiband. Hólmfríöur Jóhannes-
dóttir, söngur. Hreiðar Ingi Þorsteinsson,
píanó. Lára S. Rafnsdóttir, píanó. Skífan
2002.